Morgunblaðið - 12.02.2003, Page 22

Morgunblaðið - 12.02.2003, Page 22
A Ð þessu sinni skal vikið að nær- tækri listpólitík, tilefnið mark- verður gjörningur norðan heiða og viðtal við Lars Nittve, for- stöðumann Núlistasafnsins í Stokkhólmi, sem birtist í Lesbók 18. janúar. Komin upp giska undarleg staða, þegar hver sýningin á fætur annarri í Listasafni Ak- ureyrar vekur jafn mikið og meira umtal en sýningar í höfuðborginni, þó ólíku saman að jafna um húsakost og mannhald. Að vísu hef ég ekki nálgast gjörning Hannesar Sigurðs- sonar; Aftökur & útrýmingar, en verð illa svikinn ef sá hristir ekki duglega upp í fólki líkt og ýmsir hinna fyrri. Hér er tekist á við ýmis raunhæf fyrirbæri lífsins, sem hverjum og einum er hollt að líta til, og segja nöfn sýninganna þriggja allt um innihald þeirra; Hitler og hommarnir,/ Hinstu máltíðir og Af- tökuherbergið. Naumast þarf að kynna Hitl- er, sem er markaðs- væddasta skelfing síðustu aldar, og sem slíkur virðist hann höfða ótæpilega til hins breiða fjölda. Ekkert hefur verið rannsakað jafn kirfilega og ódæðisverk og líf þessa einræðisherra né haldið fram, þannig að við liggur að aðrir og stórtækari austar á hnettinum falli í skuggann. Minnist þess að fyrir austan tjald voru enn í síbylju kvik- myndir um seinni heimsstyrjöldina á sjón- varpsskjám hótelherbergjanna sem ég gisti, þótt meira en 30 ár væru þá liðin frá lokum hennar. Hatrið til þriðja ríkisins og heims- valdastefnu vesturveldanna ræktað í spreng af sjálfum boðberum alræðisins. Enginn vafi, sýningin á Akureyri á erindi til okkar svona líkt og arabíska sýningin áð- ur, sú rataði í mun ítarlegra formi í húsa- kynni Listasafns Reykjavíkur við Tryggva- götu. Var vel sett upp og sjónvarpsskjáir fleiri, þannig að um nær alveg nýja sýningu var að ræða, en viðbrögð fjölmiðla þá minni en skyldi, hvað sem veldur. Það sem nú er tekið til meðferðar í brennidepli ytra, þótt svo ýmsir séu farnir að fá ofbirtu í augun af kastljósinu á Hitler. Þyki margt æði tuggu- kennt, missa marks, þannig fékk sýning á gyðingasafninu í New York nýlega afleita dóma. Mál að þótt fáum komi til hugar að bera blak af Hitler eru stöðugt að koma fram nýjar heimildir frá einræðisríkjunum gömlu í austri og kemur þar fram að hann var hér enginn brautryðjandi eða einfari á tuttugustu öld. Átti sér lærimeistara, hugmyndirnar um útrýmingarbúðirnar gat hann hafa sótt til Búastríðsins og seinna Gúlagsins, til Leníns hvað ofsóknir á hendur framsæknum lista- mönnum áhrærir. Lenín var svo eitilharður í draumum sínum um stórhreingerningu á eldri gildum að Stalín bliknar í samanburði, kannski ekki undarlegt þótt Hitler varaði við hættunni úr austri. Fyrir Lenín voru ekki til neinar málamiðlanir, rústa skyldi menningu fortíðar til hags fyrir alræði öreiganna, og hann vildi ganga hreint til verks. Þannig var Molotov í fersku minni hvernig hann skamm- aði Stalín fyrir linku og frjálslyndi. Innlendir listamenn voru virkjaðir allt hvað af tók með- an á þurfti að halda en síðan tjóðraðir við málstaðinn; að tilgangurinn helgaði meðalið, útlendir sömuleiðis. Hann leit frá upphafi á Sovétríkin sem herveldi, sem með yfirgangi og illvirkjum skyldi kúga rússnesku þjóðina, rústa menningu hennar, stofnanir, samtök og hugsjónir. H ulunni hefur nú að fullu verið svipt af blekkingu vestrænna kommúnista um að Stalín hafi vikið frá fræðunum og flokks- línunni með einstrengings- hætti sínum og grimmd. Hvað menning- arbyltingu Maós formanns viðvíkur var hann einungis að framkvæma kenningar Leníns þegar hann sigaði múgnum á allt sem nefnd- ist menntun, menning og arfur fortíðar. Sem fyrr segir eru stöðugt að koma fram nýjar