Tíminn - 16.06.1972, Page 15
Föstudagur 16. júni 1972.
TÍMINN
15
mt\ (iRKIFU’Kl':
Krókur á móti bragði
,Gefðu hættumerki,
borgari,” svaraði Chauvelin með
ákefð, „ella mun Satan sjálfur
hjálpa honum til að sleppa frá
okkur aftur”.
,,En ” stamaði Tournefort um
leið og hann þuklaði eftir blistru
sinni. „Við munum hafa þörf fyrir
alla þá hjálp, sem við getum
fengið,” svaraði Chauvelin
hvasst, „ef mér skjátlast ekki þvi
meira, þá er hér göfugra veiðidýr
til að elta en venjulegur götu-
slæpingi i Paris”.
Á meðan á þessu stóð hafði
Rateau labbað upp að brjóstvörn-
inni hægra megin á brúnni.
Tournefort gaf nánar gætur að
honum, en með sjálfum sér
undraðist hann mjög, hve æstur
Chauvelin var orðinn nú að sið-
ustu. Rateau hallaðist fram á
brjóstvörnina, eins rólegur og
áhyggjulaus og nokkur maður gat
verið. Hann hafði lagt böggul sinn
á steinhandriðið við hliðina á sér.
Hann beið þannig litla stund, unz
litill bátur kom i ljós úr skuggan-
um undir brúnni. Þá greip Rateau
böggulinn og kastaði honum niður
i bátkænuna. Á sama augabragði
heyrðist hvellt, skerandi blistur
frá Tournefort rjúfa rökkur-
kyrrðina á óþægilegan hátt.
„Bátinn, borgari Tournefort,
gættu að bátnum,” hrópaði Chau-
velin, „hér eru nógir menn til að
gæta flóttamannsins. „Út úr
skuggunum við brúarsporðinn
komu nú i ljós dökkir skuggar af
mönnum, sem þar höfðu leynzt.
Þeirhröðuðu sér upp á brúna um
leið og Rateau tók viðbragð til að
koma sér undan. Nokkrir þeirra
tóku hann höndum, en aðrir
hrópuðu á bátsmanninn að nema
staðar”, i nafni þjóðarinnar og
lýðveldisins.
En Rateau gafst upp alveg
orrustulaust. Hann virtist fremur
vera hissa en hræddur, og hann
veitti þjónum velferðarnefnd-
arinnar enga minnstu mótstöðu,
er þeir leiddu hann fyrir Chauvel-
in.
VI
i þessum sömu svifum kom
Tournefort til yfirboðara sins og
hafði meðferðis hinn dýrmæta
böggul. Kvað hann bátsmanninn
hafa látið hann af hendi án
nokkurra minnstu mótmæla.
„Maðurinn vissi alls ekkert um
þetta,” sagði Tournefort. „Hann
varð frá sér numinn af undrun,
þegar þessu flykki var kastað nið-
ur i ferjuna hans.”
Nú komu til nokkrir af her-
mönnum lýðveldisins, og leiddu
þeir fangann á milli sin fyrir
Chauvelin. Einn hermannanna
gekk fyrstur, hélt hann á saman-
brotnum bréfmiða i hendinni og
rétti hann að Chauvelin. „Þessu
hafði verið stungið undir borðann
á hatti fangans, borgari,” mælti
hann um leið og hann rétti
Chauvelin ljóskerið, sem hann
hélt á.
Chauvelin tók við blaðinu. óljós
geigur og grunur um hvað i vænd-
um væri olli þvi, að hönd hans
titraði og honum spratt sviti á
enni. Hann leit upp og sá fangann
standa frammi fyrir sér. Hann
þreif ljóskerið og lýsti framan i
fangann, sem hafði veitt svo
undurlitla mótstöðu eftir langan
og þrálátan eltingaleik.
Chauvelin rak upp hálfkæft
reiðiöskur. „Hver er þessi
maður?” hrópaði hann. Einn her-
mannanna varð fyrir svörum:
„Þetta er Victor gamli, veitinga-
maður i ,,La Bon Copain”. Hann
er heimskingi, og hefur nú verið
að gera eitt heimskustrikið”.
Tournefort hafði einnig rekið
upp undrunaróp, er hann sá
framan i gamla veitingamann-
inn. „Jean Victor!” hrópaði
hann. „Hvern fjandann ert þú að
gera hingað, borgari? „Chauvelin
greip aftur á móti harkalega i
handlegg fangans og mælti:
„Hvað á þetta að þýða?
Heyrirðu?” „O, það var bara
veðmál, borgari, alveg saklaust
veðmál”, svaraði Victor önugur.
„Er nokkur ástæða til að ráðast
svona á heiðarfegan borgara og
ættjarðarvin, fyrir engar sakir,
eins og hann væri óður hundur?”
„Veðmál, hvernig?” urraði
Chauvelin, sem varð æ reiðari og
æstari. „Við hvað áttu? Hver
ertu? Talaðu maður, annars skal
ég...”
„Nafn mitt er Jean Victor”,
svaraði fanginn. „Ég er veitinga-
maður i „La Bon Copain”. Fyrir
einni klukkustund kom maður inn
i veitingastofuna. Hann var
skritinn náungi, liklega tæringar-
veikur, og hafði hósta, sem gat
gert mann dauðhræddan. Nokkrir
af gestum minum þóttust þekkja
hann i sjón, sögðu að hann héti
Rateau og væri stöðugur gestur i
veitingahúsinu „Liberté” i
Kristinargötunni. Nú, nú, hann
fór að spjalla við mig og gestina.
Hann ruglaði um allt mögulegt og
veðjaði um allt mögulegt og
ómögulegt. Sum veðmálin vann
hann, en tapaði þó flestum. Skylt
er að geta þess, að hann borgaði
skilvislega, þegar hann tapaði.
