Morgunblaðið - 17.02.2001, Blaðsíða 59
messa á pólsku kl. 18 í Kvennó,
Víkurbraut.
Akranes: Sunnudaginn 18.2. kl. 18.
Borgarnes: Laugardaginn 17. feb.
messa kl. 16.30 í Borgarneskirkju.
Stykkishólmur, Austurgötu 7:
Sunnudag: messa kl. 10. Mánudag
til laugardags: messa kl. 18.30.
Flateyri: messa kl. 18 sunnudag:
Jóhannesarkapella: messa kl. 11.
Bolungarvík: messa kl. 16.
Suðureyri: messa kl. 19.
Akureyri, Péturskirkja (Hrafnagils-
stræti 2): Messa á laugardögum kl.
18, á sunnudögum kl. 11.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 16.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós: Messa
sunnudag kl. 14. Gunnar Kristjáns-
son sóknarprestur.
BRAUTARHOLSKIRKJA á Kjalar-
nesi: Barnaguðsþjónusta sunnudag
kl. 11 f.h. Gunnar Kristjánsson
sóknarprestur.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum:
Konudagurinn. Kl. 11 sunnudaga-
skólinn. Leikritið Afmælisveislan,
lofgjörð og söngur. Ath. breyttan
messutíma. Kl. 20 þjóðlagamessa
með írsku ívafi. Litlir lærisveinar sjá
um söng. Frumsamið leikrit ferming-
arbarna flutt af þeim. Veitingar á eft-
ir í boði foreldra fermingarbarna. Kl.
20.30 æskulýðsfundur í Landakirkju
rennur inn í þjóðlagamessuna. Eftir
þjóðlagamessu er lokaskráning fyrir
ferðalag í Vatnaskóg fyrir KFUM&K
Landakirkju.
LÁGAFELLSKIRKJA: Taize-guðsþjón-
usta kl. 20.30. Athugið breyttan
tíma. Prestur sr. Kristín Þórunn Tóm-
asdóttir héraðsprestur. Einsöngur
Þorvaldur Halldórsson. Kirkjukór
Lágafellssóknar leiðir safnaðarsöng
við undirleik Jónasar Þóris organista
og Jóhanns Ásmundssonar saxófón-
leikara. Barnaguðsþjónusta í safn-
aðarheimilinu kl. 11.15 í umsjá Þór-
dísar Ásgeirsdóttur djákna og Sylvíu
Magnúsdóttur guðfræðinema. Jón
Þorsteinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðs-
þjónusta á vegum Hins íslenska
biblíufélags kl. 11. Sigrún Valgerður
Ásgeirsdóttir, stjórnarmaður HÍB,
prédikar. Jón Pálsson, fram-
kvæmdastjóri HÍB, les ritningar-
texta. Sr. Þórhildur Ólafs, stjórnar-
maður HÍB, þjónar fyrir altari.
Félagar úr kór Hafnarfjarðarkirkju
leiða söng. Organisti Natalía Chow.
Kirkjuþjónn Ingólfur Halldór Ámunda-
son. Kl. 11 sunnudagaskólar í
Strandbergi og kirkju. Kirkjubíllinn
fer um Hvamma- og Setbergssvæði.
Kl. 16.45–17.30 er kirkjan opin og
hægt að kveikja á bænakertum.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Árni Sigurðsson messar. Frímúr-
arakórinn syngur. Oganisti Úlrik Óla-
son. Sigurður Helgi Guðmundsson.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Umsjón: Edda,
Sigríður Kristín og Örn. Kvöldmessa
við kertaljós kl. 20. Sungnir verða
fallegir bænasöngvar sem nefnast
Taize-söngvar og eru kenndir við
samnefnt klaustur í Frakklandi. Örn
Arnarson leiðir tónlist og söng
ásamt hljómsveit sinni og félögum
úr kór kirkjunnar. Altarisganga.
