Vísir - 09.09.1975, Side 20
Fó stúdent-
ar að selja
létt vín?
Félagsstofnun Stú-
denta hefur sótt um að
fá að selja létt vin i hin-
um nýinnréttaða
Stúdentakjallara, sem
er staðsettur að Gamla
Garði.
Umsóknin var send i lok
ágUstmánaðar og liggur enn hjá
umsagnaraðilum, sem eru
Afengisvarnarráð og Samband
veitinga- og gistíhúseigenda.
„Tilgangurinn með sölu léttra
vina er sá að brydda upp á
nýjungum, þvi að margir
stUdentar hafa kynnzt þessu er-
lendis, þá einkum bjórdrykkju,
sem hefur skapað góða
stemningu, að margra áliti,”
sagði Ingólfur Hjartarson,
framkvæmdarstjóri Félags-
stofnunarinnar.
Auk þess má segja, að þetta
sé tilraun af hálfu Félagsstofn
unarinnar til að kanna, hvort
ekki sé hægt að breyta
vinneyzlu stúdenta. En Félags-
stofnunin mun sjá um, að fólk
neyti ekki sterkari vintegunda á
staðnum og mun þvi verða
viðhöfð ströng gæzla.”
„Verðið á vininu verður það
sama og á veitingahUsunum, en
, ef einhver hagnaður verðuraf
sölunni, þá verður hann notaður
til menningarstarfsemi i
StUdentakjallaranum,” sagði
Ingólfur að lokum.
___________________-HE.
Nýtt við-
lagagjaíd
ó bruna-
tryggingar
Nýtt viðlagagjald leggst ofan á
allar brunatryggingar frá og með
fyrsta október næstkomandi.
Verður það 250 krónur á hverja
milljón og til viðbótar við þegar
álögð viðlagagjöld. Ætlunin mun
vera að safna fé i sjóö með þessu
móti, sem yrði til ráðstöfunar,
eftir að viðlagatryggingar taka til
starfa um áramótin 1976-77.
Ekkert af þessu fé rennur til
Viðlagasjóðs i hans núverandi
mynd. Tekjur hans byggjast á
tveim söluskattsstigum, sem
hann hefur til áramóta — og svo á
sölu húsa. öll tryggingafélög eiga
að innheimta þetta gjald og koma
því til skila jafnóðum.
—ÓT
HANN ER
KOMINN!
„Hjartabíll” þeirra Norðlend-
inga er koininn til landsins. Hann
kom með Rangá til Reykjavíkur I
gær og fer beint norður til Akur-
eyrar. Það er Blaðamannafélag
íslands, scm stuðlaði að söfnun á
fé til kaupa á bilnum, en hann er
keyptur til minningar um Hauk
Ilauksson, blaðamann, og i tilefni
nfræðisafmælis Snorra Sigfússon-
ar, fyrrum námsstjóra. — Billinn
verður formlega afhentur á Akur-
eyri siðar i þessum mánuði. —
Þcssi bill er af Ranga Rover gerð
og allur hinn fullkomnasti.
Samdróttur og stöðvun
í lagmetinu fyrir óramót?
„Vestur-Þjóðverjum
um að kenna"
Staða islenzks lagmetisiðnað-
ar er ákaflega erfið I dag. Ef
ekki gerist tvennt fyrir næstu
áramót er fyrirsjáanlegur sam-
dráttur og stöðvun i lagmet-
isiðnaðinum, sagði örn Er-
lendsson framkvæmdastjóri
Sölumiðstöðvar lagmetisiðnað-
arins.
Það sem þarf að koma til er i
fyrsta lagi, að íslendingar fái
þær tollalækkanir, sem búið var
að semja um fyrir þremur ár-
um. En eins og mönnum er
kunnugt, þvinguðu Vestur-Þjóð-
verjar efnahagsbandalagið til
að samþykkja að þessi tollafrið-
indi næðu ekki fram að ganga
vegna landhelgisdeilunnar.
í öðru lagi þyrfti hið almenna
efnahags- og markaðsástand á
Bandarikjamarkaði, Japan og
viðar að batna.
1 dag er málum svo háttað,
að við búum við 20-30% tolla á
rækju, kaviar, niðursoðinni
þorsklifur og þorskhrognum.
Aður en Bretland og Danmörk
gengu i Efnahagsbandalagið þá
vorum við með ákveðna sölu til
þessara landa, en við inngöngu
lEfnahagbandalagið, þá hækk-
uöu tollarnir i samræmi við tolla
Efnahagsbandalagsins, sem
hækka I þrepum. Næsta þrep
verður hækkað um næstu ára-
mót, og má þvf segja, að salá til
þessara landa muni alveg falla
niður.
t öllum nágrannalöndunum er
erfið staða i lagmetisiðnaðin-
um. Hefur þetta I för með sér
lækkun á þessari vöru, en þegar
við fáum þessa háu tolla ofan á,
þá þýðir ekki að nefna sölu til
landa eins og Hollands Þýzka-
lands og Frakklands.
Þar eð orðið hafa svona mikl-
ar verðlækkanir á lagmeti i ná-
grannalöndunum, þá er spurn-
ingin hvort við erum nógu sterk
ir til að geta lækkað okkar vöru
til jafns við þeirra, til að halda
okkar mörkuðum i Bandarikj-
unum Japan og viðar.
