Vísir - 08.10.1970, Side 5
VJ SIR . Fimmtudagur 8., október 1970.
Þessi mynd er af hinum nýju húsakynnum Búnaðarbankans
við Hlemmtorg.
20% aukning
útlána Bún-
aðarbankans
Heildarútlán sparisjóðsdeild
ar Búnaðarbankans að útibú-
um meðtöldum jukust árið 1889
úr 1.769,8 milljónum kr. upp i
2.132,1 millj., sem er 20,5%
aukning. Útlán bankans til fram
leiðsluatvinnuveganna, landbún-
aðar, sjávarútvegs og iðnaðar
námu 1.108,3 millj. eða 52%
af heildarútlánum bankans.
Aðrir stærstu útlánaflokkarn-
ir eru verzlun (17,9%) og íbúða
byiggingar (12,5%).
AfurðaHán bankans nárnu í árs
lok 379,8 mil'lj., þar af endur-
seldir vúxllar til Seðlabankans
307,5 millj. að langmestu leyti
út á landbúnaðarafurðir, en lítið
„ eitt út á sjávarafurðir. Afurða-
- lánin hækku!ju á árinu um 32
miiij. og en-jursalan um 27,5
miMj.
VSxiMánin, 'yrir utan endur-
selda afurðavíxla, hækkuðu um
153,4 mi®j. upp í 783,3 millj.
Verðbréfaeign bankans nam í
árslok 389,8 millj. og hafði auk-
izt um 53,8 millj. Hækkunin staf
ar aðállega _af verðbréfakaup-
um vegna frafnkvæmdaáætiunar
ríkisstjómarinnar, en þau námu
42 miilj. á árinu. Heifur þank-
inn þá lánað samtals 125,3 millj.
til framikvæmdaáætlana ríkis-
stjómarinnar.
Heildarinnlán Búnaðarbank-
ans hætokuðu um 497,4 milljónir,
sem var 27,2% hækfcun. Spari
innlán hæfckuðu um 27,8 —
48,5% spariinnlána eru á al-
mennum bókum.
Veðdeild Búnað arba nkans lán
aði 93 bændum samtals 15 millj
kr. ti! jarðakaupá árið 1969.
Veðdeildin hefur að undanförnu
verið rekin með hallla, þar sean
skuldir hennar eru yfirleitt með
hærri vöxtum en stouldabréf
hennar bera. Nú fékk hún frá
ríkissjóði 15 millj. kr. sem ó-
afturkræft framlag af gengis-
hagnaði vegna gengisiækkunar,
og þvf gat hún lagt 13,9 millj.
í varasjóð.
Mikið dró úr lánveitingum
Stofniánadeildar landbúnaðarins
í fyrra. 916 lán voru veitt sam'
tals að fjárhæð 116,8 millj, Ár-
ið 1968 voru lánin hins vegar
1182 samtals að fjárhæð 132,1
milljón króna. —HH
Samið um sölu á 17 jbús. tunnum af Suðurlandssild
Malcolm litli sýndur aftur
Annaö kvöld hefjast aftur
sýningar f Þjóðleikhúsinu á
Málcolm litla, en leikritið var
sem kunnugt er sýnt þar alls
9 sinnum á sl. leikári. Leikend
ur eru alls fimm, en þeir eru:
Þórhallur Sigurðsson, Hákon
Waage, Gísili Alfreðsson, Sig-
urður Skúlason og Ingunn Jens
dóttir, en hún tekur nú við hlut-
verki Ann af Þórunni Magnús-
dóttur, sem lék það á sl. leik-
ári. Leikstjóri er Benedikt Árna-
son.
Leikurinn hlaut í einu orði
sagt frábæra dóma allra er hann
sáu og þótti mjög athyglisverð-
ur í alla staði.
Ólafur Jónsson gagnrýnandi
Vísis segir f leikdómi sínum
þann 19. mai sl.: „Maloodm litli
er skopleikur um hið alvarleg-
asta efni. Alvaran er að sönnu
jafnan nær, eins og jafnan i
góðum gamanleikjum, en það er
galsinn sem ræður leiknum og
notfærist bezt í meöförum Þjóö
leifchússins. Leiknum var prýði
lega vel tekið.“
9 íslenzk hönnun.
íslendingar hafa æ meira far-
ið út í að hanna bluti sjálfir, en
•áður hefur leikið grunur á aö
mikiö væri rifið úr erlendum
tímaritum ti'l að framleiða ýmsa
hluti eftir. Við rákumst á þessa
skeið nýlega í búðarglugga og
fengum að mynda hana. Þetta er
skeið sem reykviskur gullsmið
ur, Jens Guðjónsson, hannaði,
skömmu eftir Heklugosið í sum
ar. Nefnir Jens skeiðina Heklu-
skeiðina. Er það mál manna
þeirra sem hannað hafa sjálf-
stætt ýmsa bluti, að þeir séu
mun sölufegri vara fyrir er-
ienda ferðamenn, og einnig fyrir
innlendan markað.
9 Fallegasti garðurinn
í Garðahreppi
Rótary-klúbburinn, Göröum,
veitir árleg verðlaun fyrir feg-
usta garðinn í Garða- og Bessa-
staðahreppi.
i
I ár varð fyrir valinu garður-
inn við Goðatún 12, Garða-
hreppi, eign hjónanna Bimu
Kristjánsdóttur og Héðins Frið-
rikssonar.
Til ráðuneytis viö valið ,var
Óli Valur Hansson, garðyrkju-
ráðunautur.
Aö venju hljóta eigendur
garösins viðurkenningarskjal frá
Rótary-klúbbnum, Görðum.
^ Kristín telcur við
hlutverki í Jörundi
Kristín Ólafsdóttir, kunn fyrir
túlkun sína á ýmsum þjóðlög-
um auk stjórnar sinnar á barna
tíma sjónvarpsins, hefur nú tek
ið við hlutverki í Þið muniö
hann Jörund í Iðnó. Kristín er
útskrifuð úr leiklistarskóla L.R.
og leikur hún Lölu Völu í leikn-
um, en með það blutverk fór áð
ur Helga Jónsdóttir.
Samkomulag hefir til þessa
tekizt um fyrirframsölu á 17000
tunnum af saltaöri Suðurlandssild
og samningaumleitanir standa yfir
um sölu á meira magni.
Hl Heildarsöltun Suðurlandssíldar
nemur nú um 15000 tunnum.
Sírokkvartett í
Norðurlandaferð.
Myndin er af kvartett Tónlist
arskólans í Reykjavik, en hann
lagði af stað í byrjun vifcunnar
i feröalag til Norðurlanda og
kvaddí með tónleikum í Nor-
ræna húsinu á sunnudagskvöld-
ið. Flytur kvartettinn, eingöngu
íslenzka tónlist. Tónleikar verða
haldnir í Osló, Stokkhólmi,
Helsingfors og Árósum. Á öllum
stöðunum fer frain útvarpsupp-
taka á leik þeirra féiaganna, en
þeir eru, 'talið frá vinstri: Björn
Ólafsson, Jón Sen, Ingvar Jóns
son og Einar Vigfússon. Þeir
munu flytja verk eftir Helga
Pálsson, Jón Leifs, Leif Þórar-
insson og Þorkel Sigurbjörnsson
í ferð sinni.