Fréttablaðið - 09.01.2004, Blaðsíða 8
8 9. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
Óþekktarrófa!
„Það er líka umhugsunarefni
hvernig í ósköpunum varð af
þessu brúðkaupi yfirhöfuð. Er
ekki her manns að passa upp á
Britney frá degi til dags, bæði
öryggisverðir og alls konar
skipuleggjarar sem eiga að
tryggja að hún geri ekki vit-
leysur og haldi áfram að mala
fjárfestum sínum gull? Fær hún
að gera það sem henni sýnist og
vera án öryggisgæslu?
Víkverji var undrandi yfir brúðkaupi
poppstjörnunnar. Morgunblaðið 8. janúar.
Höfðinglegur Pétur
„Ég verð stoltur af þessu 8,2
milljóna króna framlagi mínu til
menningar- og líknarmála. Ætli
Svanfríður Jónasdóttir hafi lagt
fram jafn mikið fé til menning-
ar- og líknarmála?“
Pétur Blöndal um söluna á SPRON.
Fréttablaðið 8. janúar.
Orðrétt
Bíða eftir
samningi
Hópur sérfræðilækna í ýmsu greinum hefur
óskað eftir viðræðum við samninganefnd
heilbrigðisráðuneytis.
HEILBRIGÐISMÁL Sjúklingar sem
greiða læknishjálp að fullu hjá sér-
fræðilæknum, sem ekki eru með
samning við Tryggingastofnun rík-
isins, geta ekki fengið endur-
greiðslu, þótt samningur komist á
síðar, nema með lagabreytingu.
Þetta segir Garðar Garðarsson hrl.
og formaður samninganefndar heil-
brigðisráðuneytisins.
Samninganefndin fór yfir stöðu
kjaradeilu TR og sérfræðilækna
með fréttamönnum í gær. Þar kom
meðal annars fram, að sérfræðing-
ar gerðu kröfu um „frjálst verðlag.“
þeir vildu koma upp einskonar
„tannlæknakerfi,“ þar sem einungis
börn, aldraðir og öryrkjar hefðu
rétt til endurgreiðslu.
„Þetta myndi kalla á grundvall-
arbreytingu á almannatrygginga-
kerfinu,“ sagði Garðar, sem sagði að
slík breyting þyrfti að fara í gegn-
um pólitíska umræðu áður en af
henni gæti orðið. „Réttur manna til
greiðslu frá Tryggingastofnun er
réttur sjúklinga, ekki réttur
lækna,“ sagði hann. „Það eru al-
mannatryggingalögin sem segja til
um hvort menn eru sjúkratryggðir
eða ekki.“
Fram kom, eins og Fréttablaðið
hefur greint frá undanfarna daga,
að samninganefndin er búin að
semja við einstaka sérfræðilækna
og rannsóknarfyrirtæki. Um er að
ræða lækna úr nokkrum greinum,
en ekki þó nærri öllum. Að sögn
Garðars hafa þó nokkrir læknar til
viðbótar óskað eftir viðræðum um
samning. Nöfn læknanna sem samið
hafa verða ekki gefin upp að svo
stöddu, þar sem þeir óttast að fá
holskeflur yfir sig, að sögn Garðars.
Vel á fjórða hundrað sérfræði-
lækna í um 30 greinum var á samn-
ingi við TR fram til áramóta. Í
greiðslupottinum eru tveir milljarð-
ar króna, sem fara til sérfræðinga
sem eru á samningi og stofnana sem
hlaupa undir bagga meðan á kjara-
deilunni stendur. Þær greiðslur eru
þegar hafnar, að því er fram kom
frá fulltrúa heilbrigðisráðuneytis.
Garðar sagði það ljóst að ef þessi
deila sem slík dregðist á langinn,
væri alls óvíst að menn sæju
nokkurn tíma aftur það kerfi sem
verið hefði. Hann sagði að hægt
væri að fara ýmsar leiðir í þeim
efnum, til dæmis með útboði á
læknisþjónustu, eflingu göngu-
deilda og svo mætti áfram telja.
jss@frettabladid.is
Fjármálaráðuneytið
Tilkynning til launagreiðenda
Að gefnu tilefni vill fjármálaráðuneytið vekja athygli á því að þann 5. desember s.l. samþykkti
Alþingi breytingu á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, sem felur í sér að heimild til lækkunar
á tryggingagjaldi vegna viðbótarlífeyrissparnaðar launamanns er felld niður.
