Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1988, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1988, Blaðsíða 14
Synir kommúnismans Annar er 52 ára gamall tékkneskur verkfræð- ingur, en hinn er 38 ára gamall ungverskur húsameistari. Báðir eru andófsmenn og til- heyra hinum hundeltu hópum andstæðinga alræðisstjómanna í löndum sínum. Þeir hafa Af Rudolf Slansky og Laszlo Rajk. Nöfnin eru kunnugleg, enda eru báðir synir og nafnar frægra kommúnista, sem látnir voru játa á sig upplognar sakir fyrir 35 árum og hengdir. eftir MICHAEL KAUF- MAN aðeins hitzt einu sinni og þá rétt til að tak- ast í hendur og staðfesta hliðstæð örlög sín. Það sem tengir Rudolf Slansky og Las- zlo Rajk er, að báðir eru synir og nafnar frægra kommúnista, sem voru hengdir fyrir 35 árum eftir að hafa játað á sig upplognar sakir í vel auglýstum sýndarréttarhöldum. Ef líf og dauði feðra þeirra er söguefni í „Myrkri um miðjan dag“, þá eru örlög sonanna á sinn hátt framhald af verki Art- hurs Koestlers. Undir oki flokksagans og með pyntingum fengust feður þeirra til að viðurkenna rangar sakargiftir og treysta þannig kerfi, sem þeir trúðu á jafnvel allt fram á gálgann. Nú véfengja synimir jafn- vel þær goðsagnir, sem orðið hafa til um feður þeirra og bera þannig brigður á þetta kerfi. • í Prag, þar sem hið pólitíska andrúmsloft er kalt og kúgunin leynir sér ekki, og í Búdapest, sem er mun ftjálslegri borg. þótt frelsið sé naumt, tengja þessir tveir menn sín frægu nöfti andófi og andstöðu við ríkjandi stjómarfar. Rajk, sem aldrei þekkti föður sinn, gerir það með ögrandi, ung- versku yfirlæti, en Slansky með hlédrægni, tómlæti og þögn. í nær fjóra örlagaríka áratugi hafa þeir báðir orðið að þola ofsókn- ir, útlegð, smán og hin flóknustu vandræði. Þeir hafa ýmist leitað svara eða huggunar þagnarinnar. SaklausBörn Þekktra Manna Á hinum ýmsu tímum hafa þeir hitt fólk, sem hefur litið á feður þeirra sem hetjur, fómarlömb, píslarvotta, leikbrúður, fífl og varmenni. Þeirra eigin viðhorf gagnvart þeim mönnum, sem þeir heita í höfuðið á, em skiljanlega margslungin. Þeim hefur dottið í hug að skipta um nafti, en ætla ekki að gera það. Þeir voru saklaus böm þekktra manna, sem vom næstvaldamestu kommúnistar landa sinna og gegndu sem slíkir hlutverk- um hetjulegra brautryðjenda nýrrar vitund- ar. En þegar ofsóknaræði Stalíns magnaðist við villu og uppsteyt Titos í Júgóslavíu, vom feður þeirra handteknir, dæmdir og teknir af lífi sem svikarar, en svo nokkmm ámm síðar hreinsaðir af öllum þessum áburði og sýndur heiður að minnsta kosti að nokkra leyti. Ráðamenn og þeir, sem hyggja á frama í stjómkerfínu, forðast synina í dag, ekki vegna þess að þeir líti á þá sem hugmynda- fræðilega úrhrök, heldur af því að kunnings- skapur við þá og samband gæti bakað þeim óþægindi innan kerfísins. Synimir blanda aðallega geði við aðra andófsmenn og lista- menn, óbundinn hóp andlega skyldra sem em nokkrir tugir að tölu. Meðal þeirra em menn á borð við Adam Michnik, hinn pólska ráðunaut Samstöðu, ungverska neðanjarðar ritstjórann Miklos Haraszti og marga þeirra, sem undirrituðu Mannréttindaskrána 77 í Tékkóslóvakíu. Fólk, sem hefur alizt upp við róttæka vinstri stefnu sem synir og dætur foreldra, sem stundum urðu að þola fangelsi og pyntingar fyrir það, sem þeir vom sannfærðir um að væri hinn fyrirheitni kommúnismi. Áður en mánuður var liðinn, frá því að Rajk eldri hafði játað, að hann væri frots- kíisti, borgaralegur þjóðemissinni og endur- skoðunarsinni í september 1949, en hann hafði verið innanríkis- og síðan utanríkisráð- herra Ungveijalands, var hann hengdur í fangelsisgarði. Kona