Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1988, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1988, Blaðsíða 11
myndum frá þessum tíma, t.d. eftir Jan van Eyck „Jan Arnolfini og kona hans“ og „Frú í Nuremberg á sunnudagsklæðum" eftir Albrecht Durer. Til að ná þessu útliti var settur lítill púði undir fðt konunnar, sem voru með mitti rétt undir bijóstunum. Efri hluti klæðanna var óþægilega þröngur til að draga fram mjúka línu barmsins. Um 1470 komu fram einna mestar ýkju- breytingar á kvenlegum vexti. Juana Portú- galsdrottning komst að því að hún var van- fær að bami sem ekki var mögulegt að Henrik V, hinn lamaði eiginmaður hennar, hefði getað gert henni. Til að fela ástand sitt fór hún að klæðast pilsum með gjörð kvenna, heldur einnig á smástúlkur. Þær vom vægðarlaust látnar ganga í þessum þvingandi fötum, allt frá bamæsku, í þeirri trú að ef vöxturinn væri þvingaður snemma yrði árangurinn aðlaðandi líkami með tíman- um. Þegar tveggja ára dóttir rithöfundarins Johns Evelyn dó 1665 sá læknirinn, sem skoðaði líkið, að bringubeinið hafði þrýst inn á við og tvö rifbein brotnað, sem afleiðing af þröngu lífstykki. Gjörð úr málmi eða hvalbeini kom fram nokkrum ámm fyrr. Hún var sett framan á lífstykkið til að ná enn beinni línu. Tak- markið var að ná langri, grannri línu með mjóu mitti og reistum barmi, sveigja barms- ins var aukin með spöngum, sem settar vom hlið við hlið að framan. Og til að auka enn á óþægindin vom einnig sett bein þvert yfir herðablöðin til að gera bakið flatara. Mikla nákvæmni þurfti til að útbúa þessi klæði, við að mæla, klippa og sauma (þetta var áður en saumavélin kom til sögunnar). Tískan tók ekkert tillit til þess hvemig þeim leið, sem klæðast áttu þessum flíkum. Ekk- ert virtist koma í veg fyrir að konur neydd- ust til að nota lífstykki. Margar teikningar frá 1769 sýna lífstykki fyrir vanfærar kon- ur, reiðkonur og unglingsstúlkur. Um 1780 virtust konur ekki hafa neinar mjaðmir en þeim mun fyrirferðarmeiri bijóst og bakhluta. í Frakklandi um 1800 var í tísku vaxtarlag, sem minnir á alifugla, myndað með rasspúða og hálsklæði með pífum og dúllum. í lok aldarinnar gátu konur aftur andað léttar um tíma, _ þar sem þröng lífstykki hurfu að mestu. Áhugi á fomgrískri og róm- verskri menningu kom fram í kjólum úr örþunnum mjúkum efnum, sem þörfnuðust lítilla undirklæða. Þetta tímabil stóð því miður stutt og lífstykkið var aftur tekið í notkun um 1830 af endumýjuðum krafti. Það pressaði barm- inn þó ekki lengur í mjóa strýtu en varð jafnvel enn þrengra um mittið en áður. Sennilega var Napoleon að skírskota til þessarar tísku þegar hann sagði: „Lífstykki era morðingjar mannkyns." Og það er kannski ekki fjarri lagi, þar sem þau þrýstu á innri líffæri, sem gat valdið aftnyndun er jafnvel leiddi til dauða kvenna við bamsburð. Um þetta leyti fór rómantíska skeiðið í hönd, með skrautlegum íistaverkum, sem hafði þau áhrif á klæðnað kvenna að pilsin víkkuðu meir og meir. Til að ná títu- pijónsmjóu mitti klæddust konur hinu ómissandi lífstykki. Tegundum þeirra fjölg- aði á tuttugu áram úr 2 í 64. Á þessum rómantíska tíma iðkuðu konur það að falla í yfirlið af minnsta tilefni. Ekki máttu þær láta ofan í sig nema ögn af mat, allavega ekki á almannafæri, þar sem lystarleysi var í samræmi við kvenlegan yndisþokka. Ástæðan fyrir hinum tíðu yfírliðum var