Frjáls verslun - 01.12.1981, Page 58
Efnahagsaðgerðir ríkisstjórnar
Reagans Bandaríkjaforseta hafa
vakið mikla athygli. Er ekki úr vegi
að rekja þær, hugmyndafræði
þeirra og líklega áhrif. Sérstak-
lega er athyglisvert að tekjuskatt-
ur skuli nú lækkaður verulega í
landi, þar sem skattar eru miklum
mun lægri að jafnaði en á
Norðurlöndum og ýmsum öðrum
háskattarrkjum Evrópu.
Aðgerðir og til-
ætluð áhrif þeirra
Ekki er ástæða til að fjalla um allt
það sem Reagan ætlar sér en
aðalatriði efnahagsaðgerðanna
eru þessi:
1. 25% lækkun skatta á þremur
árum af viðbótartekjum hjá al-
menningi og auknar afskriftir
hjá fyrirtækjum.
2. Verulegur samdráttur í ríkisbú-
skapnum.
3. Samdráttur peningamagns í
áföngum.
4. Afnám ýmis konar opinberra
hafta í lögum og reglugerðum.
Aögerðirnar eru frábrugðnar
venjulegum ráðstöfunum stjórn-
valda að því leyti að um sókn en
ekki vörn er að ræða og aðal-
áherslan er á áhrif til langs tíma. I
Bandaríkjunum er vitnað til stjórn-
artíðar Kennedys forseta í þessu
sambandi.
Tilætluð áhrif aðgerðanna eru
þessi samkvæmt rökstuðningi for- vinnutækifæri, meiri framleiðsla,
setans og ráðgjafa hans: fleiri at- aukning ráðstöfunartekna, spari-
Guðmundur Magnússon, háskólarektor skrifar
Aukin framleiðsla eða
verðbólga?
— Efnahagsaðgerðir í Bandaríkjunum
LENT
58