Lesbók Morgunblaðsins - 16.02.2002, Side 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 16. FEBRÚAR 2002
MENNINGARMIÐSTÖÐIN Gerðu-berg hefur á undanförnum árumstaðið fyrir Sjónþingum og Rit-þingum, þar sem listamenn hafa
verið kynntir á nýstárlegan hátt. Í dag kl.
13.30 er komið að fyrsta Tónþingi Gerðubergs,
en það er haldið í samvinnu við tónlistarhátíð
Tónskáldafélags Íslands, Myrka músíkdaga.
Fyrsti gestur Tónþings í Gerðubergi verður
Atli Heimir Sveinsson tónskáld. Þingstjóri
verður Hildur Helga Sigurðardóttir blaða-
maður, en spyrlar verða þeir Guðni Franzson
tónlistarmaður og Guðmundur Emilsson tón-
listarráðunautur. Tónþinginu er ætlað að veita
innsýn í lífshlaup og feril Atla Heimis, en hann
er löngu þjóðþekktur fyrir fjölbreytta tónlist
sína, bæði í formi stórra hljómsveitarverka og
einleiksverka, ópera, raftónsmíða og hugljúfr-
ar leikhústónlistar. Atli er eitt fjölhæfasta og
afkastamesta tónskáld Íslendinga.
Þrjár lotur með löngufrímínútum
Á Tónþinginu verða flutt brot úr verkum
Atla auk þess sem búast má við fjörugum um-
ræðum. „Í fyrsta lagi verður fjallað um mig,“
segir Atli, „það verður lifandi flutningur, þrjú
stutt verk, og tóndæmi verða einnig tekin af
plötum, og loks verða umræður. Þingið verður
í þremur lotum, með tveimur kaffihléum, og
hver lota er eins og kennslustund að lengd en
kaffið eins og löngufrímínúturnar.“
Atli segir stjórnandann, Hildi Helgu, rögg-
sama, en þó hefur honum ekki tekist að kom-
ast að því að hverju hún ætlar að spyrja hann.
„Hún er með tvo mjög erfiða spyrjendur með
sér, sem gjörþekkja veikleika mína, og þeir
eru vísir til alls, en hún verður að stjórna þess-
um þremur erfiðu herramönnum,“ segir Atli,
og Hildur Helga bætir við: „Við þrjú ætlum
líka að hittast til að plotta og hann fær ekkert
að vita fyrr en á laugardaginn.“ Atli Heimir
segist alltaf hafa talað um músík á skiljanlegu
máli, og því ætti allur almenningur að geta
notið spjallsins. Meðal verkanna sem flutt
verða er lag Atla við ljóð eftir Kára Stefáns-
son. „Kári er mikill ljóðamaður og mjög vel
lesinn í amerískri ljóðlist. Hann á nú ekki
langt að sækja hæfileikana, og ég held að ljóð-
listin sé stór þáttur í hans andlega lífi ásamt
vísindunum.“
Erfitt að tala um tónlist án tóndæma
„Tónlistin sem hljómar á Tónþinginu verður
eins og vörður á leiðinni gegnum feril Atla,“
segir Hildur Helga, og Atli bætir við: „Það er
líka erfitt að tala um músík án þess að hafa
hljómandi dæmi, svo maður viti um hvað er
verið að ræða. Dæmin sem við tökum verða
stutt, en til þess fallin að fólk skilji hvað við er-
um að meina. Án þeirra vitum við ekkert um
hvað er að ræða.“
Tónlistarmenn sem koma fram á Tón-
þinginu eru Áshildur Haraldsdóttir flautuleik-
ari, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleik-
ari, Jónas Ingimundarson píanóleikari, Ólafur
Kjartan Sigurðarson söngvari og Sigrún Eð-
valdsdóttir fiðluleikari, auk Þórs Tulinius leik-
ara og Atla sjálfs. Atli Heimir Sveinsson nam
píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og
lagði stund á tónsmíðar í Köln á árunum 1959–
62. Að námi loknu tók hann til óspilltra mál-
anna víða í íslensku tónlistarlífi: sem kennari,
útvarpsmaður, stjórnandi, skipuleggjandi og
tónskáld. Hann hefur gegnt margvíslegum
trúnaðarstörfum og var m.a. formaður Tón-
skáldafélags Íslands 1972–1983. Atli Heimir
Sveinsson hefur samið tónlist af fjölbreyttu
tagi, fyrir leikhús, útvarp, sjónvarp, óperusvið
og tónleikasali. Hann hefur samið einleiks-
konserta, hljómsveitarverk, óperur, kammer-
músík, einleiksverk og söngtónlist. Árið 1976
hlaut Atli Heimir Sveinsson Tónskáldaverð-
laun Norðurlandaráðs fyrir flautukonsert
sinn. Hann er meðlimur í Konunglegu sænsku
tónlistarakademíunni. Verk hans hafa verið
flutt víða um heim.
Tónþing um Atla Heimi Sveinsson í Gerðubergi
„ERFIÐIR SPYRL-
AR EN RÖGG-
SAMUR
STJÓRNANDI“
Morgunblaðið/Þorkell
Álfrún Guðrúnardóttir, deildarstjóri listadeildar Gerðubergs, Guðni Franzson spyrill, Atli Heimir
Sveinsson tónskáld og Hildur Helga Sigurðardóttir sem stjórnar fyrsta Tónþinginu í Gerðubergi.
