Tíminn - 09.06.1972, Síða 17
íiiviinux
STÖÐVAR VALUR SIGURGÖNGU FRAM
OG FA VESTMANNEYINGAR SIN FYRSTU
STIG í 1. DEILDARBARATTUNNI?
- úr þessu verður skorið nú um helgina
Vestmannaeyjar-Víkingur
10. júní - Vestmannaeyjavöllur kl. 16.00
Sævar Tryggvason, Vest-
mannaeyjum.
„Víkingarnir verða
erfiðastir”
— Nei, ég er langt frá þvi að
vera ánægður með fyrstu
leikina okkar. Það er alltaf
gamla sagan hjá okkur —
okkur gengur alltaf illa i
byrjun.
— Hinir leikirnir voru erfiðir,
en leikurinn gegn Vikingi
verður samt sá allra erfiðasti.
Vikingarnir léku tvo góða leiki
i vikunni, það virkar örugg-
lega vel á okkur — þvi að við
vitum þá, að það þýðir
ekkert annað en að berjast.
— Jú, fólkið hér i Eyjum er
mjög óánægt með okkur og
það svartsýnasta er byrjað að
tala um 3. deild næsta ár.
— Siðustu æfingarnar hafa
verið mjög góðar og er hugur
i mönnum að fara að fá stig,
þau fyrstu að sjálfsögðu þá
gegn Vikingi
Hafliði Pétursson.
„Flóðgáttin opnast
í Eyjum”
— Nei, það er ekki skemmti-
legt að leika leiki án þess að
skora mörk — en við ætlum
okkur að gera þar breytingar
á. Það má búast við, að flóð-
gáttin opnist i Vestmannaeyj-
um, og við munum skora þar
1-2 mörk, eða svo mörg, að það
dugi til sigurs.
— Vestmannaeyingar hafa
tapað sinum tveim fyrstu
leikjum, og við stefnum að þvi
að láta þá tapa þeim þriðja á
morgun.
— Við förum með alla okkar
sterkustu leikmenn til Eyja og
þeir eru allir ákveðnir að sigra
þar og koma til baka með tvö
stig.
— Nei, við verðum ekki i
fallbaráttunni i sumar. Það
verður annað upp á teningnum
hjá okkur.
— Jú, það er erfitt að leika
alla útileikina þrjá á einu
bretti, en illu er bezt af lokið.
AKRANES - BREIÐABLIK
10. júní - Akranesvöllur kl. 16.00
Matthias Hallgrimsson.
„Segja minna
og gera meira”
— Leikurinn við Breiðablik
leggst ekki allt of vel i mig.
Við áttum i erfiðleikum gegn '
þeim i fyrra, þegar við Iékum
við þá i fyrsta skipti á heima-
velli — þá gerðum við jafntefli
3:3, og máttum teljast heppnir
að hafa náð þvi.
— Við reynum að sjálfsögðu
að vinna þá á morgun, en ann-
ars vil ég segja sem minnst
um leikinn, og gera þeim mun
meira.
— Já, ég hef fengið tvær
áminningar i tveimur fyrstu
leikjunum, mér þykir það svo-
litið undarlegt, þvi að ég hef
aðeins fengið eina áminningu
áður, siðan ég byrjaði að leika
með meistaraflokki.
— Ég er kannski klaufi að
brjóta af mér, og ég hef ekki
ætlað að gera það, en þetta vill
oft koma fyrir I hita leiksins.
Þór Hreiðarsson, Breiöabliki.
„Eigum eftir að sigra
í mörgum leikjum”
— Við vorum slappir i fyrri
hálfleik gegn Val en siðari
hálfleik fór það að ganga betur
há okkur og sýndum við mjög
fjöruga kafla á lokaminútun-
;um.
— Sams konar kafla sýndum
við i Vestrrtannaeyjum, hann
stóð lengur yfir en gegn Val,
eða i 20 min, og skoruðum við
þá einnig tvö mörk. En annars
var leikurinn i Eyjum, glans-
leikur hjá okkur, og sýndum
við þá okkar bezta.
