Vísir - 08.10.1970, Page 16
VISIR
FimHitudagur 8. október 1970.
Flugfélagið
endurgreiðir
ríkisábyrgðar-
sjóði 75 millj.
á 3 mánuðum
Félagfá væntir ágóða á
árinu þrátt fyrir 5-6
millj. kr. verkfallstjón og
aukinn rekstrarkostnað
„Við eJgum ennþá langt í Iand
með að ljúka greiðslum þeirra
lána, sem tekin voru vegna
kaupa á Friendship flugvélunum
og þotunni, en það er þó mikið
gleðiefni, að félagið er nú skuld-
laust við rfkisábyrgðarsjóð eftir
að hafa endurgreitt sjóðnum
tæpl. 75 millj. króna á undan-
förnum bremur mánuðum.“
Þetta sikrifar Öm Ó. Johnson, for
stjóri Flugfélags ístends í nýút-
komnu starfsmannablaði F.Í., Faxa
fréttum. Hann skýrir ?rá því að
ýmistegt bendi nú til þess, að
bjartara sé framundan í starfsemi
félagsins en verið hefur um nokkurt
skeið. „Ferðamannasitraumurinn
vex og athafnalíf þjóðarinnar virð
ist vera að komast úr þeim erfið-
ieikum, sem við hefur verið að etja
undanfarin tvö ár. Þefcta hvort
tveggja boðar aukna flutningaþörf
og þar með aukin verkefni fyrir
Flugfélagið:“
Verði áframhald á auikningu flutn
inga sem e'ftir er ársins, í svipuðu
hlutfalli og það sem er af árinu er
þess að vænta að nokkur rekstrar
hagnaður veröi á árinu. Slíkur hagn
aður, ef til kemur, hefði þó orðíð
allmiklu meiri ef ekki hefði komiö
til mjög veruleg hækikun rekstrar-
kostnaðar á árinu og þá einnig ef
ekki hefði komið til verkfallsins sl.
vor, sem stöðvaði innanlandsflu'g
ið og mun hafa valdið félaginu
a.m.k. 5—6 milljón króna beinu fjár
hagslegu tjóni.“ —VJ
Undirbúa útfíutning
drykkjarvatns
Ölgerðin Egill Skallagríms-
son hefur nú í undirbúningi
útflutning íslenzks drykkjar-
vatns á Bandaríkjamarkað.
Er nú unnið að því m. a. að
teikna umbúðir fyrir vatnið
og hefur Kassagerðin það
starf með höndum. Vísir leit-
aði til Ölgerðarinnar til að
fá nánari upplýsingar um mál
ið, en forráðamenn verksmiðj
unnar vildu ekkert nánar
segja um það. „Maður hleyp-
ur ekki með drauma sína í
blöðin,“ svaraði Tómas Tóm-
asson yngri, fyrirspurnum
blaðsins.
Ef af þessum útflutningi verö
ur munu mhrgir aöilar njóta
góðs af, svo sem skipafélög,
umbúðafyrirtæki og svo að sjálf
sögðu ölgerðin sjálf, en hæpið
er að unnt sé að verðleggja
vatnið sjálft hér á landi, þó að
„Pure Icelandic Water" verði
orðið afar dýrt á okk'ar mæli-
kvarða, þegar það kemst til
neytandans í Bandaríkjunum.
— VJ
Baldur Gudlaugs-
son efstur á lista
Vöku
VAKA félag iýðræðissinnaðra
stúdenta hefur lagt fram Iista sinn
við stjómarkjör Stúdentafélags Há-
skóla íslands á laugardaginn. Fimm
efstu eru þessi:
1. Baldur Guðlaugsson, stud. jur.
2. Haligrímur Guðmundsson, stud.
sociol.
i Z. Stefán Hreiðarsson. stud. med.
i Tryggvi Páisson, stud. oecon
; 5- Davíð Oddsson, stud. jur.
Kosið verður í kaffistofu stúd-
! enta í Háskólanum milli 13 og 19
á laugardaginn. — HH
Þessi mynd var tekin, þegar lögreglan rannsakaði slysstaðinn
í gær
Tveggja ára telpa
beið bana í bílslysi
Tveggja ára telpa beið bana, þeg
ar hún verð fyrir sendiferðabíl á
Hrísateig f gærdag. Móðir hennar
var stödd skammt frá, og reyndi
að hrópa viðvörun til ökumannsins
sem heyrði ekki til hennar vegna
útvarpsins í bílnum og hávaða
! barna í grenndinni.
i Bílstjórinn ætlaði að snúa bif-'
reiðinni á götunni, og hafði hugað
að bömum áður en hann steig inn
í bílinn, en hélt allt vera f lagi.
Kom hann ekki auga á litlu telp
una Margréti Erlingsdóttur, sem
j var til heimilis að Hrísateigi 1. Ók
hann bílnum aftur á bak nokkra
metra, og þá varð slysið. —GP
Norðurflug fær
nýtt flugskýli
Norðurfilug á Akureyri er nú að
ceisa verkstæöisbyggingu sunnan
við flugs'kýlið á AkureyrarflugveMi
j segir í íslendingi—feaifold. f>ama
ifær Norðurflug mun hentugri að-
I stöðu til viðgeröa og viðhalds á
| vélum sínum, en að söign Tryggva
Helgasonar, var það ærið kaldsamt
verk að vinna að flugvirkjun í skýli
flugmálastjórnarinnar yfir vetur-
inn. þegar frostið I öupphituðu skýl
inu var komið upp í 20 gráður. —
' Nýja skýlið verður fokhelt f haust
og verður síðan gerð gangskör aö
því að Ijúfca byggingunni. —JBP
Gagnfræðaskóli á hrakhólum:
Frosttæma
bruna-
hanana
„Það er aö koma vetur og við
. erum að fara að frosttæma alla !
