Fréttablaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 18
18 20. mars 2003 FIMMTUDAGUR TIGER BROSIR Kylfingurinn Tiger Woods brosti blítt á æf- ingahring fyrir Bay Hill-mótið sem hefst í borginni Orlando í Flórída í dag. Woods hefur ríka ástæðu til bjartsýni fyrir mótið því hann hefur unnið það síðastliðin þrjú ár. Mótinu lýkur á sunnudag. KÖRFUBOLTI 28 stig frá Jerry Stackhouse og 23 stig frá Mich- ael Jordan dugðu Washington Wizards ekki til sigurs gegn Detroit Pistons í NBA-deildinni í körfubolta í fyrrakvöld. Leiknum lauk með sigri Pist- ons 94:90 og fyrir vikið dvínuðu möguleikar Jordan og félaga á sæti í úrslitakeppninni umtals- vert. Liðið er nú að hefja sex leikja útileikjasyrpu um Vestur- strönd Bandaríkjanna þar sem róðurinn verður vafalítið erfið- ur. Dallas Mavericks vann þriðja leik sinn í röð er liðið lagði Cleveland að velli með 114 stig- um gegn 93. Þjóðverjinn Dirk Nowitzki var stigahæstur í liði Mavericks með 28 stig. Liðið hefur besta vinningshlutfall deildarinnar þegar 15 leikir eru eftir, með 51 leik unninn en að- eins 16 tapaða. Allan Houston skoraði 36 stig fyrir New York Knicks, sem vann San Antonio Spurs með 105 stig- um gegn 97. Fyrir leikinn hafði Spurs unnið sex leiki í röð. ■ FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í knattspyrnu fær góðan stuðning þegar það leikur gegn Skotum í Glasgow annan laugardag. Á fjórða hundrað manns fer héðan til að horfa á leikinn en einnig er búist við þó nokkrum fjölda Ís- lendinga sem búsettir eru á Bret- landseyjum. KSÍ-klúbburinn ætlar ekki að láta sitt eftir liggja. Halldór Ein- arsson formaður sagði Frétta- blaðinu að undirbúningur þeirra hæfist í kvöld með kóræfingu. KSÍ-klúbburinn, stuðnings- mannafélag landsliðsins, var stofnaður fyrir tveimur áratug- um. Félagsmenn eru um 120 og hittast þeir alltaf fyrir landsleiki. Tartan Army, stuðnings- mannafélag skoska landsliðsins, telur aftur á móti um 28 þúsund manns. Harðasti kjarni þess hitt- ist að morgni leikdags um borð í ferju á ánni Clyde sem rennur í gegnum Glasgow. Þeir hafa boðið 60 Íslendingum í teitið og fara fram á að gestirnir syngi tvö ís- lensk lög. KSÍ-klúbburinn mætir vel undirbúinn til veislunnar því að í kvöld verður söngæfing und- ir stjórn Guðjóns S. Þorlákssonar, tónlistarkennara og kórstjóra hjá Valskórnum. Lagaval liggur ekki fyrir og það kemur í ljós í kvöld hvort hópurinn æfi einnig hvatn- ingaróp og söngva fyrir sjálfan leikinn. ■ TARTAN ARMY Stuðningsmenn skoska landsliðsins hafa boðið KSÍ-klúbbnum til teitis að morgni leik- dags. KSÍ-klúbburinn: Kóræfing í kvöld JORDAN Michael Jordan og félagar í Washington Wizards þurfa að taka sig á ætli þeir sér sæti í úr- slitakeppni NBA. NBA-deildin: Möguleikar Wizards dvína AP /M YN D Önnur lota í miðasölu fyrir úr-slitaleik UEFA-bikarkeppn- innar hófst í gær á heimasíðu UEFA. Leikið verður á Estadio Olímpico í Sevilla 21. maí. Stuðn- ingsmenn félaganna sem leika til úrslita fá rúmlega 31 þúsund miða en tæplega 14 þúsund miðar fara í almenna sölu. Sir Alex Ferguson, knatt-spyrnustjóri Manchestser United, er ekki lengur á höttun- um eftir Þjóðverjanum Michael Ballack. Talið er að hann muni nú reyna að fá til sín Daniel van Bu- yten, leikmann Marseille. Svíinn Pär Zetterberg gengurtil liðs við Anderlecht að nýju í vor. Zetterberg lék með belg- íska félaginu frá 1986 til 2000. ■ Fótbolti FÓTBOLTI Fontaine er frægastur fyr- ir að hafa sett markamet þegar hann skoraði 13 mörk í aðeins sex leikjum fyrir franska landsliðið á HM í Svíþjóð árið 1958. Metið stendur enn þann dag í dag og eng- inn, ekki einu sinni Brasilíumaður- inn Ronaldo, hefur náð að toppa ár- angurinn. „Hefði Ronaldo verið í 100% formi hefði hann hugsanlega getað slegið metið á síðasta ári, en hann er búinn að missa af