Fréttablaðið - 09.01.2004, Qupperneq 10
ELDSNEYTI Bensínverð lækkaði á öll-
um sjálfsafgreiðslustöðvum á höf-
uðborgarsvæðinu í gær. Lækkunina
má rekja til þess að Atlantsolía hóf
að selja 95 oktan bensínlítrann á
92,5 krónur klukkan tvö um daginn.
Orkan hafði þegar riðið á vaðið og
lækkað verð á sölustöðum sínum í
92,4 lítrann fyrir utan sölustaðinn á
Skemmuvegi en þar var bensínverð
lægra og kostaði lítrinn 91,40 krón-
ur.
Hugi Hreiðarsson, markaðs-
stjóri Atlantsolíu, segist ánægður
með viðtökur neytenda og biðröð
hafi myndast. „Það kom ekki á óvart
að bensínstöðvar lækkuðu verðið.
Þá var viðbúið að Orkan lækkaði
enn frekar verðið á sölustaðnum í
nágrenni við okkur. Við teljum olíu-
félögin grípa til verðlækkunar svo
fákeppni viðhaldist og eins að
stemma stigum við að okkur vaxi
fiskur um hrygg. Ég er þess fullviss
að neytendum sé umhugað um að
samkeppni eflist. Þá hljóta þeir að
spyrja af hverju bensínverð lækk-
aði ekki fyrr en nú.“ Hugi segir að
vegna lítillar yfirbyggingar sé
Atlantsolíu mögulegt að selja
lítrann á þessu verði. „Við höfum
ekki hugsað okkur að fara út í verð-
stríð heldur viðhalda þessu verði.“
Samúel Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri áhættustýringar-
sviðs Olís sem m.a. rekur sjálfs-
afgreiðslustöðvar ÓB, segir ástæðu
lækkunarinnar vera stefnu fyrir-
tækisins að bjóða viðskiptavinum
samkeppnishæft verð. Aðspurður
hvort ekki hefði verið hægt að
lækka bensínverð fyrr, segir Samú-
el lækkunina nú ekkert með þróun á
heimsmarkaði að gera en verð sé nú
í hámarki. „Við töldum okkur þurfa
hækkun um daginn og sú forsenda
hefur ekki breyst.“ Hann segist
engu geta spáð um hversu lengi
þessi verðlækkun vari. „Við bjóðum
viðskiptavinum okkar alltaf sann-
gjörn kjör og það hefur verið stefna
fyrirtækisins í 76 ár.“
Gunnar Skaptason, fram-
kvæmdastjóri Bensínorkunnar, seg-
ir ástæðu lækkunarinnar einfalda.
„Orkan hefur undanfarin átta ár
verið með lægsta verð og á því
verður engin breyting.“
kolbrun@frettabladid.is
10 9. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
■ Asía
■ Evrópa
HOTT, HOTT Á HESTI
Knapar sem þátt taka í hindrunarhlaupi
lenda oft í skrautlegum uppákomum þeg-
ar hestar þeirra missa fótanna eins og
þessi sem rak hófana í rána í síðustu
hindrun.
Góð veiði á síðasta ári:
Aflaverðmætið rúmur milljarður
SJÁVARÚTVEGUR Framleiðsluverð-
mæti fjölveiðiskipsins Vilhelms
Þorsteinssonar EA nam 1.135
milljónum króna á síðasta ári.
Árið 2002 var framleiðsluverð-
mætið 1.385 milljónir króna.
Skipið, sem gert er út af Sam-
herja, veiddi alls 23 þúsund tonn
af síld, 22 þúsund tonn af loðnu,
átta þúsund tonn af kolmunna og
1.400 tonn af úthafskarfa. Á
heimasíðu Samherja undrast
Guðmundur Jónsson, skipstjóri á
Vilhelm, að þessi mikla verð-
mætasköpun skuli ekki vekja
neina athygli þeirra sem fjalla
um sjávarútveg. Hann segir eink-
ar athyglisvert hversu stór hluti
verðmætasköp-
unarinnar sé
vegna síldveiða.
