Morgunblaðið - 12.02.2003, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 12.02.2003, Qupperneq 17
koma í veg fyrir aðgerðir Banda- ríkjanna þó svo að þær njóti stuðnings flestra annarra NATO- ríkja og ríkja Evrópu. Líkurnar á því að þeim takist þetta ætl- unarverk sitt eru litlar sem engar en þeir gætu eitrað alþjóðleg samskipti um ókomin ár,“ segir m.a. í forystugrein The Wash- ington Post. Bandaríkin þarfnast bandamanna Dagblaðið The New York Tim- es segir að alvarleg kreppa ríki innan NATO. Deilan sé með öllu ástæðulaus því sjálfsagt sé að efla varnir Tyrklands með tilliti til hugsanlegra átaka í Írak. „Spurningin um réttmæti þess að ráðast gegn Írökum hefur breyst í fram úr hófi persónulega deilu um forystu Bandaríkjanna. Frakkar, sem fara fyrir uppreisn- inni, hafa gerst sekir um dóm- greindarbrest. En ríkisstjórn Bush ber einnig ábyrgð vegna þeirrar skaðlegu nálgunar að hver „sá sem ekki standi með okkur sé á móti okkur“. Þessi heimskulega nálgun hefur verið látin gilda um nokkra mikilvæg- ustu bandamenn okkar,“ segir í greininni. Blaðið kveður klofninginn inn- an Atlantshafsbandalagsins þann alvarlegasta sem myndast hafi frá því í forsetatíð Ronalds Reag- ans. Það beri að harma. Vel kunni að vera að Bandarík- in geti sigrað Íraka án stuðnings bandamanna sinna í Evrópu. Bandaríkjamenn muni hins vegar þurfa á stuðningi þessara sömu bandamanna sinna að halda í bar- áttunni gegn alþjóðlegu hryðju- verkaógninni og við uppbygging- arstarf í Írak eftir að átökum ljúki þar. ’ En skotmarkþeirrar herferðar er ekki Saddam Hussein heldur Bandaríkin. ‘ kennd yfir stríðinu, er gagnrýnni á forystu Bandaríkjamanna og finnst ekki eins sjálfsagt að Þýzkaland gegni eins ósjálfstæðu hlutverki í al- þjóðamálum og það hefur gert und- anfarna hálfa öld,“ segir í Wash- ington Post. Réttur vettvangur? En spurningin er sú, hvort Ger- hard Schröder hafi með Íraksmálinu valið sér heppilegt málefni til að sýna þetta aukna sjálfstæði Þýzkalands á alþjóðavettvangi. „Ég útiloka ekki að afstaða þýzku stjórnarinnar þurfi að breytast strax á næstu dögum. Enginn veit, hve lengi „rauð-græna“ stjórnarsam- starfið heldur,“ hefur Die Presse eft- ir Mathias Wissmann, formanni ESB-málanefndar þýzka þingsins sem kemur úr stjórnarandstöðu- flokki kristilegra demókrata. Wiss- mann segirSchröder ekki hafa neina grundvallarsannfæringu heldur sé hreinræktaður „valdapólitíkus“. Þess vegna sé alls ekki hægt að úti- loka að hann snúi við blaðinu. Eins og er hafi hann hins vegar komið sér með málflutningi sínum í sjálfheldu sem hindri honum undankomuleið. Aðrir fréttaskýrendur telja að með því að njörfa sig ekki niður á einn tiltekinn valkost til lausnar Íraksdeilunni vilji Fischer utanrík- isráðherra, ólíkt kanzlaranum, halda þeim möguleika opnum að sitja hjá er atkvæði verða greidd í öryggis- ráðinu um heimild fyrir hernaðar- íhlutun í Írak, eða jafnvel greiða at- kvæði með slíkri ályktun, með vissum skilyrðum. Svo vill til að Þjóðverjar gegna formennsku í ör- yggisráðinu út þennan mánuð og Fischer stýrir því fundum þess, þar sem ákvörðun um stríð kann að verða tekin. auar@mbl.is ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 17 RSH.is Dalvegi 16b • 201 Kópavogur Sími 544 5570 • Fax 544 5573 www.rsh.is • rsh@rsh.is Pro-Clip VERSLUN • VERKSTÆÐI Radíóþjónusta Sigga Harðar Vandaðar festingar fyrir öll tæki í alla bíla. Festingar sérsniðnar fyrir þinn bíl. Engin göt í mælaborðið. w w w .d es ig n. is © 20 03 ALÞJÓÐLEGA herliðið í Afganist- an hefur gert harðar loftárásir á hella í miðhluta Afganistans og hafa norskar og danskar flugvélar tekið þátt í aðgerðunum. Fimm uppreisn- armenn gerðu bandarískum sér- sveitarmönnum fyrirsát í afskekktu fjalllendi í Uruzgan-héraði á mánu- dagsmorgun. Enginn sérsveitar- mannanna féll en þeir voru að leita að földum vopnabirgðum. Roger King ofursti, talsmaður al- þjóðaliðsins, sagði að beðið hefði ver- ið um aðstoð herflugvéla og hefðu F-16 orrustuþotur varpað fimm öfl- ugum sprengjum. „Meira en hundr- að hleðslum af 20 mm skotum var beitt gegn þrem skotmörkum, það er hellum og minnst fimm vopnuðum mönnum,“ sagði King. Hann sagði að ekki benti neitt til þess að mannfall