Fréttablaðið - 09.01.2004, Page 43
FÖSTUDAGUR 9. janúar 2004
Sérsveitin verður í Vélsmiðjunni.
Hermann Ingi jr skemmtir gestum
Búálfsins í Breiðholti.
Fálkar frá Keflavík og Tokyo Megap-
lex á Grand Rokk.
Plötusnúðarnir Grétar G og Frímann
leiða saman hesta sína á aðaldansgólfi
Kapital.
Rúnar Guðmundsson spilar fyrir
gesti Café Catalinu.
Spilafíklarnir skemmta á Celtic
Cross.
Hin ástsæla gleðisveit Gilitrutt leikur
á Paddy’’s við Hafnargötu í Keflavík.
Brimkló skemmtir á Players í Kópa-
vogi.
Dj Þór Bæring á Glaumbar.
Old school 70’s, 80’s og 90’s dans-
tónlist í Leikhúskjallaranum.
Strákarnir í Buff ætla að halda uppi
stemmaranum á Gauknum með gríni
og glens eins og þeim einum er lagið.
Jón Atli verður á stálborðunum í
Setustofunni með bland í poka, rokk
og fleira.
Papar skemmta á Nasa við Austur-
völl.
■ ■ FUNDIR
13.15 Málþing um lífupplýsinga-
fræði (e. bioinformatics) verður haldið í
fyrirlestrarstofu þriðju hæðar í Lækna-
garði. Erindi flytja Daníel Guðbjartsson,
Birgir Hrafnkelsson, Jón Jóhannes
Jónsson, Hans Þormar, Bjarni V. Hall-
dórsson og Einar Steingrímsson.
20.00 Kvæðamannafélagið Iðunn
hefur starfsemi sína á nýju ári með
kvöldvöku í sal Blindrafélagsins,
Hamrahlíð 17. Þar mun Vilborg Davíðs-
dóttir rithöfundur segja frá þrettánda-
siðum á Þingeyri við Dýrafjörð og Elsa
Herjólfsdóttir fiðluleikari greinir frá
fiðluleik meðal alþýðu manna í Suður-
Þingeyjarsýslu frá um 1850–1950.
■ ■ SAMKOMUR
20.00 Opið hús byrjar aftur á nýju
ári í kjallara Alþjóðahússins. Allir vel-
komnir.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
Leikritið Eldað með Elvis hefurfarið sigurför um Evrópu og
Bandaríkin á síðustu misserum.
Höfundurinn er Lee Hall, sem
meðal annars var tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir handrit
sitt að kvikmyndinni Billy Elliot. Í
kvöld verður þetta leikrit frum-
sýnt í Loftkastalanum í þýðingu
Hallgríms Helgasonar.
„Í þessu verki leiðast grín og
alvara hönd í hönd,“ segir Magnús
Geir Þórðarson sem leikstýrir.
„Þetta er drepfyndið á yfirborð-
inu, en samt er verið að taka
þarna á erfiðum málum og sárs-
aukinn kraumar undir. Margir
hafa líkt þessu við leikrit eftir
Jim Cartwright og kvikmyndir
Mikes Leigh.“
Steinn Ármann Magnússon
leikur fyrrverandi Elviseftir-
hermu, sem hefur orðið fyrir því
óláni að lamast og eyðir ævinni í
hjólastól heima hjá sér í umsjá
eiginkonu og dóttur, og er að
miklu leyti út úr heiminum. Eigin-
konuna leikur Halldóra Björns-
dóttir en dótturina Álfrún
Örnólfsdóttir.
„Móðirin þjáist af anorexíu og
alkóhólisma og er jafnframt að
reyna að hafa stjórn á unglingn-
um á heimilinu, sem er haldinn
eldunaræði. Hún eldar og eldar
subbulegan mat beint upp úr
kokkabókum Elvis.“
Sjálfur Elvis Presley birtist
síðan ljóslifandi nokkrum sinn-
um, og er þá ekki ljóst hvort þar
er eitthvað yfirnáttúrlegt að ger-
ast eða hvort hann er að birtast í
draumi eða í huga persónanna.
„Það eina sem lifir eftir af föð-
urnum í þessari fjölskyldu er hug-
myndin um Elvis. Eina leið þeirra
mæðgnanna til að halda einhverju
lífi honum er að spila tónlistina
hans Elvis.“
Málin taka síðan að flækjast
þegar móðirin dregur heim til sín
ungan mann, Stefán að nafni, 26
ára deildarstjóra í kökugerð hjá
Myllunni. Það er Friðrik Friðriks-
son sem leikur þennan unga deild-
arstjóra.
„Dóttirin er ekki alveg sátt við
samband móður sinnar við þenn-
an unga mann og ekki er laust við
að Stefáni finnist sjálfum aðstæð-
urnar hálf undarlegar. Svo sígur
endanlega á ógæfuhliðina þegar
strákurinn lætur sér ekki nægja
lengur að vera með móðurinni.“ ■
Sársaukinn
kraumar undir
Kringlukránni í kvöld
Leikhúsgestir, munið spennandi matseðil !
HljómarHinireinu ogsönnu
ÁSTRÍÐURNAR ÓLGA Í SKUGGA LAMAÐS HEIMILISFÖÐUR
Halldóra Björnsdóttir og Friðrik Friðiksson í Eldað með Elvis, sem frumsýnt verður
í Loftkastalanum í kvöld.
■ LEIKSÝNING
KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR
Það er nóg að sjá í leikhúsunumum þessar mundir,“ segir
þingkonan Kolbrún Halldórsdótt-
ir. „Ég ætla að sjá Pabbastrák á
föstudaginn en svo ætla ég ekki að
missa af Meistaranum og Margar-
íta í Hafnarfirði. Ég get mælt með
Sporvagninum Girnd í Borgar-
leikhúsinu því sú sýning er áhrifa-
mikil, sterk og djörf. Svo er gam-
an að fylgjast með grasrótinni og
margt spennandi þar. Ég sá til
dæmis Ójólaleikritið fyrir stuttu
með leikhópnum Fimbulvetur og
hafði gaman af þeirri sýningu en
mig langar líka að sjá Bless Fress
í Loftkastalanum.“
Þetta vilég sjá