Sem dæmi hafi 14
þúsund tonn sem
veidd hafi verið á
alþjóðlegu haf-
svæði skilað afla-
verðmæti upp á
um 480 milljónir
króna.
Vilhelm fór til
veiða 2. janúar og
er nú á síldveið-
um á Vestfjarðamiðum og er afl-
inn kominn í um 900 tonn úr sjó.
Skipið mun síðan hefja loðnuveið-
ar síðar í mánuðinum. ■
SEX DÆMDIR FYRIR MORÐ Á
STJÓRNMÁLAMANNI Dómstólar í
Belgíu hafa dæmt sex menn fyrir að
skipuleggja morðið á André Cools,
fyrrum varaforsætisráðherra
Belga, sem skotinn var til bana fyr-
ir tólf árum. Fjórir hlutu 20 ára
fangelsisdóm en tveir fengu fimm
ára dóm. Fyrir fimm árum dæmdu
dómstólar í Túnis tvo leigumorð-
ingja í 20 ára fangelsi fyrir morðið.
ATVINNULEYSI EYKST Í ÞÝSKALANDI
Atvinnuleysi í Þýskalandi mældist
10,4% í desember 2003 sem er 0,4
prósentustiga aukning frá nóvem-
ber. Um 4.317.000 einstaklingar
voru á atvinnuleysisskrá í desem-
ber. Staðan er mjög slæm í fyrrum
Austur-Þýskalandi en þar er
atvinnuleysið 17,9% á móti 8,4% í
vesturhluta landsins.
Stórútsala
25-70% afsláttur
• Prjónagarn
• Heklugarn
• Útsaumspakkningar
• Útsaumsefni í metratali
• Dúkadamask í metratali
• Strammamyndir
• Smávara í föndrið
• Þrívíddarmyndir
• Bækur og blöð
Opið mán.-fös. kl. 9-18 lau. kl. 10-14.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi, sími 564 3988.
HERMENN Í TÍKRÍT
Bandaríski herinn býður hermönnum í Írak,
Kúveit og Afganistan aukagreiðslur fyrir að
vera áfram við störf í þessum löndum.
Hermenn vilja frá Írak:
Hrista bara
hausinn
ÍRAK, AP Bandarískir hermenn í Írak
virðast vera lítt hrifnir af þeirri
hugmynd hersins að bjóða þeim
aukagreiðslur upp á sem nemur allt
að 700.000 íslenskum krónum fyrir
að vera áfram við störf í landinu
eftir að ráðningartímabili þeirra
lýkur.
„Þeir gætu ekki fengið mig til að
vera hér áfram sama hvað þeir
byðu,“ segir 23 ára hermaður við
störf í eftirlitsstöð skammt fyrir
utan Bagdad. Margir hermenn hafa
hlegið og hrist hausinn þegar blaða-
menn hafa spurt þá út í fyrirætlan-
ir hersins. Sumir segjast vera búnir
að fá nóg af því að dvelja löngum
stundum fjarri ástvinum sínum á
meðan aðrir tala um að þeir óttist
dauðann. ■
EKKI SMITUÐ AF HABL Grunur
manna um að filippeysk kona hafi
smitast af
bráðalungnabólgu
á ferðalagi í Hong
Kong reyndist ekki
á rökum reistum.
Konan og eigin-
maður hennar voru lögð inn á
sjúkrahús með einkenni HABL en
rannsóknir sýndu að þau voru með
bakteríusýkingu í lungum en ekki
veirusýkingu. Bæði eru á batavegi.
Ung kona lögð inn á sjúkrahús:
Grunur um nýtt tilfelli
bráðalungnabólgu
KÍNA, AP Tvítug kínversk kona hef-
ur verið lögð inn á sjúkrahús í
borginni Guangzhou í Kína vegna
gruns um að hún hafi smitast af
veirunni sem veldur bráðalungna-
bólgu. Karlmaður frá Guangdong-
héraði í Kína, sem smitaðist af
sjúkdómnum í desember, hefur
verið útskrifaður af sjúkrahúsi.
