Morgunblaðið - 24.10.2003, Page 29

Morgunblaðið - 24.10.2003, Page 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 29 LEIKBRÚÐULANDI hefur verið boðið á alþjóðlega brúðuleik- húshátíð sem haldin er í Oulu í Finnlandi þessa dagana. Hátíðin heitir Barents alþjóðlega brúðu- leikhúshátíðin og taka mörg lönd þátt í hátíðinni m.a. Finnland, Svíþjóð, Noregur, Rússland og Ameríka. Leikbrúðuland fer með Prins- essuna í hörpunni og alla hennar fjölskyldu með; Sigurð fáfn- isbana, Brynhildi Buðladóttur, Buðla konung, Ragnar loðbrók og Áslaugu sjálfa og Heimi gamla fóstra hennar innanborðs. Það eru þær Helga Steffensen, Mar- grét Kolka og Sigrún Erla Sig- urðardóttir sem stjórna brúð- unum og Björn Kristjánsson er tæknimaður. Leikritið er eftir Böðvar Guð- mundsson og er unnið úr Völs- ungasögu og Ragnars-sögu loð- brókar. Brúður og tjöld eru hönnuð af Petr Matasek, tékk- neskum brúðulistamanni, og leik- stjóri er Þórhallur Sigurðsson. Fjölbreytt flóra af brúðum tekur þátt í sýningunni: strengjabrúður, hanskabrúður, brúður sem leik- arinn klæðist, marotten-brúður o.fl. Sýningin var frumsýnd á Listahátíð 2000. Úr sýningunni Prinsessan í hörpunni. Prinsessan í hörpunni til Finnlands SKAMMT stórra högga ámilli í röðum myndlist-armanna næstliðin ár, slíktmannfall naumast fært í annála áður. Af þeim nokkrir þjóð- kunnir með langan feril að baki, svo enn aðrir í blóma sköpunarferils síns. Fyrir undarlega skikkan örlag- anna ástæða til að minnast sér- staklega tveggja grafíklistamanna, þeirra Drafnar Friðfinnsdóttur og Þorgerðar Sigurðardóttur sem borin verður til grafar í dag. Fleira áttu þær sameiginlegt en að vera at- kvæðamiklar á skapandi vettvangi þá lífsklukka þeirra rann sitt skeið. Báðar upprunnar norðan heiða, hófu listnám kornungar 1962, einn vetur samtíða í Myndlista- og handíðaskól- anum en gengu að heimilisverkum og létu seint að sér kveða á listavett- vangi. Gerðist eftir endurnýjað nám, báðar á hátindi sköpunarferlis og at- hafnasamar á sýningavettvangi þeg- ar krabbinn varð lífsdug þeirra yf- irsterkari. Dröfn þekkti ég eðlilega minna, starfsvettvangur hennar og seinni námsferill 1982–86 á Akureyri, síðan Lahti í Finnlandi 1987–88, en undr- aðist hinar drjúgu framfarir og stór- hug í vinnubrögðum. Kom stöðugt á óvart með tréristum sínum í yf- irstærðum, hreinum og tærum hvar gagnsær blámi himins og úthafs í bland við huglæg sköp og grómögn jarðar voru yfirleitt í aðalhlutverk- unum. Þótt Þorgerður Sigurðardóttir, sem í dag verður til moldar borin, færi um margt aðrar leiðir í list- sköpun sinni og myndverk hennar að meginhluta trúarlegs eðlis, var ein- hver keimlíkur tónn víðáttu og nálg- unar í tréristum þeirra, ásamt óformlegri beitingu skurðhnífanna. Man glöggt eftir Þorgerði í MHÍ, enda dvaldist henni ári lengur en Dröfn, og mun hafa sótt tíma á graf- íkverkstæðið þar sem ég réði þá ríkj- um, seinna nemandi í grafíkdeild 1986–89 og vissi ég þá vel af henni þótt ég kenndi nú á öðrum víg- stöðvum innan skólans. Loks var Þorgerður alla tíð starfandi í Reykja- vík og mjög atkvæðamikil í fé- lagsmálum grafíklistamanna, sendi mér ótal rafbréf sem sköruðu vett- vanginn sem og athafnasemi hennar sjálfrar. Kom fyrst fram á sviðljósið jafnt með einkasýningar og þátttöku á samsýningum 1998, og var eftir það með virkustu grafíklistamönnum þjóðarinnar. Síðasta afrekið var sýn- ing á teikningum trúarlegra tákna í anddyri Grensáskirkju í september, sem var framlengd og uppi meðan listakonan háði dauðastríð sitt, og enn á staðnum er mig bar að síðast- liðinn sunnudag. Þar kveður við nýj- an tón í listsköpun Þorgerðar, ein- faldari, samþjappaðri, kröftugri og myrkri, um leið öllu meira í anda síð- módernismans. Helst í þá veru að allri upphafinni litagleði ásamt létt- um og leikandi áhrifameðölum er hafnað, þannig á fullu til hinstu stundar, út yfir gröf og