KARLAKÓRINN Þrestir fagnar níutíuára afmæli sínu 19. febrúar næstkom-andi. Af því tilefni efnir kórinn til af-mælisdagskrár í tónum, myndum og
orðum í Hafnarborg um helgina. Tvennir tón-
leikar verða haldnir, á morgun kl. 16 og á
mánudag kl. 20, en í dag verður opnuð sýning á
munum og myndum úr sögu Þrasta, meðal
annars fyrstu myndinni sem tekin var af kór-
félögum. Stendur hún fram á mánudag. Auk
Þrasta og eldri Þrasta koma fram á tónleik-
unum einsöngvararnir Þorgeir J. Andrésson og
Ólafur Kjartan Sigurðarson. Píanóleikari verð-
ur Hólmfríður Sigurðardóttir. Ókeypis er inn.
„Við verðum í miklu hátíðarskapi um
helgina, enda tilefni til,“ segir Halldór Hall-
dórsson formaður Þrasta. „Verið er að leggja
síðustu hönd á geislaplötu með söng kórsins,
fyrstu plötuna í 25 ár, og munum við fyrst og
fremst syngja efni af henni á tónleikunum. Sí-
gild karlakóralög, flest íslensk. Og að sjálf-
sögðu syngjum við eingöngu á íslensku.“
Þrestir eru elsti karlakór á Íslandi. Stofn-
aður 19. febrúar 1912 í barnaskólahúsinu við
Suðurgötu í Hafnarfirði að tillögu Friðriks
Bjarnasonar tónskálds og kennara. Æfingar
hófust strax og fyrsti samsöngur Þrasta var
haldinn á skírdag, 4. apríl 1912, í Góðtempl-
arahúsinu í Hafnarfirði.
„Eins og gengur og gerist í starfi og leik fé-
lagasamtaka á borð við Þresti, koma fyrir hæð-
ir og lægðir, en þó er engum blöðum um það að
fletta að félagsstarf Þrasta telst óslitið frá
stofndegi,“ segir Halldór. „Margar góðar hend-
ur hafa komið að því í tímans rás, söngmenn og
kórstjórar, sem of langt væri að telja upp hér,
en þó ber að geta að Friðrik stjórnaði kórnum
allt til 1924, en þá tók Sigurður Þórðarson við.
Hann stofnaði svo Karlakór Reykjavíkur, en
hann fagnaði sjötíu og fimm ára afmæli sínu á
síðasta ári.“
Kórinn er í framför
Halldór segir kórstarfið standa í miklum
blóma um þessar mundir. „Kórinn er í framför
og er fær um að takast á hendur metnaðarfull
verkefni. Það er ekki síst frábærum stjórnanda
okkar, Jóni Kristni Cortez, að þakka. Það er
líka að fjölga jafnt og þétt í kórnum, við erum á
bilinu sextíu til sjötíu á æfingum, og getum
ekki annað en litið björtum augum til fram-
tíðar.“
Þrestir hyggjast fagna afmælinu með ýms-
um hætti á árinu. Í lok apríl verða vortónleikar
í Hafnarfirði en að þeim loknum tekur kórinn
þátt í Sæluviku í Skagafirði í byrjun maí. „Það
er tími til kominn að kenna Skagfirðingum að
syngja,“ segir Halldór og hlær.
Dagana 14.–16. júní koma nokkrir karlakór-
ar frá Norðurlöndunum í heimsókn til Hafnar-
fjarðar, þeirra á meðal Orphei Drängar frá Sví-
þjóð, einn allra fremsti karlakór heims, að áliti
Halldórs. Mun hann halda tvenna tónleika í
Hallgrímskirkju. „Kórarnir efna eflaust einnig
saman til tónlistarveislu í Hafnarfirði einhvern
þessara daga.“
Í ágúst er fyrirhuguð söngferð til Prag og í
september er ráðgert að karlakór frá Péturs-
borg sæki Þresti heim.
Fengu flygil að gjöf
„Það má vera að starf Karlakórsins Þrasta
hafi ekki alltaf verið áberandi á lands- og
heimsvísu, en þó hefur alla tíð ríkt þar heil-
brigður metnaður og félagsandi. Kórnum hefur
með söng sínum í níu áratugi tekist að létta
lund og það hefur komið hvað eftir annað í ljós
með velvild og áhuga velunnara kórsins. Heilu
fjölskyldur söngmanna hafa svo komið að veg-
ferð Þrasta og sýnt kórnum þakklæti sitt með
ýmsum hætti,“ segir Halldór.
Í desember síðastliðnum færði Hulda Þór-
isdóttir, ekkja Stefáns Jónssonar fyrrverandi
forstjóra og forseta bæjarstjórnar í Hafnar-
firði, sem lést í október í fyrra, kórnum nýjan
flygil að gjöf í minningu eiginmanns síns. „Þar
með er skotið styrkum stoðum undir framtíð-
arstarf kórsins.“
Stefán Jónsson söng með Þröstum um
margra áratuga skeið og var formaður kórsins
í tíu ár. Á meðal núverandi söngmanna Þrasta
eru sonur og sonarsonur Stefáns.
Morgunblaðið/Þorkell
Félagar í Karlakórnum
Þröstum á æfingu fyrir af-
mælishátíðina í Hafnarborg.HEFUR TEKIST
AÐ LÉTTA LUND
Karlakórinn Þrestir fagnar níutíu ára afmæli sínu