Morgunblaðið - 13.10.2003, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.10.2003, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 19 R ÍKISSTJÓRNIR Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa verið við völd á Íslandi allt frá árinu 1995. Þegar þessir flokkar hófu samstarf árið 1995 var að mörgu leyti mjög erfitt ástand á Íslandi. Hér hafði verið viðvarandi atvinnuleysi í tölu- verðum mæli, rekstur atvinnufyr- irtækja var almennt mjög erfiður og lítið hafði verið um uppbyggingu at- vinnulífs. Ríkissjóður hafði verið rekinn með halla í of mörg ár, hér hafði varla verið nokkur hagvöxtur og þaðan af síður hafði kaupmáttur ráðstöfunartekna aukist að neinu marki. Eftir að hafa verið í stjórnarand- stöðu lagði Framsóknarflokkurinn upp með skýr markmið fyrir alþing- iskosningarnar 1995, sem miðuðu að því að snúa vörn í sókn. Í góðu sam- starfi við Sjálfstæðisflokkinn hefur gengið vel að ná þessum mark- miðum. Valdatími flokkanna hefur einkennst af skýrum markmiðum og aðgerðum sem hafa miðað að því að bæta efnahagslega stöðu þjóð- arinnar. Það hefur m.a. falist í því að efla atvinnulíf og fjölga störfum í þjóðfélaginu og ekki hvað síst að skapa og viðhalda efnahagslegum stöðugleika með ábyrgri stjórn rík- isfjármála. Það hefur tekist vel, eins og hagtölur sýna. Á undanförnum árum hefur kaupmáttur ráðstöf- unartekna aukist mikið, hagvöxtur hefur verið viðvarandi að mestu og verðlag hefur verið stöðugra en áður hefur þekkst í svo langan tíma. Við Íslendingar erum nú ein allra rík- asta þjóð í heimi og búum við betri lífskjör en langflestar aðrar þjóðir. 6,4 milljarða tekjuafgangur Í stefnu stjórnarflokkanna sem birtist í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2004 birtast sömu markmið og áður. Stjórnarflokkarnir ætla sér að við- halda góðum efnahagslegum árangri og tryggja stöðugleikann. Fram- undan eru mikil umsvif í hagkerfinu og því mikilvægt að festa verði í hagstjórninni. Hagspekingar hafa lagt áherslu á gott aðhald í ríkisfjár- málum á næstu árum og að afgangur fjárlaga verði sem mestur, til þess að hamla gegn óæskilegum þenslu- áhrifum og meðfylgjandi óáran í efnahagsmálum. Markmið stjórn- arflokkanna eru í samræmi við þessi sjónarmið. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir rekstrarafgangi, 6,4 millj- örðum króna, þrátt fyrir að ekki sé gert ráð fyrir því sem forsendu að ráðist verði í stækkun Norðuráls og virkjunarframkvæmdir í tengslum við hana, né heldur er gert ráð fyrir sölu ríkiseigna. Hér er um eðlilegt varfærnissjónarmið að ræða er varðar tekjuáætlun, þar sem ekkert staðfest liggur fyrir um þessi verk- efni. Vaxtagreiðslur lægri en vaxtatekjur Um rekstur ríkissjóðs á það sama við og um allan annan rekstur, hvort sem um er að ræða heimilin eða at- vinnufyrirtækin, það er mikilvægt til framtíðar að skulda ekki mikið. Stjórnarflokkarnir hafa á und- anförnum árum lagt áherslu á það forgangsmarkmið að greiða niður sem mest af skuldum ríkissjóðs og það hefur tekist vel. Á næsta ári verður haldið áfram að greiða niður skuldir ríkissjóðs, þessi áhersla er ánægjuleg þar sem niðurgreiðsla skulda er til hagsbóta fyrir komandi kynslóðir og er það sérstakt fagn- aðarefni. Í þessu samhengi þekkja flestir þá einföldu staðreynd að miklum skuldum fylgir mikil vaxta- byrði. Samhliða því að mikið hefur verið greitt niður af skuldum rík- isins síðustu árin hefur vaxtakostn- aður minnkað mikið. Gera má ráð fyrir því að eftir árið 2004 verði þau tímamót að