Lesbók Morgunblaðsins - 07.06.1953, Blaðsíða 11
LRSBÓK MORGUNBLAÐSINS
353
Ljónagrarðurinn. Takið eftir hinum grönnu og fögru tnarmarasúlum og út-
flúrinu á veggjunum.
hafði látið höggva þannig 86 menn,
komst skósveinn á snoðir um hvað
var að gerast inni í salnum, og var-
aði hina við. Brugðu þeir þá sverð-
um sínum og hjuggu sér braut út
úr borginni. En blettirnir í kerinu
eru blóðblettir frá þessum degi.
Þeir verða aldrei afmáðir vegna
þess að þarna var út hellt blóði
saklausra manna.
Undir Comares-turninum er hinn
svokallaði „Ambassador“-salur. Er
þar hálfu hærra undir loft en í
hintim sölunum og skraut meira.
Iivelfingin í salnum er svo fagur-
lega gerð, að henni hefur verið líkt
við slípaðan demant. í þessum sal
var haldin ráðstefna, þar sem Boab-
dil veltist úr valdastóli. Skammt
frá borginni er hæð, sem heitir
Monte Paudul. Þar kastaði Boabdil
seinast grátandi kveðju á „rauðu
borgina" og Granada.
m
Márarnir bvggðu hús sín í fer-
hyrning umhverfis skrautgarð, og
garðarnir í Alhambra eru dásam-
legir. — Framundan Ambassador-
salnum er Myrtusgarðurinn, 40
metra langur og 22 metra breiður.
í honum miðjum er vatnsþró að
endilöngu og svnda þar rauðir smá-
fiskar í tæru vatninu. En til beggja
hliða við þróna eru laufgerði úr
myrtusviði, og af því dregur garð-
urinn nafn sitt. Fyrir endum hans
eru súlnagöng og eru súlurnar úr
hvítum marmara og furðulega
grannar. Yfir þennan garð gnæfir
Comaresturninn.
Þá er Ljónagarðurinn, 34 metrar
á lengd og 20 metra breiður, með
súlnagöngum allt umhverfis. Súl-
urnar eru 128 talsins, allar úr hvít-
um marmara og jafn grannar og
fagrar sem í hinum garðinum. Við
báða enda garðsins eru fagrir sum-
arskálar með hvolfþaki og útflúr-
aðir. En í miðjum garðinum standa
12 steinljón í hviríingu og bera á
hryggjunum gríðarstóra vatnsskál
úr alabastri. Á hún að tákna hið
fræga ,,haf“ í musteri Salómons
konungs. Upp af henni er önnur
skál og gosbrunnur í. Margir hafa
orðið stórhrifnir af Ljónagarðinum,
einkum af hinum fögru súlum. Hef-
ur einhver sagt, að súlurnar minntu
sig á tjaldsúlur eyðimerkurbúanna
og því væri byggingarlagið þarna
listræn eftirlíking af tjaldbúðum.
Þá má nefna Lindaraja-garðinn
með langri og mjórri vatnsþró og
röðum af háum og grönnum kyprus
-trjám beggja megin, en úr báðum
bökkum þróarinnar koma ótal mjó-
ar vatnsbunur og falla í boga niður
í þróna. Glitrar sólin í þessum
vatnsbunum mjög fagurlega og
brotna geislar hennar í þeim svo
að þar koma fram margir litir og
fer þetta allt dásamlega við dökk-
grænan lit kyprustrjánna. Márarn-
Horft út í Lindaraja-garðinn