Hátt í fimmtíu manns sem um-
gengust konuna hafa verið settir í
sóttkví og 52 aðrir eru undir
ströngu eftirliti. Konan starfaði
sem þjónn á veitingahúsi sem hef-
ur á boðstólnum kjöt af villtum
dýrum en vísindamenn hafa leitt
að því líkum að veiran berist til
manna frá dýrum sem Kínverjar
leggja sér til munns. Kínversk yf-
irvöld hafa hafist handa við að
lóga þúsundum deskatta og ann-
arra skyldra dýra vegna þessa.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
hefur sent hóp sérfræðinga til
Guangzhou til að aðstoða heil-
brigðisyfirvöld við að rannsaka
þessi nýju tilfelli bráðalungna-
bólgu og reyna að komast að því
hvernig fólkið smitaðist.
Þrír starfsmenn fréttastofu í
Hong Kong voru lagðir inn á
sjúkrahús með einkenni
bráðalungnabólgu eftir að þeir
sneru heim frá Guangdong-
héraði. Rannsóknir sýndu að þeir
höfðu ekki smitast af HABL-
veirunni. ■
VILHELM ÞORSTEINSSON
Skipið, sem gert er út af Samherja, veiddi
alls 23 þúsund tonn af síld, 22 þúsund
tonn af loðnu, átta þúsund tonn af kol-
munna og 1.400 tonn af úthafskarfa.
VARÚÐARRÁÐSTAFANIR
Kaupmenn á útimarkaði í borginni Guangzhou í Kína ganga með sóttvarnargrímur.
Bílaeigendur
ánægðir
NEYTENDUR Bílaeigendur í Kópa-
vogi lýstu ánægju sinni með sam-
keppnina sem komin var í bæinn.
Fréttablaðið tók nokkra að tali
bæði hjá Atlantsolíu á Kópavogs-
braut og Orkunni á Skemmuvegi.
Einn viðskiptavinur Atlantsolíu
sagðist koma langt að í þeim til-
gangi að styrkja samkeppnina.
Sjálfur væri hann starfsmaður hjá
olíufélagi en vildi sýna þessu fram-
taki stuðning, þrátt fyrir að um
samkeppnisaðila væri að ræða.
BJÖRG KONRÁÐSDÓTTIR:
Ánægð með
framtakið
„Mér líst vel á þessa samkeppni sem til-
koma Atlantsolíu getur hugsanleg haft
áhrif á. Ég heyrði um þetta í útvarpinu og
dreif mig af stað.“
HALLDÓR RÚNAR HAFLIÐASON OG
JÓHANNES HELGI LAXDAL:
Alltaf ódýrastir
Félagarnir Halldór og Jóhannes höfðu ekki
hugmynd að búið væri að lækka bensín-
verðið hjá Orkunni. „Við komu alltaf hing-
að af því við vitum að hér er bensínverð
ódýrast.“ Töldu félagarnir víst að þeir héldu
áfram að versla hjá Orkunni, þrátt fyrir til-
komu Atlantsolíu.
Verðstríð hafið
á bensínmarkaði
Atlantsolía hóf að selja 95 oktan bensín í gær.
Í kjölfarið lækkuðu olíufélögin bensínverð á sjálfsafgreiðslustöðum.
Orkan á Skemmuvegi með ódýrasta bensínverðið.
ATLANTSOLÍA HÓF SÖLU Á 95 OKTAN BENSÍNI Í GÆR
Jökull Kristjánsson, starfsmaður Atlantsolíu, límir upp verðmiða sem gefur til kynna að
bensínlítrinn kosti 92,50 krónur. Hann segir viðskiptavini afskaplega þakkláta og
að hugur sé í fólki hvað varðar aukna samkeppni.
BENSÍNVERÐ Á
SJÁLFSAFGREIÐSLUSTÖÐVUM
klukkan þrjú í gærdag:
95 oktan dísill
Atlantsolía 92,5 35,0
Esso Express 92,5 34,9
Orkan 92,4 34,8
Orkan, Skemmuvegi91,4 34,9
ÓB 95,5 35,0
Olís 95,9 39,9
Shell 96,9 41,8
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M