greiddir vextir ríkissjóðs verði lægri en vaxtatekjurnar. Í rekstri ríkissjóðs þýðir þetta einfaldlega það að skattpeningarnir nýtist til annarra og að flestra mati brýnni málefna en til að borga vexti vegna skulda ríkisins. Sú ánægjulega nýjung á sér stað að samhliða fram- lögðu fjárlagafrumvarpi hefur ríkisstjórnin gert grein fyrir stefnumörkun sinni og áætlunum um út- línur ríkisfjármála næstu fjögur ár. Þetta er í sam- ræmi við stefnuyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar og markar tímamót í vinnu- brögðum við hagstjórn hér á landi. Með þessu er verið að styrkja trú- verðugleika efnahagsstefnu rík- isstjórnarinnar og stuðla að áfram- haldandi stöðugleika í efnahagslífinu. Í þessari stefnu- mörkun koma fram skýr markmið um aðgerðir til að ná þeim árangri sem stefnt er að. Forðast verðbólgu eins og pestina Flestir Íslendingar muna eftir þeim tíma þegar hér geisaði verð- bólga sem gerði m.a. það að verkum að ekki var nokkur leið að standa að rekstri stofnana og atvinnufyr- irtækja á þann hátt sem við þekkjum í dag. Þá kom verðbólgan mjög illa niður á rekstri heimilanna, svo eitt- hvað sé nefnt. Við höfum haft það sem markmið að halda niðri verð- bólgunni, eftir að tókst að ná tökum á henni um og upp úr árinu 1990. Við viljum forðast verðbólguna eins og sjálfa pestina. Í stefnumörkun rík- isstjórnarinnar og spám til næstu fjögurra ára kemur fram að gert er ráð fyrir að verðlagsþróun verði nokkuð stöðug næstu árin og í sam- ræmi við verðbólgumarkmið Seðla- bankans. Það ásamt hóflegum kauphækk- unum eru helstu forsendur fyrir þeim efnahagslega stöðugleika sem leggur grundvöll þess að kaup- máttur ráðstöfunartekna vaxi enn frekar. Í áætlunum fyrir næstu ár er gert ráð fyrir að áfram vaxi kaup- máttur jafnt og þétt, en það er sá þáttur sem skiptir hvað mestu fyrir launafólk og almenning í landinu. Þau markmið sem birtast í fjár- lagafrumvarpi fyrir árið 2004 miða að því að halda áfram styrkri stjórn ríkisfjármála. Það er mikilvægt framlag til hagstjórnarinnar og mið- ar að því að viðhalda efnahagslegum stöðugleika. Það er í fullu samræmi við málflutning og stefnu stjórn- arflokkanna fyrir síðustu alþing- iskosningar og það sem fram kemur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar. Áfram- haldandi stöðugleiki Eftir Magnús Stefánsson ’ Gera má ráð fyrir því aðeftir árið 2004 verði þau tímamót að greiddir vextir ríkissjóðs verði lægri en vaxtatekjurnar. Í rekstri rík- issjóðs þýðir þetta einfald- lega það að skattpeningarnir nýtist til annarra og að flestra mati brýnni málefna en til að borga vexti vegna skulda ríkisins. ‘ Höfundur er formaður fjárlaganefndar Alþingis. að hér á ja þau 5 um við vera einilega ara á essa of- g sést á ar aðrar a grunn- ð stytta gara um a grunn- ns og að á ýmist rúm þar vera meira sem útskýrist af lengri skólatíma í heildina. Hins vegar hefði sú leið ekki sparað ríkinu neitt þar sem grunnskólar eru reknir af sveitarfélögum og því var hin leiðin valin. Sem stendur geta nemendur sem vilja og treysta sér til lokið framhaldsskóla á þremur árum gert það í áfangaskólum. Sú stytting rýrir ekki gæði námsins þar sem þessir nemendur ljúka jafn mörgum einingum og aðrir, aðeins á skemmri tíma. Aðrir nemendur geta tekið skólann á fjórum árum eins og miðað er við. Al- gengt er raunar líka að nemendur ljúki námi á fimm árum, án þess þó að stjórnvöld virðist vita af því. Hins vegar er ljóst að með styttingu framhaldsskólans fækkar kennslutímum um 20% sem