Prestar: Einar Eyjólfsson og Sigríður
Kristín Helgadóttir.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudaginn 18. febrúar kl. 11. Kór
kirkjunnar leiðir almennan safnaðar-
söng. Sunnudagaskóli á sama tíma
í guðsþjónustunni, yngri og eldri
deild. Organisti: Jóhann Baldvins-
son. Hans Markús Hafsteinsson og
Nanna Guðrún djákni þjóna við at-
höfnina. Prestarnir.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 14. Kór kirkjunn-
ar leiðir almennan safnaðarsöng.
Organisti: Frank Herlufsen. Hans
Markús Hafsteinsson þjónar við at-
höfnina. Prestarnir.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskólinn
laugardaginn 17. febrúar kl. 11, í
Stóru-Vogaskóla. Fermingarfræðsla
kl. 12. Prestarnir.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudaga-
skóli sunnudaginn 18. febrúar, kl.
13, í Álftanesskóla. Rúta ekur hring-
inn á undan og eftir. Prestarnir.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Kirkjuskólinn í
dag, laugardag, kl. 14 í Safnaðar-
heimilinu Sæborg. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Biblíudagurinn. Ylf-
ingavígsla. Kór Útskálakirkju syngur.
Organisti Hrönn Helgadóttir. Björn
Sveinn Björnsson.
HVALSNESKIRKJA: Kirkjuskólinn í
dag, laugardag, kl. 11 í Safnaðar-
heimilinu í Sandgerði. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Biblíudagurinn.
Kór Hvalsneskirkju syngur. Organisti
Hrönn Helgadóttir. Kyrrðar- og
bænastund í Miðhúsum nk. fimmtu-
dag kl. 12 á hádegi. Boðið upp á
léttan málsverð gegn vægu gjaldi.
Allir velkomnir. Björn Sveinn Björns-
son.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðs-
þjónusta sunnudag kl. 14. Kristín
Þórunn Tómasdóttir héraðsprestur
prédikar og þjónar fyrir altari. Nem-
endur úr Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar koma fram. Kirkjukór Njarð-
víkur syngur undir stjórn Steinars
Guðmundssonar organista. Sunnu-
dagaskóli kl. 11 í umsjá Kristínar
Þórunnar Tómasdóttur og Vilborgar
Jónsdóttur.
NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Ástríður Helga Sigurð-
ardóttir leiðir skólann og undirleikari
er Tune Solbakk.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Biblíudagur-
inn. Skátaguðsþjónusta og aldurs-
skiptur sunnudagaskóli kl. 11. Ylf-
ingavígsla. Prestur sr. Sigfús
Baldvin Ingvason. Kór Keflavíkur-
kirkju leiðir söng. Organisti Einar
Örn Einarsson. Undirleikari í sunnu-
dagaskóla Helgi Már Hannesson.
SELFOSSKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Gunnar Björns-
son á Bergþórshvoli prédikar og
þjónar fyrir altari. Morguntíð sungin
þriðjudaga til föstudaga kl. 10. For-
eldrasamvera miðvikudaga kl. 11.
Krakkaklúbbur miðvikudaga kl. 14–
14.50. Leshringur kemur saman á
miðvikudögum kl. 18. Sakrament-
isþjónusta að lestri loknum. Sókn-
arprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Sóknarprestur.
GAULVERJABÆJARKIRKJA: Messa
kl. 14. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11.
HNLFÍ: Guðsþjónusta kl. 11. Jón
Ragnarsson.
KOTSTRANDAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Jón Ragnarsson.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA Hvols-
velli: Fjölskylduguðsþjónusta sunnu-
dag kl. 11. Auður, Jenni og Halldór
leiða börn, kór og kirkjugesti í söng
og hreyfingu. Fyllum kirkjuna okkar
og látum hana tindra og óma af
gleði, söng og sátt.
HLÍÐARENDAKIRKJA í Fljótshlíð:
Guðsþjónusta sunnudag kl. 14.
Fyllum kirkjuna okkar og látum hana
tindra og óma af gleði, söng og sátt.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum:
Biblíudagurinn. Messa kl. 14.
Barnakór Oddakirkju tekur þátt í
söngnum. Helgistund á Dvalarheim-
ilinu Lundi, Hellu, kl. 15.30. Sókn-
arprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa
sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
HAUKADALSKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Biblíudagurinn.