hans var nálæg, hún heyrði, er aftakan fór fram, en sá hana ekki úr fangaklefa sínum. Nokkmm ámm síðar var lík hans flutt úr ómerktri gröf og jarðsett að nýju undir tignarlegu minnismerki við hátíðlega athöfn með þátttöku hundraða þúsunda syrgjenda hið viðburðaríka ár 1956. Til er fréttamynd, sem sýnir son hans, sem var aðeins 9 mán- aða gamall, þegar faðir hans var líflátinn, brosa hálfvandræðalega að því er virðist, um leið og hann mokar í gröfina. Næst honum stendur móðir hans, sem drengurinn hafði kynnzt aðeins tveim ámm áður, eftir að hún hafði verið látin laus úr fangelsi, en hann farið úr munaðarleysingjahæli, þar sem honum hafði ekki verið sagt sitt rétt nafn. „Með Félagslegum KVEÐJUM“ Hvað varðar Slansky, sem hafði verið aðstoðarforsætisráðherra í Tékkóslóvakíu, var ekki um neina gröf að ræða. Þremur ámm eftir að hann var hengdur 1952, fékk ekkja hans, sem þá var enn í fangelsi, vott- orð frá hinu opinbera þess efnis, að dauða manns hennar hefði valdið „köfnun við hengingu". Eftir 9 ára fyrirspumir og eftirgrennslan var svo Josefu Slansky kunngert, að líkams- leifar manns hennar hefði verið brenndur og að kmkkan með ösku hans hefði síðar verið eyðilögð til að lýma fyrir öðmm. Bréf- inu .frá innanríkisráðuneytinu lauk með þessari háttvísi: „Með félagslegum kveðj- um.“ Eins og svo mörgum öðmm, sem búa í Austur-Evrópu, hafði mér þótt mjög athygl- isvert, hvemig skuggar hins liðna, óljósir kaflar sögunnar, að hluta ritskoðaðir, oft endurskoðaðir og undanfarið í vaxandi mæli véfengdir, hafa ásótt bæði leiðtoga og borgara kommúnistaríkjanna. Mér fannst, að líf þeirra Rajks og Slanskys yngri hlyti að endurspegla þann vanda og þær ógöngur, sem það samfélag rataði í, þar sem opinberar frásagnir væm svo oft frábmgðn- ar því, sem móðir manns eða amma segði manni eða í sumum tilfellum því, sem hefði hent föður manns. Ég leitaði uppi báða mennina. Laszlo Rajk gerir sér fulla grein fyrir þeim vandræðum, sem nafn hans og návist veldur leiðtogum Ungveijalands, og honum þykir það síður en svo leitt. Hann er hár og fríður og líkist föður sínum mjög. Um tíma rak hann „samizdat“-verzlun í íbúð sinni í Búdapest og seldi þar ólöglegar bók- menntir, en það endaði með útburði af hálfu borgaryfirvalda. Áður hafði hann farið til Póllands til fundar við andófsmenn þar, sem kenndu honum góðar aðferðir við leynilega prentun. Og árið 1985, þegar ungverska ríkisstjómin breytti kosningalögum í átt tij fijálsræðis, reyndi hann að bjóða sig fram til þings sem óháður og utanflokka. „Ég bauð mig fram,“ segir hann, „bara til að sýna, að það væm brögð í tafli, eins og raunin var auðvitað." Tilraunin endaði með því, að ribbaldar frá ríkinu, eins og hann kallar þá, völdu kjömefnd og hindmðu ungt fólk frá því að taka þátt í kosningunni. Síðan þá hefur verið komið í veg fyrir, að Rajk gæti unnið sem arkitekt. Eftir að hafa verið einungis látinn vinna sem teikn- ari, var hann ekki látinn í friði,' fyrr en hann fór. Nú þýtur hann um Búdapest yfir- leitt klæddur leðurvesti með svartan silki- klút um hálsinn og hittir aðra andófsmenn. Stundum vinnur hann sem hönnuður fyrir kvikmyndaleikstjóra. Hann viðurkennir, að „þangað til fyrir skömmu" hafi nafn hans verið sem skjöldur, sem hlífði honum við harkalegri meðferð. Þegar öllu er á botninn hvolft, var Janos Kadar, sem hefur verið æðsti valdamaður í Ungveijalandi sl. 30 ár, nánasti vinur föður hans og að sumra sögn átti hann meginþátt í því að fá hinn hand- tekna til að játa á sig hinar tilbúnu sakir á þágu Kommúnistaflokksins. Og reyndar var Kadar, sem hafði tekið

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.