tækifærinu,“ sagði Fontaine í viðtali við AP- fréttastofuna. Ronaldo skoraði 8 mörk á HM í Asíu og varð marka- hæsti maður keppninnar. Franska landsliðið náði í undan- úrslit á HM ’58 en féll út gegn Pele og félögum í brasilíska landsliðinu. Pele, sem þá var aðeins 17 ára gam- all og að stíga sín fyrstu spor með landsliðinu, skoraði þrennu í leikn- um og gerði um leið út um vonir Frakka í keppninni. Brasilíumenn unnu leikinn 5:2 og sigruðu síðan Svía í úrslitum með sömu marka- tölu. Fontaine man vel eftir Pele og tilþrifum hans á knattspyrnuvellin- um. „Um leið og hann snerti bolt- ann vissirðu að hann yrði stór- stjarna,“ sagði Fontaine. „Tækni hans bjó yfir miklum þokka. Hann gat vippað boltanum yfir menn og hlaupið í kringum þá. Hann lét allt líta út fyrir að vera fáránlega auð- velt.“ Fontaine átti glæsilegan feril með franska landsliðinu. Hann skoraði þrennu í sínum fyrsta leik gegn Lúxemborg árið 1953 og endurtók leikinn í fyrsta leik Frakka á HM ‘58 gegn Paragvæ. Þá var Fontaine aðeins að leika sinn sjötta landsleik. Tíu mörk fylgdu í kjölfarið, þar af fjögur gegn Vestur- Þjóðverjum, og Fontaine varð markakóngur keppninnar. Í 21 leik sínum með franska landsliðinu skoraði Fontaine 30 mörk, þar af fimm þrennur. Kapp- inn var einnig á skotskónum með félagsliðum sínum Nice og Reims í Frakklandi. Þar skoraði hann 210 mörk í 220 leikjum. Fontaine varð hins vegar að leggja skóna á hilluna aðeins 27 ára gamall árið 1960 eftir að hafa fótbrotnað illa í leik. „Ég var á há- punkti ferils míns. Hver veit hversu mörg mörk ég hefði getað skorað,“ sagði goðsögnin að lok- um. freyr@frettabladid.is Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Just Fontaine (lengst til hægri) ásamt goðsögnunum Eusebio frá Portúgal (til vinstri) og landa sínum Michel Platini í 70 ára afmælisveislunni. Fontaine var þekktur fyrir hraða sinn og yfirvegun upp við mark andstæðinganna á glæstum ferli sínum. Markamet Fontaine stendur Franska knattspyrnugoðsögnin Just Fontaine hélt upp á sjötugsafmæli sitt á dögunum. Hann skoraði 30 mörk í 21 landsleik en varð að leggja skóna á hilluna á hápunkti ferils síns, aðeins 27 ára gamall. FLEST MÖRK Á HM 13 Just Fontaine fyrir Frakka í Svíþjóð 1958 11 Sandor Kocsis fyrir Ungverja í Sviss 1954 10 Gerd Müller fyrir Vestur-Þýskaland í Mexíkó 1970 9 Ademir fyrir Brasilíu í Brasilíu 1950 9 Eusebio fyrir Portúgal í Englandi 1966 AP /M YN D Henrik Larson: Aftur í sænska landsliðið FÓTBOLTI Svíinn Henrik Larsson, leikmaður skoska liðsins Celtic, hefur ákveðið að taka landsliðs- skóna fram að nýju. Larson, sem hætti eftir HM í Asíu síðasta sumar, hefur verið val- inn í sænska landsliðshópinn fyrir útileik gegn Ungverjalandi í und- ankeppni EM sem háður verður í næsta mánuði. Larson, sem er 31 árs gamall, hefur skorað 24 mörk í 72 landsleikjum. Síðast lék hann gegn Senegal í 16 liða úrslitum HM. ■ Lagersala Gjafavara Að Lyngási 14, Garðabæ Gjafavara á gjafverði Opið: Mánud.-föstud. 14-18 • Laugard.-sunnud. 14-17 Geymið auglýsinguna NLP Námskeið Neuro-Linguistic Programming Kennt verður dagana 31/3 til 4/4 og 7/4 til 11/4 frá kl. 18-22 NLP undirmeðvitundarfræði er fyrir alla og er okkar innra tungumál milli hugsana og undirmeðvindundar. NLP er notað af fólki um allan heim sem hefur náð frábærum árangri í lífinu. Kennt er m.a.: ■ Að vera móttækilegur og læra á auðveldan hátt. ■ Að skapa nýtt samskiptamál. ■ Að skapa þína eigin framtíð. ■ Að stjórna samtölum. ■ Að vekja snillinginn í sjálfum sér. ■ Að leysa upp neikvæðar venjur. ■ Að lesa persónuleika fólks. ■ Venjur til varanlegs árangurs. Leiðbeinandi: Kári Eyþórsson MPNLP. Upplýsingar í síma 588 1594 Netfang:koe@islandia.is Nánari upplýsingar um NLP má finna á: www.ckari.com

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.