Vísir - 09.09.1975, Side 3
Vlsir. Þriðjudagur 9. september 1975.
3
BYGGINGAMCNN
|f l# Jgjo| Æ fi# S Tp Jf - vegna almenns
# H##1! ff £ ■ Km K samdráttar í húsasmíðum
Iðnaðarmenn i bygg-
ingariðnaði kviða flest-
ir vetrinum. Lána-
tregða og litil sem eng-
in lóðaúthlutun á
höfuðborgarsvæðinu
veldur þvi, að sam-
dráttur hefur orðið i
húsbyggingum. Litil
atvinna virðist fram-
undan i sumum iðn-
greinum.
Vfsir ræddi við menn i all-
flestum þeim iðngreinum, sem
að húsbyggingum snúa, og
spurði þá um framtiðarhorfur.
Trésmiðir hafa enn næga at-
vinnu, og er ekkert lát á eftir-
spurn eftir þeim. Benedikt
Davíðsson, hjá Trésmiðafélag-
inu, sagði Visi, að hins vegar liti
skuggalega út, ef ekki rættist úr
með lánamarkaðinn og lóða út-
hlutun.
„Horfurnar eru sem sagt ekki
góðar”, sagði Benedikt.
Heldur hefur minnkað at-
vinna hjá pipulagningamönn-
um. Einn talsmanna þeirra,
sem blaðið ræddi við, sagði, að
kviði væri i stéttinni, sérstak-
lega vegna þess, að lóðaút-
hlutanir væru i lágmarki. Vinna
nú er nokkuð i bylgjum. þótt enn
hafi sumir nög að gera.
Vinna hjá málurum hefur
ekki dregizt saman, að sögn
Magnúsar Stephensen, for-
manns Málarafélags Reykja-
vikur. „En i stéttinni er minna
að gera en siðasta sumar.
Slæmt veður i sumar hefur lika
sett strik i reikninginn”, sagði
Magnús.
,,Ég held menn kviði vetrin-
um vegna þess, hversu miklu
minna er byggt núna,” sagði
hann.
Múrarar, sem blaðið ræddi
við, sögðust ekki búast við
skorti á verkefnum á næstunni.
„Við önnum alls ekki eftir-
spuminni. Þótt stöðvun verði i
byggingum, þá liður minnst ár,
þangað til stopp verður hjá okk-
ur, þvi að svo margt liggur fyr-
ir”, sagði einn þeirra. Við
spurðum hann, hvort notkun
platna i mótauppslætti hefði
ekki dregið út vinnu. „Nei, mjög
litið”, sagði hann. „Það þarf að
holufylla eftir plöturnar, laga
kanta og brúnir og fleira. Það er
ekki eins mikil vinna og pússn-
ingin, en kostnaðurinn verður
allt að þrir fjórðu hlutar af
pússningu”, sagði viðmælandi
blaðsins.
Veggfóðrunar- og dúklagn-
ingamaður, sem Visir ræddi við,
sagði að i sinum vinnuflokki
væri ekki augljós samfelld
vinna framundan.
„Þetta byggist upp á einu og
einu eldhúsgólfi núna. Vinna við
stærri byggingar hefur dregizt
saman. T.d. sé ég ekki fram á
vinnu við stóra byggingu fyrr en
einhvern tima um áramótin i
fyrsta lagi”, sagði dúklagninga-
maðurinn.
Flestir byggingarmenn, sem
Vísir ræddi við, voru sammála
um, að i fyrra hefði verið óeðli-
leg pressa á iðnaðarmönn-
um.Þar hafði sitt að segja, að
stórar byggingaáætlanir voru
framkvæmdar, og vinna var
mikil fyrir Viðlagasjóð. Sam-
dráttarstefnan undanfarið virð-
ist vera full harkaleg, og i stað-
inn fyrir að draga aðeins úr
þenslunni, veldur hún þvi að allt
dregst saman.
— ÓH
Frumsýning ó
Skjaldhömrum
í björgunarbát?
„Ætli frumsýningin verði ekki
haldin I björgunarbáti”, varö
einum ieikaranna I Skjaldhömr-
um Jónasar Arnasonar I Iðnó að
oröi, þegar við litum inn hjá þeim
i gær. Leikararnir höfðu orðið að
nota stlgvél I stað venjulegs skó-
fatnaðar á æfingu, „þvi að við
athuguðum ekki nógu vel gang
himintungla”, sagði Helga Bach-
mann, sem fer með annað aðal-
hlutverkið.
Stórstreymi var i gær og þá
fyllast margir kjallarar I mið-
bænum af vatni.
Annars ganga æfingar vel á
þessu fyrsta stykki á leikárinu
hjá þeim i Iðnó, að sögn Jóns
Sigurbjörnssonar leikstjóra.
Sagði hann, að þetta væri bráð-
skemmtilegt leikrit, og vel það,
sem gerðist á útkjálka fyrir norð-
an. Það hefst i striðsbyrjun um
það leyti, sem Bandarikjamenn
eru að taka við af Bretum. Marg-
ur fær að heyra „gegnum útvarp-
ið” sin uppáhaldslög frá þessum
tima. „Annars má ég ekki segja
of mikið um leikritið. Höfundur-
inn hann Jónas er svo viðkvæm-
ur”, sagði Jón og benti okkur að
ræða við hann, en i hann náðist
ekki.
