Morgunblaðið - 17.10.2005, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 F 23
FYRIR helgi höfðu tvö tilboð bor-
ist í gömlu kirkjuna á Eskifirði, að
sögn Gísla M. Auðbergssonar, fast-
eignasala á Eskifirði. Þrír til við-
bótar ætluðu að skoða málið nánar
með hugsanleg tilboð í huga og var
frestur til að leggja inn tilboð
framlengdur þar til í dag, mánu-
dag.
Fyrsta fríkirkjan á Íslandi var
reist á Eskifirði 1884 og þjóðkirkja
var reist þar 1900. Ný kirkja, sem
þjónar einnig sem menningar-
miðstöð, var vígð á Eskifirði árið
2000 og í kjölfarið var gamla kirkj-
an afhelguð.
Hilmar Sigurjónsson, formaður
sóknarnefndar á Eskifirði, segir að
kirkjan hafi staðið ónotuð í fimm
ár. Þegar tekin hafi verið ákvörðun
um að byggja nýja kirkju hafi legið
fyrir að ekki væri ástæða til að
halda úti tveimur kirkjum og gamla
kirkjan myndi þar af leiðandi ekki
þjóna sókninni lengur. Sókn-
arnefndin hafi ekki fundið henni
nýtt hlutverk og gæti heldur ekki
staðið í því. Auk þess væri ekki
vilji innan bæjarins að nýta húsið
enda þyrfti að gera miklar lagfær-
ingar á því.
Kirkjan er friðuð og áskilur
sóknarnefnd sér rétt til þess að
hafa eitthvað um það að segja
hvernig eignin verður notuð í fram-
tíðinni. Fyrir um tveimur árum fór
Húsafriðunarnefnd fram á að sveit-
arfélagið tryggði gömlu kirkjunni
veglegt hlutverk til framtíðar.
Sóknarnefnd hafði þá sótt um leyfi
til að láta rífa hana vegna þess að
hún væri ónýt og umhverfisnefnd
sveitarfélagsins hafði bent á tak-
markaða notkunarmöguleika og
erfiða aðkomu að húsinu.
Magnús Skúlason, forstöðumaður
Húsafriðunarnefndar, segir að
meðan húsið sé friðað þurfi að hafa
samráð við hana varðandi lagfær-
ingar en hins vegar komi til greina
að aflétta friðuninni. Kirkjan sé
byggð með sams konar norskum
stíl og kirkjan í Tálknafirði og sé
ekki síst merkileg fyrir þær sakir.
Víða um heim hafa kirkjur verið af-
helgaðar og húsnæðið notað í ýmsa
aðra starfsemi eins og til dæmis
veitingastarfsemi. Fyrir þó nokkru
var kirkja í Grindavík afhelguð og
henni breytt í leikskóla og fyrir
nokkrum árum var kirkju í Stöðv-
arfirði breytt í gistiheimili.
Tvö tilboð komin í
Eskifjarðarkirkju
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Gamla Eskifjarðarkirkjan fær nýtt hlutverk.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
VIÐ SYÐRI REYKI Til sölu glæsileg og
frábærlega hönnuð hús við Syðri Reyki.
Húsin, sem eru á steyptum sökkli og að
hluta til steypt, verða afhend fullbúin án
gólfefna. Mjög vönduð og góð smíði. Sjá
nánari upplýsingar og myndir á
www.gardatorg.is
Nýbygging
FLESJAKÓR 20 - KÓP. Glæsilegt
197,4 fm (26,2 fm bílskúr) parhús á
tveimur hæðum á frábærum stað í nýja
Kórahverfinu í Kópavogi. Húsið er í
byggingu og afhendist fullbúið að utan og
rúmlega fokhelt í haust. Verð 31 millj.
EINIVELLIR 7 Íbúðir í glæsilegu 5 hæða
35 íbúða lyftuhúsi. 2ja, 3ja og 4ra herb.
íbúðir. 12 stæði í bílakjallara. Mjög góður
frágangur á húsi og íbúðum. Íbúðirnar
skilast fullbúnar án gólfefna á stofu og
herbergjum. Hús, sameign og lóð full-
frágengin. Vandaðar innréttingar og tæki.
Íbúðir á jarðhæð eru með sérverönd og
íbúðir á hæðum með stórum svölum,
frábært útsýni. Skil í maí 2006.
DREKAKÓR - KÓPAVOGI Glæsileg
220 fm parhús með tvöföldum bílskúr á
frábærum stað í nýjasta hverfi Kópavogs.
4-5 svefnherbergi. Skilast fullbúin að utan
og fokheld að innan í desember. Verð 33
millj.
Atvinnuhúsnæði
SMIÐJUVEGUR - KÓPAVOGI 250 fm
atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð. Húsnæðið
skiptist í vinnusal, skrifstofu, eldhús með
innréttingu, snyrtingu með sturtu. Verð 26
millj.
LAUGAVEGUR VIÐ HLEMM Mjög
gott 377 fm atvinnuhúsnæði 1. hæð. Góð
innkeyrsluhurð. Góð fjárfesting og miklir
möguleikar hér. Verð 39 millj.
