Lesbók Morgunblaðsins - 16.02.2002, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 16. FEBRÚAR 2002 15
l i s t a s a f n k ó p a v o g s
gerðarsafn, hamraborg 4 , kópavogi
9 . febrúar–3. mars 2002
opnunartímar:
þriðjudagur–sunnudagur kl . 11–17
leiðsögn:
guðbjörg kristjánsdóttir , forstöðumaður
fimmtudagur, laugardagur
og sunnudagur kl . 15
aðgangur ókeypis
www.carnegieartaward.com
áhersluþætti. Faðirinn hafði lagt áherslu á eldri
meistara sem hann safnaði fyrstu tvo áratugi
síðustu aldar, en sjálfur lagði hann megin-
áherslu á landslagslist 19. og 20. aldar. Hér fóru
feðgarnir eigin leiðir, ekki safnað samkvæmt ut-
anaðkomandi reglum og skikkan, heldur eigin
yfirsýn látin ráða ferðinni. Gerir safnið svo sér-
stætt eins og öll einkasöfn sem eru afsprengi
söfnunarástríðu og blóðrennslis en ekki til-
lærðra kenninga. Hér voru á ferð menn sem öllu
öðru fremur hugnaðist að þjóna ástríðu sinni,
nýrri tíma hliðstæða var súkkulaðikóngurinn
Emil Ludwig í Aachen sem safnaði aðallega nú-
listaverkum, en einnig sósíalrealisma og þá
einkum frá A-Þýskalandi Á síðustu árum hefur
Carmen Thyssen-Bornemizsa, sem mun þriðja
eiginkona barónsins, en þau giftust 1985, sjálf
komið sér upp drjúgu safni og notið þar þekk-
ingar og yfirsýnar eiginmannsins. Jafnframt
hefur hún staðið dyggilega við hlið hans og á
stóran þátt í að uppfylla þá framtíðarsýn bar-
ónsins að koma öllum verkunum í heild sinni á
einn stað og aðgengileg almenningi. Minnugur
þess hvernig fór fyrir verkum föðurins var það
takmarkið, og lengi vel ráðgerði hann að byggja
við Villa Favorita í Lugano og í því skyni var
efnt til alþjóðlegrar samkeppni sem enski arki-
tektinn James Stirling vann. En hugmyndin
fékk ekki nægilegan meðbyr svo að ekki reynd-
ist mögulegt að framkvæma hana, en í millitíð-
inni streymdu að ýmsar uppástungur og tilboð
frá Englandi, Þýskalandi og Spáni. Hið mik-
ilvægasta var þó staðsetningin og er tillaga kom
um framtíðarstað þess í Villa Hermosa-höllinni í
Madrid og að auki í heimalandi eiginkonunnar
var hann fundinn. Höllin getur svo ekki verið
betur staðsett þar sem hún rís gegnt Prado-
safninu og í nágrenni núlistasafns Soffíu drottn-
ingar; Museo Reina Sofia. Gamla Prado-safnið,
eitt óviðjafnanlegasta listasafn í heimi, hefur
þannig fengið góða nágranna enda nefna menn
nú þrenninguna gullna þríhyrninginn í Madrid.
Hinn 20. desember 1988 var undirritaður
samningur við spánska ríkið þess efnis að 775
mikilvægsustu verkin yrðu lánuð til tíu ára og
sýnd í Villa Hermosa, en einnig að hluta í Pedr-
ables-klaustrinu í Barselóna. Og um leið var
komið á laggirnar stofnun sem skyldi leggja lín-
urnar um vöxt og viðgang safnsins sem báðir
aðilar stæðu að. Næstu ár fóru í að aðlaga höll-
ina hinu nýja hlutverki, sem þýddi algjöra upp-
stokkun innra rýmisins og hér var arkitektinn
Rafael Moneo kallaður til leiks ásamt tilsjón-
armanninum Manuel Pita Andrade. Safnið var
svo formlega opnað 8. október 1992 að viðstödd-
um konungshjónunum. Í millitíðinni höfðu farið
fram viðræður þess efnis að spánska ríkið yf-
irtæki safnið, og samningur þess eðlis að safn
Thyssen Bornemizsa skyldi um alla framtíð
tengjast Spáni var undirritaður 3 ágúst 1993.
Hér fóru einhverjir fjármunir á milli, en mik-
ilvægast var að spánska ríkið skuldbatt sig til að
hlú að yfirbragði þess og sérstöðu og hafa það
jafnan aðgengilegt almenningi. Þá lá þegar á
borðinu að festa kaup á tveim byggingum er
liggja að villunni, sem nú hefur verið gengið frá,
eru í endurgerð og ráð gert fyrir að komist í
gangnið haustið 2003.
Landslagsmyndasýningin í Bonn var mikil
lifun og algjör hátíð fyrir hinn fágaða menning-
arlega blæ sem streymdi frá veggjunum. Afar
vel upp sett til skoðunar þannig að hvergi greip
eitt málverk inn í annað og mikil áhersla lögð á
andrúmið í sölunum, sem voru hólfaðir niður
með milliveggjum og þó hvergi þröngt um þau.
Katalógan, sem ég hef sótt þessar heimildir í,
vel hönnuð, stór falleg og skilvirk, en litgrein-
ingu áfátt í hinum dekkri myndum, nær ekki
hinum dýpri svörtu tónum, sem kemur í veg fyr-
ir að mögulegt sé að yfirfæra þær sómasamlega
á síður dagblaðs og myndavalið hér því ekki
hnitmiðað. Mér varð strax starsýnt á málverk
eftir ameríska málara sem ég þekkti ekki, en
féllu þó sem sjálfsagður hlutur inn í hóp evr-
ópska samtíðarmanna eins og Courbert, Corot,
Constable, Daubigny o.fl. Þetta var alveg nýtt
fyrir mig og það var ekki fyrr en seinna er ég las
ritgerðir í katalógunni, að ég uppgötvaði að hinn
glúrni safnari hafði opnað augu landa þeirra
fyrir stærð nokkurra málara til hliðar.