— Ég hef góða trú á, að við
eigum eftir að sigra i mörgum
leikjum sem eftir eru og
ætlum við okkur að byrja á
Skagamönnum á morgun.
Liðið hjá okkur er ekki enn
orðið fastmótað, en úr þessu
verður ekki langt að biða, að
svo verði.
— Við förum upp á Skaga til
að sigra.
Um helgina heldur baráttan i 1.
deild áfram á þremur vigstöðum
og má búast við jöfnum leikjum.
Eins og komiö er, er ekki hægt að
spá um hvaða lið sigri I. deildina.
Til þess eru liðin svo jöfn — það
má búast við að öll liðin i deild-
inni, verði mjög jöfn að stigum,
fram eftir sumri. Það er að segja,
að ekki nema 1—3 stig skilji efsta
og neðsta liðið. En siðar i sumar
má reikna með þvi að 2—3 lið fari
að skera sig út úr og 1—2 að
heltast úr lestinni.
Það hefur komið á óvart i 1.
deildinni i ár hversu íáránleg
niðurröðun leikja er. T.d. léku
Vikingar i Keflavík um s.l. helgi,
nú um helgina leika þeir i Vest-
mannaeyjum og svo fer næsti
leikur þeirra fram á Akranesi —
Vikingsliðið leikur þvi alla
útiieiki sina i röð. En aftur á móti
leika KR-ingar, ekki útileiki sina
fyrr en á timabilinu 22: júli til 19.
ágúst. Ef eitthvað hefur verið
hugsað um niðurröðina hefði átt
að samræma útileiki Vikings og
KR. En snúum okkur þá að
leikjunum sem fara fram nú um
helgina.
Vikingsliðið, heldur til Vest-
mannaeyja á laugardaginn og
leikur'þar við Eyjaskeggja, sem
eru örugglega i vigahug. Ef Vest-
mannaeyingar ætla sér að vera
með i baráttunni i 1. deild, verða
þeir að vinna leikinn. Þeir hafa
ekki unnið leik i keppninni og sitja
nú einir á botninum. Fyrst töpuðu
þeir óvænt á heimavelli fyrir
Breiðabliki og siðan komu þeir
enga frægðarför til Reykjavikur,
þar sem þeir töpuðu fyrir Fram.
Vikingsliðið hefur aftur á móti
nælt sér i eitt stig gegn Keflavík,
og ef þeir sýna eins góðan leik i
Eyjum, eins og þeir sýndu gegn
KR i Reykjavikurmótinu, má
alveg eins reikna með að liðið,
komi með bæði stigin frá Eyjum,
en þá verða leikmenn liðsins að
fara að skora mörk.
Á laugardaginn, fer einnig
fram einn leikur á Akranesi, þar
mæta Skagamenn, hinum bar-
áttuglöðu Breiðabliksmönnum,
sem unnu það afrek, að koma
með bæði stigin frá Eyjum og
stela sigrinum frá Val, á siðustu
sex min. á Melavellinum nú i
vikunni. Nú er stóra spurningin:
Hvað gera þeir á Skaganum, fara
þeir með bæði stigin þaðan?
Skagamenn eru örugglega ekki á
þeim buxunum, að fara að tapa
tveimur heimaleikjum i röð, á
heimavelli, en eins og menn
eflaust muna töpuðu þeir óvænt i
sinum fyrsta leik i deildinni þar
gegn Keflvikingum. Ef ég þekki
Skagamenn rétt, þá fara þeir ekki
að tapa tveimur dýrmætum
stigum á heimavelli til viðbótar,
þar sem þeir ætla sér að vera með
i baráttunni um Islandsmeistara-
titilinn.
Þá fer fram einn leikur á
Laugardalsvellinum, á mánu-
dagskvöldið — leika þá erki-
fjendurnir úr Reykjavik, Valur og
Fram. Má búast við æsispennandi
leik og mjög tvisýnum, þegar
liðin mætast — Valsmenn reyna
örugglega að stöðva sigurgöngu
Fram og Framarar að halda
toppsætinu i deildinni. Það er ekki
hægt að spá um úrslit leiksins, en
það má búast við þvi, að það lið,
sem nær völdunum á miðjunni,
sigri leikinn.
