Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.2001, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 15. SEPTEMBER 2001 15
MYNDLIST
Árnastofnun, Árnagarði: Handrita-
sýning opin þri.-fös. 14-16. Til 15.5.
Byggðasafn Hafnarfjarðar: Blóðug
vígaferli og götulíf víkinganna í York.
Til 1. okt.
Galleri@hlemmur.is: Olga Berg-
mann. Til 7. okt.
Gallerí Kambur, Rangárvallasýslu:
Albert Mertz. Til 30.9.
Gallerí Sævars Karls: Arngunnur Ýr.
Til 15.9.
Gerðarsafn: Gísli Sigurðsson. Hjör-
leifur Sigurðsson.
Til 7. okt.
Hafnarborg: Bjarni Sigurbjörnsson.
Andri Egilitis í kaffistofu. Til 24.9.
Hallgrímskirkja: Detel Aurand. Til
26. okt.
i8, Klapparstíg 33: Max Cole og
Thomas Ruppel. Til 15.9.
Íslensk grafík, Hafnarhúsinu: Frið-
rika Geirsdóttir. Til 7. okt.
Listasafn Akureyrar: Per Kirkeby.
Hekla Dögg Jónsdóttir. Til 16.9.
Listasafn ASÍ: Félagar úr Meistara
Jakob. Til 23.9.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 14-17.
Listasafn Íslands: Naumhyggja. Til
14. okt. Verk úr eigu safnsins: Þor-
valdur Skúlason, Magnús Tómasson.
Til 7. okt.
Listasafn Reykjavíkur - Ásmundar-
safn: Svipir lands og sagna.
Til 10.2.
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús:
Erró. Til 6.1.
Listasafn Reykjavíkur - Kjarvals-
staðir: Kristján Guðmundsson. Til 16.
nóv. Austursalur: Jóhannes S. Kjar-
val. Til 31.5.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar:
Helgi Gíslason myndhöggvari: Til 28.
okt.
Listasalurinn Man: Guðrún Öyahals.
Til 30. sept.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Torfi
Jónsson. Til 19.9.
Mokkakaffi: Frændurnir Karl Jó-
hann Jónsson og Ómar Smára Krist-
insson. Til 16. okt.
Norræna húsið: Ljósmyndir Hend-
riks Relve. Nærvera listar. Til 23.9.
Nýlistasafnið: Sjálfbær þróun. Til 7.
okt.
Reykjavíkur Akademían: Sjónþing
Bjarna H. Þórarinssonar.
Til 1. okt.
Safnahús Borgarfjarðar: Ljósmyndir
hjónanna á Indriðastöðum. Til 5. okt.
Skaftfell, Seyðisfirði: Haustsýning
Skaftfells.. Til 18. nóv.
Skálholtskirkja: Anna Torfadóttir og
Þorgerður Sigurðardóttir. Til 31. des.
Slunkaríki, Ísafirði: Hlíf Ásgríms-
dóttir. Til 16.9.
Stöðlakot: Hrefna Lárusdóttir. Til
16.9.
Þjóðarbókhlaða: Erla Þórarinsdóttir.
Til 5. okt. Brúður Sigríðar Kjaran. Til
15.9.
Þjóðmenningarhúsið: Landafundir og
ragnarök. Til 15. okt.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Hásalir, Hafnarfirði: Kvennakór
Hafnarfjarðar. Kl. 17.
Sunnudagur
Bústaðakirkja: Sigrún Eðvaldsdóttir,
Zbigniew Dubik, Helga Þórarinsdótt-
ir, Bryndís Halla Gylfadóttir, og
Richard Talkowsky. Kl. 20.
Salurinn, Kópavogi: Beethoven.
Kammerhópur Salarins. Kl. 16:30.
Þriðjudagur
Salurinn, Kópavogi: Roman Rudn-
ytsky píanóleikari. Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Með fulla vasa af
grjóti, 13., 16. sept.
Syngjandi í rigningunni, 14. sept.
Vilji Emmu, frums. 15. sept. 16., 21.
sept.
Borgarleikhúsið: Píkusögur, 15., 20.
sept.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Englabörn,
15., 21. sept.
Loftkastalinn: Hedwig, 15. sept. Iro,
22., 23. sept.
