Morgunblaðið - 15.10.2005, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
„ÞEGAR ég kom hingað inn segi ég
við sjálfan mig að nú skuli ég hafa
það gott það sem eftir er og skemmta
mér. Það er eitthvað sem mætir mér
hérna inni og ég fer að syngja en ég
er frekar léttlyndur og hef gaman af
því að syngja,“ segir Hrafn.
„Eftir að ég var búinn að vera
hérna í stuttan tíma gerði ég smátil-
raun á laugardegi að fá fólk til að
koma saman í hóp og syngja. Það féll
í góðan jarðveg og fjölgaði í hópnum
á hverjum laugardegi. Venjulega
þegar maður stingur upp á svona þá
mætir manni neikvæðni en það var
ekki hér. Þessi samsöngur springur
út og er orðinn mjög vinsæll. Síðasta
laugardag mættu um hundrað manns
í þetta. Aðstandendur koma mikið í
heimsókn á laugardögum og þeir
taka þátt með okkur. Einnig hefur
þessi samsöngur vakið athygli fyrir
utan Sunnuhlíð því það kemur nokk-
uð af eldra fólki úr nágrenninu til að
syngja með okkur.“
Hrafn var söngstjóri fyrsta árið og
betlaði þá gamla harmónikuleikara
og píanista til að leika undir en svo
fann hann Hannes Baldursson org-
anista sem kemur nú hvern laug-
ardag til að spila undir. „Hannes er
snillingur og mesta happ sem við höf-
um fengið.
Ég fór að gera söngbækur fyrir
samsönginn og safna dægurlagatext-
um út frá öllu þessu,“ segir Hrafn og
sýnir blaðamanni söngbók sem hann
hefur sett saman, þetta eru íslensk
dægurlög sem gaman er að syngja og
flestir kunna.
Tíminn er versti óvinurinn
Hrafn er fæddur árið 1933 og er
með Parkinsonsveikina. Hann var
farandverkamaður lengi vel en lærði
svo til prentara og vann við það í
mörg ár. Síðustu tuttugu árin á
vinnumarkaðinum starfaði hann hjá
Félagsmálastofnun Kópavogs. Hann
er giftur Ester Tryggvadóttur og
eiga þau þrjár dætur.
Aðspurður hvort hann hafi alltaf
haft mikinn áhuga á söng segir hann:
„Ég held að ég hafi ekki opnað kjaft-
inn fyrr en um þrítugt. En það hefur
verið töluvert af tónlist í kringum
mig og ég hef alltaf haft gaman af
henni en ég er enginn tónlist-
armaður.“ Eftir að Hrafn hefur sagt
blaðamanni að hann sé enginn tón-
listarmaður segir hann; „Þú verður
að heyra í mér röddina,“ grípur eina
söngbókina og hefur upp raust sína.
Hann syngur fyrir mig Kvöldblíðuna
lognværu með ljúfri röddu og aug-
ljóslega er mikill söngmaður þar á
ferð.
Menningararfleifð í höfðinu
Hrafn segir að versti óvinur fólks,
sem sé inni á svona hjúkrunarheim-
ilum, sé tíminn. „Það er oft erfitt að
drepa tímann og þessi samsöngur
hjálpar til við það. Þó að margir
hérna inni séu orðnir gleymnir og
muni jafnvel ekki nöfnin á börnunum
sínum, þá muna þeir söngtexta. Fólk
hefur svo gaman af því að syngja, það
léttir lund. Það sem ég uppgötvaði
með þessum samsöng var að það geta
allir sungið þó þeir kannski þræti fyr-
ir það. Þó að fólk ætli sér ekki að
syngja þá getur það ekki annað en
sungið með þegar aðrir byrja. Þessi
menningararfleifð er inni í höfðinu á
fólki, það kunna flestir textana þrátt
fyrir að hafa ekki sungið þá í ára-
tugi.“
Söngstundin er klukkan hálffjögur
alla laugardaga og stendur yfir í
klukkutíma, hálftími fer í kennslu og
svo er sungið saman seinni hálftím-
ann. „Í staðinn fyrir að aðstandend-
urnir komi í þessa hefðbundnu heim-
sókn á laugardögum og spjalli um
daginn og veginn geta þeir núna farið
að gera eitthvað með íbúunum, átt
þessa söngstund saman sem lífgar
upp á heimsóknina“ segir Hrafn hinn
söngglaði í lokinn.
SÖNGUR | Hrafn Sæmundsson léttir lund með söngvastund
Samsöngur í Sunnuhlíð
Hrafn Sæmundsson er
mikill hugsjónamaður.
Hann hefur verið íbúi í
Sunnuhlíð, sem er
hjúkrunarheimili aldr-
aðra í Kópavogi, síðustu
tvö ár og á heiðurinn af
því að koma þar á sam-
söng meðal íbúa og að-
standenda þeirra.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
Morgunblaðið/Ómar
Þær syngja dátt saman í Sunnuhlíð. Í forgrunni eru Aðalheiður Hann-
esdóttir og dóttir hennar Sjöfn Stefánsdóttir en í bakgrunni sést aðeins í
Sigurlaugu Eggertsdóttur og Gyðu Waage.
Morgunblaðið/Ómar
Hannes Baldursson organisti er mikill snillingur, að sögn Hrafns. Hannes
mætir á hverjum laugardegi og spilar undir og stjórnar söngnum.
