Fréttablaðið - 09.01.2004, Blaðsíða 46
Hrósið 46 9. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
Tökum á vestfirsku sjónvarps-myndinni Verði ljós, sem kvik-
myndafélagið Í einni sæng fram-
leiðir, lauk í fyrrinótt.
„Myndin gerist í rafmagnsleysi í
litlu þorpi þar sem gamli presturinn
er að halda hátíðarmessu sem hann
telur vera sína síðustu,“ segir
Jóakim Hlynur Reynisson, kvik-
myndagerðarmaður og leikstjóri,
sem gerir myndina ásamt Lýð Árna-
syni lækni. „Fólk drífur að í kirkj-
una en presturinn vill að messan
verði sem eftirminnilegust. Myndin
gerist nánast að öllu leyti í kringum
messuna.“
Verði ljós er önnur sjónvarps-
myndin sem Í einni sæng framleið-
ir en áður gerði fyrirtækið myndina
Í faðmi hafsins sem var í fullri
lengd. Verði ljós verður 25–30 mín-
útna löng og er tekin upp í Hóls-
kirkju í Bolungarvík. Sem fyrr
koma Vestfirðingar mikið við sögu í
myndinni.
„Það er erfitt að segja til um
hvenær myndin verður tilbúin,“
segir Jóakim Hlynur. „Við tökum
bara eitt skref í einu og vinnum nú
að því að koma henni lengra. Eftir-
vinnsla hefst innan skamms en
myndin verður kannski ekki tilbúin
til sýningar fyrr en annað haust.“ ■
Kvikmynd
VERÐI LJÓS
■ Tökur á myndinni Verði ljós er lokið.
Óvíst hvenær hún verður sýnd.
...fær Atlantsolía fyrir að
lækka verð á bensíni í Kópavogi
og vonandi víðar.
Fréttiraf fólki
Tökum lokið á Verði ljós
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Mijailo Mijailovic.
Dwight Malachi York.
Chelsea.í dag
Tveggja
turna tal í
Idol í kvöld
Kínverjar borga
600 þúsund
fyrir vinnu í
Kópavogi
Ekki lessur
lengur
Skemmtilegu jazzballett og freestyle nám-
skeiðin okkar hafa aldrei verið vinsælli.
Nú skráum við í:
JazzballettFreestyle
Innritun í síma 553-0786 eftir kl. 12.00
Dugguvogi 12
*Leið 4
stoppar
stutt frá
• 5-7 ára
• 8-10 ára
• 11-13 ára
• 14-16 ára
• 17 ára og eldri - dansandi í 10 ár
Upprennandi
kvikmyndastjarna
Guðrún María Bjarnadóttirhefur leikið hlutverk í þrem-
ur íslenskum bíómyndum þrátt
fyrir ungan aldur. Margir muna
eftir stjörnuleik hennar í kvik-
myndinni 101 Reykjavík en það
var leikstjórinn Baltasar Kormák-
ur sem uppgötvaði leikkonuna í
Guðrúnu. „Ég var að vinna í
sjoppu sem Baltasar verslaði oft í.
Þegar hann valdi í hlutverkin í 101
Reykjavík var hringt í mig frá
Casting og ég fengin í prufu. Ég
hafði íhugað að fara í leiklist en
ekki haft kjarkinn til að koma mér
af stað. Ég var til dæmis of feim-
in til að taka þátt í leikfélaginu í
skólanum,“ segir Guðrún.