ein- faldlega skortur á súrefni, þar sem bijóst- kassinn var svo samanpressaður að ómögu- Vel klædd viktoríönak frú á síðustu öld bar ótrúlegan þunga utan & séríöllu sem hún klæddist. Þegar mikið var haft við, gat frúin verið í 9 flíkum h verri utiin yfir annarri. innan í til að halda þeim úti. Þessi tíska breiddist síðan út um alla Evrópu. Um miðja 16. öld fóru ítalir að sýna bústnum konum meiri áhuga, eins og franska tískuskáldið Montaigne lýsti því: „Þær eiga að vera stórar og holdugar." Ánnað skáld jafnaði vexti þeirra við víntunn- ur. Á fijálslegum nektarmyndum Titans og Rubens má sjá þetta vinsæla vaxtarlag tíma- bilsins. Þetta varð hins vegar skammvinn sæla, því nú varð umbylting frá mjúkum línum til stífra, beinna forma. Á Spáni kom fyrst fram klæðnaður, sem átti eftir að valda aldalangri þvingun í klæðaburði kvenna. Þetta var beinn millibolur, sem náði niður að mitti, fóðraður með stífum dúk og brydd- aður með vír. Það lengdi mittið, flatti bijóst- in þannig að þau hurfu næstum og mynd- aði strýtulega útlínu frá höfði niður að fæti. Síðasta íjórðung 17. aldar komu svo lífstykkin, líkust jámbúram, með löngum, skörpum framhliðum, til að undirstrika títu- pijónsmjótt mitti. Málverk frá 1655 eftir óþekktan málara sýnir skarti hlaðna her- togaynjuna af E1 Infantado í þéttreimuðum spænskum klæðnaði. Það að framhlutinn er svo flatur virðist staðfesta það sem talið er, að bolur ungra stúlkna hafi verið reyrð- ur frá bamæsku til að hindra þroska bijóst- anna. Hin þungbúna ásýnd konunnar gæti verið merki um þjáninguna, sem þetta hefur valdið. Teikning af lífstykki eins og því sem hún hefur máske klæðst sýnir útflúraðan útbúnað úr jámi, með hjöram að framan með útskotum fyrir bijóstin og að neðan líkist það rýtingi, sem nær næstum niður á lífbeinið. í enskum arkitektúr og húsgögnum þessa tímabils era einnig augljós merki um þessa stirðlegu tísku. Vinsæl lífstykki frá tímabilinu voru gerð úr mörgum lögum af líni eða dúk og styrkt með hvalbeini. Þessi útbúnaður hafði ekki aðeins slæm áhrif á heilsu fullorðinna Konan sem sýningargripur auðmannsins: Enskyfirstéttarkona frá þeim tíma, sem kenndur er við Victoriu drottningu, varklæddþannigað hún gat ekkert gertþótt hún vildi. Hlutverk hennar var stundum það helzt, að bera og sýna utan ásérauðinn. % legt var að anda djúpt. Að borða þannig klæddur var ekki hægt, þar sem fötin vora svo þröng og aðskorin að jafnvel minnsta útvíkkun á maganum gat naumast átt sér stað. Árið 1863 svaraði ritstjóri tískublaðs í Englandi lesendabréfi konu nokkurrar, sem lýsti því að mittismál hennar væri 16 þuml- ungar, með þessum orðum: „Ég hef tekið eftir, að þróunin er sú að þær stúlkur sem mjóst hafa mittið era drottningar dans- gólfsins." Þannig hvatti ritstjórinn heila kynslóð kvenna til að draga fram kvenleika sinn á þennan hátt. í kvikmyndinni „Á hverf- anda hveli", sem á að gerast í þrælastríð- inu, er sena með Scarlet O’Hara þar sem hún heldur sér í rúmstöpul meðan þjónustu- stúlkan bisar við að reyra lífstykkið á henni í 17 þumlunga mittismál. Hin tíðu yfirlið, sem þetta hafði í för með sér, gerðu nauð- synlegt að legubekkir væra úti um allt. Á tuttugustu öldinni neyddust smástúlkur aftur til að klæðast eins og fullorðnar væra. Þær vora reyndar ekki huldar blúndum og fellingum eins og á undangengnum öldum, en við 12 og 13 ára aldur vora taldir