Þorsteinn Gunnarsson fer með
hitt aðalhlutverkið á móti Helgu.
Aörir leikarar eru: Kjartan
Ragnarsson, Karl Guðmundsson,
Hjalti Rögnvaldsson og Lára
Jónsdóttir.
Frumsýning verður á fimmtu-
daginn.
— EVI
„Það er nú allt ööru vlsi að hnýta bindi á öðrum þó maður geti gert það á sjáifum sér”, varð Jóni Sigur-
björnssyni leikstjóra að orði, þegar Helga Backmann leikkona bað hann um hjálp. — Ljósm. JIM
Fagnaðar
erindið
sungið ó
líflegan
hátt af
sœnskum
poppurum
Fagnaðarerindið veröur
sungið á liflegan hátt dagana 10-
14. september af sænsku hljóm-
sveitinni SAMUELSONS.
Hljómsveit þessa skipa fjórir
bræður, auk tveggja hljóðfæra-
leikara.
SAMUELSONS flytja einkum
„gospel” tónlist. Nýtur hljóm-
sveitin mikilla vinsælda, en þeir
hafa komið fram viða um lönd
og gert reglulega þætti fyrir
sænska hljóðvarpið og sjón-
varpið. Þá hafa þeir gert sjón-
varpsþætti I Þýzkalandi og
Sænska hljómsveitin SAMUEL-
SONS leikur fyrir tslendinga
„gospel” tónlist.
Bandarikjunum. Auk þess
hafa þeir gert 6 stórar hljóm-
plötur.
Fyrstu hljómleikarnir verða
10. sept. i Stapa, Y-Njarðvlk kl.
21. Siöar i Filadelfiu I Reykja-
vik, Austurbæjarbiói og i Nor-
ræna húsinu.
Aðgangur er ókeypis, en á
miðnæturtónleika Austurbæjar-
biós á laugard. fást ókeypis
miðar i Austurbæjarbiói,
Rakarastofunni við Veltusund,
Virkni, Ármúla 38 og Filadelfiu,
Hátúni 2.
— EVI.
Myndlistarþroska
almennings óbótavant?
,,Myndirnar, sem ég
sýni hérna i Bogasaln-
um eru eins konar úr-
tak úr oliupastelmynd-
um, sem ég hef gert á
timabilinu 1961 til
1975”, sagði Hringur
Jóhannesson, listmál-
ari.
„Ég var reyndar búinn að
panta Kjarvalsstaði með eins og
hálfs árs fyrirvara og ætlaði að
sýna þar haustið 1976, en vegna
deilnanna, sem risu út af þessu
ágæta húsi, þá hætti ég við að
hafa sýningu þar.
Það er mitt álit, að ef stjóm-
málamenn eiga að ráða yfir
húsi eins og Kjarvalsstöðum, þá
hefur það sýnt sig, að það gefst
illa, þvi að stjórnmálamenn eru
með fáum undantekningum
listblindir.
Mér finnst, að okkar bezta
sýningarhús eigi að hafa lág-
markskröfur um gæði þ.e. að
hafa einhverja sjálfsvirðingu.
Myndlistarþroska al-
mennings ábótavant
Að minum dómi er myndlist-
Hringur Jóhannesson sýnir I
Bogasalnum, en ætlaði að sýna
að Kjarvalsstöðum áður en deil-
urnarum það fræga hús upphóf-
ust.
arþroska almennings ábóta-
vant. Það kemur af þvi, að
myndlistaruppeldi þjóðarinnar
er mjög slæmt. Það ætti strax i
barnaskóla að byrja að upp-
fræða börn um myndlist, fara
oftar með þau á myndlistarsýn-
ingar og þess háttar. Siðan á að
fylgja þessari fræðslu eftir al-
veg upp i háskóla.
Þaö er mjög nauðsynlegt, að
þessi fræðsla sé góð, þvi að það
er hægt að leiðbeina fólki að
njóta myndlistar til. dæmis með
þvi að sýna þvi hvað er aðal
gildi verkanna eins og fólki er
kennt að njóta tónlistar á sama
hátt.
Uppfræðslan stendur til bóta,
þvi að alltaf eru að útskrifast
stórir hópar vel menntaðra
myndlistarkennara frá Hand-
iöa- og myndlistarskólanum. En
það er spurningin, hvort skóla-
kerfið nýtir þessa krafta sem
skyldi.
Góð aðstaða fyrir
myndlistarmenn á ís-
landi
Hér á Islandi er að minu áliti
góö aðstaða fyrir myndlistar-
menn. Hér er geysimikið keypt
af myndlist.
Það er reyndar ekki stór hóp-
ur, sem lifir af myndlist ein-
göngu, en þó eru það margir,
sem geta helgaðsig listinni nær
óskiptir og held ég, að ástandið
sé sizt verra i' þessum málum
hér á landi en viða erlendis.
Sýningin verður opin frá 2-10
fram til 14. september og er
verðið á myndunum frá 20 þús-
undum og upp i 40 þúsund krón-
ur.
— HE.