Fréttablaðið - 09.01.2004, Side 33
FÖSTUDAGUR 9. janúar 2004
ER HAFIN
LAUGAVEGI 89 S.511 1750
ÚTSALAN
RISA AFSLÁTTUR
nýtt kortatímabil
laugavegi s.511 1717 - kringlunni s.568 9017
menn:
Diesel
Energie
Revolution
4You
4You
4You
Dico
Camper
gallabuxur
fatnaður
bolir
skyrtur
buxur
jakkaföt
fatnaður
skór
afsl.
frá:
afsl.
5.990
30%
1.990
1.990
2.990
16.990
30%
7.990
Extra
Diesel
Killah
Punky fish
Extra
Diesel
X-18
bolir
buxur
fatnaður
fatnaður
jakki
skór
skór
frá:
afsl.
afsl.
990
5.990
40%
30%
7.990
4.990
3.990
konur:
Laura Aime
Diesel
Mia
Sud Express
Diesel
Trend
Trend
bolir
buxur
pils
úlpur
barna
skór
stígvél
frá:
afsl.
990
5.990
1.990
6.990
40%
2.990
2.990
ÚTSALA
30-60%
verðlækkun
nýtt kortatímabil
Breski söngvarinn Morrisseyer við það að leggja lokahönd
á nýja breiðskífu sem kemur út í
apríl. Fyrrum Smiths-söngvarinn
hefur verið á niðurtúr síðustu
árin og án plötusamnings frá því
árið 1997, þegar platan Mal-
adjusted kom út. Áhrif hans á
rokkið eru gífurleg og enn fyllir
hann stærðarinnar tónleikastaði í
Bretlandi og Bandaríkjunum, þar
sem hann hefur búið síðustu árin.
Það hlýtur því að teljast undar-
legt hversu erfiðlega honum hef-
ur gengið að næla sér í nýjan út-
gáfusamning. Hann ku þó ekki
vera sá allra auðveldasti í sam-
vinnu.
Nýja platan kemur út á vegum
Attack, sem er nú í eigu Sanctuary
Records. Platan kemur svo til með
að heita You Are the Quarry. Laga-
heiti virðast vera í svipuðum stíl
og áður, en á plötunni má meðal
annars finna lögin I Have Forgi-
ven Jesus, Come Back to Camden,
How Can Anybody Possibly Know
How I Feel og I’m Not Sorry.
Morrissey ætlar svo að fylgja
útgáfu plötunnar eftir með
þriggja mánaða tónleikaferð um
heiminn. ■
Leikkonan Natalie Portman sagðií viðtali við MTV að lokabardag-
inn í væntanlegri Stjörnustríðs-
mynd væri „sjúkur“. Eins og flestir
aðdáendur vita fjallar kafli 3 um
það hvernig Anakin Skywalker
leyfir hatrinu að ná tökum á sér.
Hann snýr sér að skuggahliðinni og
breytist í Darth Vader, sem við Ís-
lendingar þekkjum sem Svarthöfða.
Í lokabardaganum berjast vin-
irnir Obi-Wan Kenobi og Anakin
Skywalker þar til annar þeirra fell-
ur.
„Ég sá stórkostleg bardagaatriði
á milli Ewans McGregor og
Haydens Christensen, það var ansi
sjúkt,“ sagði Natalie, sem snýr aft-
ur í hlutverk sitt sem Padmé
Amidala, ástkona Anakins, í mynd-
inni. „Þeir ætluðu upphaflega að
láta áhættuleikara sjá um bardag-
ann, en Ewan og Hayden voru bara
betri á endanum. Þetta verður ansi
magnað atriði.“
Natalie vildi ekki gefa upp meira
um myndina en þegar hún var
spurð um hvort hún haldi að mynd-
in standist gífurlegar væntingar að-
dáenda svaraði hún: „Verður þetta
þess virði? Við erum búin með tök-
ur og vönduðum okkur mikið. Ég
held að allir vilji gera myndina eins
góða og hægt er. Þetta var síðasti
séns, eins og þið vitið, til þess að
gera eitthvað magnað, þannig að ég
er vongóð. En þeir eiga eftir að
vinna í tvö ár til viðbótar, að tækni-
brellum og svoleiðis, áður en
myndin verður tilbúin.“ ■
NATALIE PORTMAN
Lagði sitt af mörkum til þess að síðasta Stjörnustríðsmyndin sem framleidd verður yrði
sem best.
Sjúkt lokaatriði
MORRISSEY
Loksins fá aðdáendur Morrissey nýtt efni
frá honum.
Morrissey snýr aftur
Vakna af dvala
Hljómsveitin Fálkar frá Keflavíknáði nokkurri frægð þegar
Steinn Ármann söng með henni
Flugufrelsarann í óborganlegri
kántríútgáfu fyrir nokkrum misser-
um. Hljómsveitin hefur legið í dvala
í tvö ár en ætlar að koma saman í
kvöld á Grand Rokk ásamt Tokyo
Megaplex, nýrri hljómsveit, einnig
frá Keflavík, sem spilar stuðrokk.
„Við komum saman bara í þetta
eina skipti núna,“ segir Guðmund-
ur Vigfússon, bassaleikari Fálka.
„En svo erum við að leggja drög að
plötu sem við ætlum að fara að
vinna í mars.“ ■
HLJÓMSVEITIN FÁLKAR
Spilar á Grand Rokk í kvöld og er með plötu í bígerð.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM