Frjáls verslun - 01.12.1981, Blaðsíða 65
Aðstoð, aðhald
agi á vinnustað
Gáfur og reynsla eru
sennilega þeir eiginleikar
sem flestir stjórnendur
meta mest hjá fólkinu
sem hjálpar þeim að reka
fyrirtækið. Rannsóknir
sem nýlega voru gerðar
benda þó til þess að
samskipti starfsmanna
og stjórnenda ráða miklu
um það hvort þessir eig-
inleikar nýtast sem
skyldi.
Niðurstaöa bandarískra sál-
fræðinga, sem tóku þetta rann-
sóknarefni fyrir, er sú að það leiðir
ekki af sjálfu sér að vel greindir
starfsmenn með haldgóða
reynslu skili mestum vinnuafköst-
um. Stress á vinnustað — og þá
einkum streita í samskiþtum við-
komandi starfsmanna við yfir-
manninn — er það sem banda-
rísku sálfræðingarnir leggja til
grundvallar í svari við spurning-
unni um það hvort stjórnendum
nýtist vel greind starfsmannsins
eða reynsla hans. Þetta skýra þeir
nánar þannig:
1) Ef streita er í samskiptum
deildarstjóra við yfirboðarann, er
afleiðingin yfirleitt sú að í dagleg-
um störfum leitast þeir við að
byggja á reynslu sinni fremur en
gáfum.
2) Ef léttara er yfir samskiptum
deildarstjóranna við yfirboðarann,
nýta þeir betur gáfur sínar en
reynslu í daglegum störfum.
Þessar niöurstöður eru athygl-
isverðar og ráðlegt fyrir stjórn-
endur að gefa þeim gaum, því
mikið er í húfi. Yfirleitt virðist af-
farasælast að skipuleggja starf-
semina þannig að umsjón með
starfi þess sem vinnur að skaþandi
verki sé í höndum lipurmennis, en
þeir sem hafa með höndum hin al-
mennari rútínustörf lúti stjórn
kröfuharðari einstaklinga.
Þetta er þó einföldum á málum
sem í reynd eru oft flóknari. Engu
að síður gerðu stjórnendur vel að
íhuga þessi mál frá eigin sjónarhóli.
Þeim til leiðbeiningar um það hve-
nær beita þarf starfsmenn meiri
þrýstingi og hvenær ber að slaka á
taumunum — er eftirfarandi:
Dagleg störf krefjast meira að-
halds
Hér eru nokkur dæmi um það
hvenær meira en venjulegs að-
halds og þrýstings er þörf:
1) Þegar starfsmaðurinn vinnur
að verkefni sem hann þekkir vel.
2) Þegar starfsmaðurinn getur
bætt við sig fleiri verkefnum svip-
uðum þeim og hann nú gegnir.
3) Þegar starfsmaðurinn þarf
að kynnast til hlítar einhverju
ákveðnu starfi eða rútínu, t.d.
starfi sem varðar öryggi og örygg-
isreglur.
4) Þegar starfsmaðurinn hefur
víðtækari reynslu en núverandi
starf hans útheimtir og gæti tekið
6S