Morgunblaðið - 23.07.2002, Blaðsíða 16
NEYTENDUR
16 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
OPNUN lágvöruverðsverslunarinn-
ar Europris á sunnudag hefur
hleypt lífi í samkeppnina á milli
lágvöruverðsverslana, helstu keppi-
nautarnir Bónus, Krónan og Nettó
hafa verið með menn á sínum
snærum til að kanna verð í versl-
uninni síðan hún opnaði og segjast
forsvarsmenn þeirra staðráðnir í að
bregðast við aukinni samkeppni.
„Það er alveg ljóst að verð hefur
lækkað undanfarna daga í öðrum
verslunum vegna aukinnar sam-
keppni,“ segir Matthías Sigurðsson
framkvæmdastjóra Europris. Við-
tökur neytenda við nýju verslun-
inni hafa verið afar góðar, daginn
sem verslunin opnaði var biðröð
fyrir utan og þurftu sumir frá að
hverfa þar sem ekki var hægt að
sinna öllum fjöldanum og í gær var
sama upp á teningnum, að sögn
Matthíasar. „Kúnninn hefur verið
afar jákvæður og ég vil þakka þá
biðlund og þolinmæði sem við-
skiptavinir hafa sýnt en einnig okk-
ar góða starfsfólki án þess hefði
þetta ekki gengið upp.“
Hann segir að hjá versluninni
verði fylgst með verði hjá sam-
keppnisaðilunum og að reynt verði
eftir bestu getu að halda verði sem
lægstu.
Mikið verðstríð milli verslana
„Hér er mikið verðstríð í gangi
og við munum ekki gefa neitt eft-
ir,“ segir Guðmundur Marteinsson
framkvæmdastjóri Bónuss. „Við
vorum fyrstir inn í Europris á
sunnudag kl. 11 og erum búin að
vera með mann í búðinni allan tím-
ann til að fylgjast með verðinu.“
Útsendari Nettó var í Europris
að kortleggja verslunina í gær og
sagði Elías verslunarstjóri að
brugðist yrði við niðurstöðunum
um leið og þær kæmu í hús. „Við
erum að taka verslunina algerlega
fyrir. Það er alveg á hreinu að ef
þeir eru með lægri verð en tíðkast
hér á markaðnum þá munum við
lækka líka.“
Krónan var einnig með útsend-
ara í Europris í gær til að kanna
verð, að sögn Sigurðar Teitssonar,
framkvæmdastjóra matvörusviðs
Kaupáss sem rekur Krónuna.
„Svigrúm til lækkana hjá okkur
er afar lítið þar sem álagning er
lág en við munum að sjálfsögðu
taka þátt í slagnum. Á þessum
markaði er alltaf stríðsástand og
nú hefur bara einn aðili í viðbót
bæst við.“
Fjölmenni mætti við opnun lágvöruverðsverslunarinnar Europris
Morgunblaðið/Golli
Langar biðraðir mynduðust við
kassa í Europris í gær.
Samkeppnin harðn-
ar á markaðnum
ÚTSÖLUR eru nú í fullum gangi og
víða hefur verð verið lækkað tals-
vert frá upphaflegu útsöluverði. Af-
sláttur í þeim búðum sem Morgun-
blaðið kannaði var á bilinu 30–89%
og yfirleitt von á frekari lækkun.
Kaupmenn segja verslun góða í ár
þótt sumarútsölur séu jafnan rólegri
en útsölurnar rétt eftir jólin.
Í versluninni Sautján á Laugavegi
mun útsalan standa fram í miðjan
ágúst, að sögn Aðalsteins Pálsson
framkvæmdatjóra NTC. Hann segir
afsláttinn vera um 30–60% en gerir
ráð fyrir að verð muni lækka enn
frekar við útsölulok. „Salan hefur
verið mjög góð og miðað við und-
anfarin ár höfum verið að halda okk-
ar striki þrátt fyrir aukna sam-
keppni.“ Hann segir sölu vera mesta
um helgar en að í júlí færist helg-
arverslunin framar, byrji á fimmtu-
dögum.
Allt að 60–70% afsláttur er nú á
vörum í versluninni Zöru í Smára-
lind, að sögn Guðrúnar Reynisdótt-
ur, verslunarstjóra í dömudeild, en
þar hefur verð enn verið lækkað frá
upphaflegu útsöluverði. Hún segir
útsöluna hafa gengið mjög vel og
mikið hafa selst, sumarútsölur séu
þó alltaf rólegri en janúarútsölurn-
ar. Hún bendir á að nýjar haustvör-
ur séu að koma inn en útsalan verði
þó áfram næstu tvær vikurnar.