Guðsþjónusta kl. 14. Jóhannes Ingi-
bjartsson prédikar. Heitt á könnunni
á eftir. Sóknarprestur.
BORGARPRESTAKALL: Barnaguðs-
þjónusta í Borgarneskirkju kl.
11.15. Messa í Borgarneskirkju kl.
14. Guðrún Karlsdóttir guðfræðing-
ur prédikar. Sóknarprestur.
ÓLAFSVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Konudagsguðsþjónusta
kl. 14. Fulltrúar Sinawikklúbbsins,
Kvenfélagsins, Soroptimista og
Lionsklúbbsins Ránar lesa ritning-
arlestra og aðstoða við bænagjörð.
Kvennakór syngur stólvers. Óvæntur
glaðningur fyrir allar konur sem
mæta. Taktu elskuna þína með í
kirkju á sunnudaginn! Sóknarprest-
ur.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Kór Ísafjarðarkirkju syngur.
Organisti Hulda Bragadóttir. Sókn-
arprestur.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta fyrir allt prestakallið sunnudag
kl. 11 f.h. Athugið vel tímann. Barn
verður borið til skírnar. Mætum öll
og njótum samveru í húsi Guðs.
Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 14.
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 59
ÁRLEGUR Biblíudagur verður
haldinn næstkomandi sunnudag, 18.
febrúar.
Guðsþjónusta, sérstaklega helguð
Biblíudeginum, verður í Hafnar-
fjarðarkirkju kl. 11 f.h. Opið hús í
Strandbergi eftir guðsþjónustuna.
Árlega er starfs Hins íslenska
Biblíufélags minnst á Biblíudegi og
vakin athygli á Biblíunni og mik-
ilvægi hennar fyrir trú og menn-
ingu.
Meginviðfangsefni Biblíufélags-
ins undanfarin 10 ár hefur verið ný
þýðing Gamla testamentisins og sér
nú brátt fyrir endann á því starfi.
Hið íslenska Biblíufélag tekur
þátt í alþjóðlegu samstarfi Samein-
uðu Biblíufélaganna og hefur á
Biblíudaginn verið safnað til verk-
efna á vegum þess.
Söfnun Biblíufélagsins að þessu
sinni er til styrktar starfi Biblíu-
félagsins í Úkraínu, sérstaklega
starfi þess meðal barnanna sem
veikst hafa í kjölfar Tsjernobyl-
slyssins.
Þeim peningum sem safnast verð-
ur varið til kaupa á barnabiblíum
handa börnunum sem dvelja þurfa á
sjúkrahúsum landsins. Flest þjást
þau af sjúkdómum sem eru afleið-
ing kjarnorkuslyssins í Tsjernobyl.
Biblíufélagið í Úkraínu mun sjá um
að koma bókunum í hendur
barnanna.
Ein barnabiblía kostar aðeins 350
kr.
Við guðsþjónustuna í Hafnafjarð-
arkirkju mun Sigrún Valgerður Ás-
geirsdóttir sem á sæti í stjórn
félagsins predika. Prestur er Þór-
hildur Ólafs sem einnig á sæti í
stjórn félagsins. Kirkjukór Hafnar-
fjarðarkirkju ásamt organistianum
Natalia Chow annast tónlistarflutn-
ing. Guðsþjónustunni verður út-
varpað. Opið hús verður í Strand-
bergi eftir guðsþjónustuna.
Biblíufélagið býður alla hjartan-
lega velkomna til guðsþjónustunn-
ar.
Kærleiksþjónusta
kirkjunnar,
nýjungar í safn-
aðarstarfi
Á FRÆÐSLUMORGNI í Hall-
grímskirkju næstkomandi sunnu-
dag, 18. febrúar, kl. 10 f.h. flytur
Ragnheiður Sverrisdóttir djákni er-
indi um kærleiksþjónustu kirkjunn-
ar og nýjungar í safnaðarstarfi sem
henni tengjast. Þjóðkirkjan hefur á
undanförnum árum unnið að eflingu
kærleiksþjónustu sinnar, bæði á al-
þjóðavettvangi og innanlands, auk
þess sem þjónusta innan safnað-
anna hefur víða aukist. Ragnheiður
Sverrisdóttir hefur víðtæka þekk-
ingu og reynslu af þessu starfi, bæði
hérlendis og erlendis, og hefur
viðað að sér hugmyndum víða að,
sem hún mun m.a. kynna í þessum
fyrirlestri. Nýlega kom út hjá Skál-
holtsútgáfunni bókin Kærleiksþjón-
usta kirkjunnar. Nýjungar í safn-
aðarstarfi, í þýðingu Ragnheiðar.