Claude Monet (1840–1926): Hlákuveður í Vétheuil 1881, olía á léreft, 60 x 100 sm.
MYNDLIST
Galleri@hlemmur.is: Libia Pérez de Sil-
es de Castro og Ólafur Árni Ólafsson.
Til 2.3.
Gallerí Skuggi: Guðmundur Tjörvi Guð-
mundsson, Guðbjörg Hlín Guðmunds-
dóttir. Til 24.2.
Gallerí Sævars Karls: Helga Kristrún
Hjálmarsdóttir. Til 21.2.
Gerðarsafn: Carnegie Art Award 2001.
Til 3.3.
Gerðuberg: Þýskar tískuljósmyndir,
1945–1995. Til 17.2.
Hallgrímsk.: Þórður Hall. Til 20.2.
Hús málaranna, Eiðist.: Haukur Dór og
Einar Hákonarson. Til 1.3.
i8, Klapparstíg 33: Helena Hietanen. Til
2.3.
Íslensk grafík, Hafnarhúsinu: Ásrún
Tryggvadóttir. Til 16.2.
Langholtskirkja: Kristján Davíðsson og
Ásgerður Búadóttir. Til 23.4.
Listasafn Akureyrar: Íslensk myndlist
1965–000. Til 24.2.
Ásmundarsalur: Ragna Sigurðardóttir,
Sigríður Ólafsdóttir, Inga Þórey Jó-
hannsdóttir. Til 17.2.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 14–7.
Listasafn Íslands: Úr eigu safnsins –
fjórar sýningar. Til 14.4.
Listasafn Rvíkur – Hafnarhús: Byggt
yfir hugsjónir, Breiðholt. Til 5.5. Bernd
Koberling. Til 3.3.
Kjarvalsstaðir: Innsetning Hannesar
Lárussonar. Til 1.4. Níels Hafstein og
Sólveig Aðalsteinsdóttir. Til 24.2. Úr
Kjarvalssafni. Til 31.5.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Kynleg-
ir kvistir. Til 5.5.
Ljósmyndasafn Rvíkur: Guðmundur
Ingólfsson. Til 24.3.
Norræna húsið: Veflistarkonan Annette
Holdensen. Til 17.2. Verk úr Norræna
vatnslitasafninu. Til 24.3.
Straumur, Hafnarfirði: Bjarki Reyr Ás-
mundsson og Arsineh Houspian – ljós-
myndir. Til 3.3.
Þjóðarbókhl.: Bækur og myndir 35 er-
lendra höfunda. Til 17.2. Björg C. Þor-
láksson. Til 1.3. Gerla. Til 8.3.
Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.-
umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Gerðuberg: Tónþing með Atla Heimi
Sveinssyni. Kl. 13.30.
Langholtskirkja: Listaflétta Langholts-
kirkju. Kl. 17.
Sunnudagur
Hlégarður, Mosbæ: Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Bergþór Pálsson, Óskar Péturs-
son, Sigrún Eðvaldsdóttir og Veislutríó-
ið. Kl. 17.
Laugarneskirkja: Gerður Bolladóttir,
Berglind María Tómasdóttir, og Júl-
íanna Rún Indriðad. Kl. 20.
Sunnudagur
Salurinn: Tónleikaspjall. Þorkell Sigur-
björnssonar. Kammerhópur Salarins. Kl.
16.30.
Hafnarborg: Karlakórinn Þrestir. Kl. 16.
Mánudagur
Listasafn Íslands: Martial Nardeau,
Guðrún S. Birgisdóttir og Snorri Sigfús
Birgisson. Kl. 20.
Hafnarborg: Sjá sunnud. Kl. 20.
Þriðjudagur
Íslenska óperan: Sesselja Kristjánsd.,
Ólafur Kjartan Sigurðarson, Ólafur
Vignir Albertsson. Kl. 12.15.
Miðvikudagur
Norræna húsið: Ármann Helgason, klar-
inett. Kl. 12.30.
Fimmtudagur
Háskólab.: SÍ. Örn Magnússon píanó.
Stj.: Bernharður Wilkinson. Kl. 19.30.
Salurinn: Kristinn Sigmundsson, Gunn-
ar Guðbjörnsson, Jónas Ingimundarson.
Kl. 20.
Föstudagur
Salurinn: Sjá laugardag.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Cyrano, lau. Anna Karen-
ina, sun., fim., fös. Hver er hræddur við
Virginíu Woolf?, sun., fim., fös. Með fulla
vasa af grjóti, sun., fim., fös. Karíus og
Baktus.
Borgarleikhúsið: Boðorðin 9, mið., fim.
Blíðfinnur, sun. Með vífið í lúkunum,
lau., fös. Fyrst er að fæðast, sun. Godot,
lau. Jón Gnarr, fös. Píkusögur, lau., fös.
Gesturinn, lau.
Íslenski dansflokkurinn: Through Nan-
a’s eyes, Lore, sun.
Ísl. óperan: Leikur á borði, lau.
Hafnarfjarðarleikh.: Rauðhetta og úlf-
urinn, lau. frums. Sun., fim.
Möguleikhúsið v. Hlemm: Prumpuhóll-
inn, sun. frums. Þrið. Lóma, sun., þrið.,
fös. Skuggal., alla daga. Völuspá, mán.,
þrið., mið., fim.
Nemendaleikhúsið: Íslands þúsund ár,
lau., þrið., fim.
Leikfélag Akureyrar: Slavar, lau.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U