Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.1984, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.1984, Blaðsíða 12
Sjúkraþjálfun samræmi við niðurstöður greinarinnar. Sami sjúkdómurinn getur tekið á sig margar myndir t.d. verið á mis alvarlegu eða háu stigi. Þegar við þetta bætist að sjúklingurinn hefur sín persónubundnu sérkenni og félagslegu aðstæður er aug- ljóst að ekki er hægt að semja staðlaða meðferðaráætlun fyrir alla með sama sjúkdóm, slys eða áfall. í meðferðinni er reynt að setja fram raunhæf markmið fyrir viðkomandi einstakling og stefnt að sem mestu starfrænu sjálfstæði miðað við aðstæður hans. Til að ná þessum mark- miðum beitir sjúkraþjálfarinn ýmsum að- ferðum til dæmis styrktarþjálfun, liðlos- un, raförvun, lungnaþjálfun, þrekþjálfun svo eitthvað sé nefnt. Til skamms tíma hafa aðferðirnar aðallega byggt á reynslu, en í seinni tíð hafa rann- sóknir í faginu aukist mjög. Já, nú eru umtalsverðar rannsóknir í gangi víða erlendis á ýmsum aðferðum sjúkraþjálfara og fleiru, sem tengist fag- inu, enda eru rannsóknir því lífsnauðsyn- legar vilji það standa fast á þeirri kröfu að kallast fræðigrein. í upphafi var sjúkraþjálfun tæknigrein, litið var á sjúkraþjálfarann sem eins kon- ar „framlengdan arm læknisins" og þannig vilja sumir líta á fagið enn í dag. En á síðustu áratugum hefur sjúkraþjálfun þró- ast í fræðigrein með rætur bæði í raunvís- indum og félagsvísindum. Hér á landi er lítið um rannsóknir enn sem komið er vegna fámennis og aðstöðuleysis. Aðstaða til rannsókna er ekki góð, en það má líka segja um aðstöðuna almennt víða á sjúkrahúsum og endurhæfingar- stofnunum. Hvaða áhrif telur þú að þetta geti haft á atvinnuhorfur? Verkefnin eru næg um fyrirsjáanlega framtíð, en við lifum á krepputímum og því má búast við að það komi niður á okkur eins og öðrum á þann veg til dæmis að aðstöðugildum fjölgi hægt og eins verð- ur iíklega lítil aukning á húsrými fyrir sjúkraþjálfun. Hvaö viltu segja um möguleika til fram- haldsnáms? Það má segja að hægt sé að afla sér sérfræðiþekkingar innan sjúkraþjálfunar með tvennum hætti. Annars vegar með því að starfa á tilteknu sérsviði um lengri tíma og afla sér þannig víðtækrar reynslu- þekkingar um leið og hin fræðilega þekk- ing er aukin með lestri bóka, tímarits- greina og þátttöku í styttri eða lengri námskeiðum. íslenskir sjúkraþjálfarar hafa sérhæft sig á þennan hátt í nokkrum mæli t.d. í meðferð barna, mænuskadd- aðra og baksjúklinga svo eitthvað sé nefnt. Hins vegar er svo framhaldsnám, sem hægt er að taka t.d. á Norðurlöndum og í Englandi, meistaragráðu er hægt að taka í Bandaríkjunum og Kanada og doktors- gráðu í sömu löndum og viðar. T.d. voru 11 sænskir sjúkraþjálfarar í doktorsnámi á síðasta ári. , m Kennslugreinar í námsbraut í sjúkraþjálfun Eölisfræöi Fósturfræði Líffærafræði Starfræn líffærafræði Lífeðlisfræði Hreyfingafræði Sjúkranudd og þreifing Leikfími Taugalíffæra- og lífeðlisfræði Rafmagnsfræði Meinafræði Hópæfingar Aðferðafræði og tölfræði Sjúkdómafræði Sjúkraþjálfunarfræði Sálarfræði Afbrigðileg sálarfræði Félagsfræði BS-verkefni Klínískt nám, sjá sér grein 0r sögu námsbrautar í sjúkraþjálfun Námsbraut í sjúkraþjálfun í Háskóla íslands var stofnuð árið 1976. Tildrög að stofnun námsbrautarinnar voru þau, að háskólayf- irvöld töldu æskilegt að fjölga námsleiðum innan Háskólans, Is- lenskir námsmenn áttu mjög erfitt með að fá inngöngu í nám í