Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1988, Blaðsíða 23

Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1988, Blaðsíða 23
Rústir Santa Kollones-kastala blasa við frá höfninni í Pap- hos. eins þrisvar sinnum stærri en Majorka sem margir íslendingar þekkja vel. Hægt er að fá bíla- leigubíl fyrir Um 800 krónur á dag með ótakmörkuðum kílómetra- Qölda. Upplagt er að leigja sér bíl og keyra um eyjuna. Fjallshlí- ðamar eru umvafðar gróðri, en skóglendi er meira á Kýpur en á öðrum eyjum við Miðjarðarhaf. Leiðin liggur frá litlum, myndræn- um fiskimannaþorpum við strönd- ina upp í fjallaþorp byggð á stöll- um í fjallshlíðunum. Ekið er fram með litlum ijallalækjum, sem glitra á milli tijánna eða heillandi útsýnisstöðum. Umvefjandi náttúmfegurð og mild veðrátta hafa mótað fallegar þjóðsögur. Kýpur er musteri Afródítu, ástar-og fegurðargyðj- unnar sem reis hér upp úr öldun- um og helgaði sér eyjuna. Róm- veijinn Marc Antoníus helgaði Kleópötm hinni fögm Kýpur og jafnaði töfmm hennar við hin ljúf- fengu Kýpurvín. Þjóðsagnahetjan Ríkarður ljónshjarta kom hér við sögu og landslag er ríkt af sögum og sögnum, enda nær saga Kýpur meira en 9000 ár aftur í tímann. Kýpur er lifandi myndabók af veraldarsögunni. Fomminjar sýna rústir rómverskra mustera, grískra hringleikhúsa og baðhýsa. En ferðamaðurinn getur enn gengið inn í býsanskar kirkjur og virt fyrir sér litríkar mosaikmynd- ir og íkona. Og kastalar frá dög- um krossfara standa opnir fyrir ferðamenn. ÍBÚAR OG LÍFSHÆTTIR Lífshættir Kýpurbúans snúast mikið um fjölskyldu og trúar- brögð. Fjölskylduættliðir halda sterkt saman og fomir trúarsiðir og venjur era mjög í heiðri hafð- ar. Páskarnir em mikilvægasta trúarhátíðin, en uppskemhátíðin og fjölskylduveislur eins og af- mæli, giftingar og skímir em til- efni til almennra hátíðahalda í þorpunum. A Kýpur þýðir orðið „zenos" eða ferðamaður líka gest- ur og þessi tvíþætta merking seg- ir sína sögu. En Kýpurbúar em mjög gestrisnir og taka vel á móti ferðamönnum. Nálægð Aust- urlanda hefur haft áhrif á matar- gerðina og máltíðir em með ívafi af evrópskum og austurlenskum réttum. Góðar máltíðir era tölu- vert ódýrari en á meginlandi Evr- ópu. Kýpur er lýðveldi síðan 1960, en 1974 gerðu Tyrkir innrás á eyjuna og lögðu undir sig norður- hluta hennar eða um þriðja hiuta landsvæðisins. Síðan hefur eyjan verið tvískipt ög samgöngur ekki leyfðar á milli tyrkneska yfirráða- svæðisins og lýðveldisins Kýpur. Eitthvað er að opnast á milli svæð- anna og vonandi verður þróunin í þá átt að eyjan verði ein heild aftur. Það má jafna höfuðborg Kýp- ur, Nicosíu, við Berlín, en borgin er sundurskorin í miðju með borg- armúr, svonefndri „grænni línu“ á milli tyrkneska jrfirráðasvæðis- ins og lýðveldisins Kýpur. Borgin býr yfir gömlum aðlaðandi borg- arhluta með þröngum götum og nýjum, breiðum verslunarstræt- um. Margt er að sjá og skoða í Nicosíu, söfn og kirkjur og ferða- mönnum er ráðlagt að hafa næg- an tima þegar þeir heimsækja borgina. Limassol er önnur stærsta borg á Kýpur, með um 100.000 íbúa. Borgin er fyrst og fremst ferða- mannaborg sem býr yfír ótal tæki- fæmm til afþreyinga. Vínupp- skemhátíð er seinni hluta sumars og þá er ferðamönnum gefínn kostur á að bragða nýju vínin sem em að koma á markaðinn. Blóma- hátíð er á vorin og þá gefur á að líta litskrúðugar blómaskreyting- ar. Yfír sumartímann era margv- íslegar listahátíðir og hljómleika- höld. Næturlíf er fjöragt í borg- inni og úrval góðra veitinrastaða. Ferðaskrifstofumar Urval, Út- sýn og Saga ásamt fleirum em með skipulagðar ferðir til Kýpur. Úrtvals gistiaðstaða er í boði — bæði á hótelum og í íbúðum. Verð- ið virðist vera mjög sanngjamt og hægt að velja á milli nokkurra verðflokka í gistingu. Ferðablaðið vísar á skrifstofumar með nánari upplýsingar. Spennandi vörar fyrir ferða- manninn: Handavinna — útsaum- ur, vefnaður og kniplingar — leir- munir, koparvörur og fleira, allt með þjóðlegu handbragði sem sótt er langt aftur í tímann. Ljúffeng, heit brauð er hægt að kaupa í hveiju Vínuppskeran. þorpi. W&KBÍmÆ , Leirmunir eru ennþá framieiddir með sama handbragði og fyrir 1000 árum. Smx&l&S*k__________________________________________ Ein besta sandströndin liggur 20 mílur austur af Larnaca, við fiskimannaþorpið Ayia Napa. Flugfrakt innanlands Vöruflutningarf lofti sparatímaog fvrirhöfn. Hraðsendingar samdægurstil flestra staða. b Eftirkröfuþjónusta til og frá 26 stöðum. Fraktafgreiðs/a tiI 37 staða á landinu. Fraktafgreiðsla Flugleiða Reykjavikurflugvelli er opin ALLAVIRKA DAGA KL 8.00 TIL 18.00. Á LAUGARDÖGUM KL 8.00 TIL 12.00. Simar vöruafgreiðslu á Reykjavikurflugvelli: Skiptiborð 690100. Vörumóttaka: 690584. Vöruafhending: Allarupplýsingar áskrifstofum Flugleiða og hjá umboðsmönnum. FLUGLEIÐIR LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 20. FEBRÚAR 1988 23

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.