Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1931, Qupperneq 1
Oxford
Eftir
Óskar J. Þorláksson
cand theol.
„Sweet city
with
dreaming
spires.“
Stúdentar á kappróðraræfingu á ánni hjá Oxford.
í fögru umliverfi á bökkum
Thamesárinnar stendur borgin
Oxford. Lágar hæðir liggja að
henni á alla vegu og stendur hún
því í einskonar dalverpi. Cherwell,
sem er ein af þverám Thames,
rennur einnig gegnum útjaðar
borgarinnar.
Óvíða mun vera fegurra um-
hverfi en þar, sem Thames og
Cherwell renna saman; eru þær
báðar lygnar og renna áfram hægt
og sígandi.
Bakkar þeirra eru vaxnir fögr-
um trjám, er breiða þjett limið
niður yfir vatnsflötinn. Víðast
hvar í útjöðrum borgarinnar eru
skemtigarðar með trjágörðum og
sljettum flötum, og loks taka við
lágar hæðir, sem gefa fagurt út-
sýni yfir borgina.
Flestir þeir, sem koma til Ox-
ford í fyrsta sinn munu verða
hrifnir af borginni og umhverfi
hennar. Oxford á sjer nierkilega
sögu. Er hennar fyrst getið í ann-
álum árið 912 og er aldur borg-
arinnar miðaður við það ár, en
gera má ráð fyrir, að hún sje all-
mikið eldri, enda eru til munn-
mælasögur, sem benda mjög til
að svo sje.
Skömmu eftir aldamótin 11
hundruð, er farið að geta um
Oxford sem mentasetur, en hið
fyrsta „college“ er ekki talið
stofnað fyrri en 1249 (University
College) og er það elsta stofnun
hins núverandi Oxfordháskóla.
Upp frá því rís upp hvert „col-
lege“ af öðru og eru flest þeirra
stofnuð á árunum frá 1250-—1628
(eitt stofnað 1868) jafnframt því,
sem borgin vex hröðum skrefum.
Auk þess hafa á síðustu tímum
verið stofnuð nokkur „colleges“,
sem eru í sambandi við háskól-
ann, án þess að vera hluti af hon-
um í eiginlegum skilningi.
Nafnið háskólaborg ber Oxford
með rjettu, því háskólinn setur
bæði svip sinn á borgina og á
borgarlífið, enda á borgin óefað
vöxt sinn og viðgang háskólanum
að þakka.
Háskólinn saman stendur af yf-
ir tuttugu mismunandi „colleges“,
sem dreifð eru um miðbik borg-
arinnar, og er hvert þeirra að
nokkuru leyti stofnun út af fyrir
sig, þótt þau sjeu öll í nánu sam-
bandi.
Öll eru þessi „colleges“ risa-
vaxnar byggingar, bygð í fögrum
stíl með turnum og ótal turnspír-
um, sem gnæfa við himin, þegar
menn nálgast borgina. Venjuleg-
ast eru þau bygð í ferhyming og
er fagur rennisljettur grasflötur
(quad) í miðju.
Hverju „college" fylgir kapella
(chapel) sem bygð er í gotneskum
stíl, fagurlega skreytt með gömlu
og nýju skrauti og stundum glugg-
um, sem varpa töfrablandinni
birtu inn í þessi virðulegu guðs-
hús. Hvert „college" hefir og sitt
eigið bókasafn. Auk þess fylgja