sjúkraþjálfun erlendis og mikill skortur var á sjúkraþjálfurum hér á landi. Árið 1973 var því sett á stofn undirbúningsnefnd á vegum menntamálaráðherra. Nefndina skipuðu: Runólfur Þórarinsson, formaður, Guðlaug Sveinbjarnardóttir, sjúkraþjálfari, Hannes Blöndal, prófessor, Haukur Þórðarson, yfirlæknir, og María H. Þorsteinsdóttir, sjúkraþjálfari. f október 1974 tók Ella Kolbrún Kristinsdóttir til starfa með nefndinni, en fram að því hafði hún kennt sjúkraþjálfun I Englandi um nokkurra ára skeið. Nefndin skilaði álitsgerð að vori 1975 og skömmu síðar var samþykkt í háskólaráði að nám I sjúkraþjálfun skyldi hefjast haustið 1976. Ella Kolbrún Kristinsdóttir var sett námsbrautarstjóri 1. maf 1975 og var eini Islenski kennarinn fyrsta árið, en með henni starfaði það ár kanadískur sendikennari Marjorie Spence. Haustið 1977 var ráðinn annar kennari og sá þriðji 1. janúar 1978 og hefur kennarastöðum við námsbrautina ekki fjölgað sfðan. (Sj» grein Mnrlu H. Þorsteinsdéltur, lektors i Árbék HÍ 1976-77.) Kennsla á sjúkrastofnunum Kcnnsla í námsbraut f sjúkraþjálfun fer fram í fyrirlestrum um fræðileg efni og verklegri kennslu aðferða. Á 2. 3. og 4. námsári eru nemendur einnig í kennslu á sjúkrahúsum og endurhæfingastofnunum, sem veitir þeim reynsluþekkingu f sjúkraþjálfun og nefnist sú kennsla verkmenntun. Verkmenntun fer aðallega fram á Stðr-Reykjavtkursvæð- inu, en vegna skorts á kennurum og kennsluaðstöðu þar, hefur þurft að senda nemendur vfðar td. til Akurcyrar, Akraness, Keflavíkur og fleiri staða. f verkmenntun nýta nemcndur fræðilcga þekkingu sína við raun- verulegar aðstæður. i Þeir: ; — kynnast sjúkdómseinkennum — öðlast leikni í að skoða og meta ástand sjúklinga — fá reynslu í að velja viðeigandi aðferðir og beita þeim af nákvæmni og öryggi • — fá reynslu í að leggja fram ákveðin verkefni munnlega og skriflega. Viðhorf nemenda heldur áfram að mótast og þeir fá reynslu f sam- 1 skiptum við sjúklinga og samstarfsfólk. I aSArÁflingi í efnisyfirliti fyrir árið 1983, sem fylgdi Lesbók 4. febrúar, var saga eftir Franz Kafka, „Skýrsla flutt w 1fly akademíunni", ranglega sögð þýdd af Hannesi Péturssyni. Það er hinsvegar rétt sem stendur í efnisyfir liti, að Hannes þýddi „Fyrir dyrum lögmálsins" eftir Kafka, sem birtist í sama blaði. Saga frá stríðsárunum Þessi saga var mér sögð ný- lega. Hún er frá stríðsárunum. Nokkrir setuliðsmenn sátu við sama borð á Hressingarskálan- um. Sumir voru breskir, aðrir úr Bandaríkjaher. Þetta var í skammdeginu og allir höfðu mennirnir verið hér lengur en þeim þótti við hæfi. Englending- ur sagði: Það held ég að helming- ur liðsins hér verði brjálaður, ef við verðum látnir hírast hér lengur. Bandaríkjamaður sagði: Ekki er að undra það þótt út- lendingar kunni illa við sig á þessu myrkvaða skeri. Ég er mest hissa á því að íslendingar skuli ekki sjálfir hafa flúið héð- an á meðan friður var. Frásögumaður kvaðst hafa verið á ferð í Bretlandi fyrir nokkrum árum. Þar kynntist hann þarlendum sálsýkisfræð- ingi. Barst talið að hernámsár- unum á íslandi. Læknirinn kvaðst einmitt hafa þurft að að- stoða marga fyrrverandi her- menn úr setuliðinu á Islandi, en bætti við í gamni, að fróðlegt væri fyrir sig að kynnast alsgáð- um íslendingi, spurði hvort veð- urfar á því landi væri ekki dálít- ið þrúgandi. Meira segi ég ekki frá þessu M I N U H O R N 1 samtali. En auðvitað getum við haldið áfram spjalli um sama efni. Myrkrið