dagar djúps andardráttar. Listmálarar hafa gert lífstykki, þennan ómissandi hluta daglegs lífs, ódauðleg í myndum sínum. Málverkið „Skammvinn hylli" frá 1896 eftir Toulouse-Lautrec sýnir herramann horfa á dömu þar sem hún reim- ar að sér lífstykkið. Og á myndinni „Nana“ • eftir Manet sést herramaður með pípuhatt • dást að frakkri snót í lífstykki og undirpilsi. Lífstykkin skipuðu sinn óumdeilanlega sess og héldu konum í fjötram allan síðari hluta aldarinnar. Á hinum glaðværa árum í kringum aldamótin síðustu vora mjóu mitt- in, reyrð af þéttreimuðum lífstykkjum, enn- þá hið eina rétta. Pilsin vora aðsniðin yfír mjaðmimar, víkkuðu út að neðan og sópuðu gólfíð. Þama var kominn stundaglasvöxtur- inn sem allar vildu hafa. Til að skapa þess- ar athyglisverðu útlínur vora lífstykki þessa tíma stíf að framan og mjó í mitti með inn- byggðum púða til að lyfta bijóstunum. Um 1907 náðist löng, spengileg lína með því að vera í beinu lífstykki, sem náði frá mitti og vel niður fyrir mjaðmir. Maður gæti nú haldið að konur losuðu sig við þess- ar þrengingar, a.m.k. á meðan þær hvfldust eða stunduðu íþróttir, en milli 1900 og 1910 vora notuð stutt lífstykki úr teygju, þegar konur tóku þátt í íþróttum. Snemma á öidinni þegar lífstykkið síkk- aði, var barmurinn studdur af aðskomum millibol. Þetta var fyrirrennari bijóstahalda, sem komu á markaðinn á 4. áratugnum. Miklar breytingar urðu á klæðnaði kvenna eftir fyrri heimsstyijöldina. Konur höfðu lagt sitt af mörkum á stríðsáranum ogJiófu nú þátttöku í atvinnulífinu, fengu aukin réttindi og fóra að vinna utan heimil- anna. Fyrir konur, sem nú lifðu ftjálsara lífí, varð tískan að vera hentug. Ekki var lengur lagt eins mikið upp úr mjóu mitti og fögram barmi, pilsin voru stytt og sokka- bandabeltið várð vinsælt. Þetta var fyrir- boði drengjalegs útlits kvenna næsta ára- tuginn. Um 1925 var mittislínan neðarlega og frjáls. Chanel og á eftir henni Patou og Lelong sköpuðu drengjalega tísku. Bijóstin vora aftur flöt, nú vafin með breiðu bandi í stað hins óþægilega lífstykkis áður. Til að gera sem minnst úr öllum bogalín- um var nú hannað lífstykki, sem gerði mjaðmimar mjóar og bijóstin flöt, með því að nota teygjanleg efni. Ungar konur not- uðu aðeins sokkabandabelti til að halda sokkunum uppi óg sala lífstykkja hrapaði um tvo þriðju milli 1920 og 1928. Mörgum þéttvöxnum til ánægju voru mjúkar línur aftur taldar kvenlegar á 4. áratugnum. Nú var bijóstunum lyft og þau aðskilin með bijóstahöldum í fyrsta sinn. Um 1947 komu á markaðinn magabelti með löngum sokkaböndum frá Christian Dior. Síðan komust hlíralausir kvöldkjólar í tísku á 5. og 6. áratugnum og þá urðu samföst bijóstahaldari og sokkabandsbelti vinsæl. í auglýsingum stóð að þessi undirföt féllu þétt að en þvinguðu ekki. Síðastliðin 40 ár hafa framleiðendur keppst við að þróa þunn, teygjanleg efni, sem falla þétt að og móta líkamann, og koma í stað hinna óþægilegu lífstykkja. Tískusérfræðingar segja að hin fijálslega nútímakona muni aldrei aftur láta bjóða sér þvingandi og óþægileg lífstykki gærdags- ins. En spám fatahönnuða erú takmörk sett og þess vegna erómögulegt að segja fyrir um hvaða steftiu hin síbreytilega tíska kvenna tekur í framtíðinni. Þýtt og endursagt úr ensku. SIGRÚN E. HÁKONARDÓTTIR + LES8ÓK MORGUNBLAÐSIMS 20. FEBRÚAR 1988 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.