Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MEÐ BLAÐINU Í DAG alltaf á miðvikudögum Jeppar, aukahlutir og fjallaferðir í 32 síðna blaði EF HUGMYNDIR Helga Geir- harðssonar verkfræðings ná fram að ganga geta Garðbæingar og ná- grannar rennt sér á skíðum við Víf- ilsstaðavatn einhvern tímann í framtíðinni. Hugmyndirnar, sem voru lagðar fyrir bæjarráð á dög- unum, ganga út á að gera skíða- brekku með gervisnjó í hlíðunum umhverfis vatnið. Þá kemur einnig til greina að gera skautasvell. Ástæðan fyrir því að Helgi telur hlíðarnar umhverfis Vífilsstaðavatn vera hentugar sem skíðasvæði er sú að veðurfarið er stöðugt og kalt vegna vatnsins og svæðið því hent- ugt til að framleiða gervisnjó á. „Þetta myndi byggjast á því sama og þekkist vel á öllum skíða- svæðum á Ítalíu t.d., að dæla snjó í brekkurnar,“ segir Helgi sem er mikill áhugamaður um skíði. Gera þarf grunnrannsóknir Gunnar Einarsson, forstöðumað- ur fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar, segir að gera þurfi grundvallarrannsóknir á hitafari á svæðinu áður en lagt er í frekari hugmyndavinnu. Heildarkostnaður við slíkar mælingar gæti orðið um 200 þúsund krónur. „Það eru allir áhugasamir um að útbúa vetrarútvistarsvæði í Garða- bæ fyrir fjölskyldur,“ segir Gunnar. „En það þarf að skoða alla þætti, t.d. umhverfissjónarmið. Eins og staðan er í dag er þetta vatnsvernd- arsvæði og á meðan svo er verða engar framkvæmdir á svæðinu. Það gæti breyst í framtíðinni, en hve- nær er óvíst.“ Gunnar segir málið á algjöru frumstigi en í tengslum við vetr- aríþróttir eru einnig uppi hugmynd- ir um að útbúa gönguskíðabrautir, t.d. á golfvellinum og í Heiðmörk. „Okkur finnst vanta aðstöðu til vetraríþrótta á höfuðborgarsvæð- inu. Þetta er nokkuð sem bæjarbú- ar vilja hafa, að geta skellt sér rétt út fyrir borgarmörkin til að renna sér á skíðum, snjóþotum eða því- líku.“ Bæjarráð Garðabæjar hefur falið íþrótta- og tómstundaráði að skoða málið frekar og kanna hvort aðrir staðir í landi Garðabæjar komi til greina sem skíðasvæði. Hugmyndir um skíðasvæði við Vífilsstaðavatn Garðabær Morgunblaðið/Golli Það er ekki amalegt að ganga á skíðum í Heiðmörk á góðviðrisdögum eins og þessum og vilja Garðbæingar nú útbúa þar gönguskíðabrautir. BERGLJÓT Arnalds, leik- kona og rithöfundur, hefur hug á að koma á fót barna- menningarhúsi í Kópavogi og hefur óskað eftir stuðn- ingi bæjaryfirvalda til þess að þær hugmyndir megi verða að veruleika. Berg- ljót hefur þegar fest kaup á húsnæði fyrir starfsem- ina sem hún hefur látið endurhanna með þarfir barnamenningarhúss í huga. Í húsinu yrði að sögn Bergljótar alhliða menn- ingarmiðstöð barna. „Þetta yrði eins konar hattur fyrir sköpun barna,“ segir hún. „Þar gætu þau haft aðstöðu og sótt námskeið og eins hef- ur mig alltaf langað til að stofnað yrði listasafn barna. Þetta gæti verið vísir að því. Það væri t.d. gaman að taka einn eða tvo árganga á hverju ári þannig að hvert einasta barn á landinu myndi skila af sér ein- hverju, hvort sem það yrði ljóð, mynd eða einhver önnur sköpun.“ Þá segir hún að hægt verði að halda fundi eða ráðstefnur í húsinu. „Mér finnst við hólfa okkur svolítið niður – börn eru í sérhólfi, full- orðnir í sérhólfi og eldri borgarar í enn öðru og svo framvegis. Það þroskar börn hins vegar mikið að kynnast því hvað er í boði og hvern- ig þjóðfélagið virkar, hvað pabbi og mamma eru að gera.“ Með útsýni yfir Álftanesið Húsið, sem Bergljót hefur fest kaup á fyrir starfsemina, er 522 fermetra iðnaðarhúsæði við gömlu höfnina í Kópavogi. „Þetta er frá- bært hverfi, þó það hafi kannski drabbast svolítið niður síðustu árin. Þetta er t.d. alveg við sjóinn með yndislegt útsýni yfir Álftanesið og þarna er mikil veðursæld. Það væri mjög gaman ef þetta hverfi yrði tekið í gegn því það býður upp á marga möguleika og er eitt skemmtilegasta hverfið í Kópa- vogi.