GEYMSLUHÚSNÆÐI - NÝTT 26,3 fm
sérhannað geymsluhúsnæði. Á svæðinu
eru 96 samskonar geymslur. Verð 2,6 millj.
(m.vsk)
FÍFUMÝRI - GBÆ Mjög fallegt 216 fm
tvílyft einbýli á frábærum stað í Mýrunum í
Garðabæ. Vel um gengið og vel viðhaldið
hús. Falleg lóð, stór suðurverönd. Stutt í
skóla og alla þjónustu. Verð 45 millj.
SUNNUFLÖT VIÐ LÆKINN Nýkomið í
sölu samtals 264 fm einbýli á einni hæð
við lækinn og Heiðmörkina. 5 svefn-
herbergi, stórar stofur, nýtt eldhús. 1590
fm endalóð. Frábærlega staðsett hús.
Óskað er eftir tilboði í eignina.
GRASARIMI - GRAFARV. Mjög fallegt
147 fm tvílyft einbýli á frábærum stað í
Grafarvogi. 4 svefnherbergi. Glæsilegur
garður og suðurverönd með skjól-
girðingum. Eign í toppstandi. Verð 39.8
millj.
HOLTSBÚÐ - GBÆ - 2 ÍBÚÐIR
Nýkomið í einkasölu mjög fallegt og mikið
endurnýjað samtals 272 fm einbýlishús
með tveimur íbúðum. Á efri hæð er 152,4
fm og 45,4 fm bílskúr og íbúð á neðri hæð
með sérinngangi 74 fm. Falleg og góð
eign á frábærum stað. Verð 59 millj.
VESTURVANGUR - TVÆR ÍBÚÐIR
Glæsilega hannað 311 fm einbýli á
frábærum stað í Norðurbænum í
Hafnarfirði. Efri hæð er 152,7 fm auk stofu
á neðri hæð 36 fm og íbúð á neðri hæð 60
fm og bílskúr 62 fm. Falleg hús á
frábærum stað. Verð 56 millj.
ASPARHOLT 10 - ÁLFTANESI
Glæsilegt 180 fm raðhús (með bílskúr) á
besta stað á Álftanesinu. Húsið er fullbúið
með fyrsta flokks gólfefnum og
glæsilegum innréttingum og tækjum,
þ.m.t. uppþvottavél og tvöföldum
amerískum ísskáp. Örstutt í skóla og
ýmsa aðra þjónustu. Verð 37,9 millj.
4ra herb.
LÆKJARGATA HFJ. Mjög björt og
falleg 104,7 fm 4ra herb. íbúð á 3. hæð
ásamt sérbílastæði í bílgeymslu. Falleg
eign á góðum stað. Verð 23 millj.
HLYNSALIR - KÓP. Nýleg, glæsileg
4ra herb. íbúð m/bílageymslu á frábærum
útsýnisstað. Mjög vel skipulögð og björt
íbúð. Stutt í skóla, sund og golf. Verð
27,5 millj.
BORGARÁS - GBÆ Mjög góð 104,5 fm
efri sérhæð í eldri hluta Ásahverfis. 4
svefnherb. Nýlega mikið lagfærð íbúð á
frábærum útsýnisstað. Húsið einnig
nokkuð lagfært.
HRÍSRIMI - GRAFARV. Glæsileg 94,5
fm íbúð á 3. hæð (efstu) auk bílageymslu.
Mjög skemmtilega hönnuð og vönduð
íbúð með mikilli lofthæð. Toppeign.
Verð 21,4 millj.
HRAUNBÆR Mjög björt og falleg 83,8
fm íbúð á 2. hæð. Suðursvalir, geymsla,
sameiginleg hjóla- og dekkjageymsla og
gott þvottahús. Verð 17,5 millj.
AUSTURSTRÖND - SELTJN. Glæsileg
62.5 fm íbúð á 6. hæð (frábært útsýni) auk
stæðis í bílageymslu á þessum vinsæla og
frábæra stað. Verð 15,9 millj.
MIKLABRAUT - RVK. Mjög góð um 70
fm íbúð á jarðahæð ofarlega við
Miklubraut. Parket á gólfum, stórt
svefnherbergi og góð stofa. Sameiginl.
þvottahús á hæð. Verð 12,3 millj.
Sumarbústaðir
HVAMMUR - SKORRADAL Nú fer
hver að verða síðastur - örfáar lóðir eftir.
Þeir sem vilja það besta verða að skoða
þetta. Sjá myndir á: www.gardatorg.is
Hringdu strax og við sendum þér
skipulagsgögn. Við svörum alltaf símanum
(545-0800).
VIÐ SELJUM FASTEIGNIR
Þóroddur S. Skaptason löggiltur fasteignasali
Þórhallur Guðjónsson M.B.A., sölum., gsm 896 8232
Sigurður Tyrfingsson húsameistari, sölum., gsm 898 3708
Denise Lucil Rix ritari o.fl.