Heimilistíminn - 13.06.1974, Page 6
þær „bullsögur“, af því að hann býr þær til
um leið og hann segir þær.
Mér þykir þetta gaman. Og ég vil alltaf
heyra meira og meira.
Stundum kalla ég á afa og segi: „Afi, viltu
segja mér eina sögu til viðbótar?"
Þetta þykir afa skrýtilega orðað.
En hann segir mér alltaf nýjar og nýjar „bull-
sögur“ til viðbótar.
Svona er ein dýrasagan hans afa:
N ashy rningurinn.
Einu sinni var gíraffinn að éta lauf af trjám
úti 1 skógi.
Þá sá hann nashyrning.
Hann var búinn að festa hornið á nefinu sínu
í stóru tré, og gat ómögulega losað sig.
Gíraffinn er ekki sterkur.
En hann er með langan háls og langa fætur.
Gíraffinn hljóp á harða spretti til að sækja
fílinn.
Fíllinn var að þamba vatn með zebradýr-
unum, úr stóru tjörninni í skóginum.
Fíllinn er voða sterkur. Gíraffinn bað hann
því að koma undir eins til að hjálpa nashym-
ingnum.
Fíllinn ætlaði varla að nenna. Hann var
búinn að drekka svo mikið vatn.
Samt kom hann og var fljótur á fæti.
Nashyrningurinn var farinn að gráta.
Þá kom fíllinn, vafði rananum utan um stóra
tréð og kippti því upp með rótum.
Nashyrningurinn tókst á háa loft, og nefið
hans losnaði.
Hann var rétt að segja dottinn ofan á ósköp
kjánalegt dýr, sem heitir hýena.
Hýenan hafði verið að hlæja að nashyrningn-
um. En nú varð hún dauðhrædd og flýtti sér
inn í skóginn.
Nashyrningurinn varð ákaflegafeginn, þegar
hann losnaði. Hann kyssti bæði gíraffann og
fílinn - og dansaði svo fyrir þá af mikilli list.
Önnur saga afa
*
Ljónið.
Ljónið er fallegt.
Það er vinur lítillar stúlku, sem kölluð er
Úlla.
Einu sinni lá það í háu grasi og var að gefa
hvolpunum sínum að sjúga.
Þá kom hún Úlla litla og starði með undrun
á Ijónamömmu.
Úlla vissi það ekki, að ljónamamma hefur
marga spena á kviðnum. Og þeir eru fullir af
mjólk.
„Komdu nú sæl, Úlla mín“, sagði ljóna-
mamma. „Þú mátt drekka úr einum spenanum
mínum, því að ég á nóga mjólk“. '
Úlla var ekkert hrædd. Hún fékk sér góðan
sopa.
Svo fór hún að strjúka ljónshvolpana. Þeir
voru eins og litlir kettir og fóru undir eins að
mala.
Loks sofnuðu þeir allir í einu. Og Úlla fór líka
að sofa við mjúkan belginn á ljónamömmu.
Allt í einu var Úlla komin heim til mömmu
sinnar.
Hún glaðvaknaði, með gula ljónið sitt í
fanginu.
Það er úr f laueli, og hefur enga spena og enga
mjólk.
6