Tíminn - 09.06.1972, Blaðsíða 7
TÍMINN
7
Föstudagur 9. júní 1972.
Tómahljóð í kollinum
Enskan er duttlungafullt
tungumál og lögmál hennar á
reiki. Þess vegna fékk Bogi
Ólafsson að reyna hið sama og
fleiri enskukennarar, að
stúdentsefnum sóttist námið
ekki ævinlega sem greiðast. En
með þvi að hann gat verið mein-
yrtur, er honum fannst slaklega
að verið, fuku honum stundum
eftirminnilegar setningar af
vörum i kennslustundum.
Einu sinni var það, að nem-
andi nokkur, er hann var að
krefja sagna, tók að berja hnú-
unum i höfuð sér, likt 'og hann
væri að reyna að hrista upp i
heilabúinu. Bogi horfði um
stund á þessar aðfarir, en sagði
siðan:
„Þetta þýðir ekkert, drengur
minn, það er ekkert þarna”.
Dýrt forsetakjör
Hver svo sem verður næsti
forseti Bandarikjanna, mun
hann sverja forsetaeiðinn i jan-
úar næst komandi. Undirbún-
ingur að þeirri athöfn er þegar
hafinn. Fulltrúadeildin hefur
ákveðið upphæðirnar, sem þarf
varðandi valdatöku forsetans,
en reiknað er með, að kostnað-
urinn verði ekki minni en
200.000.000 krónur.
*
Nú selja þeir
sendibréfin
Nú er svo komið, að sendibréf
eru orðin mikils virði, a.m.k. i
Englandi. Brezkt vikurit segir
frá þvi, að nýlega hafi bréf frá
kvikmyndastjörnu þöglu mynd-
anna, Ramon Navarro, verið
selt fyrir 1200 pund. Bréfið var
frá Navarro, og var hann að
þakka fyrir kvöldverðarboð,
sem honum hafði verið sent. En
það er hægt að selja bréf frá
fleirum en kvikmyndastjörnum
og frægu fólki, segir blaðið.
.Gömul bréf frá afa og ömmu,
t.d. bréf, sem segja frá lifinu i
Ástraliu fyrrá árum, frá lifinu i
fyrri heimstyrjöldinni, og öðru
álika geta verið mjög dýrmæt.
Hægt er að fara með bréfin til
British Museum, eða hvaða
safns annars i Englandi og fá
safnverði til þess að meta þau
að verðleikum. Ekki er rétt af
fólki að selja eitt og eitt bréf,
heldur fleiri saman, segir blað-
ið, og þurfi menn ekki á pening-
unum að halda, er rétt að biða
með að selja bréfin. Þau hækka
i verði.
*
*
jHH' 1 Rli f*
111 f7j f m- ' « fe' | w. "pm % /
Hótel í tunnum
*
Yfir mesta ferðamannatimann
er viðast hvað i heiminum
skortur á hótelrými, rétt eins og
er hér á tslandi. t Rúdesheim i
Þýzkalandi fékk hóteleigandi
nokkur þá hugmynd, að innrétta
tunnur sem gistirými fyrir
ferðamann. 1 hverri tunnu er
rúm fyrir tvo gesti. Þeir hafa
fataskáp i tunnunni, en i gólfi
hennar er hleri, sem hægt er að
opna, og ganga þar niður litinn
stiga niður i baðherbergi, sem
er undir tunnunni. Mikil aðsókn
er að þessu tunnuhóteli, og
verða þeir, sem óska eftir að
búa i þvi, að panta með löngum
fyrirvara.
100 ára gamalt
öl á uppboði
Englendingar, sem hafa hald-
ið þvi fram að undanförnu, að
ölið á kránum þeirra sé ekki
eins og það var hér áður fyrr, fá
brátt tækifæri til þess að sanna
það. A Christie-uppboðinu
þekkta, sem haldið er i London,
verður brátt boðin upp tylft
flaska af öli frá 1875, og sagt er,
að ekkert sé þvi til fyrirstöðu aö
drekka þetta öl, þótt gamalt sé.
Með ölinu verða einnig boðnir
upp vindlar, sem upphaflega
voru búnir til sérstaklega handa
Hermann Göring hinum þýzka.
*
Góður endir
Kona nokkur i London varð
amma, mamma og tengda-
mamma á einum degi. Það
gerðist, þegar hún endurheimti
allt i einu dóttur sina, sem hún
hafði ekki sé ð i fjöldamörg ár
og jafnvel talið að væri látin.
Dóttirin, Dora yfirgaf heimili
sitt og móður sina Dorothy
Reeds, þegar hún var 24 ára
gömul. Skömmu siðar hafði
lögreglan samband við
móðurina, og hún var fengin til
þess að koma og skoða lik
ungrar stúlku, sem talið var að
væri Dora. Ekki gat móðirin
staðfest að hér væri um lik
dóttur sinnar að ræða, þar sem
likið var svo illa farið. Hins
vegar þótti öllum það liklegt, úr
þvi engar fréttir bárust af Doru.
*
En Dora hafði allt i einu fengið
löngun til þess að hverfa að
heiman og lifa lifinu að eigin
geöþótta. Hún hitti ungan mann
og þau giftu sig og eignuðust
fjögur börn. Dora reyndi þó eftir
nokkurn tima að ná sambandi
við foreldra sina aftur, en þá
höfðu þau flutzt og hún fann þau
ekki. Þegar fram liðu stundir
fékk Dora mikla löngun til þess
að sjá foreldra sina aftur, og þá
sneri hún sér til Hjálpræðis-
hersins, sem aðstoðaði hana
við að finna foreldra hennar
Móðir hennar varð óendanlega
hamingjusöm, þegar hún
endurheimti dótturina, sem hún
hélt, að væri látin og barna-
börnin fjögur, Stephen sex ára,
Alen 5 ára, Carol.3 ára og hina
eins árs gömlu Söru.
DENNI
DÆMALAUSl
Læknirinn sagði, að hann hefði ’
ekki nema gott af þvl, að elta litla
strákinn i næsta húsi.