Fréttablaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 34
Aftur gefst veiðimönnum tæki-færi á að sækja námskeið á vegum Fluguveiðiskólans og Stangaveiðifélags Reykjavíkur, en skólinn hóf göngu sína í fyrra og voru nemendur mjög ánægðir með hann. Nú styttist í að veiðitíminn byrji fyrir alvöru og ekki seinna vænna að læra réttu handtökin fyr- ir sumarið. Eftir mjög góðan árangur síð- asta árs var ákveðið að bjóða veiði- mönnum upp á sömu námskeið og boðið var upp á í fyrra. Fyrirkomu- lagið verður með svipuðum hætti og kennarar verða þeir sömu, þeir Gísli Ásgeirsson, Einar Páll Garð- arsson, og Siggi Héðinn og munu þeir miðla af áralangri reynslu sinni á bökkum veiðivatnanna. Ákveðið hefur verið að lengja námskeiðin til að koma meira efni að, og til að skapa meiri tíma fyrir það efni sem áður var kennt. Nám- skeiðin verða þrjú kvöld í stað tveggja. Þar verður meðal annars fjallað um tækniatriði sem lúta að veiðitækjum s.s. stangir, hjól og lín- ur, fluguhnýtingu og efnisval, lest- ur vatns og veiðistaða, lax- og sil- ungsveiði, val á flugum, umgengni og meðferð afla og margt fleira. Námskeiðin fela í sér einstakt tækifæri fyrir veiðimenn til að auka þekkingu sína á sportveiði og öllu því sem að stangveiði lýtur. Að námskeiði loknu geta þátttakendur aukið ánægju sína í veiðinni næsta sumar og verið betur í stakk búnir til að nýta sér veiðidaga sína til fullnustu. Einnig er fyrirhugað að vera með kastsskólann á vegum Flugu- veiðiskólans eins og síðastliðið vor og verður hann haldinn í Hítará í maí. Þar verður kennt á einhendur og tvíhendur, á hefðbundnar línur og skotlínur. Fyrirhuguð eru þrjú námskeið á vegum Fluguveiðiskólans daganna 29. og 30. mars, 5. og 6. apríl og 19. og 20. apríl og kostar hvert nám- skeið níu þúsund krónur. Námskeið- in verða haldin í sal Stangaveiðifé- lags Reykjavíkur að Háaleitisbraut. Af hverju tekur laxinn? – Kvikmynd um veiðar Fleiri og fleiri bætast i þann hóp sem gefa sig í að gera kvikmyndir um veiði fyrir helsjúka veiðimenn. Allavega tveir hópar eru að vinna að slíkum verkefnum þessa dag- anna og annar þeirra er Gunnar Helgason ásamt þeim Ragnheiði Thorsteinsson og Einari Rafnssyni, en öll eru þau miklir veiðimenn. „Af hverju tekur laxinn?“ er heimildarmynd um fluguveiðar á laxi á Íslandi. Þar er leitað svara við ýmsum spurningum, sem við- koma veiðiskapnum og auðvitað fluguveiðinni. Myndin er þannig byggð upp, að Gunnar Helgason fær svör við flestum þeim spurningum sem fara í gegnum huga veiðimanns á ár- bakkanum. Hann fær til liðs við sig vana veiðimenn sem kenna honum að kasta flugu og hnýta. Hann lærir hvernig á að nálgast veiðistaði og lesa vatnið. Það verður spennandi að sjá hvernig til tekst með þessa mynd, hugmyndin er góð. Einhverjir fleiri eru að spá í gerð myndar og hefur nafn Karls Lúðvíkssonar verið nefnt í því sambandi nokkrum sinn- um. ■ 34 13. mars 2004 LAUGARDAGUR Á veiðum GUNNAR BENDER ■ skrifar um veiðiskap. Siggi, Páll og Gísli kenna réttu handtökin ■ Veiðifréttir SJÓBIRTINGSTÍMABILIÐ AÐ HEFJAST Það er greinilegt að veiðiskapurinn er að byrja fyrir alvöru, veiðimenn eru byrjaðir að athuga veiðidótið og kanna stöðuna. Sjóbirtingstímabilið byrjar eftir 18 daga og horfur eru fínar, klakinn að fara, eftir miklar rigningar og fiskurinn vonandi enn- þá á staðnum. SEIÐUM SLEPPT Eins og hefur komið fram í fjölmiðlum kom upp nýrnaveiki í nokkrum seiðaeldis- stöðvum og varð að slátra meðal annars seiðum af stofni Breið- dalsár og Hrútafjarðarár. Megnið af seiðum úr þessum veiðiám var alið í öðrum seiðaeldisstöðvum, svo líklegt er að þetta hafi lítil áhrif á áætlanir varðandi slepp- ingar í þessar veiðiár í vor. Til ráðstöfunar eru ennþá um 150 þúsund gönguseiði í Breiðdalsá og að hluta í Laxá í Nesjum, sem er tvöföldun frá fyrri slepping- um. Í Hrútafjarðará mun verða sleppt um 10 þúsund gönguseið- um, sem einnig er aukning á milli ára. AÐALFUNDUR Aðalfundur Stanga- veiðifélags Akureyrar verður