Lesbók Morgunblaðsins - 09.09.1989, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 09.09.1989, Blaðsíða 13
LESBOK m ® LH ® S! [n I [b i 5] [áJ S S! [E (Hl ® 9. SE.PTEMBER 1989 FERMBIáÐ LESBÓKAR Mt. McKinley úr flarlægð. Fjallgöngu- og kllfurferðir Við sólsetur í læknabúðum. Tekist á við Mt. McKinley í Alaska Á haustmánuðum 1988 ákvað undirritaður ásamt fleiri áhuga- mönnum um fjallgöngu að nú skildi, á komandi vori, reyna á uppgöngu á eitt kaldasta fjall í heimi, Mt. McKineley í Alaska, en fjallið er um 6.196 m á hæð og er hæsta fjall í N-Ameríku. Pjöldi fjaligöngumanna reynir ár hvert að komast á tind fjallsins en aðeins lítill hluti hefur erindi sem erfiði. Undirbúningur ferðarinnar hófst um sex mánuðum fyrir áætl- aðan brottfarardag enda var að mörgu að hyggja. Fjárfesta varð í búnaði sem gerði mönnum kleift að þola þann mikla kulda sem er að jafnaði á fjallinu. Eins þurfti líkamlegt og andlegt atgerfi að vera í mjög góðu standi því ljóst var að ekki yrði neinn hægðarleik- ur að ganga á fjallið. Því var það að við vorum meira og minna á fjöllum allan veturinn á undan. En eftir því sem leið á vorið breyttist og minnkaði hópurinn sem ætlaði á íjailið og á endanum urðu það aðeins tveir sem lögðu af stað til Alaska, þ.e.a.s. greinar- höfundur og Kristinn Einarsson Akurnesingur. Það var síðan 6. maí sem við yfirgáfum skerið og héldum áleið- is til Alaska og eftir 17 tíma flug og sólarhringsstopp í New York komum við til höfuðborgar Al- Greinarhöfundur að bíða veð- urs í efstu búðum. aska-ríkis, Anchorage. Þar var keypt það sem eftir var að kaupa og var matur til 25 daga innifal- inn í því. Sá bær sem næstur er fjallinu heitir Talkeetna og eina leiðin til að komast þangað var að taka einskonar rútubíl sem var ákaf- lega fornlegur í útliti og brenndi á leiðinni mun meira af olíu en bensíni. Talkeetna er nokkuð skemmti- legur bær. Þar búa um 70 manns þegar mest er og lifa flestir á að Á köldum morgni. þjóna klifrurum og veiðimönnum á einn eða annan hátt. Til að komast að fjallinu frá bænum þarf annað hvort að ganga í gegnum skóglendi í tvær til þijár vikur eða fá einn af nokkrum atvinnuflugmönnum sem bjóða þjónustu sína á þessum vettvangi til að fljúga með sig upp á skriðjökul sem liggur niður af McKinley. Við völdum seinni kost- inn. Flugvélarnar sem flogið er í eru litlar einshreyfils skíðavélar og þegar var búið að troða öllum farangrinum inní vélina vorum við örlítið farnir að efast að vélin myndi hafa sig á loft, en það tókst. Flugferðin uppá jökul var ótrúleg. Flugmaðurinn læddi vél- inni rétt meðfram fjöllum og í gegnum stórfengleg fjallaskörð og útsýnið var með ólíkindum. Við lentum í fyrstu búðum um kl. 11 um kvöld. Sólin var sest, og viðbrigðin að koma úr 8 stiga hita í 20 stiga frost töluverð. Daginn eftir var hið þokkaleg- asta veður þannig að við bjuggum okkur til farar. Hlóðum öllum búnaðinum okkar á snjóþotur og í bakpoka en við vorum með um 70 kíló af farangri hvor. Okkur miðaði vel, en fyrsta dagleiðin var farin að mestu á flatlendi. Á 3. degi var veður hinsvegar ekki eins gott, snjókoma og sást ekki spönn frá rassi. Einnig hafði brattinn aukist það mikið að ekki var hægt að fara með búnaðinn í einni ferð heldur þurftum við að fara með helminginn upp í næstu búð- ir, grafa hann í snjó, fara aftur niður, sofa þar um nóttina, taka afganginn af búnaðinum og fara aftur upp þangað sem við grófum fyrri helminginn af búnaðinum og tjalda. Svona héidum við áfram að fikra okkur upp eftir íjallinu í nokkra daga og alltaf í snjókomu og strekkingi svo varla sást út úr augum. En öll él birtir um síðir og eftir 7 daga göngu náðum við 4.200 metrum. Þá var orðið hið þokkalegasta veður. Tjaldbúðir- nar í þessari hæð voru all sérstak- ar. í þeim var á vegum tveggja háskóla rekin einskonar rann- sóknarstofa þar sem könnuð voru áhrif súrefnisskorts á klifrara. Þarna voru tveir læknar sem , skoðuðu alla klifrara sem komu upp og mældu meðal annars súr- SJÁ NÆSTU SÍÐU n

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.