Fréttablaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 28
28 20. mars 2003 FIMMTUDAGUR Festist í stjórnsýslunni Guðmundur Árnason stjórn-málafræðingur hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu. Hann er Austfirðingur, fæddur og uppal- inn á Eskifirði. „Ég ólst upp á upp- gangstímum í sögu byggðarlags- ins sem einkenndust framan af af síldarárunum og síðan skuttog- aravæðingu. Menn byrjuðu snemma að vinna þarna og ég þóttist hafa himin höndum tekið þegar ég fékk fyrsta fasta starfið mitt fyrir utan bæjarvinnuna og byrjaði í saltfiskinum þrettán ára gamall. Það fóru þó að renna á mig tvær grímur eftir því sem það leið á sumarið.“ Guðmundur var einn vetur í Menntaskólanum á Laugarvatni, að grunnskólanámi loknu, en fór svo í eitt ár sem skiptinemi til Ítalíu. „Ég útskrifaðist frá Menntaskólanum í Hamrahlíð og fór strax að því loknu í nám til Skotlands og Englands.“ Flestir félagar og vinir Guðmundar voru á kafi í pólitísku starfi á námsár- unum en hann lét allt slíkt eiga sig. „Ég tók nú aldrei meðvitaða ákvörðun um að leggja stjórn- málafræði fyrir mig og fór til Skotlands í þeim tilgangi að læra fjölmiðlun en þegar á staðinn var komið heillaði stjórnmálafræðin mig meira.“ Guðmundur var við nám í fimm ár og segist hafa haft gaman af. „Þetta voru skemmtilegir tím- ar í Bretlandi í lok níunda áratug- arins. Miklar væringar í pólitík- inni.“ Guðmundur var ráðinn í ýmis sérverkefni hjá fjármála- og forsætisráðuneytinu eftir að hann kom heim árið 1991. „Ég ílengdist svo þar, ólíkt því sem ég bjóst við sjálfur.“ Guðmundur er sonur Ragnhild- ar Kristjánsdóttur og Árna Hall- dórssonar, fyrrverandi skipstjóra og útgerðarmanns, en þau ráku útgerð á Eskifirði um árabil og búa þar enn. Hann er giftur Sól- veigu Berg Björnsdóttur arkitekt og saman eiga þau tvö börn, tíu og þriggja ára gömul. ■ GUÐMUNDUR ÁRNASON Reynir að eyða sem mestum tíma með fjölskyldunni. „Frítíminn fer mest í að klambra saman sumarhúsi vestur á Mýr- um. Þangað förum við oft þegar tími gefst til en ég reyni að njóta dásemda íslenskrar náttúru sem allra mest, á öllum árstímum.“ Stöðuveiting ■ Guðmundur Árnason stjórnmála- fræðingur hefur verið skipaður ráðu- neytisstjóri í menntamálaráðuneyt- inu. Hann gekk í ýmis sérverkefni í fjármála- og forsætisráðuneytinu fljótlega eftir að hann kom heim úr námi og hefur verið lengur á þess- um vettvangi en hann ætlaði. Ég er frekar hvatvís og mér gætidottið í hug að halda upp á af- mælið einhvern tímann en ekki í dag,“ segir Gísli Rúnar Jónsson, leikari og leikstjóri, en hann er fimmtugur í dag. „Það má segja að uppsetningin á farsanum Allir á svið sé fimmtugsafmælisveislan mín. Þegar ég varð fertugur ákvað ég að draga úr afskiptum mínum af leiklistarmálum, án þess þó að setj- ast í helgan stein, og sumt ætlaði ég alveg að afleggja. Ég ákvað svo að brjóta prinsippið í tilefni afmælis- ins og gekk til þessa samstarfs við Þjóðleikhúsið. Ég er mjög sáttur við það og finnst þetta prýðilegt af- mælispartí. Þá er þetta einnig hálf- gerð fimmtugsveisla fyrir Júlla [Júlíus Brjánsson] og Eddu [Björg- vinsdóttur] en við höfum unnið mik- ið saman í gegnum tíðina og þau urðu bæði fimmtug í fyrra.“ Gísli Rúnar segist vera löngu hættur að gera eitthvað með afmæl- isdagana sína. „Ég fæ mér kannski aðeins betri mat ef eitthvað er.“ Gísli Rúnar tekur hækkandi aldri með stóískri ró. „Ég hef alltaf miðað þetta við tvo vini mína og kollega sem eru töluvert eldri en ég. Ladda sem er sex árum eldri og Arnar Jónsson sem er tæpum tíu árum eldri. Þegar þessir menn hafa haldið upp á afmælisáfanga í lífum sínum hef ég fyllst skelfingu fyrir þeirra hönd. Mér fannst það svaka- legt fyrir þeirra hönd þegar þeir urðu fertugir, að ég tali ekki um fimmtugir. Mér fannst þeir taka þessu af ótrúlegri stillingu miðað við það að þeir nutu engrar áfalla- hjálpar en þegar maður stendur sjálfur í þessum sporum finnur maður ekki fyrir neinu og skilur ekki þessa spögúlasjón. Ég er líka ekki deginum eldri en tuttugu og fjögurra ára og miða alltaf við það.“ Þarf enga áfallahjálp Gísli Rúnar Jónsson, leikari og leikstjóri, er fimmtíu ára í dag. Hann segist hafa fundið til með félögum sínum sem hafa staðið á þessum tímamótum en upplifir sjálfur enga skelfingu og afþakkar áfallahjálp. ■ AFMÆLI FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI Po rt úg al 47 .2 67 kr . * á mann m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman. Innifalið: Flug, gisting í tvær vikur, íslensk fararstjórn, ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar. * Be ni do rm Po rt úg al Be ni do rm 47 .2 67 kr . * Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Ef tveir ferðast saman, 69.355 kr. á mann. Ef tveir ferðast saman, 63.730 kr. á mann. Allt a› seljast upp ver›læ kkun8-15% SumarPlús Ég er að vinna í Leikbrúðulandiog við erum að sýna leikritið Fjöðrin sem varð að fimm hænum eftir H.C. Andersen og Ævintýrið um Stein Bollason,“ segir Helga Steffensen brúðuleikari. Helga vinnur í Leikbrúðulandi á veturna og hefur verið að sýna í kirkjum landsins á sunnudögum. Á sumrin tekur Brúðubíllinn við. „Lilli er núna að fara að byrja í Brúðubíln- um. Hann er orðinn nítján ára. Hann er ekki enn búinn að læra að þekkja litina og hann er ekki alveg klár í að telja eða þekkja stafina.“ ■ Hvar? FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.