Fréttablaðið - 20.03.2003, Side 10

Fréttablaðið - 20.03.2003, Side 10
10 20. mars 2003 FIMMTUDAGUR STRÍÐ „Strákurinn er svekktur en sjálfur hef ég sjaldan verið fegnari í lífinu,“ segir Torfi Geirmundsson hárskeri, sem varpar nú öndinni léttar eftir að hann frétti að átján ára sonur hans verði ekki í breska herliðinu sem fyrst ræðst til atlögu í stríðinu í Írak. Sonur Torfa, Bash- ir Vincent Ali Geirmundsson, er bú- settur í Englandi ásamt móður sinni og er atvinnuhermaður í konung- legu bresku fallhlífahersveitinni. Það er einmitt sú sveit sem ráðgert er að verði fyrst á vettvang ef og þegar til stríðs kemur í Írak. „Það sem varð stráknum til bjargar var lagabreyting í Bret- landi sem Tony Blair stóð að en þar breytti hann aldurstakmarki her- manna sem sendir verða til Írak. Nú verða þeir að vera nítján ára í stað átján áður, en sonur minn er einmitt átján. Sem betur fer,“ segir Torfi sem ræddi við son sinn í síma í fyrradag þegar ljóst var að ekkert yrði úr stríðsþátttöku hans í þetta sinn. „Hann verður þá að bíða í eitt ár en vonandi kemur ekki til átaka þarna,“ segir Torfi. ■ STEYPT AF STÓLI Ange Feliz Patasse, forseti Mið-Afríkulýð- veldisins, var í Nígeríu á leiðtogafundi þeg- ar Francois Bozize og menn hans hrifsuðu til sín völdin í landinu með herafli. . Steypt af stóli: Valdaránið fordæmt ADDIS ABABA, AP Afríkusambandið hefur fordæmt valdarán Francois Bozize hershöfðingja í Mið-Afr- íkulýðveldinu. Nefnd á vegum sambandsins mun fara yfir stöð- una á næstu dögum og skera úr um það til hvaða aðgerða verði gripið. Uppreisnarmenn undir forystu Bozize yfirtóku höfuðborg lands- ins, Bangui, um helgina og felldu í kjölfarið stjórnarskrá landsins úr gildi. Í ávarpi í ríkisútvarpinu sagði hershöfðinginn ástæðu valdaráns- ins vera þá óstjórn sem ríkt hafi í landinu á undanförnum árum en Bozize þurfti að láta í minni pok- ann fyrir núverandi forseta, Ange Feliz Patasse, í kosningum árið 1993. Hann gerði misheppnaða til- raun til valdaráns árið 2001 og flúði í framhaldi af því til ná- grannalandsins Chad. Þaðan var hann svo sendur til Frakklands, þar sem honum var boðið pólitískt hæli. ■ Faðir varpar öndinni léttar: Sonurinn sleppur í fyrstu atlögu ■ Bandaríkin ■ Lögreglufréttir BASHIR VINCENT ALI - GEIRMUNDSSON Sonur Torfa Geirmundssonar of ungur til að fara í stríðið. VEÐUROFSI Snjóbylur hefur valdið öngþveiti í Wyoming og Colorado. Loka hefur þurft ýms- um opinberum stofnunum, flug- völlum og hraðbrautum sökum snjóþyngsla. Varað hefur verið við snjóflóðahættu í fjallahéruð- um í Colorado. VEGLEG VERÐLAUN Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa heitið sem svarar um 24 milljónum ís- lenskra króna auk landvistar- leyfis í laun fyrir upp- lýsingar sem leitt gætu til björgunar þriggja banda- rískra verktaka sem rænt var af kól- umbískum uppreisnarmönnum í síðasta mánuði. Dreift hefur verið aug- lýsingu á götum Kólombíu með mynd af glæsilegri risaþotu og nútímalegri stórborg við tær- blátt haf. MÁLSÓKN VEGNA GASLEKA Al- ríkisdómari í Bandaríkjunum hefur vísað frá máli á hendur efnaverksmiðju vegna gasleka sem varð yfir 14.000 manns að bana í Bhopal á Indlandi árið 1984. Dómarinn hafnaði skaða- bótakröfu íbúa í nágrenni verk- smiðjunnar á þeim forsendum að of langt væri um liðið og fyr- irtækið hefði þegar greitt nægar bætur. HAFRANNSÓKN Mikil óvissa ríkir um ástand loðnustofnsins þar sem ekki tókst að mæla veiðistofninn í leiðangri Hafrannsóknastofnunar sem lauk fyrir nokkrum dögum. „Það er alltaf ástæða til að taka allt svona alvarlega,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræð- ingur á Hafrannsóknastofnun, „en það er nú svo margt í heimi nátt- úrunnar með þeim hætti um þess- ar mundir að ég er alls ekki sann- færður um að ástandið sé svona slæmt þó við höfum ekki fundið neitt að gagni núna og ekkert sem gæti staðið undir heilli vertíð.