Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1971, Side 40

Frjáls verslun - 01.10.1971, Side 40
Hafnarmál 2-3 milljarðar í 60 höfnum, árlegar framkvæmdir sem svara einu togaraverði Breyttar forsendur hafnarqerðar, rekstur hafna kominn ■ ógöngur, nefndir athuga nýjar leiðir íslendingar eru um þetta leyti að ná þeim áfanga í efna- hagslegri uppbyggingu, að hafnargerð ræður ekki lengur úrslitum um afkomu, líf eða dauða, heilla byggðarlaga eða sveitarfélaga. Þetta þýðir, að víðast skiptir það ekki iengur máli, hvort æskilegar hafnar- framkvæmdir hefjast árinu fyrr eða síðar. Nokkrar undan- tekningar má þó enn finna við strendur landsins, í Borgarfirði evstra og á Eyrarbakka og Stokkseyri. Hins vegar jafn- gildir þetta ekki því, að verk- efni í hafnarmálum séu ekki nægileg framundan. Verkefni í hafnarmálum kalla alls staðar á, hafnarbætur vegna breyttra útgerðarhátta, endurbætur, stækkanir og viðgerðir. FJÁRMÖGNUN AÐALVANDINN En nú blasir nýtt vandamál við stjórnendum hafnarmála. Allar götur síðan hafnarlög voru fyrst sett árið 1946 hafa sveitarstjórnir og hafnarstjórn- ir óspart notað lántökuheimild- ir vegna hafnargerða með þeim afleiðingum, að fjölmörg sveit- arféiög og hafnarsjóðir rísa nú ekki lengur undir frekari lán- tökum og þar með kostnaði við nauðsynlegar hafnarbætur. Sérstök nefnd, skipuð fyrir síðustu alþingiskosningar, mun taka til endurskoðunar hafnar- lögin með sérstöku tilliti til fjármögnunar á hafnarfram- kvæmdum, og nefnd frá sam- tökum hafnarstjórna hefur haft gjaldskrá hafna til athugunar að undanförnu, með endurskoð- un hafnargjalda að höfuðmark- miði. 60 HAFNIR í 5 FLOKKUM Hafnir, sem unnt er að nefna því nafni, eru taldar vera um 60 talsins. Áætlað heildarverð- mæti þeirra er 2-3 milljarðar Framkvcemdir við landshöfnina í Njarðvík. Eyrarbakkahötn 1971. 40 FV 10 1971

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.