' brunahana í Reykjavík", sagði I
skrifstofustjóri Vatnsveitu j
| Reykjavfkur er við spurðumst .
, fyrir um starfsemina. „Ýmsir að '
ilar, svo sem menn frá gatna-
I mátestjóra, og aðrir hafa feng |
ið að nota brunahanana ef þörf .
, hefur verið á, en auðvitað ekki
án leyfis eftirlitsmanns. Það er I
I aðeins slökkviiliðið sem má nota i
I þá eftir þörfum.“
Sikrifstofustjórinn sagði að .
annars fengju brunahanar borg .
arinnar að mestu að vera í
friði. Varla kæmi fyrir að
skemmdarverk væru unnin á;
þeim. „Þó er ekið á þá stöku .
sinnum". í morgun birti Vatns
veitan aug'lýsingu í blöðum og
er þar bent á að ekki sé leyfi-
íegt að hagnýta sér brunahana
til eins, 5ða.neins,.án Jeytfif yatns
veitunnar. -^-GG
Er til húsa í leikfimihúsi
og Sjálfstæðishúsi Kópavogs
meðan beðið er eftir nýja húsnæðinu
230 nemendur eru í vetur í Digra
nesskólanum í Kópavogi. sem er
gagnfræðaskóli, annar aif tveimur í
Kópavogi. í haust stóð t<l að taka
í notkun hluta af nýrri álmu við
skólann en vegna . verkfallanna i
vor töfðust framkvæmdir þannig
aö kennsla í nýju álmunni getur
ekki hafizt fyrr en um áramót, eða
þar um bil, að því er Karl Guðjóns
son, fræðslustjóri Kópavogs segir.
Húsnæði Digranesskólans rúmar
ekki alla, þá nemendur, sem þar
haifa nú skólavist, og þótt tvfsett sé
í alten s'kólann hefur orðið að leigja
hæð í Sjélfstæöishúsinu, sem er
skammt frá siálfum skólanum. und-
ir kennslu. Einnig er kenmt í kjall
ara íþróttahúss Kópavogs, en það
hús er sameiginiegt fyrir alte skól
ana I bænum.
1 Það er því brýn þönf að nýja álm
an komist sem allra fyrst í gagnið,
kennslustofur verði komnar
Víghólaskólinn,
skölinn 1 Kópavogi er eldri og fjöl
mennari. Þar eru í vetur 650 nem
í lag. endur og sagði Karl Guðjónsson
hinn gagnfræða-1 að húsnæði hans væri fullnægjandi.
I —GG
Ætlaði að lyfta bát-
en velti krananum
Kranabíll valt vestur á Granda-
garði í gærkvöldi, þegar unnið
var að því að lyfta 7 tonna bát
af sjónum og upp á bryggju.
Lagðist kraninn á hægri hliðina.
Ökumaður kranabílsins, sem sat
inni f ekilshúsinu, þegar öhappið
að bifreiðin hafði Iyfzt vinstra meg-
in, og sá hann, hvað verða vildi.
Tókst honum að stökkva úL
En kranastjórinn var staddur
inni í krananum, og komst ekki út,
áður en kranabíl'líinn Skall á hlið-
ina. Hann slapp þó án alvarlegra
meiðsla.
Fkemindir urðu ekki miklar,
en um áramótin er búizt viö að 4 I vildi til, varð þess allt í einu var, hvorki á krananum ná bátnum. -GP
Bandaríski
fáninn -
á hvolfi
• Líklega er það fyTÍr handvömm
eina saman, að bandaríski fáninn
sneri öfugt á stöng sinni, eins og
sést á myndinni, sem ljósmjmdari
biaðsins tók í gær. Þetta var vií
þekktan veitingastað, sem skipti!
taisverit við útlendinga, og þá ekk.
sízt Bandarík'jamenn, svo varla he!
ur staöurinn viljað mötmæla neint
með þessu.
60 vildu I
verða sjón-
varpsþulur
ÍVinsældir sjónvarpsins, sem
vinnustaðar, virðast fara vax-
andi, ef marka má eitthvað
af því, að er umsóknarfrest-
ur um þulustarf rann þar út
fyrir nokkrum dögum, höfðu
um 60 stúlkur sent inn um-
sóknir. Hins vegar sóttu að-
eins 14 stúlkur um þulustörf
við sjónvarpið, þegar það var
dð byrja. í fyrra bárust um
40 umsóknir um þetta starf.
Svo sem kunnugt er, hafa nú
þrjár sjónvarpsþulur látið af
störfum og aðeins eitt nýtt
andlit komið í stað þeirra, Ing-
unn Ingólfsdóttir. Hefur hún
starfað við lista- og skemmti-
deild sjónvarpsins um nokkurt
skeið, og hefur því að öllum
líkindum gert sér fulla grein
fyrir því, út í hvað hún var að
gangh, er hún hóf þulustarfið
s.l. föstudagskvöld, en það
kvöld gekk vetrardagskrá sjón-
varpsins í gildi.
Unnið hefur verið við að gera
prufumyndatökur af þeim um-
sækjendum, sem koma til
greina að verða valcfar í hin
störfin tvö. Allt bendir til þess,
að þvi verði lokið á morgun og
sjónvarpsáhorfendur megi jafnl
vel búast viö því, að sjá andlitj
nýrrar þulu birtast á skerm-|
inum hjá sér um helgina.
— ÞJM|