Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.1984, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.1984, Blaðsíða 3
F LESBOE HlöHaiQHulSlllLllAllolSQ]®® Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavlk. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthlas Jo- hannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnar- fulltr.: Gísli Sigurösson. Auglýsingar: Baldvin Jónsson. Ritstjórn: Aöalstræti 6. Slmi 10100. Hringur Jóhannesson hefur málað myndina á for- síðunni, sem heitir einfaldlega „Dúkka í grasi“ og er frá síðasta ári. Myndin er birt í tilefni sýninga Hrings á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsal, sem hefjast einmitt í dag Háskóli íslands verður kynntur áfram og í þetta sinn er það einn anginn úr læknadeildinni: Sjúkraþjálfun, sem er sérstök fræðigrein, og segir María Ragnarsdóttir formaður námsbrautarinnar frá því í viðtali Forslöumyndin: Sjá hér að ofan Sólarljóö eru m.a. það efni, sem Matthías Johannessen tekur fyrir í hugdettum sínum, en Sólarljóð lýsa dauðastund manns og för hans inn í aðra tilveru og ber furðulega vel saman við aðrar lýsingar á því sama. Kristnitakan er einnig til umfjöllunar Flugvélar framtíðarinnar munu fljúga með margföldum hljóðhraða og þá mun þykja hentugt að hafa á lofti flugvélar, sem aldrei setjast. Nútíma farþegaþotur verða eins og forngripir hjá þessum framtíðarfarartækjum, sem nú eru komin á teikniborðin og rúmlega það HEIÐREKUR GUÐMUNDSSON Mynd og minning Skynjar þú bezt á einju andartaki umhverfi þitt og festir þér í minni, er ungur hugur, eftir ljúfan draum, opnast sem blóm að morgni, fyrsta sinni. Sú eina mynd er ætíð glögg og skýr, þótt allar hinar dofni, og á þær flestar falli ryk og gróm. Það gildir jafnt um götu í stórri borg og gamalt hús í bænum sem tæran læk og lítið sumarblóm. Flóð og fjara Barnið góða, gott er veðrið, göngum út að flæðarmáli, þar sem eilíf áin streymir ofan úr gljúfrum fram í sjóinn. Þaðan blakkur strengur stríður stefnir beint til hafs á vorin. Nú er þetta lítil læna, lygn og tær, og bakkinn gróinn. Lækkar í sjó og engin alda ýfir kamb við sandinn mjúka. Leiktu þér að litlum skeljum, leitaðu þar að hörpudiskum. Sjáðu barn, nú byrjar að flæða, bjargaðu hærra gullum þínum. — Stundum hafa straumar þungir stofnað í hættu dóti minu. Dömutískan Eru ekki karlmenn og kven- fólk eins líkamlega og and- lega? hrópaði konan á Ak- ureyri. Það var fyrsta maí. Hún stóð uppi á vörubíls- palli. Það var ræðustóll- inn. Síðan eru mörg ár lið- in. Konan var á undan sínum tíma. Kvennahreyfingar nútímans spruttu upp fyrir áhrif menningarbyltingarinnar í Kína og stúdentaóeirðanna í París og víðar 1968. Vinstri menn sögðu að nú yrði að »virkja« alla, þar með taldar konurnar. Fáeinum árum áður höfðu ungar, nýgiftar konur sagt með miklu stolti og bros á vör: Maðurinn minn vill ekki að ég vinni úti. Skömmu síðar voru orðin: heimavinnandi húsmóðir — orðin skammaryrði. Varalit- urinn, selskapskjóllinn, ilmvatnið og hæla- háu skórnir fuku í ruslatunnuna en í stað- inn komu bættar gallabuxur og peysa. Fína frúin skyldi ekki hefja sig yfir verkakonuna. Þvert á móti átti hún að standa við hlið hennar í kjarabaráttunni og vera »pólitískt virk«. Þó mesti vindurinn sé nú rokinn úr hreyfingum af þessu tagi er kapítulinn ekki á enda. Áróðurinn er enn skipulagður undir sams konar vígorðum. Markmiðin eru hin sömu. Kröfupólitíkin er rekin með svipuðum hætti: Fleiri skóla, sjúkrahús, dagheimili, elliheimili, meira fé til félags- legra þarfa — þó nú væri! Þeir, sem þvæl- ast fyrir framgangi svo göfugra málefna gera ekki annað en auglýsa sitt hraklega innræti. En hver á að borga? Á það er aldrei minnst í alvöru. Stóriðja er bannorð. Hún veldur mengun og hefur í för með sér »fé- lagslega röskun«! Ýmiss konar smáiðnað, segja konurnar. Gallinn er aðeins sá að ekki er farið út í það nánar hvers eðlis sá »ýmiss konar smáiðnaður« á að vera, hvað á að búa til og hvernig. Það minnir á svar mannsins sem þótti gera lítið á vinnustað og var spurður hvort hann hefði ekki fleiri járn í eldinum. Og ekki stóð á svarinu: »Jú, jú, ég geri meðal annars ýmislegt annað.« „Meðvitaða" frúin fer í friðargöngu, heimtar ísland úr NATO herinn burt, kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd og niður með álver. Hún styður verkföll hér heima (einkum ef hægri stjórn fer með völd) en skellir sér um leið í vinnuferð til Kúbu. Kartöflubændurnir í Þykkvabænum mega lepja dauðann úr skel. En sykuruppsker- unni á Kúbu skal bjargað! Sú „meðvitaða" fylgist grannt með því hverjir standa réttu megin í bókmenntum og listum og öðrum menningarmálum og sparar ekki að halda nöfnum þeirra á lofti. Hinir mega éta það sem úti frýs. Og því er ekki að neita að hún stendur að ýmsu leyti vel að vígi. Þjóðfélagið ís- lenska gefur á sér margan höggstað. Stjórnmálaflokkarnir, sem voru í fyrst- unni samtök fjöldans, nálgast það meir og meir að verða einangraðar klíkur þar sem völdum er deilt til fáeinna útvalinna — áhrifastöðum, fríðindum, jafnvel pening- um! Á sama veg er komið fyrir stéttarfé- lagaforystunni, og ekki betur. Þar er áróð- ursvélin orðin hvað smurðust, sjálfvirkust og afkastamest. Vígorðafroðan þar á bæ er vægast sagt ísmeygileg. Félagi í stéttarfé- lagi eða stórnmálaflokki á að borga sín gjöld og þegja. Inn á þetta dramatíska svið gervilýð- ræðis og metorðastreitu kemur sú „með- vitaða" með tífalt verkakonukaup, klæðist peysu og gallabuxum, brosir í sjónvarpi svo skín í hvítar, heilbrigðar og vel burst- aðar tennur, lýsir grátklökk samúð sinni vegna »smánarkjara hinna lægst launuðu« og tekur að safna atkvæðum í þeim vænd- um að komast hærra en nokkrir hælaháir skór geta lyft henni — næm fyrir tískunni eins og fyrri daginn. Er ekki merkilegt hversu þeir, sem allt- af synda ofan á í þjóðfélaginu, eru fljótir að grípa tækifærin og átta sig á nýjum tímum? ERLENDUR JÓNSSON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 25. FEBRÚAR 1984 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.