Á þriðjudaginn leika svo á
Laugardalsvellinum, KR og
Keflavik. Við munum minnast
nánar á hann, hér á siðunni, i
þriðjudagsblaðinu. SOS
VALUR - FRAM
12. júní - Laugardalsvöilur kl. 20.00
Staðan:
Fram 2 2 0 0 3:0 4
KR 3 2 0 1 5:3 4
Keflav. 2 1 1 0 3:1 3
Breiðab. 3 1 1 1 5:7 3
Akranes 2 1 0 1 3:3 2
Vik. 2 0 1 1 0:1 1
Valur 2 0 1 1 3:4 1
Vestm 2 0 0 2 .2:5 5
Markhæstu menn:
Atli Héðinsson KR 3
Steinar Jóhannss. tBK 2
Matthias Hallgrimss. 1A 2
Alexander Jóhanness. Val 2
Hinrik Þórhallsson Breiðab. 2
Óskar Valtýsson fBV 1
Simon Kristjánsson Fram 1
Bókanir:
Matthias Hallgrimss. 1A 2
Jón Guðlaugss. 1A 2
örn Óskarss. fBV 1
Óskar Valtýss. IBV 1
Guðni Kjartanss. tBK 1
Steinar Jóhannss. IBK 1
Atli Héðinss KR 1
Bergsveinn Alfonss. Val 1
Ingi B. Albertss. Val 1
Þór Hreiðarss. Breiðab. 1
Guðmundur Þórðars. Breiðab. 1
Sigurbergur Sigursteinss. Fram 1
Brottrekstur af leikvelli: Jón
Guðlaugsson tA
Úrslit í fyrra:
Vestm. — Vik —
Akranes — Breiðab. 3:3
Valur —Fram 5:3
KR — Keflav. 1:1
„Eigum ekki í vandræðum með Fram”
„Hvert stig er dýrmætt”
— Leikurinn við Fram legg-
st mjög vel i mig, viö vinnum
hann 4:2 og eigum ekki i vand-
ræðum með það, þvi að við
tökum öll völd i okkar hendur
strax i byrjun.
— Þótt Framliðið hafi ekki
fengið á sig mörk i Islands-
mótinu, erum við ekki hrædd-
ir, þvi að við skorum alltaf
mörk i leikjunum okkar og oft
ast fleiri en eitt.
— Við erum ákveðnir að
missa ekki sigurinn úr hönd-
unum á okkur á siðustu min.,
eins og i leiknum gegn Breiða-
bliki. Heldur verðum við hinir
öruggu sigurvegarar.
— Vil ég eindregið benda
þeim sem vilja koma og sjá
Vals sigur, á að koma á
Laugardalsvöllinn n.k. mánu-
dagskvöld. Þeir sem koma,
fara ekki vonsviknir heim.
Asgeir Eliasson Fram.
— Leikurinn við Val verður
mikill baráttuleikur þar sem
við munum leggja okkur alla
fram, þvi að hvert stig er dýr-
mætt. Ég held, að leikurinn
verði mjög góður og skemmti-
legur.
— Þegar liðin mættust i fyrra,
var leikur liðanna mjög vel
leikinn — spennandi frá fyrstu
min til þeirra siðustu. Atta
mörk voru skoruð i leiknum og
máttum við þola tap þá, 3:5.
— Ég tel, að það verði ekki
skoruð eins mörg mörk i leik
liðanna á mánudagskvöldið —
en annars er ekki hægt að spá
um það að svo stöddu. Það
getur allt gerzt i knattspyrnu,
eins og svo oft hefur komið
fram i yfirstandandi 1.
deildar-keppni.
— Við erum mjög ánægðir
með leikinn gegn Vestmanna-
eyjum, sem viö sigruðum um
s.l. helgi.
Ingi B. Albertsson