Morgunblaðið/Ómar
Hrafn Sæmundsson er ákveðinn í að hafa það gott og skemmta sér það sem
eftir er. Hann var forsprakkinn í því að koma á samsöng í Sunnuhlíð.
ÁSLAUG Björnsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri Sunnuhlíðar, segir að
viðtökurnar við samsöngnum hafi
strax verið góðar. „Það er mikils
virði fyrir gamalt fólk að geta gert
eitthvað með aðstandendunum,
það getur kannski ekki spjallað
mikið en nærveran er þeim mikils
virði,“ segir Áslaug. „Það er mjög
gott að aðstandendurnir skuli
finna sig í þessu líka. Það sem end-
ist yfirleitt lengst hjá eldra fólki er
það að syngja og fólk man heilu
kvæðin þó að það muni annars lít-
ið. Fólk á þessum aldri söng meira
á yngri árum en er gert í dag og
lærði meira af kvæðum.“
Áslaug segir allt svona gera lífið
skemmtilegra og stytti stundirnar.
„Samverustundir og að vera þátt-
takandi í einhverju gefur lífinu
alltaf gildi. Svo koma sjúkravinir á
laugardögum og hjálpa Hrafni að
halda utan um þetta. Sjúkravinir
eru sjálfboðaliðar frá Rauða kross-
inum sem koma reglulega hingað
og halda uppi starfsemi. Þeir lesa
fyrir fólkið og syngja með því.“ Ás-
laug segir að Hrafn hafi verið mikil
driffjöður í félagslífinu í Sunnuhlíð.
„Vistmenn eru vanalega ekki
svona kraftmiklir að koma hug-
myndum sínum í framkvæmd eins
og Hrafn, enda fólk oft orðið mjög
lasburða þegar það kemur hingað
inn,“ segir Áslaug og bætir við að
starfsmenn Sunnuhlíðar, sjúkra-
vinir og Hannes Baldursson hafi
stutt Hrafn mikið í því að halda
þessum fjöldasöng uppi og að þau
eigi allar bestu þakkir skildar fyr-
ir.
„ÉG HÓF að spila hérna undir og
stjórna söngstundinni fyrir um
ári,“ segir Hannes Baldursson org-
anisti, kórstjóri Lindasóknar og
söngstjóri á Sunnuhlíð. „Aðdrag-
andi þess var sá að Hrafn kom að
tali við mig og spurði hvort ég væri
fáanlegur til að koma nokkur
skipti og efla söng á staðnum. Það
var auðsótt því ég hef starfað tals-
vert með eldri borgurum gegnum
tíðina og haft gaman af.“
Hannes segir markmið starfsins
vera að koma til móts við sam-
félagslega þörf íbúa Sunnuhlíðar
með söng og léttu ívafi. „Söng-
skráin er fjölbreytt og víða komið
við, þetta er nýtt efni sem eldra
auk þekktra sönglaga.“ Að sögn
Hannesar er það mat manna að
söngur og tónlistariðkun hafi góð
áhrif á líðan fólks sem býr við
ýmsa öldrunarsjúkdóma. „Það er
mikilvægt að stuðla að því að íbúar
hjúkrunarheimila séu fullgildir í
samfélaginu og gleymist ekki.
Þessi hópur fólks er í þeirri stöðu
að hafa oft lítið fjármagn og hefur
því e.t.v færri tækifæri til að njóta
félagslífs og tómstunda við hæfi.“
ingveldur@mbl.is
VIAGRA getur leitt til blindu,
að því er m.a. kemur fram á vef
Aftenposten. Í Bandaríkjunum
er talið að 38 manns hafi misst
sjónina eftir að hafa notað
Viagra.
Norska lyfjaeftirlitið hefur
nú varað lækna við notkun
Viagra, Vialis og Levitra sem
eru svipuð lyf og sett ákveðna
fyrirvara við notkun þeirra.
Lengi hefur verið vitað að lyfin
geti leitt til skammvirkra sjón-
truflana en nú hefur komið í
ljós að þær geta varað lengur.
Viagra
getur leitt
til blindu
HEILSA
ÁSTRALSKT biblíufélag hefur ákveðið að
breiða Guðs orð út með sms. „Sá tími er
löngu liðinn að Biblían sé bara til í fínu
svörtu bandi með krossi,“ segir talsmaður
Bible Society í Ástralíu, Michael Chant í
The Register, en greint er frá þessu á
sænska vefnum N24.se sem er haldið úti í
samstarfi Svenska Dagbladet og Aft-
onbladet.
Biblíutilvitnanir eru umorðaðar þannig
að þær fari betur í sms-sendingum. Eitt
dæmi af vefsíðu félagsins er “4 God so luvd
da world og minnir það kannski frekar á
hip-hop texta en tilvitnun í Nýja testa-
mentið. Ætlunin er að fólk nái í biblíuna á
vef félagsins og breiði síðan út Guðs orð
með 150 orða löngum textaskilaboðum.
Guðs orð með sms
TÆKNI
Nánari upplýsingar eru á www.biblesociety.com.au.
Morgunblaðið/Þorkell
Morgunblaðið/Kristinn
Koma til móts við félagsþörfina
Gefur lífinu gildi
Lækjargata 8
Suðurlandsbraut 32
WWW.NOWFOODS.COM
Góð heilsa gulli betri