Morgunblaðið - 08.11.2001, Blaðsíða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2001 27
O
D
D
IH
F
H
63
81 Nóatúni 4 • 105 Reykjavík
Sími 520 3000
www.sminor.is
Ljós í miklu
úrvali fyrir
heimilið.
TALIBANAR sýndu í gær brak sem
þeir sögðu að væri úr bandarískri
þyrlu sem þeir hefðu skotið niður í
vikunni sem leið. Brakið var haft til
sýnis fyrir utan gömlu forsetahöll-
ina í miðborg Kabúl.
Arabíska fréttasjónvarpið Al-
Jazeera birti myndir af brakinu og
sagði að einn sona hryðjuverkafor-
ingjans Osama bin Ladens, Hamza,
hefði verið á meðal þeirra sem
skoðuðu það. Hamza er til vinstri á
myndinni.
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið sagði að þyrlan hefði hrapað
í slæmu veðri og talibanar hefðu
ekki grandað neinni bandarískri
þyrlu.
Sonur bin
Ladens
skoðar
þyrlubrakið
Reuters
HERMENN talibanastjórnarinnar í
Afganistan skjóta Hazara-Afgana
sem reyna að flýja frá Afganistan, að
því er flóttafólk, sem komist hefur til
Pakistans, greinir frá. Hazara-Afgan-
ar eru af mongólskum uppruna og eru
Shiita-múslimar, sem eru í minnihluta
í Afganistan. Þúsundir þeirra búa nú
við sára fátækt í útjaðri borgarinnar
Quetta í suðvesturhluta Pakistans,
nálægt afgönsku landamærunum.
Þeir segjast hafa flúið frá Afganist-
an vegna loftárása Bandaríkjamanna,
alvarlegra þurrka, en umfram allt
vegna ofsókna herstjórnarinnar í
landinu. Þeir rúmlega tíu Afganar
sem rætt var við höfðu allir sögur að
segja af morðum, mannréttindabrot-
um og ofsóknum.
Sumir sögðu frá fjöldamorðum.
Ovr Mohd, 65 ára, flúði til fjalla undan
ofsa hermanna talibana. Þegar hann
sneri aftur heim fann hann þrjá syni
sína látna, þeir höfðu verið skotnir.
Hann segir þá hafa verið skotmark
vegna þess að þeir voru Hazarar að
uppruna, en Hazarar hafa skipað sér í
sveit með andstæðingum talibana,
Norðurbandalaginu.
„Þegar við ákváðum að fara frá
Afganistan sáum við talibana ráðast á
fólk sem var á flótta. Fólkið hópaðist
saman á veginum og ætlaði burtu og
það var skotið. Við höfum séð þetta,“
sagði Mohd. „Ég sá fimmtíu manns
sem voru myrtir fyrir augum mínum.
Þetta voru konur, börn og karlmenn.“
Mohd sagði þessi morð hafa verið
framin fyrir mánuði. „Ég hata talib-
ana fyrir að gera svona lagað.“
Talsmaður Flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna staðfesti að fólk
úr röðum Hazara og annarra minni-
hlutahópa hefði verið myrt undanfar-
in ár, en einnig hefðu borist fregnir af
því að Hazarar hefðu hefnt sín á föng-
um sem þeir hefðu tekið úr röðum tal-
ibana. „Það er erfitt að fá fréttir, sem
berast frá Afganistan núna, staðfest-
ar. En það er svo sannarlega ástæða
til að rannsaka þetta mál nánar.“
Sagðir myrða flóttafólk
Quetta í Pakistan. AFP.