Breytingin tók gildi 1. janúar 2004.
Samkvæmt þágildandi lögum skyldi tryggingagjald lækka um allt að 0,4% af gjaldstofni og sá hluti
tryggingagjaldsins nýttur sem iðgjaldshluti launagreiðanda á móti iðgjaldshluta launamanns.
Með fyrrgreindri lagabreytingu var þetta ákvæði, er kvað á um lækkun tryggingagjalds vegna
viðbótarlífeyrissparnaðar launamanns, fellt niður.
Tekið skal fram að umrædd breyting hefur ekki áhrif á kjarasamningsbundið mótframlag v
innuveitanda vegna viðbótarlífeyrissparnaðar.
Fjármálaráðuneytinu, 7. janúar 2004.
Mælingar á loðnu í haust sýndu lítið magn:
Minnsti kvóti í áraraðir
LOÐNA Upphafsúthlutun loðnu-
kvótans er 48 þúsund tonnum
minni en hún var á síðustu vertíð.
Illa gekk að mæla stofninn í
haust. Niðurstaðan sýndi lítið af
loðnu og óttuðust menn að útlitið
yrði dökkt og því ekki talið að á
komandi vertíð yrði mikið að finna
af veiðanlegri loðnu.
Hafrannsóknastofnun hóf mæl-
ingar aðfaranótt mánudags og hef-
ur fundist töluvert af loðnu á stóru
svæði út frá norðurlandi af ágæt-
lega veiðanlegri loðnu.
„Þetta er mikill léttir þar sem
horfur voru slæmar,“ segir Jóhann
Sigurjónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunarinnar. Byrjað var
að gefa út veiðileyfi á mánudag.
Það mun taka nokkra daga að
vinna úr gögnunum til að geta
byggt á endanlegar tillögur um
aflamark á yfirstandandi vertíð.
Hjálmar Vilhjálmsson, leiðang-
ursstjóri á Árna Friðrikssyni, seg-
ir þetta hafa farið frekar brösu-
lega af stað.
„Það eru einhverjir á landleið
með fullfermi af loðnu og hefur
verið þokkaleg loðnuveiði. Loðnan
er ekkert mjög stór en ekkert
mjög smá heldur, það ber meira á
smærri loðnu vel vestan við Mel-
rakkasléttuna. Þeir hafa verið að
veiða loðnuna úti af norðaustur-
horninu, norður af Melrakka-
sléttunni og norðaustur af Langa-
nesi. Ef það er eitthvað takmarkað
af stórri loðnu fyrir austan þarf að
endurskoða málið og hugsanlega
leita betur út frá Vestfjörðum ef
skyldi koma vesturganga, en þetta
kemur í ljós á næstu dögum.'' ■
Ár Upphafsúthlutun Kvóti Afli
1998–1999 688.200 994.716 899.000
1999–2000 575.850 891.501 844.000
2000–2001 417.750 918.629 894.000
2001–2002 438.390 1.096.203 1.051.000
2002–2003 410.022 765.000 765.000
2003–2004 362.354-
HUGAÐ AÐ NÓTINNI
Veiðileyfi á loðnu voru gefin út á mánudag
og er útlitið betra á komandi vertíð en gert
var ráð fyrir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Sérfræðingadeilan:
Vilja fund
HEILBRIGÐISMÁL Fulltrúar Samfylk-
ingarinnar í heilbrigðis- og trygg-
inganefnd Alþingis hafa farið fram á
fund í nefndinni hið fyrsta vegna
þeirrar alvarlegu stöðu sem komin
er upp í samningaviðræðum ríkisins
við sérfræðilækna. Margrét Frí-
mannsdóttir alþingismaður hefur
þegar ritað formanni heilbrigðis- og
trygginganefndar bréf þess efnis.
Jafnframt fara fulltrúar Sam-
fylkingarinnar í nefndinni fram á að
á sama fund verði boðaðir fulltrúar
Landspítala-háskólasjúkrahúss til að
gera grein fyrir áformum um sparn-
að og niðurskurð á spítalanum og
hvaða afleiðingar þær aðgerðir hafa
á rekstur hans. ■
MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR
Vill heilbrigðisnefnd á fund.
SAMNINGANEFND RÁÐUNEYTIS
Samninganefnd heilbrigðisráðuneytisins kynnti á fundi í gær stöðu deilu sérfræðilækna
við Tryggingastofnun ríkisins. Formaðurinn, Garðar Garðarsson, fór yfir stöðu mála.