Guðrún María fór einnig með
hlutverk í kvikmyndinni Villiljós
en nýlega hefur hún lokið við að
leika í kvikmyndinni Næsland
sem er væntanleg til sýningar á
þessu ári. „Í Næsland leik ég mis-
þroska stelpu sem á kærasta sem
er einnig svolítið eftir á,“ segir
Guðrún en breski leikarinn Mart-
in Compston sem sló í gegn í
myndinni Sweet Sixteen á síðasta
ári leikur kærastann. „Það var
mjög gott að vinna með honum,
þetta er frábær strákur og hæfi-
leikaríkur leikari.“
Guðrún reyndi þrisvar sinnum
að komast inn í Leiklistarskóla
Íslands. Hún komst í öll þrjú
skiptin í lokahóp úrtaksins og
hlýtur þar með að hafa slegið ein-
stakt met. „Ég fékk engar skýr-
ingar á þessu en meðhöndlunin á
skólaumsókninni er mjög gagn-
rýniverð. Kennarar við skólann
sitja í meirihluta dómnefndar og
velja sér því sjálfir sína nemend-
ur. Sami kjarninn var í nefndinni
öll árin sem ég sótti um en það
tíðkast hvorki í skólum í Bret-
landi eða Bandaríkjunum. Þegar
ég krafðist skýringa á því hvers
vegna ég komst endurtekið í
lokahópinn en ekki inn fékk ég
engin haldbær svör og mér finnst
það hneyksli fyrir skóla á
háskólastigi. Það ætti að sjálf-
sögðu að vera réttur manns að
sjá hvernig maður stendur sig á
inntökuprófum svo maður eigi
möguleika á að bæta sig.“
Í haust flutti Guðrún til New
York til að láta leiklistar-
draumana rætast. „Ég komst inn í
skóla sem heitir Stella Adler
Academy of Acting & Theatres og
gæti ekki verið ánægðari með
námið. Ég kann mjög vel við New
York og ætla mér að nýta þau rétt-
indi að mega búa í borginni í eitt
ár að loknu námi,“ segir hin upp-
rennandi leikkona að lokum. ■
ÁLFAR KOMNIR Í HEIMSÓKN
Myndin er tekin á þrettándanum á Þing-
eyri fyrir nokkrum árum. Vilborg ætlar að
segja frá þessum sérstæðu þrettánda-
siðum á kvöldvöku Kvæðamannafélagsins
Iðunnar í kvöld.
Sérstakur
siður
Þetta er nokkuð sérstakur siðurog öðruvísi en þekkist annars
staðar á landinu,“ segir Vilborg
Davíðsdóttir sem hefur verið að
rannsaka fyrir BA-verkefni sitt siði
barna á þrettándanum í fjórum bæj-
arfélögum hér á landi.
„Á þessum fjórum stöðum klæða
krakkar sig í búninga, ganga í hús
og sníkja sælgæti eða nesti. Stund-
um syngja þau líka.“
Vilborg þekkir þennan sið af eig-
in raun frá Þingeyri, þar sem hún er
alin upp. Hún hefur komist að því að
sami siður tíðkast í Grindavík og
Ólafsvík á þrettándanum. Í Ár-
skógshreppi er þetta einnig gert, en
reyndar á gamlárskvöld.
„Eftir því sem ég kemst næst
hefur þetta tíðkast á Þingeyri frá
því fyrir seinna stríð, um 1940.
Krakkarnir klæða sig upp sem álfa
og púka, tröll og jólasveina og
síðustu árin í vaxandi mæli sem
verur út teiknimyndaheiminum.“ ■
Slagurinn um stól Davíðs Odds-sonar er þegar hafinn þótt ekk-
ert hafi verið gefið upp um áform
leiðtogans fráfar-
andi. Björn
Bjarnason dóms-
málaráðherra hef-
ur að sögn lengi átt
sér þann draum að
verða formaður
flokksins og ber-
sýnilegt þykir að hann hafi hallað
sér þétt að Davíð til þess að auka
möguleika sína í þeim efnum.
Mannaráðningar Björns bera þess
merki að hann vilji eiga vísa náð
leiðtogans. Þorsteinn Davíðsson
Oddssonar var ráðinn aðstoðarmað-
ur og Ólafur Börkur Þorvaldsson,
dómari á Selfossi og náfrændi Dav-
íðs, var ráðinn dómari við Hæsta-
rétt þrátt fyrir að flestir aðrir um-
sækjendur hefðu verið taldir hæf-
ari. Þá vekur það athygli að Björn
gætir þess jafnan að fylgja Davíð
eftir í umdeildum yfirlýsingum um
menn og málefni. Athygli vekur að
Geir Haarde, varaformaður og höf-
uðandstæðingur Björns innan-
flokks, fylgir þeim ekki eftir í þess-
um efnum.
GUÐRÚN MARÍA BJARNADÓTTIR
Baltasar uppgötvaði Guðrúnu en hún hefur nýlokið við að leika stórt hlutverk í Næsland í
leikstjórn Friðriks Þórs.
Í FULLUM SKRÚÐA
Árni Tryggvason leikur aðalhlutverk mynd-
arinnar ásamt Hinriki Ólafssyni, Ólafíu
Hrönn Jónsdóttur og Halldóri Páli Eydal,
kirkjuverði í Bolungarvík. M
YN
D
/P
ÁL
L
Ö
N
U
N
D
AR
SO
N
Leiklist
GUÐRÚN MARÍA
BJARNADÓTTIR
■ Er hæstánægð í leiklistarnámi í New
York en þangað fór hún eftir að hafa
reynt þrisvar sinnum við
Listaháskólann hér á landi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A