hefur löngum verið yfirþyrmandi mikinn hluta árs- ins á landi voru, birtan mikil hinn helming þess. Þetta hefur að sjálfsögðu mótað okkur og þó fremur í fortíðinni en nú. Þetta er verðugt rannsóknarefni fyrir lærða gáfumenn í nútíð og fram- tíð, eflaust væri hægt að krækja að opinberu lífi, geta við því bú- ist að ýmislegt, sem þeir hefðu sjálfir viljað að væri myrkrinu hulið, komi í dagsljósið, þegar þeir eru allir. Það er auðvitað alltaf álitamál hvað sanngjarnt er að ganga langt í því að rjúfa þann trúnað, sem sýna ber einkamálum látinna manna. Ein jólabókanna í ár féll yfir almenning eins og nokkurs kon- undur. Hluti þessarar sögu var mörg- um kunnur áður. Dóttir Þór- bergs heitir Guðbjörg og er nú ekkja í Kópavogi. Maður hennar var ívar Jónsson, járnsmiður, greindur og einarður maður, sem lengi var kunnur í vinstri hreyf- ingunni. Skömmu eftir lok stríðsins fór hann á fund Þór- bergs ásamt konu sinni og kvað Sjálfsögð mannréttindi og myrkur á íslandi sér í doktorsnafnbót út á þetta ef vel væri að því staðið. Ástarbréfabók Þorbergs Það er ekki nýtt í bókmennta- sögunni, að bréf og handrit skálda, sem þau hafa ætlað eldi og gleymsku, komist síðar á prent. Ekki væri t.d. Kafka kunnur og dáður höfundur, ef vinur hans hefði fylgt fyrirmæl- um hans og brennt handrit hans. Menn, sem alla ævi sína hafa lif- ar bomba. Laundóttir Þórbergs Þórðarsonar, sem fædd er 1924 og þá kennd dauðsjúkum eig- inmanni móður sinnar, varpar á markað ástarbréfum sem Þór- bergur sendi ástkonu sinni og barnsmóður. Þetta kveðst hún gera til þess að auglýsa það fyrir þjóðinni, hvers dóttir hún sé og að bæði móðir hennar og hinn rétti faðir, hafi fyrir henni og1 fjölmörgum öðrum, meira að segja við opinber réttarhöld, lýst því yfir að faðir hennar sé eng- inn annar en hinn kunni rithöf- þau vilja fá skýr svör hans um það, hvort hann væri faðir Guð- bjargar. Þórbergur átti, sagði sagan, að hafa svarað með annarri spurn- ingu: Hvað segir móðir hennar um það? Eitt er víst að gott sam- band komst um hríð á milli dótt- ur, föður og stjúpu. Síðan mun upp úr því hafa slitnað, en aldrei hefur þess verið getið hvað olli. Við dauða Þórbergs munu af- komendur hans ekki hafa verið nefndir til arfs eigna eða höf- undarréttar rita hans. Mál og menning hefur keypt rétt til útgafu á ritum Þórbergs og í sambandi við útgáfu um- ræddra ástarbréfa birti útgáfu- stjórn yfirlýsingu, sem skilja má sem hótun í garð Guðbjargar. Vonandi verður látið við orðin tóm sitja, annað væri ósæmilegt, eins og allt er í pottinn búið. Al- menningur hlýtur að harma hve illa þessum málum hefur lyktað og hafa samúð með ekkjunni í Kópavogi, sem rænd hefur verið á óskiljanlegan hátt sjálfsögð- ustu mannréttindum. Ekki ætla ég að fara mörgum orðum um þessa bókargerð. Hér er af vafasamri háttvísi staðið að málum. Mér virðist, að aðeins hluti bréfanna hefðu átt að koma á prent, hitt geymast til aðgangs fyrir seinni tíma fræði- menn. En úr því nokkuð var birt átti það að gerast með öðrum hætti en hér er gert. Enn eru á lífi menn sem varpað gætu betra og meira ljósi á öll þessi mál. Það verður að gera, annað væri ósæmilegt, bæði vegna Þórbergs og ástkonu hans. Guðbjörg hefur ekki leitað til góðra ráðgjafa. Hún verður að snúa sér til dug- andi lögmanns og hér verða líka að koma við sögu bókmennta- legir fræðimenn. Ritaö í des. 1983, Jón úr Vör.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.