Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1927, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1927, Blaðsíða 1
Rnðlegar Icekningar, Eftir 5teingrím fDaithíasson, hjeraðslcehni. Niðurlag. Margir eru nú þeir, sem í hinum andlegu trúarlækningum sjá hilla undir nýja og betri tíma framund- an, — þar sem prestar og aðrir andansmenn taka öldungis við öll- um sjúklingum af okkur læknunum. Verðum vjer þá að hella út öllu. okkar meðalagutli, henda verkfær- unum út á haug og fara að róa til fiskjar eða púla í kúgrasi til að bafa ofan af fyrir okkur. Þessir aðdáendur andlegu lækninganna bera okkur óspart á brýn, að vjer sjeum afturhaldsáeggir og ofstækis- fullir efnishyggjumenn, sem ekki trúum á guð nje góðu englana og því síður á dáleiðslu, dulhrif, fjar- hrif, hugarslökun og annað margt sem vjer köllum hókus-pókus, en sem þeir kalla dulræn fyrirbrigði, áhrif frá öðrum heimi, hjálp frá ósýnilegum hjálpendum alt í kring- um okkur o. s. frv. — Það vantar heldur ekki, að amerísku lærðu læknarnir hafi fengið ljótt að heyra um þráljmdi sitt í að vilja ekki alment taka upp þessar lækninga- aðferðir. í þetta sinn vill nú svo vel til, að jeg hefi sótt mestallan fróðleik þann um andlegar lækningar, sem jeg hefi borið hjer á borð fyrir ísl. lesendur, úr langri ritgerð í Tima- riti hins ameríska læknafjelags (Journal of the Am. Med. Assoc. 1926, No. 20—21—22.). Ritgerð þessi er skrifuð af sálarfræðing og lieimspekisdoktor, Dr. Alice Poul- sen í New York. Ilefir hann verið til þess kjörinn, af því að hann er talinn óljúgfróður og óvilhallur vísindamaður, sem lagt hefir stund á að fræðast um þessa hluti. Hann hefir tekið sjer fyrir hendur að safna eins áreiðanlegri vitneskju og hægt er að fá úm hinar mörgu trúarlækningar (religious healings) í Bandaríkjunum og er þessi rit- gerð bráðabirgðayfirlit, þar sem fljótt er yfir sögu farið og aðeins ymprað á því helsta, sem þarf nánari athugvinar við, en soinna mun koma út um þetta ítarlegt rit. Dr. Poulsen hefir nú jafnframt því að safna skýrslum frá trúar- flokkunum og læknendum þeirra, aflað sjer skýrslna og umsagna frá ýmsum lærðum læknum, bæði þeim, sem liafa sjerstaklega og óhlutdrægt kynt sjer og fylgst með miirgum lækningum iinnan trúarflokkanna og líka frá læknum, sem af hend- ingu hafa kynst árangri lækning- anna á sjúklingum, sem til þeirra hafa leitað á undan og eftir. Andlegar lækningar eru stundað- ar af sumum í sambandi við bæn og guðstrú, en af öðrum án sjerstakr- ar guðstrúar og þá eingöngu með dáleiðslu og beitingu hugar og vilja í vissa stefnu. llvorttveggja aðferð- in virðist gefa sama góða árangur í vissum sjúkdómum — segir Poul- sen. Hinsvegar hjó jeg eftir því, sem Poulsen segir um reynslu hinna meiri trúarlækna. Þeir fullyrða: „að fyrir einlæga bæn til guðs komi ósegjanlegur sælunnar friður inn í sál læknisins jafnt og sjúklingsins. Þeirra innri maður gjörbreytist snögglega og þeim finst þeir nýir og betri menn. Andi friðarins gagn tekur hjartað eins og indæll sumar- ylur á eftir kuldakasti; og það má telja áreiðanlega víst, að flestum má takast að vekja þennan kraft til starfa, já, eins vissulega, eins og að hægt er að safna sólargeislum með brennigleri til að kveikja í viði.“ Því miður er að sögn PouLsens lítið hægt að reiða sig á skýrslur ]>ær um lækningar, sem hinir og þessir undralæknar láta frá sjer fara. Þeir eru venjulega ólæknis- fróðir menn og fara einungis eftir sögusögn sjúklinganna sjálfra, bæði um hvað að þeim gangi og um á- rangurinn. Heldur ekki segja þeir, — enda vita það ekki — á hvaða stigi sjúkdómurinn er, og heldur ekki vita þeir, hve lengi batinn hjelst á eftir, en hin.s vegar algeng sagan sú, um hinar og þessar undra lækningar, að batinn helst aðeins í bili. Væru þessar undralækningar af einu eða öðru taginu eins full- komnar eins og margt fólk gerir sjer í hugarlund og gæti t. d. í raun og sannleika tekist með þeim að lækna krabbann, tæringuna, holds veikina o. s. frv., þá er enginn vafi X

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.