“ Hjálmar bendir á að það sé óvenju hlýtt á öllu hafsvæðinu. Loðnan hafi því hugsanlega leitað á kaldari svæði og þessi leiðangur gefi ekki raunsæja mynd af ástandinu. „Ég hef aldrei séð svona áður á öllum mínum ferli, sem er orðinn nokkuð langur, en hitastigið við yfirborð sjávar er um 4 gráður þar sem það er venjulega einhvers staðar í kring- um eina gráðu.“ Hjálmar segir að Hafró hafi fyrst og fremst verið að leita að árganginum frá 2001 en seiða- fjöldi hans var sá fjórði stærsti frá því mælingar hófust 1970. „Hann var ágætlega á sig kominn og þó það sé ekki alltaf samband milli seiðafjölda og stærðar ár- gangsins seinna þá gaf þetta vís- bendingu um sterkan árgang.“ Loðna sem hafði áður fundist við vestanvert Norðurland virðist vera horfin núna en Hjálmar seg- ist ekki hafa orðið neitt sérstak- lega hissa á því. „Hún hefur sjálf- sagt haldið sig þarna fram á haust á meðan eitthvað var að éta en hefur svo líklega sest að út af Vestfjörðum í meiri kulda til að spara orku þannig að hún yrði sprækari með vorinu. Við sáum þó ekki sporð út af Vestfjörðum og það var ekki fyrr en við vorum komnir vestur yfir í áttina að Grænlandi sem við fundum eitt- hvað af þessari loðnu. Það var að vísu ekki mikið og leitinni var hætt þar sem leiðindaveður og ís- hröngl kom í veg fyrir að við kæmumst lengra.“ Hjálmar segir að fyrir sína parta sé ekki hægt að tvístrika undir þennan reikning og útilokar ekki að loðnuna sé einhvers staðar að finna. „Hitastigið hefur mikið að segja en þó vonandi ekki á þann veg að loðnan hafi gefið upp öndina úti á hafi. Mér finnst það ótrúlegt. En á meðan það kemur ekki annað í ljós verðum við að fara að öllu með gát og reyna að hugsa upp einhverja klæki til þess að komast að þessu og ganga úr skugga um hvað hefur gerst.“ thorarinn@frettabladid.is HJÁLMAR VILHJÁLMSSON „Við verðum að athuga þetta betur og það þarf að skoða nánar þá tilgátu að hitabreyting- arnar hafi haft mikil áhrif á dreifingu loðnunnar.“ Ekki tókst að mæla veiðistofn loðnu í nýloknum rannsóknar- leiðangri Hafrannsóknastofnunar. Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur segir að það verði að taka þetta alvarlega. Loðnan leitar á kaldari slóðir LYFJARÆNINGINN ÓFUNDINN Maðurinn sem rændi talsverðu af sterkum lyfjum í verslun Lyfju í Lágmúla á sunnudagsmorgun er enn ófundinn. Lögregla segir upptökur úr eftirlitsmyndavélum sýna hver árásarmaðurinn er. Maðurinn, sem mun stríða við fíkniefnavanda, studdist við hafnaboltakylfu í Lyfjuráninu. LJÓS Á GLAUMBARSMÁL Lögregla segir ljóst af framburði vitna að til stympinga hafi komið um síðustu helgi milli manns sem fannst meðvitundarlaus við Glaumbar og annars óþekkts manns, sem nú er leitað. Fórnar- lambið var flutt á sjúkrahús og hefur braggast vel síðan. Svonaerum við MEÐALÆVILENGD KARLA OG KVENNA Í NOKKRUM RÍKJUM Karlar Konur Japan 77,5 84,7 Frakkland 75,2 83 Spánn 75,4 82,3 Ísland 78,2 82,2 Noregur 75,7 85,4 Danmörk 74,2 78,5 Heimild: Hagstofa Íslands Lífslíkur íslenskra karla hafa batnað á síðustu áratugum og í dag verða þeir karla elstir í heiminum. Íslenskar konur lifa hins vegar skemur en konur í átta öðrum ríkjum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FJÓRFALDUR UM HELGINA Enginn var með allar tölurnar réttar í lottóinu á laugardaginn. Pottur- inn var þrefaldur og hljóðaði fyrsti vinningur upp á rúmar þrettán milljónir. Búast má við háum fyrsta vinningi um næstu helgi þegar potturinn verður fjórfaldur. Einn var aftur á móti með fjórar tölur réttar auk bónustölu og hlaut hann rétt um 900 þúsund krónur í sinn hlut. ■ Lottó

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.