heimildir úr rússneskum skjalasöfnum er skara tímabil Sovétríkjanna, í kjölfarið hafa verið ritaðar allnokkrar bækur. Ein sú síðasta sem ég hef spurnir af og fengið hefur frábæra dóma fyrir skilvirkni er Gulag og glemsel, Russlands Tragedie og Vestens hukommelsestab í det 20. århundrede, eftir Bent Jensen, Gyldendal 2003, 528 s. með frumljósmyndum. Þar segir meðal annars: Módernistar 20. aldar voru heillaðir af kerf- um, skipulagi, hreinleika og reglu, nasistar, fasistar og kommúnistar vildu umbyltingar, hreinsa illgresið úr þjóðfélaginu, sópa burt gömlum óhreinindum, rýma fyrir ljósi lofti og yfirsýn. Þjóðfélagsrótið allt um kring, mark- aðinn, trúarbrögðin, siðgæðið, hugsanirnar og skáldskapinn. Af óhagkvæmum toga bar því að fordæma. Um hafsjó af ferskum upplýsingum um hörmungartíma rússnesku þjóðarinnar er að ræða og skyldi ekki lag að setja saman sýn- ingu er beindi kastljósinu annað að litla bróð- ur í Þýskalandi eða athöfnum í kringum dauðarefsingar í Bandaríkjunum? Væri þeg- ar öllu er á botninn hvolft snöggtum frum- legra en að veita þeim lið sem stöðugt eru að ganga í skrokk Hitlers líkt og hann persónu- geri allan hrylling síðustu aldar. Stóra spurn- ingin gæti verið: Hver var stefna Leníns/ Stalíns/Maós og annarra marxista í listum, og hvað var úrkynjuð list í þeirra augum? Hvað Lenín snerti var hann í þeim efnum góðum áratug á undan Hitler. Einneigin hvernig menn komu fram við framsækna listamenn í Sovétríkjunum eftir að þau voru stofnuð og þar til þau liðu undir lok. Svo má auðvitað velta því fyrir sér hvers lags perrar þetta voru, sömuleiðis hvílubrögðum þeirra, jafnframt ofsóknum á hendur öðruvísi þenkj- andi neðan mittis. Svona líkt og aukabúgrein á ofsóknum á hendur öllum sem leyfðu sér að hugsa öðruvísi, hvað þá pirra þá með at- hugasemdum. Enginn er að gera lítið úr framkvæmdinni á Akureyri, þetta sett fram með margt annað til hliðar í huga sem skarar listþróunina, upp- lýsir eitt og annað um mynstur nútímavæð- ingar myndlistar í heiminum. Nú þegar valt- að er yfir eldri menntunargrunni, þróuðum tæknibrögðum aldanna rutt út af borðinu. Listin búin til í skólum, nýútskrifuðum list- spírum, blautum bak við bæði eyrun, haldið fram á kostnað eldri og grónari listamanna. Dyr safna, sem unga tók áður ár og áratugi að komast inn um, standa þeim nú galopnar, mulið undir þá sem aldrei fyrr. Listaskól- arnir orðnir að einsleitu hópefli, þar sem ein- staklingsframtakið er síður inni í myndinni, frumleikinn felst í hópeflinu, að vera eins og allir hinir, og hversdagslegustu athöfnum lyft á stall sem bráðfyndnum fyrirbærum. Um leið er slegið á upprunalegar tilfinningar og háleitar hugsjónir orðnar ígildi tilfinn- ingavellu úr myglaðri fortíð … – Hið vel skrifaða viðtal Fríðu Bjarkar Ingvarsdóttur við Lars Nittve er þýðing- armikið innlegg í orðræðuna hér á landi, ómetanlegt að fá jafn opinskátt viðtal við heimsþekktan sýningarstjóra í íslenskt dag- blað, jafn sjaldgæft og það nú er. Gallinn er sá, að ekki koma nein viðbrögð við slíkum viðtölum í fjölmiðlunum, menn humma þau fram af sér líkt og annað sem skrifað er um sjónlistir, sama hve brýnt er- indi þau eiga við fjöldann og hversu mik- ilvægt er að hrista upp í hlutunum. Margt vel sagt og skarplega athugað en hér finn ég þó hjá mér þörf til að leggja orð að. Litið til upphafsins er nærri að ætla að hina miklu aðsókn að Tate-safninu megi að drjúgum hluta þakka nefndum Lars Nittve. Hins veg- ar ekki vikið orði að hinni frjóu umræðu um safnið sem átti sér stað áður og meðan það var í mótun, ekki einungis í London, heldur víða um heim. Sköpuð gríðarleg eftirvænting sem skilaði sér eðlilega í mikilli