er ekkert annað en gengisfelling á stúdentsprófi. Menntunin á bak við prófið hlýtur að verða 20% minni, alveg sama þó að ráðherra tali um að hvergi verði slegið af kröfum. Nefndar hafa verið tölur um að kennurum fækki þar með um 12% og þykist ég þar sjá raunverulegan drif- kraft ríkisstjórnarinnar, þ.e. að fækka starfsfólki og spara þar með það fé sem veitt er til menntunar. Afleiðingarnar verða þær að fólk kemur verr und- irbúið í háskólanám og í öllu akademísku námi þarf að eyða dýrmætum tíma í að tyggja ofan í fólk grundvall- aratriði sem það nú lærir til stúdentsprófs. En kannski þýðir lítið að vera að tjá sig um þetta þar sem menntamálaráðuneytið er þegar búið að taka ákvörðun, verkefnisstjórnin er búin að skila tillögum og öðrum þeim sem áhuga hafa á að taka þátt í þessari ákvörðun hefur verið vísað pent á heimasíðuna menntagatt.is þar sem þeim er heimilað að koma at- hugasemdir eða með öðrum orðum röfla yfir því sem þegar hefur verið ákveðið. Eftir á getur ráðherra sagt að nú hafi farið fram lýðræðisleg umræða og fram- kvæmt svo það sem búið er að ákveða. Þessi sparnaðarframkvæmd verður til að geng- isfella stúdentsprófið og hún getur ekki talist mikið af- rek í málefnum framhaldsskólans. Nær hefði verið fyr- ir ráðuneytið að taka á því að hér á landi er 30% brottfall úr framhaldsskóla sem er með því mesta sem gerist í Evrópu. Þessi hópur fellur brott úr námi til stúdentsprófs og hefur þá fáa aðra valkosti. Mikilvægt er að koma til móts við hann, t.d. með stuttum starfstengdum námsbrautum. En það kostar peninga og ráðuneytið virðist ekki reiðubúið að eyða meiru í menntun og vísindi en þegar er gert, fremur á að spara. Þar á bæ trúa menn því greinilega ekki að vísindi efli alla dáð. Eða þeir eru bara svona dáðlausir sjálfir þó að til allrar hamingju séu þeir mjög sam- ræmdir í dáðleysinu. ausir ’ Hins vegar er ljóst að meðstyttingu framhaldsskólans fækkar kennslutímum um 20% sem er ekkert annað en geng- isfelling á stúdentsprófi. ‘ Höfundur er formaður Ungra vinstri grænna. s í leið sem um að arið er til arla og r sem ndnum ur í 7% um svið- þar sem ð- rghátt- m, sér- hlutfall ri afa laga- g körl- n- er tekið m sé átt nar er með m at- vinnu afnrétt- ismálum á umliðnum árum og áratugum, m.a. með miklu meiri menntun kvenna en áður og auknum hlut þeirra í stjórnunarstörfum, er ljóst að launajafnrétti kynjanna er enn órafjarri. Ljóst er einnig að hið op- inbera hefur í samkeppni við hinn almenna vinnumark- að tekið þátt í þessu tvöfalda launakerfi, þar sem m.a. stöðuheiti, föst yfirvinna, hverskonar kaupaukar og bílahlunnindi eru notuð til að hygla fremur körlum en konum. Með jafnréttislögum og alþjóðasamþykktum um jafnréttismál sem Ísland hefur fullgilt eru stjórnvöld- um jafnt sem aðilum vinnumarkaðarins settar ákveðnar skyldur á herðar til að ná fram launajafnrétti kynjanna. Engu að síður þrífst mikið launamisrétti hjá hinu opinbera þar sem ríkisvaldið og sveitarfélögin eru vinnuveitendur og eins á hinum almenna vinnumarkaði. Mikilvægt er að stjórnvöld gangi á undan með góðu fordæmi og virði lög og alþjóðasamþykktir um jöfn laun karla og kvenna. Afar mikilvægt er að fjár- málaráðherra sem viðsemjandi opinberra starfsmanna sýni frumkvæði og ábyrgð í verki með því að beita sér fyrir markvissri áætlun um að koma á launajafnrétti kynjanna. Þetta má bæði gera í gegnum kjarasamn- inga við opinbera starfsmenn og með eftirliti með því að opinberar stofnanir og ráðuneyti fylgi markvissri jafnréttisáætlun um að allar starfstengdar greiðslur og/eða hlunnindi skv. 14. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla gangi jafnt til kvenna og karla fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf. Ekki reynir síst á þetta vegna þess að við lýði er tvöfalt launakerfi, annars vegar almennir kjarasamningar og hins vegar einstaklingsbundnir ráðningarsamningar og hvers konar duldar greiðslur, álög og starfstengdar greiðslur sem orðnar eru stór hluti af kjörum fjölda launþega. Nú þegar konur hafa áratugum saman búið við mis- rétti í launamálum, þrátt fyrir skýr lög um launajafn- rétti kynjanna, þá er auðvitað löngu kominn tími til að reyna nýjar leiðir og beita að fullu þeim ákvæðum sem jafnréttislög kveða á um. Leiðin er að beita tíma- bundnum sértækum aðgerðum til að ná fram launa- jafnrétti kynjanna. m launajafnrétti kynjanna Höfundur er alþingismaður. ’ Full ástæða er til að beitaákvæði jafnréttislaga um sértæk- ar tímabundnar aðgerðir þegar í um 40 ár hafa verið í gildi lög, sem ekki hafa verið virt, sem banna launamisrétti kynjanna. ‘ tt er m svið- yndir gnstæða kjunum um langt öðu und- á meiri- ræði í ð afnámi klega kja lít- amlega a vald lægð þessu boðið öll- r í aug- ð spyrja l valds frá aðildarríkjunum til Evrópusambandsins. Íbúarnir geta nefnilega tekið upp á þeirri dellu að hafna þeim. Nú „hóta“ sum aðildarríki sambandsins því að spyrja íbúana hvort þeir vilji þessa blessuðu stjórnarskrá. Evr- ópusambandið hótar á móti að skera niður styrki til við- komandi ríkja. Þetta er allt saman ákaflega lýðræð- islegt og spennandi. Spurningin um aðild að Myntbandalagi Evrópu og upptöku evru var aðeins borin undir þjóðaratkvæði í tveimur ríkjum, Danmörku og Svíþjóð, þótt um væri að ræða verulegt framsal valds. Hvorir tveggja Danir og Svíar höfnuðu evrunni. Sem sannar auðvitað hvað þjóð- aratkvæðagreiðslur eru skelfilega vitlausar og þreyt- andi. Írsk stjórnvöld báru Nice-samkomulagið svokall- aða, sem fól í sér ýmsar grundvallarspurningar, undir þjóð sína. Írska þjóðin felldi samkomulagið og setti m.a. stækkunaráform sambandsins í uppnám. En það góða við þjóðaratkvæðagreiðslur um málefni Evrópusam- bandsins er að þær er hægt að halda strax aftur ef nið- urstaðan er vitlaus. Allt þar til hugmynd sambandsins er samþykkt. Þá þarf aldrei að halda þjóðaratkvæða- greiðslu um málið aftur. Írar samþykktu Nice- samkomulagið í annarri tilraun, eftir að hafa verið hótað því að verða gerðir hornreka, og verða ekki spurðir álits um það frekar. Þjóðráð Evrópusambandsins Graham Watson, leiðtogi frjálslyndra þingmanna á Evrópuþinginu lýsti þessu vel þegar hann kom í heim- sókn til Svíþjóðar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar um evruna í september. Hann gaf Svíum þetta ráð: „If you vote ’no’, you will have to vote again in a few years time. Do you really want to vote twice? Look at Ireland. They voted twice because they got the answer wrong the first time.“ Dr. Lars Wohlin, hagfræðingur og fyrrverandi bankastjóri Seðlabanka Svíþjóðar, taldi sig vera að gera rétt þegar hann hvatti Svía til að halda krónunni. Dr. Wohlin mun fara yfir ástæður þess í er- indi á opnu málþingi í Norræna húsinu í dag. En um leið og hann snýr til baka til Svíþjóðar þarf hann að huga al- varlega að orðum frjálslynda Evrópuþingmannsins. Og vera viðbúinn annarri atkvæðagreiðslu. Því það er þannig sem þetta virkar. man Höfundur er framkvæmdastjóri Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.