“ Vífill Magnússon arkitekt hefur endurhannað húsnæðið með þarfir barnamenningarhúss í huga. Berg- ljót segir talsverða vinnu hafa verið lagða í að hanna húsið með það að augnamiði að það geti verið sem mest fjölnota. Meðal annars verður þar um 200 fermetra sýning- arsalur, sem einnig er hægt að nota til ráðstefnu- og fundarhalda, upp- tökustúdíó fyrir myndbönd og tón- list og ýmis minni herbergi. Þá hefur þegar verið ráðist í tals- verðar framkvæmdir við húsið og m.a. hefur Bergljót látið grafa út um 120 fermetra kjallara undir húsinu. Framkvæmdunum er þó hvergi nærri lokið. „Það er t.d. hugmynd um að koma þarna upp viðbyggingu þar sem yrði svona kaffihúsaaðstaða og móttaka og það er ekki búið að gera hana,“ seg- ir hún. Orðin liðtæk með hamar og nagla Þó að Bergljót hafi sjálf unnið talsvert við endurbyggingu húss- ins, og segist meðal annars orðin nokkuð liðtæk með hamar og nagla, segir hún framkvæmdirnar fjárfrekar og ekki á færi einnar manneskju að standa undir þeim, hvað þá að bera uppi rekstur húss- ins. Því hefur hún nú óskað eftir samstarfi við Kópavogsbæ um framhaldið. „Þetta er hugmynd sem ég er bú- in að vera með í maganum í dálítinn tíma en hún er ennþá á frumstigi,“ segir hún og bætir við að það sé vel hugsanlegt að fleiri opinberir að- ilar kæmu að rekstri hússins. „Ég held að það sé veruleg þörf á svona húsi á Íslandi. Það myndi gefa okk- ur öllum mikið því það er mikið hægt að læra af börnum. Ég hef fundið fyrir því að það er fjöldi af góðum foreldrum og kennurum og öðru fólki í þjóðfélaginu með fullt af sniðugum hugmyndum þannig að ég efast ekki um að það sé mjög góður vettvangur fyrir svona hús.“ Hún segir þó ljóst að ef draum- urinn um barnamenningarhús eigi að verða að veruleika verði stuðn- ingur opinberra aðila að koma til. „Mikið hægt að læra af börnum“ Hugmyndir um barnamenningarhús nýlega kynntar bæjaryfirvöldum Í húsnæðinu er m.a. að finna um 200 fm sýn- ingarsal. „Ég held að það sé veruleg þörf á svona húsi á Íslandi,“ segir Bergljót Arnals. Kópavogur Morgunblaðið/Golli TILLÖGUR að nafngiftum gatna í Mosfellsdal voru kynntar fyrir skipulags- og byggingarnefnd Mos- fellsbæjar í vikunni. Hingað til hefur sveitarbragurinn ráðið ferðinni í dalnum og bæirnir ekki verið kennd- ir við götur eða vegi. Samkvæmt skipulagslögum skulu götur hafa nöfn og þar verður Mosfellsdalurinn engin undantekning. Nú er verið að deiliskipuleggja dalinn, þegar hefur hluti hans verið skipulagður en mikil vinna er enn fyrir höndum. Að sögn Ásbjarnar Þorvarðssonar byggingafulltrúa hefur hann verið í samstarfi við Bjarka Bjarnason, sem er þekktur Dalbúi, við nafnaleitina. Niðurstaða liggur ekki enn fyrir en tillögur byggja á sögu Mosfellsdals og örnefninu Víði sem gæti orðið hugsanleg ending á götunöfnum. Samkvæmt skipulagslögum ber sveitarstjórnum ekki að kynna tillög- ur að götunöfnum fyrir íbúum en Ás- björn segir að það komi þó til greina í þessu tilfelli. „Það er nauðsynlegt að götum séu fundin nöfn til að auð- velda skráningu og auðvelda fólki að rata um svæðið,“ segir Ásbjörn. „Það er hins vegar viðbúið að það taki nokkur ár fyrir götunöfn að festa sig í sessi hjá Dalbúum þar sem bæjar- nöfn hafa svo lengi verið við lýði.“ Ásbjörn segir að sennilega verði haldið í götunöfn sem þegar hafi fest sig í sessi svo sem Helgadalsvegur og Æsustaðavegur. Göturnar í Dalnum fá nöfn Mosfellsbær FORELDRAR barna í Salaskóla í Kópavogi hafa farið þess á leit við bæjaryfirvöld að göngustígum í Salahverfi verði tafarlaust lokað fyr- ir bílaumferð og lýsing bætt til að auka öryggi barna og annarra gang- andi vegfarenda. Erindinu var á fundi bæjarráðs í vikunni vísað til afgreiðslu bæjar- verkfræðings. Í erindi sem foreldrafélag Sala- skóla sendi bæjaryfirvöldum kemur fram að félagið hafi áhyggjur af ör- yggismálum í nágrenni skólans og í hverfinu öllu. „Undanfarið hefur talsvert borið á því að bílum sé ekið um göngustíg- ana sem skapar gífurlega hættu,“ segir í bréfinu. „Til að bæta gráu of- an á svart er lýsingin á stígunum víða léleg og sums staðar engin.“ Því fer foreldrafélagið fram á að göngustígunum verði tafarlaust lok- að fyrir bílaumferð og lýsing verði bætt. „Að óbreyttu er þetta ekki spurning um hvort heldur hvenær eitthvað alvarlegt gerist. Eftir því viljum við ekki bíða,“ segir í bréfinu. Vilja betri lýsingu á göngustígana Salahverfi Foreldrar uggandi yfir bílaumferð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.