aðsókn fyrsta árið og munu útlendir líkast til í meirihluta. En í ljósi þess að árið sem Lars Nittve var forstöðumaður Lousiana-safnsins í Humle- bæk minnkaði aðsóknin í þeim mæli að mönnum hnykkti við, ætti að fara varlega í að eigna honum alfarið heiðurinn. Jafnframt eigna safn- og sýningarstjórum hin miklu hvörf um aðsókn á söfn og sýningar í heim- inum á undangengnum áratugum, – komu þeim þvert á móti í opna skjöldu, þeir hafa orðið að laga sig að framvindunni. Hefur þó ekki slegið á löngun þeirra til miðstýringar, að móta stefnuna eftir eigin höfði og með stífri forræðishyggju hafa áhrif á skoð- anamótun almennings. En þetta hefur ekki gengið upp sem skyldi, fólk almennt hrekkur undan slíkri forsjá og fastagestum fækkar. Þeir hafa því tekið til bragðs að höfða til fjöldans með háværum uppákomum, upp- stokkunum og sambræðslu listhugtaka. Það sem vekja skal athygli almenn-ings er nú ekki list sem grípur fyriryfirskilvitlega töfra heldur óvenju-lega og hversdagslega efnis- meðferð, svo sem fram kemur í viðtalinu varðandi listaverk Chris Ofili úr fílasaur. Á frumraun Nittve á Lousiana varð á vegi gesta hálfmyrkvaður salur, með svo háværri tónlist að veggir og gólf skulfu og nötruðu, örfáir unglingar héldust þar inni og lágu á mjúkum íhvolfum sessum dreifðum um sal- inn. Í afmörkuðu rými mátti sjá að því er virtist þéttdópaðan kall dansa allsberan kringum nafla sinn á stóru tjaldi en vakti blendin viðbrögð. Eitt og annað af því sem þar gat að líta hefur ratað hingað með sama árangri um aðsókn á listasöfnin. Hér virðist leitað til óþroskaðs markhóps með stund- argamnið að leiðarljósi, sem er stærsti hluti mannkynsins, einmitt sá sem sósíalisminn hagnýtti sér fyrrum í skipulögðu niðurrifi sínu á eldri gildum. Á tímum er fólk snýr baki við slíkum gjörningum áreitis og síbylju eykst aðsókn að sýningum á verkum stóru módernistanna upp úr öllu valdi, eins og ég varð gjörla var við í London á liðnu ári. Straumurinn lá á sýningar Picassos/Matisse á Tate Modern, Banksides og Luciens Freuds á Tate Brittain, Millbank. Þvert á móti spám margra er Freud nú nafnkennd- astur málari Engilsaxa, er þá David Hockney ekki undanskilinn. Hinn hái aðgangseyrir að sýningunum fældi engan frá, og hvað skyldi eiga að fjármagna söfn og stórframkvæmdir innan þeirra ef ekki aðgangseyririnn? Eng- inn talar um ókeypis tónleika, ei heldur ókeypis bækur, hér gildir markaðssetningin sem fyrrum; að stíla á áhugann og kunna að vekja hann með brögðum lista. Takist það vilja viðkomandi fórna miklu og þar er falinn burðarás og eldsneyti allra framkvæmda … Af gjörningi og orðræðu SJÓNSPEGILL Eftir Braga Ásgeirsson bragia@itn.is Frá sýningunni á Akureyri. LISTIR 22 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Á ÞESSUM tónleikum bauð Hljómeyki upp á alíslenska efnis- skrá. Kórinn hefur á sínum tæplega 29 ára starfsferli verið ákaflega duglegur að flytja og kynna íslensk kórverk, en samtals hefur hann sungið um 90 slík og frumflutt 26. Fyrst á efnisskránni var verkið Canite tuba eftir Hildigunni Rún- arsdóttur sem hún samdi fyrir kór- inn haustið 2001. Næst söng kórinn Verkið Iustorum animæ, sem John Speight samdi sumarið 1988 fyrir Söngdaga Jónasar Ingimundarson- ar í Skálholti. Bæði þessi verk eru aðgengileg og falleg kórverk. Verk- ið Namárië eftir Jónas Tómasson er samið samkvæmt pöntun frá Hljóm- eyki vegna samstarfs við Kamm- erkórinn á Ísafirði og Kammerkór Austurlands og var verkið frumflutt á Ísafirði og heyrðist nú í fyrsta skipti í Reykjavík. Textinn er á álfa- máli og er ljóð eftir J. R. R. Tolkien. Hér er á ferðinni mjög áheyrilegt verk fyrir fimm radda kór. Þorkell Sigurbjörnsson