Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1998, Síða 23

Frjáls verslun - 01.02.1998, Síða 23
FORSÍÐUGREIN BENEDIKT SVEINSSON, SJÓVÁ-ALMENNUM Benedikt Sveinsson, stjórnarformaður Sjóvá-Almennra, 59 ára, er af sumum talinn jafn áhrifamikill í viðskiptalífinu og Hörður Sigurgestsson. Benedikt er lögiræðingur að mennt. Hann hefur valið að láta litið á sér bera í íjölmiðlum og hefur tekist það, jafnvel þótt hann hafi verið forseti bæjarstjórnar í Garðabæ um árabil. Sjóvá-Almennar eru stærsti hluthafinn í Eimskip. Benedikt situr meðal annars í stjórn Eimskips, Flugleiða, SR-mjöls, Marels og Granda. Mikil athafnasemi einkennir Benedikt- og hann beitir sér í málum. Hann er stjórnarformað- ur SR-mjöls. Oskað var eftir því við hann að hann veitti hópi 177 fjárfesta forystu um kaup á fyr- irtækinu af rikinu árið 1993. En helstu ijárfestar í hópnum voru lífeyrissjóðir, Eignarhaldsfélag Alþýðubankans og Sjóvá-Almennar. Benedikt er stjórnarformaður Marels en fyrirtækið keyptí danska fyrirtækið Carnitech á síðasta ári. Þá má geta þess Sjóvá-Almennar og Eimskip eiga í Is- landsbanka. Ohætt er að segja að síðasta ár hafi verið ánægjulegt fýrir Benedikt; Islandsbanki, Marel, SR- mjöl og Sjóvá-Almennar voru í hópi þeirra fýrirtækja á Verðbréfaþingi og Opna tilboðsmarkaðn- um sem skiluðu hluthöfum sínum bestri ávöxtun. GEIR MAGNÚSSON, ESSO Geir Magnússon, forstjóri Olíufélagsins hf., ESSO, 56 ára, tók við því starfi árið 1991. Hann var áður bankastjóri Samvinnubanka Islands. Geir er með verslunarpróf úr Samvinnuskólanum. An nokkurs vafa er Geir annar tveggja aðalforingja Sambandsfyrirtækjanna - ásamt Axel Gísla- syni. Þeir eru sagðir helstu hugmyndafræðingar þessa arms viðskiptalífsins og vinna náið sam- an. ESSO á hluti í öðrum fýrirtækjum fyrir um 2,5 milljarða og veitír sú eign félaginu mikil völd og áhrif. Geir hefur haldið vel um stjórnartaumana í ESSO. Hann hefur komið við sögu í tveim- ur stórfjárfestingum á olíumarkaðnum á síðustu árum. Hann var einn helsti maðurinn á bak við það þegar Olíufélagið keypti 32% hlut í sjálfu sér árið 1992 - af Landsbankanum. Þarna var í raun um hlut Sambandsins í ESSO að ræða en bankinn hafði eignast hann í hremmingum Sambandsins. Olíufélagið seldi þennan hlut ekki aftur heldur var hlutafé í fé- laginu fært niður sem honum nam. Stóra „skúbb” ESSO - og Geirs Magnússonar - var hins vegar þegar félagið keypti um 35% hlut í Olís af Gunnþórunni Jónsdóttur, ekkju Ola heitins í Olís. Geir Magnússon situr meðal annars í stjórn VÍS, Samvinnusjóðs íslands, Samskipa og Vinnslustöðvarinnar. ESSO á t.d. í VÍS, Olís, Básafelli á ísafirði, Samvinnusjóði íslands, Vinnslu- stöðinni í Vestmannaeyjum, VIS og Fiskiðju Skagfirðinga. AXEL GÍSLASON, VÍS Axel Gíslason, forstjóri VIS, 52 ára, er annar tveggja helstu foringja