Að fræðslumorgninum loknum
hefst guðsþjónusta á Biblíudegi kl.
11 í umsjá séra Sigurðar Pálssonar.
Þar verður börnum í sókninni sem
verða 5 ára á þessu ári afhent bók
að gjöf, Kata og Óli fara í kirkju.
Einnig verða tekin samskot til
starfs sem Hið íslenska Biblíufélag
leggur nú lið í Tsjernobyl í Úkraínu.
Karlar í Langholts-
kirkju bjóða í vöfflu-
kaffi eftir messu
SUNNUDAGURINN 18. febrúar
er Biblíudagurinn, og verður tekið
við samskotum til starfs Biblíu-
félagsins. Séra María Ágústsdóttir
messar í Langholtskirkju kl. 11 og
Eiríkur Hreinn Helgason syngur
einsöng.
Organisti verður Guðný Einars-
dóttir, og leiðir hún söng ásamt
félögum úr Kór Langholtskirkju. Í
tilefni konudags bjóða karlar í söfn-
uðinum kirkjugestum í vöfflukaffi
eftir messuna. Að sjálfsögðu ganga
konurnar fyrir en karlmenninrir
mega einnig njóta veitinganna þar á
eftir. Allir velkomnir.
Að venju er einnig barnastarf í
safnaðarheimilinu kl. 11.
Kvöldmessa í
Grensáskirkju
ANNAÐ kvöld, sunnud. 18. febr.,
verður kvöldmessa í Grensáskirkju
og hefst kl. 20. Allt form messunnar
er mjög einfalt og töluðu máli stillt í
hóf. Lagt er upp úr léttum og kröft-
ugum söng við píanóundirleik. Sjálf
messan tekur innan við klukku-
stund en að henni lokinni er mola-
sopi í safnaðarheimilinu. Þetta fyr-
irkomulag höfðar vel til þeirra sem
vilja gjarnan sækja guðsþjónustur í
kirkju en finnst hefðbundið form
þunglamalegt og fráhrindandi. Slík-
ar kvöldmessur eru í Grensáskirkju
þriðja sunnudag í mánuði yfir vetr-
artímann. Hvernig væri að prófa
annað kvöld?
Æðruleysismessa
Dómkirkjunnar
ÆÐRULEYSISMESSA Dómkirkj-
unnar tileinkuð fólki í leit að bata
eftir tólfspora kerfinu verður í
Dómkirkjunni í Reykjavík sunnu-
dagskvöldið 18. febrúar kl. 20:30.
Þar eru allir velkomnir til tilbeiðslu
og æðruleysis.
Lofgjörðina leiðir söngkonan lífs-
glaða Anna Sigríður Helgadóttir við
undirleik Birgis Bragasonar og
Karls Olgeirssonar. Sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir leiðir stundina og sr.
Anna Sigríður Pálsdóttir predikar
og sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson
leiðir fyrirbæn og altarisgöngu.
Jafnframt verður reynslusögu deilt
með viðstöddum. Í lok stundarinnar
verður altarisganga.
Æðruleysismessur eru einstakar
og helgar stundir þar sem fólk kem-
ur og leitar af heiðarleika eftir sam-
félagi við Guð og meðbræður sína.
Það sem einkennir messurnar er
létt sveifla í helgri alvöru.
Æðruleysismessur eru 21. aldar
messur og það eru allir velkomnir.
Helgihald
í Hofsóss-, Hóla-
og Glaumbæjar-
prestakalli
Á LIÐNU hausti, ákvað kirkjuþing
breytingu á skipan prestakalla í
Skagafirði. Breytingin fól í sér að
Hóla- og Viðvíkursókn skuli fylgja
Hofsóssprestakalli, sem framvegis
skuli nefnast Hofsóss- og Hóla-
prestakall. Sóknarprestur er sr.