dauða. Listakonan fylgdi sýningunni, sem hún nefndi „Milli himins og jarðar“ úr hlaði með táknrænum hugleið- ingum: „Ein lítil bernskuminning kemur mér ætíð til að líða vel. Þegar veður var gott lagðist ég í óslegið grasið á túninu heima á Grenj- aðarstað. Þarna gat ég legið tímum saman á mjúkri jörðinni, horft upp í himininn í skjóli grassins sem bylgj- aðist meðfram líkama mínum. Þetta var minn heimur. Ég hafði þá trú að enginn vissi hvar ég væri, enginn truflaði mig, ég var í miðju heimsins. Himinninn var síbreytilegur og skýin færðust til – eða var það jörðin? Þannig fór ég mínar ævintýraferðir um himininn. Þetta voru góðar stundir sem við áttum – ég, himinn- inn og jörðin.“ Þorgerður Sigurðardóttir var prestsdóttir frá Grenjaðarstað í Að- aldal, kirkjustað sem í upphafi var helgaður heilögum Marteini í kaþ- ólskum sið, í kirkjugarðinum rúna- steinn frá miðöldum. Allir sem lagt hafa leið sína á þessar slóðir mega gera sér ljóst að um er að ræða einn fegursta kirkjustað á Íslandi, höfð- ingjasetur til forna og eitt af bestu brauðum landsins, til jafns við Odda sunnan heiða. Þar bjó fyrstur Grenj- aður Hrappsson, og samkvæmt Landnámu nam hann Þegjandadal og Hraungerði og Þorgerðarfell og Laxárdal neðan. Af ofanskráðu nærtækt að giska á hvert hugmyndin að nafni listakon- unnar var sótt, og með jarðbundinn safaríkan bakgrunn fortíðar í lífs- malnum yfirgaf hún heimahaga. Þorgerður þannig trú uppruna sín- um, jafnt sögu og umhverfi þótt ekki kortlegði hún ytra byrði æskuslóð- anna, frekar að hún skilaði frá sér arfi og andblæ aldanna. Var hér á réttu róli í listinni, vandfundinn sá markverður myndlistarmaður í heimi hér sem ekki yfirfærði hluta upprunans í verk sín. Hvað svo sem öllu tali um alþjóðamál listarinnar líður og hvort heldur væri á hlut- vöktum eða huglægum nótum. Samfelldustu og ánægjulegustu nálgunina í samskiptum við listakon- una naut ég í Kínaferð félagsins Ís- lenzk grafík 1994, tilefnið opnun fyrstu íslenzku listsýningarinnar í landinu að ég best veit. Fyrst var það Peking, með forboðnu borginni og dagsferð að múrnum mikla, svo keis- arahöllin í Chengde í Norður-Kína, síðan aftur Peking. Þarnæst Xian í miðhluta landsins og gröf gula keis- arans Qin Shi Huangdi heimsótt, svo áfram til silkiborgarinnar Chengdu í suðausturhlutanum og Guilin í suð- urhlutanum, sagður fegursti hluti Kína með ævintýralegri siglingu um fljótið Lijiang allt til Guangzhou borgar, áður þekkt undir nafninu Kanton, miðstöð ópíumverslunar og vaki hvers konar skuggaverka er fylgdu í kjölfarið. Loks endað í Kowloon/ Hong Kong. Vægt orðað, að þetta hafi verið lærdómsrík og ógleymanleg yfirferð um eitt víð- feðmasta og mesta menningarríki jarðar. Í skýru minni hve Þorgerður var forvitinn, áhugasamur, góður og tillitssamur ferðafélagi, og hve djúp- stæð lifun ferðin undantekning- arlaust reyndist fyrir hvert eitt okk- ar. Þorgerður Sigurðardóttir kom mér svo fyrir sjónir að vera ákaflega einlægur, tilfinningaríkur og traust- ur persónuleiki. Hún hafði gengið í gegnum ýmsar hremmingar og mun hafa verið ófeimin að tjá sig um þær ef svo bar undir og hvorki leyndi né auglýsti hún seinna veikindi sín, tal- aði frekar hreint út um þau og sagði mér síðast að í stað afturbata hefði krabbinn tekið sig upp og dreift sér um líkamann. Sterk bein þarf til að horfast á þann veg í augu við ill örlög og feigð sína, mitt í rífandi sköp- unargleði og lífsvilja. Í dag leggur Þorgerður í sitt mesta ferðalag og nú til landsins handan landsins, þaðan sem enginn á afturkvæmt, skýin hafa færst til eins og þegar hún lá í grasinu á Grenj- aðarstað forðum daga og víddir him- insins lokist upp. Fylgi henni heilar óskir og þakkir fyrir auðgandi návist. Þorgerður Sigurðardóttir Þorgerður Sigurðardóttir við eitt verka sinna árið 1998. Eftir Braga Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.