svokallaðra Sambands- fyrirtækja á markaðnum - hinn er Geir Magnússon, forstjóri ESSO. Axel er verldræðingur að mennt. VÍS er stærsta tryggingafélag landsins - með mikið fjárstreymi og gilda sjóði. VÍS er stór hluthafi í ESSO og Samvinnusjóði Islands. Sterk eignatengsl einkenna raunar Sambandsfýrir- tækin svonefndu - þau eiga í hvert öðru. Axel hóf störf hjá Sambandinu árið 1972. Hann var framkvæmdastjóri Skipadeildar SÍS um árabil og síðar aðstoðarforstjóri. Vegna mikillar þekkingar, röggsemi og vilja til að hafa áhrif á gang mála varð snemma ljóst hjá Sambandinu að þar færi einn af framtíðarforingjum samvinnu- hreyfingarinnar. Sú varð líka raunin. Axel varð forstjóri VIS árið 1989 og er maðurinn á bak við velgengni þess félags. INDRIÐIPÁLSSON, EIMSKIP Indriði Pálsson, stjórnarformaður Eimskips og Skeljungs, 70 ára, telst örugglega í hópi tíu áhrifamestu manna viðskiptalífsins. Hann er lögfræðingur að mennt. Hann hefur verið í eldlínu viðskipta um árabil, lengst af sem forstjóri Skeljungs. Þótt Indriði sé orðinn sjötugur lætur hann enn mjög tíl sín taka í stjórn Eimskips - og tíl hans er leitað eftír ráðum. Hann situr í stjórn Flugleiða - og er ekki að draga sig í hlé úr hringiðu viðskiptanna. Þess má geta að Indriði hefur um árabil verið æðsti maður Frímúrarareglunnar á íslandi. s \ % s \ í 4 \ S HELSTU HLUTHAFAR EIMSKIP Sjóvá-Almennar............12,4% Háskólasj. Eimskips..... 5,4% Margrét Garðarsd........ 4,0% Lífeyrissj. verslm...... 3,7% Hlutabréfasjóðurinn..... 2,7% Indriði Pálsson.......... 1,8% Lífeyrissj. Eimskips.... 1,6% Samein. verktakar....... 1,5% Ingvar Vilhjálmsson sf.... 1,2% Hörður Sigurgestsson.... 1,1% A meðal útgerðarfyrirtækja sem Eimskip á hlut í eru ÚA, HB á Akranesi og Síldarvinnslan á Neskauþstað. \ ) s > s V s s s ) { { 4 s ( ( SÖLUMIÐSTÖÐ HRAÐFRYSTIH. Útgerðarfél. Ak.........15,6% Þormóður rammi.........10,6% Haraldur Böðvars. hf... 8,0% Grandi.................. 7,9% Sig. Ágústsson ehf..... 7,6% Síldarvinnslan.......... 6,7% SH á um 12% hlut í ÚAáAkureyri. OLIUFELAGIÐ (ESSO) Olíusamlag Keflavíkur.. .. 13,1% Samvinnusjóður Isl .. 13,1% VÍS .. 13,1% Samvinnulífeyrissj .. 11,8% Sjóvá-Almennar .. 10,4% ESSÓ á m.a. hlut í VÍS, Sam- vinnusjóðnum, Olís, Vinnslustöð- inni, Básafelli og Fiskiðju Skagfirðinga. SAMVINNUSJÓÐUR ÍSLANDS Samvinnulífeyrissj .. 24,4% ESSO .. 20,5% vis .. 17,2% Isl. sjávaraf./Icel. Seaf... .. 11,7% Samvinnusjóðurinn á m.a. í ESSO, VIS, Vinnslustöðinni og ísl. sjávarafurðum. vis Landsbankinn............44,2% Ehf. Samvinnutrygg......23,3% ESSO................... 13,4% Líftryggingafél. ísl....11,6% Samvinnulífeyrissj...... 4,6% Samvinnusjóðurinn....... 2,9% VIS á m.a. hluti í ESSO, Vinnslu- stöðinni, Isl. sjávarafurðum, Samvinnusjóðnum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.