Tíminn - 08.10.1972, Síða 19
Sunnudagur 8. október 1972.
TÍMINN
19
Murtuveiðar
Framhald
af bls. 11.
er vatnsbotninn þar 11 m undir
sjávarmáli.
Það ber að geta þess. að Veiði-
málastofnunin hefur farið á stað
með rannsóknir á vötnum lands-
ins, og i sumar var ungur fiski-
fræðingur. Jón Kristjánsson að
nafni. við rannsóknir á Þingvalla-
vatni. en niðurstöður þeirra
liggja ekki fyrir enn. Rannsakaði
hann nxa. kvarnir bleikju, sem
nokkuð er af i vatninu, og eftir
þeim að dæma telur hann, að of
litið sé veitt i vatninu, þannig að
ekki séu eðlileg lifsskilyrði. Um
murtuna er það að segja, að hún
er svifæta og nærist einkum á
krabbafló, en komið hefur til tals,
að flytja vatnarækju til átu. Hafa
tilraunir i Sviþjóð með að flytja
vatnarækju milli fjallavatna gef-
izt mjög vel.
í sumar var stofnað veiðifélag
19 jarða i Þingvallasveit, sem
land eiga að vatninu. Er ætlunin
að gera stórátak i þvi að vernda
og friða vatnið, en mikill mis-
brestur hefur verið á þvi siðari
ár. Mikill aragrúi sumarbústaða
er við Þingvallavatn, t.d. einir 40 i
Kárastaðalandi. en yfir hundrað
á annarri jörö. Hafa margir
bændur reynt að færa „sumar-
hyskið” sér i nyt. Leyfilegar eru
300 stengur i vatninu nú, en Guð-
björn sagðist vita til, að einn
bóndinn hafi veitt leyfi fyrir allt
að 600 stöngum á sinu svæði með
10 ára leiguskilmálum.
— Svo að aftur sé vikið að
murtunni, þá má rekja veiðisögu
hennar frá þvi fyrir aldamót eftir
skýrslum. Lengi vel var murtan
notuð i vöruskiptaverzlun við
bændur i grannsveitunum. Var þá
skipt á þúsund stykkjum af salt-
aðri murtu og veturgamalli kind
eða einni tunnu af kartöflum.
Komu menn óðfúsir eftir fisk-
metinu úr Laugardalnum,
Biskupstungum og Grimsnesi og
vestan úr Kjós.
Fyrst var farið að veiða murt-
una til vinnslu, er Sambandið
setti upp söltunarstöð á Þing-
völlum árið 1939, en sú vinnsla
gekk aðeins eitt sumar. Þá var
einnig reynt að frysta murtuna til
útflutnings, en það blessaðist ekki
heldur. Murtan er mjög viðkvæm
fyrir allri geymslu og frystingu,
og sagði Guðbjörn hana óæta ef
hún lægi eina nótt óslægð.
Það var svo árið 1953 eða fyrir
um 20 árum, að niðursuðuverk-
smiðjan Ora fór að kaupa murt-
una til niðursuðu, og hefur sú
starfsemi gengið óslitið siðan.
Meðan veiðitiminn stendur yfir,
kemur vörubill frá verksmiðjunni
daglega og safnar saman veiðinni
hjá viðskiptavinunum, tólf bæjum
kringum vatnið. Er afraksturinn
yfir daginn 1 til 3 tonn eða meira.
Fréttamaður hafði samband
við Tryggva Jónsson, forátjóra
verksmiðjunnar Ora — kjöt og
rengi, i Kópavogi, og ræddi við
hann um starfsemina. Murtan er
soðin niður i dósir, 4 eða 5 stykki i
dós. Er framleiðslan svo til ein-
göngu flutt út. Mjög litil eftir-
spurn er eftir murtunni hér á
landi, enda þótt hún sé herra-
mannsmatur, (þar get ég talað af
reynslu, þvi murtan, sem ég fékk
hjá Guðna, bragðaðist skinandi
vel, steikt i heilu lagi).
Framleiðslan er mest flutt út til
Bandarikjanna, Frakklands og
Vestur-Þýzkalands og hefur eftir-
spurn verið næg.
Murtan þykir mjög finn matur
og er borin fram með alls konar
góðgæti, sem sérréttur, forréttur,
á finustu hótelum i New York. Ef
til vi 11 þykir hún eftirsóknarverð-
ari vegna þess, hve fágæt hún er,
en talið hefur verið, að hún sé
aðeins til hérá íslandi. Auk Þing-
vallavatns þar sem hún er i lang-
mestu magni, finnst murtan
einnig i einhverju vatni i Þing-
eyjarsýslu, Hraunsvatni i öxna-
dal og Hestvatni i Grimsnesi, að
sögn Tryggva. Þá hefur hann
fengið senda murtu til sýnis úr
Skagafirði, og er sú stærri en i
Þingvallavatni.
Eins og áður segir hafa þegar
veiðzt um 16 tonn af murtu i
haust. 1 fyrra veiddust 43 tonn, en
1963 veiddust yfir 70 tonn og er
það metár.
1 fyrra bórgaði Tryggvi bænd-
unum um 40 krónur fyrir kilóið af
murtunni, en hann sagðist ekki
vita, hvað verðið yrði i ár.
— Stp
NORSKU
landhelgisKORTIN
fást á ritstjórn
Timans.
Send i póstkröfu.
Takmarkaö upplag.
Verð krónur 45.
Allurágóði rennur i Landhelgissjóðinn.
SkwbMRcoupé
- riiMagiilnm-r.irr -- „ PARDUSINN *S
O“Þ0
kaupir þennan
sportbíl fyrir aðeins
Kr. 305.600.00
það er að segja
TÉKKNESKA
BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H.F.
ef þú kaupir
AUÐBREKKU 44-66 SlMI 42600 KÓPAVOGI
hann strax.
SÖLUUMBOÐ A AKUREYRI; SKODAVERKSTÆÐID KALDBAKSG. tt B SlMI 12520
Við flytjum búðina (nokkur hænufet)
að Nybýlavegi 8
Frá gömlu búðinni þarf aðeins að fara undir
fínu umferðabrúna og smáspöl af
Nýbýlaveginum (rennisléttum með nýlagðri
olíumöl) að númer 8.
Þar höfum við opnað svo stóra sölubúð
að við getum sýnt yður allar búðarvörur
okkar við góðar aðstæður — og það er meira
en við gátum stært okkur af í gömlu
búðinni.
NYBVLAVEG 8 SÍMI:41000
BYG GIN GAVÖ RUVERZLU N /ICS.
KÓPAVOGS /y
BYKO