Þetta þýðir að staðan i lag-
metisiðnaðinum er mjög erfið.
Við það bætist að lagmetisverk-
smiðjur okkar eru það litlar, að
þær hafa enga aðstöðu til að
þola mögru árin sagði örn að
lokum.
—HE
BLINDUÐUST AF RAKSPIRA
„Engin eiturefni eru I fram-
leiðslu okkar I hár- og raksplra,”
sagði Ragnar Jónsson, skrifstofu-
stjóri Afengis- og tóbaksverzlun-
ar rikisins, en þrir sjúklingar
voru lagðir inná sjúkrahúsið i
Vestmannaeyjum meö stórlega
skerta sjón en eiga þó einhverja
von um bat&i. Héldu þeir þvl
fram, að þeir hefðu drukkið rak-
spíra af tiltekinni gerð, sem fæst I
hvaða söluturni sem er.
Ragnar sagði, aö innflutningur
á rak- og hárspira væri frjáls og
væru til ótal tegundir. Honum er
það öllum sameiginlegt að hafa
þá áletrun að vera óhæfur til
drykkjar, enda blandað saman
við hann lyktar- og bragðefnum,
sem gera það að verkum.
Jóhannes Skaftason hjá Rann-
sóknarstofnun Háskólans, sem
rannsakar umræddan rakspira,
sagði að það væri I algjörum und-
antekningatilfellum að þeir
fengju spira til efnagreiningar.
Það væru hrein mistök, ef eitur-
efni væru I spiranum. Hins vegar
væri spirinn vissulega litinn horn-
auga, þegar hans værin neytt i
rikum mæli, eins og vitað er, að
óreglufólk gerir.
EVI
Nýtt „teppi" ó Miklubrautina
Nýtt malbik, sem lagt verður á
báðar akbrautir Miklubrautar,
milli Kringiumýrarbrautar og
Háaieitisbrautar, mun kosta 22
miiljónir króna. t morgun biðu
vinnufiokkar Reykjavikurborgar
þess að þornaði upp, svo að þeir
gætu hafið verkið, sem væntan-
lega mun standa yfir I fjóra daga.
Verulegt slit hefur komið fram i
steypu á þessum hluta götunnar,
en láta mun nærri, að 13000 biiar
eigi Ieið um hvora akbraut á
hverjum sólarhring.
Viðgerð fer fyrst fram á nyrðri
akbrautinni og verður þvi umferð
vestur i bæ að leita inn i íbúðar-
hverfin á meðan. A sama hátt
verður einstefna i austurátt,
þegar fram verður haldið á hinni
akbrautinni. Að sögn Inga Ú.
Magnússonar, gatnamálastjóra,
hefur verið komið upp vegvisum
við götuna, ökumönnum til
glöggvunar.
Strætisvagnar Reykjavikur
þurfa einnig að breyta leiðakerfi
sinu litilsháttar af þessum sök-
um. Méðan verkið á nyrðri ak-
brautinni stenduryfir, ekur leið 6
um Safamýri, Háaleitisbraut,
Skipholt og Bólstaðarhlið. Leið 8
ekur hins vegar um Sléttuveg,
Kringlumýrarbraut og Hamra-
hlíð.
Þetta eru fyrstu endurbætur,
sem gerðar eru á Miklubrautinni,
siðan gatan var steypt á þessum
kafla árið 1962.
Carlos og Constantín
nú ó meðal aðdóenda
Ingimars Eydal
Hljómsveit Ingimars Eydal
gerir það gott vlðar en i „Sjall-
anum” á Akureyri. Siðastliðið
föstudagskvöld skemmti hljóm-
sveitin á næturklúbbi á Spáni,
og á meðal þeirra sem klöppuðu
hljómsveitinni mest lof i lófa
voru þau Carlos rikisarfi Spán-
ar og kona hans Soffia, og sömu-
leiðis þau Constantin og Anna
Maria.
Það var á klúbbnum Jack el
Negro á Palma á Mallorca, sem
Ingimar og hljómsveit hans
fengu hina tignu áheyrendur.
Hljómsveitin Los Valdemosa,
sem íslendingum er að góðu
kunn, á klúbb þennan.
Ingimar Eydal og hljómsveit
hams átti aðeins að skemmta
þarna i hálftlma þetta kvöld, en
að ósk fyrrnefndra gesta lék
& Co
hljómsveitin helmingi lengur.
Carlos óskaði eftir þvi að
hljómsveitin léki eitthvert gott
lag til heiðurs Önnu Mariu og
dreif hana út á gólfið þegar
Norðlendingarnir byrjuðu að
leika og syngja lagið „Det var
en skikkelig böndemand”.
Þegarhljómsveitinhafði lokið
leik sinum var hljóðfæraleikur-
unum boðið að borðinu hjá þess-
Ingimar fékk tigna áheyrendur
si. föstudag.
um nýju aðdáendum sinum og
áttu þar ánægjulega stund.
Snérust umræðurnar einna
lengst um Island og spurði Car-
los ákafast um land og þjóð.
—ÞJM/ÓP