hald- inn í dag klukkan tvö í Gróðrastöð- inni, Krókeyri, en allir stjórnar- menn gefa kost á sér til áframhald- andi setu í eitt ár. Tillaga stjórnar um skoðunarmenn verður borin fram og er gerð tillaga um Kristján Þór Júlíusson og Sigmund Ófeigs- son. Núverandi formaður félagsins er Ragnar Hólm Ragnarsson. GESTUR Í VEIÐIHORNINU Andy Murray, frá House of Hardy, verð- ur gestur Veiðihornsins um helgina og kynnir allt það nýjasta frá Hardy og Greys. Andy verður til skrafs og ráðagerða í Veiðihorninu í Hafnarstræti á milli tíu og tvö í dag. Ef veður leyfir mun Andy vera með sýnikennslu í fluguköst- um. VIÐ NORÐURÁ Einar Páll Garðarsson, Sigurður Héðinn og Gísli Ásgeirsson við Norðurá í Borgarfirði, en það styttist verulega í að veiðitíminn byrji fyrir alvöru. Kaflaskil verða í sögu BDSM-félagsins á Íslandi undir lok mánaðarins þegar stjórn þess mun leggja til að félagið verði svæft um óákveðinn tíma. BDSM er samheiti fyrir kyn- ferðislega bindi-, drottnunar- og sadómasókistaleiki og munalosta sem ætlað er að auka munað þeirra sem það stunda. Fullyrt er að á milli 20 og 30 þúsund Íslend- ingar stundi BDSM reglulega eða hafi löngun til að gera það en mis- jafnt er hvar áhugasvið hvers og eins liggur. Á meðan sumir eru fyrir léttar bindingar eru aðrir haldnir þörf fyrir mikinn sárs- auka. Það stangast hins vegar á við hinn meinta áhuga, að ástæðan fyrir því að félagið verður lagt í dvala er sú, að léleg þátttaka hef- ur verið á kynningarfundum og námskeiðum félagsins og almennt hafa æ færri tekið virkan þátt í starfsemi þess. Þetta má lesa í að- alfundarboði félagsins, en aðal- fundur verður haldinn þann 30. mars. Í boðinu segir jafnframt að félagið sé í raun orðið óþarft, a.m.k. eins og ástandið er nú: „Þeir fáu sem taka reglulega þátt í starfi félagsins þekkjast orðið mjög vel og lítil nýliðun í þeirra hópi. Þessi hópur getur vel lifað áfram án formlegs opinbers starfs.“ Öryggi, meðvitund, samþykki BDSM á Íslandi var stofnað á gamlársdag árið 1997 og er því á sjöunda starfsári. Lengi vel var nokkur kraftur í starfseminni, reglulegir fundir voru haldnir þar sem fólki gafst kostur á að kynn- ast, spjalla um hugðarefni sín og fræðast um nýjungar. Lög og reglur félagsins eru víð- tækar og skýrar og er þar meðal annars fjallað um meginskilyrðin þrjú: Öryggi, meðvitund og sam- þykki. Fram kemur að markmið fé- lagsins séu meðal annars: Stuðn- ingur, aðstoð og kennsla auk þess sem því er ætlað að uppfræða ein- staklinga og standa vörð um laga- legan rétt þeirra til að stunda BDSM, leiðrétta ranghugmyndir og fordóma gagnvart BDSM og fræða fólk um muninn á ofbeldi og öruggum, meðvituðum og sam- þykktum BDSM-leik. Munalosti Eins og áður sagði er svonefnd- ur munalosti einn þáttur BDSM. Í fundarboði frá því í sumar var slíkur losti skýrður á þann veg að hann snerist um hluti, aðra en lík- ama eða persónutöfra. Nefnt var að algengt væri að fólk hafi muna- losta fyrir ákveðnum klæðaefnum og voru leður, latex og silki nefnd til sögunnar auk þess sem ákveðn- ar tegundir fatnaðar voru sagðar vinsælar, t.d háhæla skór eða ein- kennisbúningar. Þá var sagt að engin takmörk væru fyrir því hvað höfðar til fólks, „allt frá byssum til útblást- urs fólksbíla“! Sumir vilja líka meina að hrifning af ákveðnum líkamshlutum eins og brjóstum, hári eða stinnum rasskinnum flokkist einnig til munalosta, sagði í fyrrnefndu fundarboði. Regngallar Lítil sem engin takmörk virð- Stjórn BDSM-félagsins hefur lagt til að félagið verði lagt niður um óákveðinn tíma. Allur vindur virðist úr starfseminni, lítil nýliðun er í félagsskapnum og hóp- urinn sem þó mætir sér litla þörf á því að hafa starfsemina opinbera lengur. Fáir mæta í sadómasó FÉLAGIÐ LAGT NIÐUR BDSM-félagið, sem er m.a. félagsskapur þeirra sem að- hyllast kvalalosta, var stofn- að árið 1997. Nú leggur stjórnin til að það verði lagt niður um óákveðinn tíma, vegna lítils áhuga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.