Vísir - 09.09.1975, Blaðsíða 7
Vfsir. Þriðjudagur 9. september 1975.
Þú œttir að iesa þetta:
Ef þú
vilt nú
órangri
í megrun
• Segðu vinum þinum, að þú ætlir i megrun. Þá
verður erfiðara að snúa aftur.
• Drekktu stórt glas af vatni fyrir aðalmáltið-
ina. Það minnkar lystina.
• Kauptu mat-sem þér finnst ekki sérlega góð-
ur, eða þá það dýran mat, að þú hafir ekki ráð á
nema litlu Borðaðu einn, ef þú átt erfitt með að
sjá aðra háma i sig.
• Farðu fyrr að sofa, ef þú átt vanda til að
borða á kvöldin. í rúminu finnurðu minna fyrir
hungri.
• Kauptu föt, sem eru það þröng, að þú neyðist
til að grenna þig vegna þeirra.
• Bezta ráðið: Hreyfðu þig meir!
A6 grenna sig er erfitt. Þetta
er sta&reynd, sem viö blásum
ekki svo auðveldlega i burtu.
Hvað eftir annað birtast aug-
lýsingar i blöðum um alls kyns
megrunarleikfimi og viö lesum
hverja greinina á fætur annarri,
iar sem gefin eru ráð til þess að
losna við 5 klló á svo og svo
stuttum tima.
Þeir eru áreiðanlega margir,
sem reynt hafa að fara eftir
þessum ráðleggingum. Oft er þó
um strembna megrunarkóra aö
ræða — og sumir gefast upp fyrr
en varir.
1 þessari grein ætlum viö eng-
ar slikar ráðleggingar að gefa.
Við ætlum hins vegar að segja
frá ýmsu, sem Vert er að vita
fyrir þann, sem vill losna við
kiló.
Þegar i æsku leggjum við
grundvöllinn aö matarvenjum
okkar i gegnum allt lifið. Upp Ur
þessum matarvenjum verður
matarþörfin til, sem kemur til
með að ákveða hina eölilegu
þyngd okkar. En þessi eðlilega
þyngd samræmist langt þvi' frá
alltaf þeim hugmyndum, sem
við gerum okkur um, hvensu
þung við ættum að vera. SU
þyngd er kannski heppilegust..
fyrir heilsu okkar og einnig Ut-
lit.
Ef hin eðlilega þyngd er of há
— og viökomandi ætlar sér að ná
hlnni eftirsóttu þyngd, þá krefst
það megrunar. Og það er
nokkru meira en að segja orðið.
Til þess að árangur náist, þarf
oftast að leggja mjög hart að
sér. Það er eins gott aö vita það,
án þess að við séum að hræða
nokkurn.
Þaö'ersjálfsaginn,sem gildir.
Þaö dugar ekki að fara i
megrun, eingöngu vegna þess
að „bezti vinurinn” eða „bezta
vinkonan” gerir það, eða aðeins
af þvf, að „allir hinir” gera það.
Það er lika þýðingarlaust að ná
af sér kílóum, af þvi að maður
las nýlega einhverja spennandi
aðferö i blaði og vill prófa hana
strax. Slikt rennur oftast fljótt
Ut f sandinn.
Þarf ég nauðsynlega að
grenna mig? Kemur mér til
með að liða betur? Mun ég lita
betur Ut? Spurðu þig þessara
spurninga, ef þú ert i' megrunar-
hugleiðingum. Það er eins gott,
að svörin verði jákvæð. Ef svo
er, verður bezt að gera ná-
kvæma áætlun um kúrinn.
„Hversu mikið á ég aö grenna
mig?” „Hversu hratt?” „Hvaðá
aðferð á ég aö nota?”
Þó að ekki sé um að ræða
nema nokkur kfló, er bezt að
gera áætlun. E-itthvert hálfkák
við aðreyna fyrst þessa aðferð
og svo hina, dugir ekki.
Sé um að ræða mjög mörg
kfló, þar sem hætta væri á, að
heilsan yrði fyrir skaða, er ráð-
legt að hafa samráð við lækni.
Séu taugar i ólagi, getur megr-
un verið mjög skaðleg. Sé við-
komandi einn af þeim, sem
leggur allt sitt traust á matinn
og borðar mikið, þegar eitthvað
bjátar á, er frekar ástæða til
þess að fá andlega hjálp heldur
en að leggja á sig megrunarkUr.
Það er mjög hyggilegt að
grenna sig i samráði við lækni.
Einhvers staðar þarf viðkom-
andi þá aö sýna árangur, og
læknirinn mun sjá um, að
megrunin eigi sér staö á réttan
og hæfilegan hátt. Að setja
markið of hátt — eða of lágt —
gerir kUrinn fljótlega að engu.
Það er auðveldast að ná burt
fyrstu kilóunum. Það er þvi bezt
að byrja rólega og halda taktin-
um. Hjálp og uppörvun frá fjöl-
skyldu og vinum er mjög æski-
leg.
En hvað svo, þegar markinu
er náð? Þegar þeirri þyngd er
náö, sem maður vill halda? Get-
ur maður þá farið að borða eins
og maður vill? Nei, ekki alveg.
Enn um sinn verður bezt aö
halda i við sig. Einn dag upp-
götvar viðkomandi, að það er
oröiö honum eðlilegt að borða
þetta lttið magn. Þá er matar-
þörfin orðin öðruvisi en i upp-
hafi, og þá fyrst er hægt að
halda þvi fram, að megrunin
hafi haft varanleg áhrif.
7
Fyrsta sýningin
ú húrkollum hér
ÍIIMNÍ
L síðan 1
Umsjón: Edda
Andrésdóttir
Hárgreiðslufólk
hefur tekið sig á og
haldið sýningar og
keppni. Aldrei hafði
þó verið haldin sýning
á hárkollum, sem þó
eru nokkuð notaðar,
fyrr en núna fyrst um
helgina.
Þá var bætt úr
þessu öllu, er
sýningarstúlkur úr
Módel-samtökunum
sýndu stórt úrval
hárkollna á vöru-
sýningunni i Laugar-
dalshöll.
Það getur sjálfsagt verið
þægilegt að eiga „hár” ein-
hvers staðar inni i skáp, sem
hægt er að skella yfir sitt
eigið, ef mikið liggur við og
það er raunverulega ekki nógu
fint.
Við fengum að vita það, að
hárkolluna má þvo og greiða,
breyta hárgreiðslunni — og
reyndar fara með hana eins og
venjulegt hár.
Nii, svo er það ekki amalegt
aö geta verið ljóshærður einn
daginn, dökkhærður þann
næsta og loks rauðhærður
þann þriðia.
Meðfylgjandi myndir voru
teknar, þegar þessi fyrsta
sýning á hárkollum fór fram,
og það var ekki annað að sjá
og heyra en að áhorfendum
félíi „hárið” vel i geð.