Morgunblaðið - 13.10.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.10.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 9 PAR bolirnir komnir Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—16 Hlýjar síðbuxur og kvartbuxur Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00. LAGERÚTSALA Á ELDRI VÖRUM - ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR Vikutilboð15% afsl. af öllum ljósum vikuna 13.-18. október www.casa.is • Opið mán-fös 11-18 • lau 11-15 Mörkinni 3, 108 Reykjavík sími 588 0640 Ný sending af MAC gallabuxum Kringlunni sími 588 1680 Seltjarnanesi, sími 5611680. tískuverslun iðunn– Ferðaþjónusta –Hverjar eru horfurnar með hliðsjón af hvalveiðum? Útflutningsráð Samtaka verslunarinnar boðar til hádegis- verðarfundar mánudaginn 13. október kl. 12:00 í Skálanum, HótelSögu. Framsögumaður á fundinum verður Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður og formaður Ferðamálaráðs Íslands. Að loknu framsöguerindi verða fyrirspurnir og umræður. Þátttökugjald með hádegisverði er kr. 2.500. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfang: lindabara@fis.is eða í síma 588 8910. Samtök verslunarinnar Á UMHVERFISÞINGI á morgun og miðvikudag mun Siv Friðleifs- dóttir umhverfisráðherra kynna drög að náttúruverndaráætlun sem lögð verða fyrir Alþingi í formi þingsályktunartillögu í vetur. Einnig verður á þinginu leitast við að fá viðbrögð ýmissa aðila við áætluninni og annarri náttúru- vernd og landnýtingu. Umhverfisþing er vettvangur umræðu um umhverfismál sem umhverfisráðherra skal boða til annað hvert ár, og ætlað er að kalla fram öll helstu sjónarmið í málaflokknum. Umhverfisráðherra Kanada, David Anderson, verður sérstakur heiðursgestur þingsins og mun ávarpa það í fyrramálið. Roger Crofts, varaforseti Alþjóðanáttúru- verndarsamtakanna (IUCN) fyrir Evrópu og fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Skoska náttúru- verndarráðsins (Scottish Natural Heritage), mun halda erindi um al- þjóðlega strauma í náttúruvernd á umhverfisþinginu. Vinnuhópar á þinginu munu taka fyrir og fjalla um eftirfarandi mál- efni: umsjón með friðuðum svæð- um og aðkomu heimamanna, vís- indalegan bakgrunn Náttúru- verndaráætlunar og alþjóðlegt samhengi framtíðarviðfangsefnis í náttúruvernd. Þingið er opið almenningi og stendur skráning yfir í afgreiðslu umhverfisráðuneytisins og á heimasíðu þess. Náttúruverndar- áætlun rædd á umhverfisþingi HAUSTIÐ er yfirleitt litfagurt, ekki síst við Þingvallavatn þar sem skógur og annar gróður breytir um svip fyrir veturinn. Í stillum er vatnið eins og spegill og kyrrðin getur vart annað en haft róandi áhrif á ferðalanga sem heimamenn. Morgunblaðið/Leifur Sveinsson Hauststemning á Þingvöllum BORIST hefur eftirfarandi ályktun frá Öryrkjabandalagi Íslands: „Aðal- fundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn fimmtudaginn 9. október 2003, fagnar því samkomulagi sem náðst hefur við ríkisstjórn Íslands um hið nýja kerfi örorkulífeyris sem tekið verður upp frá og með 1. janúar næst- komandi. Með kerfisbreytingu þess- ari er hin margvíslega sérstaða ör- yrkja viðurkennd í verki. Fyrir það pólitíska raunsæi eiga íslensk stjórn- völd þakkir skildar. Samkomulagið markar ekki aðeins þáttaskil í sögu og þróun almannatrygginga, heldur einnig í samskiptum stjórnvalda við Öryrkjabandalag Íslands. Með beinu og milliliðalausu samkomulagi við bandalagið sýna ráðamenn þjóðarinn- ar mikilsverðan skilning á nýjum og breyttum viðhorfum til mannrétt- indabaráttu fatlaðra.“ Fagna nýju kerfi örorku- lífeyris

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.