Fréttablaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 12
20. mars 2003 FIMMTUDAGUR KAMBÓDÍA, AP Yfirvöld í Kambódíu og embættismenn Sameinuðu þjóðanna hafa komist að sam- komulagi um stofnun sérstaks dómstóls sem rétta á yfir fyrrum liðsmönnum Rauðu Khmeranna vegna glæpa gegn mannkyninu. Um 1,7 milljónir Kambódíumanna voru teknar af lífi eða létust vegna hungurs og sjúkdóma í stjórnartíð Rauðu Khmeranna á árunum 1975- 1979 en enn hafa engir leiðtogar hreyfingarinnar þurft að svara til saka fyrir þær hörmungar sem þeir báru ábyrgð á. Mikil ánægja ríkti um sam- komulagið en viðræður milli Kam- bódíumanna og Sameinuðu þjóð- anna vegna málsins hófust fyrir rúmlega fimm árum síðan. Tals- menn Sameinuðu þjóðanna ítreka þó að enn eigi mikið vatn eftir að renna til sjávar áður en réttarhöld geti hafist við dómstólinn. ■ ALÞINGI Afneitun stjórnvalda á því að skattkerfið hafi aukið álögur á lágtekjufólk stendur upp úr að ný- loknu þingi að mati Guðjóns Arnars Kristjánssonar, nýkjörins for- manns Frjálslynda flokksins. „Það er furðulegt að þurfa að standa í rifrildi við stjórnarherrana um þetta mál,“ segir Guðjón Arnar. „Persónuafsláttur hefur ekki fylgt launaþróun og fólk er að greiða skatta af bótum. Samt stöndum við í því að vera að rífast við fjármála- ráðherrann sjálfan um það að skatt- tekjur á lágtekjufólk hafi ekki auk- ist.“ Guðjón Arnar segir að í umræð- unni um skattamál hafi ríkisstjórn- in einfaldlega verið að reyna að blekkja fólk. Það sé vitað að skattar á fyrirtæki og hátekjufólk hafi ver- ið lækkaðir, en ríkisstjórnin geti ekki viðurkennt þá staðreynd að lágtekjufólk hafi setið eftir hvað þetta varðar. „Ég held að skattamálin verði eitt af aðalkosningamálunum, sem og það hvernig eigi að tryggja bætta stöðu barnafólks. Það er sá hópur í þjóðfélaginu sem er með mestu útgjöldin vegna fjölskyldu- samsetningar og um leið að reyna að koma þaki yfir höfuðið. Einnig tel ég að byggðamál komi til með að vega þungt.“ Hvað einstaka atburði á þinginu varðar segist Guðjón Arnar vera afar ánægður með þá samstöðu sem náðist um barnalögin. Það sé merkilegur lagabálkur til framtíðar litið. Hvað stóriðjumálin varðar segir hann að þau hafi verið nokkuð fyrirséð. „Ég fagna því að þetta mál skyldi hafa komist í höfn. Ég sagði fyrir tveimur árum síðan að ég fagnaði því að landsbyggðin skyldi vera komin inn á stóriðjukortið. Guðjón Arnar segist vera bjart- sýnn fyrir hönd Frjálslynda flokks- ins fyrir kosningarnar í vor. Viðunandi niðurstaða sé 7 til 8% fylgi og tvöföldun þingflokksins, en á núverandi kjörtímabili hefur flokkurinn haft tvo menn á þingi. Hann segir að fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar eigi að vera að leggja drög að breytingum á kvóta- og skattkerfinu. trausti@frettabladid.is VIÐBÓTARLÁN Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga mun taka erindi sveitarfélagsins Voga fyrir á stjórnarfundi eftir tæpar tvær vikur, að sögn Þórðar Skúla- sonar, framkvæmdastjóra sam- bandsins. Í erindinu er kvartað undan því að Garðabær og Seltjarnar- nesbær hafi veitt íbúum sínum vilyrði fyrir 90% viðbótarláni og bent þeim á ódýrt húsnæði í Vog- um. Þórður segir að sambandið hyggist skoða hvort þetta sé rétt og ef svo er muni það fá lögfræði- legt álit á því hvort þetta standist lög. Hann segir að sambandið hafi í raun engin úrræði heldur muni það væntanlega gefa út álit. Í Fréttablaðinu í gær kom fram að samkvæmt upplýsingum frá Íbúðalánasjóði er sveitarfé- lögum í sjálfsvald sett hvort þau veita umsækjendum viðbótarlán fyrir íbúðakaupum annars staðar en þar sem þeir eiga lögheimili. ■ SVEITARSTJÓRINN Í VOGUM Jóhanna Reynisdóttir er ósátt með afgreiðslu húsnæðisnefnda Garðabæjar og Seltjarnarnesbæjar. Samband íslenskra sveitarfélaga tekur erindi Voga fyrir: Lögfræðilegt álit væntanlegt Rifrildið um skatt- kerfið furðulegt Þingflokksformaður Frjálslynda flokksins ræðir um nýlokið þing. Afneitun stjórnvalda á aukinni skattbyrði lágtekjufólks stendur upp úr. Ánægður með barnalögin. Stefnir að því að tvöfalda þingflokkinn í vor. SAMNINGAÞÓF Á ENDA Talsmaður Lagaskrifstofu Sameinuðu þjóð- anna, Hans Corell, svaraði spurningum fréttamanna í höfuðborg Kambódíu, Phnom Penh. Réttað yfir Rauðu Khmerunum: Dómstóll settur á laggirnar GUÐJÓN ARNAR KRISTJÁNSSON, NÝKJÖRINN FORMAÐUR FRJÁLSLYNDA FLOKKSINS Guðjón Arnar segir að í umræðunni um skattamál hafi ríkisstjórnin einfaldlega verið að reyna að blekkja fólk. Það sé vitað að skattar á fyrirtæki og hátekjufólk hafi verið lækkaðir, en ríkisstjórnin geti ekki viðurkennt þá staðreynd að lágtekjufólk hafi setið eftir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.