hefði orðið. Dönsku og norsku þoturnar hafa bækistöð í Kirgístan en fljúga dag- lega yfir Afganistan, að sögn dag- blaðsins Berlingske Tidende. Er þá stundum flogið í mikilli hæð og vél- arnar þá til reiðu ef þörf krefur en einnig eru þær sendar á fyrirfram ákveðinn stað til að vernda herflokk, eins og í áðurnefndu tilfelli á mánu- dag. Er þetta í annað sinn sem vopn- um norsku og dönsku vélanna er beitt gegn uppreisnarmönnum. Not- aðar voru leysistýrðar 227 kíló- gramma sprengjur, að sögn danska blaðsins. Athygli hefur vakið að sögn Aften- posten í Noregi hve víðtækar upp- lýsingar dönsk stjórnvöld veittu að þessu sinni um aðgerðirnar. Svend Aage Jensby varnarmálaráðherra útskýrði í smáatriðum hvað gerst hefði og var haft eftir heimildar- mönnum í blaðinu Jyllandsposten að hann gæti með þessu stefnt öryggi flugmannanna í hættu. Er danskar vélar tóku þátt í að- gerðum fyrir skömmu var fundið að því að of litlar upplýsingar hefðu ver- ið birtar um málið. Harðar umræður urðu á norska þinginu um aðgerðir norsku flugvélanna fyrir skömmu og efuðust sumir þingmenn um að veitt hefði verið heimild til þeirra er sam- þykkt var að senda vélarnar til svæð- isins til að efla friðargæsluliðið. En þátttaka danskra véla í árásum hefur ekki vakið verulegar deilur í Dan- mörku. Tengsl við Hekmatyar? Ekki er vitað með vissu hvaða fylkingu uppreisnarmennirnir í Uruzgan tilheyra en fyrir tveim vik- um urðu hörð átök við svonefnda Adi Ghar-hella í grennd við borgina Spin Boldak í suðausturhluta landsins. Al- þjóðaliðið felldi þar 18 menn og tóku norskar flugvélar þátt í þeim átök- um. Talið er að liðsmenn stríðsherr- ans Gulbuddins Hekmatyars, sem hefur tekið upp samstarf við leifar herliðs talibana og al-Qaeda hryðju- verkasamtakanna, hafi notað Adi Ghar-hellana. King sagði ekkert vitað um tengsl milli Hekmatyars og mannanna sem gerðu árásina í Uruzgan, aðeins að um óvini stjórnar Hamids Karzais forseta í Kabúl væri að ræða. Þjóð- verjar og Hollendingar tóku á mánu- dag við yfirstjórn alþjóðaliðsins af Tyrkjum við hátíðlega athöfn í Kabúl en nokkrum stundum síðar var skot- ið tveim flugskeytum að bækistöð al- þjóðaliðsins sem annast eftirlit í borginni. Enginn mun hafa særst. Sprengju- árásir á hella í Afganistan Bagram-flugbækistöðinni í Afganistan. AFP. AP Bandarískir hermenn í Afganistan koma sér fyrir á svæði skammt frá Bagr- am-bækistöðinni við Kabúl í gær. UH-60 Blackhawk-þyrla sveimar yfir. FJÓRTÁN pílagrímar létu lífið í troðningi í sádi-arabíska bænum Mena, nálægt Mekka, í gær þegar fram fór helgisiður sem felst í því að „grýta djöfulinn“. Múslímar sjást hér taka þátt í helgisiðnum. Hann felst í því að pílagrímar kasta sjö steinum á dag í þrjá daga á þrjár súlur sem eiga að tákna djöfulinn. Meira en tvær milljónir múslíma fylgjast með athöfninni og oft verður mikill troðningur þegar fólkið reynir að komast að súlunum. Reuters Pílagrímar troðnir undir INDÓNESI, sem grunaður er um aðild að tilræðum á eyjunni Balí í október, veitti í gær ítarlegar upp- lýsingar um hvernig staðið var að hryðjuverkunum. Hann gortaði af kunnáttu sinni í sprengjugerð en bað fjölskyldur fórnarlambanna afsök- unar á ódæðinu sem kostaði 192 lífið, aðallega erlenda ferðamenn. Sakborningurinn, Ali Imron, kom fram á blaðamannafundi í höfuð- stöðvum lögreglunnar á Balí og ját- aði að hafa skipulagt sprengjuárásir á tvo skemmtistaði á eyjunni. Hann sýndi hvernig litlum sprengjum var komið fyrir í vesti sem einn hryðju- verkamannanna klæddist og sprengdi á öðrum skemmtistaðanna. Imron sagði að tekið hefði átta daga að setja sprengjuna saman. Lögreglan hefur sagt að sprengj- an hafi verið allt að 100 kg á þyngd en Imron kvaðst hafa notað 900 kg af kalíumklóríði, 150 kg af brennisteini og 75 kg af áldufti. Imron stærði sig af kunnáttu sinni en kvaðst iðrast hryðjuverkanna. „Sem Indónesar getum við verið stoltir af hæfileikum okkar en þeir voru notaðir í röngum tilgangi,“ sagði hann. „Í hjarta mínu iðrast ég verknaðarins. Ég vil biðja fjölskyld- ur fórnarlambanna í Indónesíu og erlendu fjölskyldurnar afsökunar.“ Baðst afsökunar á Balí-tilræðinu Denpasar. AP, AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.