Tjarnarbíó: Fimm fermetrar, 16., 20.,
21. sept.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
annars.“ Graduale Nobili er úrvalskór og þar
syngja stelpur sem eru flestar í öðru tónlist-
arnámi. Kórinn var stofnaður í fyrrahaust, en
strax síðasta vor hreppti hann önnur verðlaun í
keppni evrópskra æskukóra í Danmörku, sem
verður að teljast einstakur árangur. Í undir-
búningi er útgáfa geisladisks með söng kórsins,
þar sem meðal annars verða verk sem flutt
voru í keppninni í Danmörku. Jón segir að
stelpurnar í Graduale Nobili séu orðnar mjög
kröfuharðar og vilji takast á við metnaðarfull
tónverk. „Þær eru meira að segja orðnar svo
kröfuharðar að þær vilja ekki bara komast í
einhverja kórakeppni, – þær vilja komast í
kórakeppni þar sem er sól og strönd!“
Jón segir að kórstarf í kirkjunum hafi eflst
um leið og hnignun hafi orðið í kórstarfi grunn-
skólanna. „Mér finnst það mjög jákvætt hvað
barnakórastarf innan kirkjunnar hefur eflst og
í mörgum söfnuðum er þetta sem betur fer tal-
inn sjálfsagður hlutur.“
Listráð stofnað
við kirkjuna
Í haust verður stofnað Listráð Langholts-
kirkju. „Með þessu viljum við fá fólk úr fleiri
listgreinum til samstarfs við kirkjuna. Þetta er
harðsnúið lið, sem ég bind miklar vonir við að
efli listastarfsemi í kirkjunni.“ Í listráðinu eru
Björn Th. Árnason, Einar Már Guðmundsson,
Einar S. Einarsson, Hafliði Arngrímsson,
Katrín Hall, Ólafur Ragnarsson, Ólöf Erla
Bjarnadóttir og Þorlákur Kristinsson. „Það eru
fáar listgreinar sem eiga jafn vel heima í kirkj-
unni og dansinn. Dansinn er stórkostlegt tján-
ingarform til að tjá litúrgíuna.“
Jón Stefánsson er bjartsýnn á starfið í Lang-
holtskirkju í vetur. Í sjö kórum kirkjunnar
starfa um 220 manns og færri komast að en
vilja. Hann leggur mikla áherslu á gildi kór-
starfsins með börnum og það hvað það getur
haft góð áhrif á aðra þætti í uppeldi þeirra.
Fyrst og fremst sé það þó tónlistin og stór-
fengleg áhrif hennar sem hafi sitt eigið gildi
fyrir hvern og einn sem í kórunum starfar.
MENNTAMÁL
mikil gróska ríkt í breska leikhúsinu, og mikl-
um ríkisstyrkjum hafði verið veitt til þess. Sá
grunnur, sem þegar var þaninn til hins ýtr-
asta, hrundi með menningarstefnu thatcher-
ismans, þar sem rekstur leikhúsa var settur
undir sama hatt og hvert annað fyrirtæki.
Leikhúsið átti því í miklum erfiðleikum á þess-
um tíma og var þetta mikið hnignunarskeið,“
segir Vigdís og bætir því við að umræða um
miklar breytingar í viðhorfum til listarinnar,
sem kenndar hafa verið við póstmódernisma,
kraumi einnig undir í verkinu. „Þessar hrær-
ingar eru fyrst og fremst undirliggjandi, og
gefa þau verkinu ákaflega mikla dýpt.“
Móðir og dóttir
Vigdís bendir einnig á að verkið fjalli á ákaf-
lega sterkan hátt um samband móður og dótt-
ur. „Emma er mjög sterk og sérstæð persóna.
Hún er að miklu leyti í hefðbundnu hlutverki
konunnar sem stendur í skugga eiginmanns-
ins, en um leið er hún alls engin undirlægja.
Hún er mjög staðföst eins og móðir hennar, en
hefur um leið jarðtengingu sem Esme skortir.
Emma er jafnframt sú persóna verksins sem
kemst næst því að skilja sjónarmið og kannski
er hún sé eina sem hefur til þess nægilega
visku og þroska. En hún er líka fulltrúi hreins
kærleika og hún gerir sterka kröfu til annarra
út frá þeirri staðfestu sinni.“
Vigdís ítrekar gildi þess að verkið bjóði upp
á svo bitastæð kvenhlutverk sem raun beri
vitni, og telur hún það enn eina viðurkenningu
á David Hare sem höfundi hversu mikla
áherslu hann hefur lagt á það að fjalla um til-
veru kvenna ekki síður en karla.
Hér berst talið að túlkun Kristbjargar
Kjeld á hinu magnaða hlutverki Esmie. „Það
tekur alltaf nokkurn tíma, tilfæringar og sam-
ræmingar að velja leikara fyrir verkin. En ég
verð að segja að þegar því verki var lokið
horfði ég á listann og hreinlega trúði þessu
ekki. Kristbjörg er hreinlega fullkomin í hlut-
verkið og hefur mér fundist merkilegt að
fylgjast með hversu nálægt sjálfri sér hún fer í
túlkun sinni,“ segir Vigdís.
Arnar Jónsson fer með hlutverk þolinmóðs
vonbiðils Esme og segir Vigdís að hrein unun
sé að fylgjast með þeirri nákvæmni sem hann
setur í túlkun hlutverksins. „Með því að kynn-
ast slíku fagfólki sem þau Kristbjörg og Arnar
eru, staðfestist sú trú sem ég hef lengi haft, að
miklir listamenn séu alltaf miklar manneskj-
ur,“ segir Vígdís. Hún tekur jafnframt fram
að allir leikarar verksins séu mjög sterkir.
„Elva Ósk hefur haft vandasamt verkefni und-
ir höndum að túlka hina sérstöku persónu sem
Emma er, og ná jafnvægi milli þess kvenlega
fórnarhlutverks sem hún e.t.v. hefur ratað í,
og þeirrar staðfestu og þess styrks sem engu
að síður streymir frá henni,“ segir Vigdís.
En sjón er sögu ríkari.
heida@mbl.is