Loks vorum við allir orðnir
ákafir, og veðmálin flugu eins og
skæðadrifa hornanna milli i stof-
unni. Ég vissi varla hvernig það
atvikaðist, en allt i einu bauð
hann að veðja við mig um nokkuð,
sem ég þyrði ekki að gera. Ég átti
að ganga i dimmunni alla leið til
Pont Neuf, klæddur i blússuna
hans og með hattinn hans og bera
böggulinn hans undir hendinni.
Hvort ég mundi þora það? Ha-ha,
ég, Jean Victor, sem var verð-
launaður hnefaleikamaður og
barsmiðaseggur á beztu árum
minum!
Ég bauð honum að veðja heil-
um gullpeningi um þetta, það
skyldi ég geta leyst af hendi eins
og að drekka. Hann bauð að bæta
fimm gullpeningum við, ef ég
gæti kastað bögglinum ofan af
brúnni og niður i einhvern bátinn,
sem alltaf eru á ferð um fljótið.
Nú, nú. borgari hélt Jean Victor
áfram og hló við. „Nú spyr ég,
AKRANES - STARF
Akraneskaupstaður auglýsir hér með eftir
starfsmanni til að taka að sér störf við
heilbrigðiseftirlit;
Starfið er hugsað sem hlutastarf.
Nánari upplýsingar veitir Þórður Oddsson
hérðaslæknir simi 93-1520, Hermann G.
Jónsson lögfr. simi 93-1822 og bæjarstjóri
simi 93-1211. Umsóknir sem tilgreini ald-
ur, menntun, fyrri og núverandi störf
sendist heilbrigðisnefnd Akraness Kirkju-
braut 8 fyrir 30. júni n.k.
Akranesi 16. júni 1972.
Heilbrigðisnefnd Akraness.
Kross
1131.
Lárétt
1) Skemmd,- 6) Komist,- 8)
Tind.- 9) Dropi.- 10) Eins.-
11) Spik,- 12) Ágóða.- 131
Efni,- 15) Tapa.
Lóðrétt
2) Dauða.- 3) Féll.- 4) Fölur,-
5) Laut.- 7) Hrekk- 14)
Tónn-
Ráðning á gátu No. 1130
Lárétt
1) Álfar,- 6) Afl,- 8) Lón,- 9)
Dóm -10) Gor,-11) VVV.- 12)
Aur - 13) lið,- 15) Halar,-
Lóðrett
2) Langvia.- 3) FF.- 4)
Aldraða.- 5) Slæva.- 7)
Smári.- 14) II.-
i
i I
iliiBI
Föstudagur 16. júni.
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Eftir hádegið. Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.30 Siðdeg i ss a g an:
„Einkalif Napóleons” eftir
Octave Aubry, i þýðingu
Magnúsar Magnússonar.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Lesin dagskrá næstu viku.
15.30 Miðdegistónleikar:
Sönglög.
16.15 Veðurfregnir. Létt lög.
17.00 Fréttir. Tónleikar.
17.30 Úr ferðabók Þorvalds
Thoroddsens.
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Frcttir. Tilkynningar.
19.30 Fréttaspegill.
19.45 Kókmenntagetraun.
19.30 Fréttaspegill.
19.45 Kókmenntagetraun.
20,00 Pinaókonsert i a-moll op.
133 eftir Max Iteger. Stross
kvartettinn leikur.
20.35 Tækni og visindi.
20.55 Frá austurriska útvarp-
inu: Strauss hljómsveitin i
Vinarborg leikur, polka og
valsa eftir Jóhann Strauss.
21.30 Útvarpssagan: „Nótt i
Klæng” eftir Jón I)an.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Gömul saga’
cftir Kristinu Sigfúsdóttur.
22.35 Danslög i 300 ár, — þriðji
þáttur. Jón Gröndal kynnir.
23.05 Á tólfta timanum. Létt
lög úr ýmsum áttum.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Föstudagur 16. júni.
20.00 Fréttir.
20.25 Vcður og auglýsingar.
20.30 A hrcfnuveiðum. Kvik-
mynd um hrefnuveiðar
feðga frá Súðavik. Sjón-
varpsmenn fengu að fylgj-
ast með i einni veiðiferð, en
þá fengu þeir þrettándu
hrefnu sumarsins. Umsjón
Ólafur Ragnarsson. Kvik-
myndun Sigurður Sverrir
Pálsson. Hljóðsetning
Marinó Ólafsson. Filmu-
klipping Sigurður Jón Ólafs-
son.
20.55 Kirathimo. I Kenya,
skammt frá Mairobi, er
þorpið Kirathimo (blessun).
Þar rekur Rauði krossinn
heilsugæzlustöð og veitir
ibúum héraðsins ýmiss kon-
ar fræðslu um heilbrigðis-
mál. Kvikmynd um þorpið
og starfsemina, sem þar fer
fram, var sýnd á alþjóðlegri
kvikmyndahátið Rauða
krossins i Búlgariu og hlutu
þar 1. verðlaun i flokki
stuttra heimildarkvik-
mynda. Þýðandi og þulur
óskar Ingimarsson.
21.15. Ironside. Orösending að
handan.Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.05 Erlend málefni.
Umsjónarmaður Sonja
Diego.
22.35 Dagskrárlok.
D
R
E
K
I
1 þessari tösku eru nöfn
allra hrægammanna,
sem starfab hafa hér i
borginni.
Einnig skrá um ^
glæpi þeirra. Ættí(
að vera auðvelt aö
ná þeim —
Hálfnað
erterk
þáhafiðer
sparnaðor
skapar
verðnueti
Samviiunbaiikliu