Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.1989, Síða 7
Volvo F16 í þungaSutningvm.
150 000
100 000 /
60)000 ’
Id80 81 82 83 84
87 88 89 1990
Saab hefur aukið söluna um 10% árlega síðustu árin.
en árið 1987 voru afskráðir yfír 16 þúsund
bflar. Flestir voru af árgerðunum 1974 og
1964.
Milton Spring sem rekur vöruflutninga-
fyrirtæki í Svíþjóð var fenginn tii að prófa
F16 vörubflinn frá Volvo nokkrum mánuðum
áður en hann var kynntur opinberlega. Bfllin
var dulbúinn, með grilli og ýmsu öðru útliti
eldri gerðarinnar en samt vakti hann grun-
semdir samstarfsmanna Miltons. Þeim virt-
ist hann kraftmeiri en jafnframt hljóðlátari
en Milton var bundinn þagnareiði og gat
ekkert frætt piltana. Á kvöldin var bfllinn
settur í skemmu svo ekki væri hægt að
gramsa neitt í honum. Þannig prófa verk-
smiðjur stundum ýmsar nýjungar og nýjar
gerðir atvinnutækjanna við eðlilegar að-
stæður áður en þau eru sett á markað.
Sauber-Benz erhinn rennilegasti vagn.
Peter Sauber er maðurinn bak við góð-
an árangur Sauber-Benz sem nú er
orðinn fullgildur þátttakandi í nánast
hvaða kappakstri sem er.
hraðakstursbfl en Daimler-Benz orkubúið,
þ.e. vél, skiptingu og drif og reyndar hafa
hinar þýsku verksmiðjur einnig fjármagnað
fyrirtækið að mestu. Snemma árs 1988
ákváðu forráðamenn Daimler-Benz að hefja
samstarf við Sauber og var áskilið að árang-
ur kæmi fljótt í ljós.
Sauber-Benz hefur þegar sannað ágæti
sitt til hraðaksturs og telja aðstandendur
hans þetta vera einn hraðskreiðasta bfl
meðal kappakstursbfla um þessar mundir.
Byggja þeir það á árangri sem reynsluakst-
ur hefur gefíð nú á liðnu hausti. Það er
kannski engin furða þó að árangurinn sé
góður því vélin skilar nærri heilu hestafli á
hvert kfló eða 700 á móti 870 kg bflsins.
Peter Sauber var sjálfur kappakstursmað-
ur þar til 1973 að hann sagði skilið við
áhættusamt starf við aksturinn. Hvarf hann
þá að teikniborðinu og hóf að hanna bfla
sjálfur og stofnaði fyrirtækið. Árangur hans
varð slíkur að bflamir blönduðu sér iðulega
í baráttu um fyrstu sætin t.d. í Le Mans
keppninni. Hann réði síðar sérstaka teikn
ara og sneri sér sjálfur meira að vélbúnaðin-
um.
ÖKUMENN í MEGRUN
Með svona stórri vél hefur eyðslan verið
sífellt vandamál og þyngd vélarinner einnig.
Eftir ýmsar endurbætur tókst að ráða við
þennan vanda og vegur bfllinn nú alls 870
kg og vélin þar af tæp 200 kg. Lengd hans
er 4,8 m, breidd 1,98 m og hæðin er 1,07
m. Það er síðan heilmikil kúnst að aka svona
bfl rétt eins og öllum kappakstursbflum.
Fjöldi aðstoðarmanna fylgist með og gefa
þeir ökumanni upplýsingar með fjarskiptum
ef á þarf að halda þrátt fyrir að mælaborð
sé mjög einfalt í sniðum í þessum bflum
gefa mælar nauðsynlegar upplýsingar án
þess þó að trufla ökumann um of frá sjálf-
um hraðakstrinum. En þetta reynir verulega
á þá enda eiga þeir til að missa nokkur kfló
í hverri keppni.
JOSEF DHZÚGASVÍLI STALÍN
Ættjarðarljóð
Arnheiður Sigurðardóttir þýddi
Rósarhnappurinn er að ljúkast upp,
og bláklukkumar allt umhverfis hann.