Útsalan í Hagkaupum hefur
gengið vel og er afsláttur yfirleitt
um 40% að sögn Finns Árnasonar
framkvæmdastjóra. „Vikulega erum
við með svokölluð ofurtilboð á
ákveðnum vörum þar sem afsláttur
er allt að 89%.“ Finnur gerir ráð fyr-
ir að afsláttur muni aukast við út-
sölulok en útsalan mun standa eitt-
hvað fram í ágúst.
Útsölur í hámarki í höfuðborginni og salan mikil
Afsláttur á bilinu 30–89%
Morgunblaðið/Jim Smart
AXEL Birgisson, Stefán
Hilmarsson og Mattías Þór
Sigurðsson voru allir með
hjólabretti í versluninni
Smash, þar sem þeir voru
að kíkja á nýjustu tilboðin á brett-
um og brettafatnaði Þeir sögðu
helst leita eftir slíkum vörum á
útsölum. „Ég fékk til dæmis þessa
skó á 6.900 í síðustu viku,“ segir
Axel og sýnir nýja brettaskó. Þeir
segjast gjarnan fara á útsölur og
aðallega versla í Smash. Hinir
bæta við að þeir hafi líka fengið
sér nýja skó í sumar, brettaskór
skemmist nefnilega svo fljótt.
Þeir kinka kolli þegar þeir eru
spurðir hvort þeim finnist
skemmtilegt á útsölum en bæta
við að mömmur þeirra kaupi
samt mest á útsölum.
Mest um
mömmur
á útsölum
„VIÐ ERUM nýkomnar
og erum að kíkja á úr-
valið,“ sögðu mæðg-
urnar Anna Kristín
Kristinsdóttir og
Harpa Hlíf Bárð-
ardóttir sem voru að
skoða skó í Kringlunni.
Harpa sagðist vera bú-
in að kaupa töluvert á
útsölunni í sumar en
Anna minna. „Mér
finnst útsölurnar samt
vera fínar núna, virki-
lega góður afsláttur,
tímasetningin er líka
góð, upplagt að kaupa skólaföt
á börnin.“ Hörpu leiðist að fara
á útsölur að eigin sögn. „Þá
kaupi ég praktísk föt sem ég
þarf og engan óþarfa sem er
ekkert skemmtilegt.“ Anna
kvaðst hins vegar hafa meira
gaman af útsölum en dóttir
hennar. „Þá er ákveðin stemn-
ing í bænum. Við mæðgurnar
förum saman, kíkjum á kaffihús,
maður fer ekkert endilega á út-
sölur bara til að kaupa heldur
líka að sýna sig og sjá aðra. “
Sýna sig og sjá aðra
„JÁ, ÉG ER afar þakklátur fyrir
sófann hérna,“ sagði Guðmundur
Guðjónsson sem sat og beið í
Smáralindinni eftir konu sinni en
hún var á búðarrölti. „Við kíkjum
gjarnan saman í bæinn þegar út-
sölur eru og mér finnst það
skemmtilegt en stundum fær mað-
ur bara nóg og þá getur verið gott
að setjast aðeins niður og hvíla
sig.“
Gott að
hvíla sig
„HÉR er fullt af flottum
fötum úr spennandi efni
og verðið er sanngjarnt,
svipað og í New York,“
sögðu Bandaríkjamenn-
irnir, Ingelis Weeks,
Vincentina Clausen og Christ-
opher Clausen sem voru að skoða
sig um á Laugaveginum. Þau eru
spurð hvort þau fari vanalega á
útsölur. „Ó, eru útsölur, þess
vegna fannst okkur fötin ekki
svo voðalega dýr hérna,“ segja
þau og hlæja. En finnst þeim
gaman að versla almennt? „Ó já,
ég elska að versla, segir Ingelis
og hlær, Vincentina kinkar kolli
samsinnandi en Christopher kím-
ir og bætir við, „ég er ekki alveg
jafn æstur í það og konurnar en
jú, mér finnst það ágætt stund-
um.“
Elska að
versla
Verslunin Svalbarði
Höfum opnað aðra verslun
á Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði.
Súr hvalur og hvalkjöt,
sólþurrkaður saltfiskur,
hákarl og harðfiskur.
Ávallt nýr fiskur og fiskréttir.
Framnesvegi 44, Reykjavík
Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði
Svalbarði