Morgunblaðið - 11.04.2002, Page 27

Morgunblaðið - 11.04.2002, Page 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 27 FRÓÐI er sjö ára strákur sem býr í gömlu hornhúsi þar sem íbúarnir eru sitt af hverri sortinni. Þar er fyr- irferðarmestur herra Stormur sem hefur allt á hornum sér og tvær elsku- legar piparmeyjar sem sjá það já- kvæða í öllu sem fyrir ber. Fróði kynnist Simma, fimmtán ára strák sem kann ýmsar brellur til að leika á kennara og annað fólk og Fróði er áhugasamur nemandi. Þegar herra Stormur verður fyrir því að bíræfinn þjófur á hlaupahjóli leggur hann bók- staflega í einelti og stelur öllu frá hon- um, meira að segja buxunum sem hann stendur í, taka Fróði og vinir hans til sinna ráða og góma þjófinn. Leikklúbburinn Saga hefur starfað í nokkur ár á Akureyri með eftirtekt- arverðum árangri, en hann er skip- aður unglingum og því eðli málsins samkvæmt hraðar breytingar á lið- skipaninni. Þar eins og annars staðar kemur maður í manns stað og gaman að sjá þetta efnilega hæfileikafólk spreyta sig í leik og söng af svo miklu öryggi og gleði. Anna Gunndís Guð- mundsdóttir og Hafliði Arnar Haf- liðason voru hreint ágæt sem hinir ólíku félagar Fróði og Simmi. Stefán Rafn Stefánsson stóð fyllilega undir nafni sem herra Stormur og Ragna Gestdóttir og Unnur Birna Björns- dóttir voru óborganlegar sem gömlu ungfrúrnar. Söngur þeirra til herra Storms var verulega góður. María Hrund Stefánsdóttir var hin þjakaða kennslukona og þrátt fyrir að ýmis- legt væri sagt og gert í skólanum sem ekki samrýmist góðum siðum þá er líklega margt verra en að fá útrás fyr- ir slíkt í leiksýningu. Baldvin Ólafsson undirstrikaði það svo enn frekar með hinum orðljóta Lilla sem var alltaf að reyna að hætta blóta. Leikstjórinn hefur greinilega náð góðu sambandi við hópinn og skapað með honum líflega og skemmtilega sýningu. Fróði gríp- ur þjóf LEIKLIST Leikklúbburinn Saga á Akureyri Eftir Ole Lund Kirkegaard. Leikgerð: Anna og Arne Aabenhus. Þýðing: Að- alsteinn Ásberg Sigurðsson. Tónlist og söngtextar: Valgeir Skagfjörð. Leikstjóri: Ármann Guðmundsson. Kompaníið 6. apríl. FRÓÐI OG ALLIR HINIR GRISLINGARNIR Hávar Sigurjónsson Á RABBABARNUM á Patreksfirði stendur nú ljósmyndasýning sem fréttavefurinn Tíðis á Patreksfirði í samstarfi við Fiskvinnsluna Odda og Rabbabarinn standa fyrir. Yfirskrift sýningarinnar er: Fólkið í svörtu og hvítu – brot úr mannlífsþætti Tíðis 2001. Allt eru þetta myndir teknar í fyrra og hafa margar þeirra ekki verið birtar opinberlega áður. Á sýn- ingunni eru um 50 myndir af fólki í athafnalífi, skemmtun og við ýmiss konar uppákomur. Í tilefni sýningarinnar hefur Tíðis gefið út geisladisk með myndasafni Tíðis 2001. Ljósmyndir á Patreksfirði ♦ ♦ ♦ Setning ráðstefnunnar Árni Tómasson, bankastjóri Búnaðarbankans Ávarp Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra Skattlagning lífeyristekna Gylfi Magnússon, dósent við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands Fjármálaþjónusta við eldri borgara Sólon R. Sigurðsson, bankastjóri Búnaðarbankans Eignir og tekjur eldri borgara Ásgeir Jóhannesson, ráðgjafi Kaffiveitingar Breytt aldurssamsetning og kostnaður vegna snemmtöku eftirlauna Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Hrörnun almannalífeyriskerfisins Benedikt Davíðsson, formaður Landssambands eldri borgara Niðurstöður nýrrar Gallupkönnunar um fjárhag eldri borgara Pallborðsumræður www.bi.is Þátttaka er ókeypis. Tilkynna þarf þátttöku fyrir kl.14:00, mánudaginn 15. apríl í síma 525 6342. Hvernig er fjárhagsleg staða eldri borgara á Íslandi? Búnaðarbankinn efnir til ráðstefnu um fjármál eldri borgara í Súlnasal Hótels Sögu, þriðjudaginn 16. apríl frá kl. 13:30 –17:00 Ráðstefna um fjármál eldri borgara

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.