Hið fölva írisblóm er einnig vaknað,
og öll kinka þau kolli í blænum.
Lævirkinn þenur vængi hátt í heiðlofti.
Kvakar hann og syngur.
Næturgalinn kveður kyrrum rómi,
syngur heitu hjarta:
„Megi þú blómgast, ástkært föðurland -
í gleði og giftu.
þú land mitt, lbería.
Og þér Georgíumenn -
megi lærdómsiðkanir
tengja yður ættlandinu. “
Höfundur var kornungur námsmaður f Georgíu þegar hann
orti Ijóöiö. Það er þýtt úr bókinni An American eftir Harri-
son Salisbury. [bería er hluti af Georgíu.
ÁSDÍS JENNAÁSTRÁÐSDÓTTIR
Kærleiksstjarnan
/ haust þegar fór að dimma á kvöldin, tók ég eftir skærri
stömu sem Ijómaði á himninum þegar heiðríkt var úti. Þegar ég
Iá á bakinu í rúminu mínu var hún eins og falleg peria, sem
lýsti inn um gluggann minn. Mér var farið að þykja svo vænt
um stjömuna, að ég saknaði hennar þegar himinninn var skýjaö-
ur. Og ég varð hrædd um að hún kæmi ekki aftur þótt birti til.
En hún kom og hún er þama enn þegar allt er stjömubjart
Éghugsaði oft um sijömuna á daginn ogfann aðhún varstjam-
an mín og hún gerði mig glaða.
Eina nóttina dreymdi mig að ég var komin til stjömunnar
minnar. Ég horfði, með henni, heim til mín inn um gluggann á
herberginu mínu og sá rúmið mitt autt.
— Eg verð að flýta mér heim írúmið mitt, sagði ég við stjöm-
una.
— Ég þarf fyrst að segja þér dálítið, sagði stjaman.
Ég vairð forvitin og horfði á stjömuna sem var svo undur
björt að mér vöknaði um augu.
— Hann afí þinn, sem er á himnum, bað mig að lýsa inn um
gluggann til þín á hvetju kvöldi þegar heiðskírt er í vetur. Ég
er kærleiksstjaman og um leið og ég skín svo skært að þú sérð
mig, þar sem þú liggur í rúminu, er ég að færa þér kærieik frá
honum afa þínum, sem hann ætlaði að gefa þér ef þið yrðuð
saman á jörðinni. Honum þótti svo vænt um þig.
— Má ég sjá hann afa minn, sagði ég við stjömuna.
— Það getur þú ekki, sagði stjaman. Þú getur bara séð hann
í huganum.
Mig dreymdi ekki meira, af því að ég vaknaði. Það var enn
dimmt og ég sá stjömuna mína greinilega. Kærleiksstjaman,
hugsaði ég og mér leið svo vel af því nú fannst mér við afi
eiga þessa stjömu saman.
Nóv. 1988
Höfundur er nemandi viö Menntaskólann í Hamrahlíð.
ÁSGEIR GUNNARSSON
Angistarnótt
Þú nístandi, niðdimma angistardjúp
þú ert napurt sem kolniðaskuggi
mig langar að sveipa þig sólrikum hjúp
en sjá þó í gegn, þar er gluggi
þá sé ég þig kolsvarta deyðandi djúp
þú ert dulítil þoka I fjarska
hví ertu svo kuldalegt, kalt ekki hlýtt?
hví ertu ekki fallegt og notalegt, þýtt?
hvíertu eitt svartnætti, dapurt oggrýtt?
hví ertu ekki blíðlegt og blítt?
þú kannt ekki svarið, þú sérð ætíð svart
þú vilt ekki bæta um betur
þú vilt ekkert hlýlegt, ogalls ekkert bjart
þú vilt bara ískaldan vetur
Far f friði, Svartnætti!
Ljóöiö er endurbirt vegna prentvillu, sem varð og breytti
merkingunni. Höfundur, sem áöur var forstjóri Veltis, og
lesendur eru beðnir velviröingar á þvi.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. JANÚAR 1989 7