Ragnheiður Jónsdóttir, sem situr á
Hofsósi. Rípursókn skuli framvegis
fylgja Glaumbæjarprestakalli en
sóknarprestur þar er sr. Gísli Gunn-
arsson í Glaumbæ.
Þessi ákvörðun kirkjuþings gekk
í gildi 1. janúar í ár.
Sunnudaginn 18. febrúar kl. 14,
verður haldin sameiginleg messa
allra sókna í hinu nýja Hofsóss- og
Hólaprestakalli í Hóladómkirkju.
Í messunni mun prófastur, sr.
Dalla Þórðardóttir, flytja stutt
ávarp.
Þar mun hún formlega kynna
breytingu prestakallsins og hinn
nýja sóknarprest Hóla- og Viðvík-
ursóknar. Þessi stund verður einnig
kveðjustund, því að vígslubiskup,
séra Bolli Gústafsson, sem þjónað
hefur sóknunum undanfarin ár,
mun prédika og kveðja Hóla- og
Viðvíkursöfnuð.
Kirkjukórar Hofsósskirkju og
Hóladómkirkju munu syngja og
leiða safnaðarsöng undir stjórn
Önnu K Jónsdóttur og Jóhanns
Bjarnasonar.
Organisti verður Anna K. Jóns-
dóttir. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
þjónar fyrir altari.
Sams konar messa verður í Ríp-
urkirkju sunnudaginn 25. febrúar
kl. 14. Þar mun sr. Gísli Gunnarsson
þjóna fyrir altari, kór kirkjunnar
syngur og organisti verður Stefán
R. Gíslason.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Sóknarprestarnir.
Kvöldmessa
í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði
NÆSTKOMANDI sunnudagskvöld
18. febrúar verður kvöldguðsþjón-
usta í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og
hefst hún kl.20. Að þessu sinni
verða fluttir svonefndir Taize-
söngvar sem eru afar fallegir bæna-
söngvar kenndir við samnefnt
klaustur í Frakklandi. Það er Örn
Arnarson sem leiðir söng og tónlist
ásamt hljómsveit sinni og félögum
úr kór kirkjunnar. Hér er um að
ræða fallega kyrrðar- og bæna-
stund við kertaljós og í lok stund-
arinnar verður altarisganga.
Samkoma hjá
KFUM og KFUK
SAMKOMA í kvöld kl. 20.30. Yf-
irskrift: Stóru skrefin. Upphafsorð
og bæn Salvar G. Guðgeirsson.
Ræða John Knox frá Skotlandi.
Tónlistaratriði. Boðið verður upp á
fyrirbæn í lok samkomu. Allir vel-
komnir.
Neskirkja. Kirkjustarf eldri borg-
ara í dag kl. 14. Myndasýning.
Kristniboð í Eþíópíu heimsótt.
Kaffiveitingar. Munið kirkjubílinn.
Allir velkomnir.
Grafarvogskirkja. AA-hópur hittist
kl. 11.
KEFAS: Samkoma fellur niður
vegna samkirkjulegrar bænastund-
ar á Vatnsendahæð kl. 15. Allir
hvattir til að mæta. Eftir bæna-
stundina á Vatnsenda verður kaffi
og meðlæti í Kefas, Dalvegi 24,
Kópavogi, til styrktar nýju kirkju-
byggingunni. Sýnum samstöðu við
byggingu hús drottins. Þri.: Bæna-
stund kl. 20.30. Mið. Samverustund
unga fólksins kl. 20. Allir velkomnir.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Kl. 11 Litlir lærisveinar, kóræfing í
safnaðarheimili.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skóli kl. 11.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11.
TTT-starf (10–12 ára) kl. 13. Um-
sjón: Hreiðar Örn Stefánsson.
Hjálpræðisherinn. kl. 13 Laugar-
dagsskóli.
Biblíudagurinn,
guðsþjónusta
í Hafnar-
fjarðarkirkju
Hafnarfjarðarkirkja
Safnaðarstarf
MESSUR Á MORGUN