samdi 145. Davíðssálm fyrir Hljómeyki vorið 2002 og frumflutti kórinn verkið í júlí í fyrra. Þetta er senni- lega kröfuharðasta verkið á fyrri hluta efnisskrárinnar, uppfullt af skemmtilegum taktbreytingum og hrynmunstri. Eftir hlé hóf kórinn upp raust sína með verki Jóns Nordal, Trú mín er aðeins týra, við texta Jóns Helgasonar og var verkið frumflutt 1999 í tilefni aldarafmælis hans. Fimm vísur um nóttina eftir Stefán Arason við texta Sigurðar Óskars Pálssonar var samið sumarið 2002. Verkið er fyrir tvo kóra og er í fjór- um köflum. Fyrsti kaflinn inniheld- ur tvær fyrstu vísurnar. Í fyrsta kafla söng kvartett sem staðsettur var á hliðarsvölum kór 1 og kórinn á sviðinu kór 2. Kór 1 syngur á einu atkvæði gangandi sjálfstæðar tríól- ur með góðum þögnum á milli á meðan kór 2 syngur vísurnar í nokkuð hefðbundinni kórsetningu. Annar kaflinn er við texta 3. vís- unnar og er skrifaður fyrir 12 radd- ir. Kvennaraddir beggja kóranna eru allar tvískiptar. 1. sópran og 1. alt syngja vísuna á meðan hinar kvennaraddirnar syngja langa liggj- andi tóna á einum sérhljóða úr text- anum. Karlaraddirnar syngja texta- laust og líkja eftir vindgnauði. Þarna raðaði kórinn sér í raun í þrjá misstóra hópa á sviðinu. Þriðji kaflinn er yfir 4. vísuna og þar syngjast á blandaður kvintett og restin af kórnum. Kórinn syngur texta vísunnar í hómófónískri radd- setningu en kvintettinn grípur inn í með glaðlegu Fa la la ... Síðasta vís- an er skrifuð fyrir tvo kóra og blístrara. Kór 1 syngur vísuna á meðan kór 2 er talkór sem mælir fram vísuna. Tveir kórfélagar sáu um blístrið. Verkið er samið með samstarf Hljómeykis við kammer- kóranna á Vestfjörðum og Austur- landi í huga og frumflutt í því sam- starfi en heyrðist nú í fyrsta sinn á höfuðborgarsvæðinu. Þetta verk er langt frá því að vera aðgengilegt fyrir flytjendur en mjög skemmti- legt áheyrnar og sennilega kröfu- harðasta verkið á efnisskránni. Síð- ast á efnisskránni var frumflutningur á verki Ólivers Kentish, Jubilate Deo. Óliver samdi verkið í október 2001 en af ein- hverjum ástæðum ver það ekki frumflutt fyrr en nú. Verkið er fyrir fjórraddaðan blandaðan kór og klukkuspil (röraklukkur). Sam- kvæmt efnisskrá er verkið ekki samið fyrir Hljómeyki heldur varð bara til og beið eftir góðum kór til frumflutnings. Í verkinu skiptast á hraðir og glaðlegir kaflar og aðrir hægari hómófónískir. Það er trú undirritaðs að þetta verk eigi eftir að heyrast oft í framtíðinni enda hér um gott framlag til íslenskrar kirkjutónlistar að ræða. Hljómeyki er og hefur lengst af verið einn besti blandaði kórinn á Íslandi. Hann er skipaður vel menntuðu tónlistarfólki sem flest er alið upp í söng og tónlist frá blautu barnsbeini og starfar við tónlist eða er langt komið í námi. Öll verkin sem kórinn flutti hér gera miklar kröfur til hvers og eins kórfélaga, enda flest öll samin fyrir kórinn og miðuð við getu hans og hefur sam- starf tónskálds og kórs í öllum til- fellum tekist mjög vel. Öll verkin krefjast góðrar tónheyrnar og næmrar hrynskynjunar hvers kór- félaga. Öll eru þau ómstríð innbyrð- is og út á við og því langt frá því að vera auðunnin í æfingu. Hljómgun kórsins er mjög góð og falleg og gott jafnvægi á milli. Stjórn Bern- harðs er örugg og ákveðin. Trú mín er aðeins týraTÓNLIST Ýmir Hljómeyki ásamt Frank Aarnink slag- verksleikara. Stjórnandi Bernharður Wilkinson. Flutt verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, John A. Speight, Jónas Tómasson, Þorkel Sigurbjörnsson, Jón Nordal, Stefán Arason og Óliver Kentish. Sunnudagurinn 9. febrúar 2003 kl. 20. KÓRTÓNLEIKAR Jón Ólafur Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.