Fréttablaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 44
„Það er eins gott að maður fitni ekkert í þessum búningi.“ Varnarmaðurinn sterki Pétur Marteinsson við sænska dagblaðið Aftonbladet um nýjan búning Hammarby-liðsins. Það er ítalski íþróttavöruframleiðandinn Kappa sem framleiðir búningana sem eru vel þröngir eins og glöggt má sjá á þessari mynd sem fengin er frá vefsvæðinu hammarbyfotboll.se 24 11. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR Við undrumst... ... að Jaliesky Garcia skuli ekki sýna handboltalandsliðinu og íslensku þjóðinni meiri virðingu en svo að hann taki frí á sólarströnd með konunni fram yfir undirbúning með landsliðinu fyrir heimsmeistaramót. Hann fékk íslenskan ríkisborgararétt fljótt og gat fyrir vikið gerst atvinnumaður í Þýskalandi. Við segjum bara; „Sjaldan launar kálfurinn ofeldið.“sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 8 9 10 11 12 13 14 Þriðjudagur JANÚAR FÓTBOLTI „Okkur hefur tekist mjög vel upp í þessari keppni hingað til og ef heppnin er með þá getum við alveg velgt Liverpool undir uggum,“ segir Heiðar Helguson, sóknarmaður hjá Watford, en lið hans mætir Rauða hernum í und- anúrslitum enska deildarbikars- ins á Anfield í kvöld. Heiðar hefur staðið sig eins og herforingi þessa leiktíðina með liði Watford og vakið verðskuld- aða athygli fyrir einbeitni og djörfung sem honum einum er lagið. Hann er hvergi banginn við stórlið Liverpool enda hefur Watford nú þegar skotið úrvals- deildarliðunum Southampton og Portsmouth næsta auðveldlega úr keppninni. Hann segir þó mikið velta á hvernig liði Liverpool tefli fram. „Það er óvíst hvort þeir nota alla sína bestu menn eða hvort það verður blanda af jöxlum og ungum og óreyndari leikmönn- um og á því veltur hvernig við mætum þeim þegar leikurinn hefst. Við erum með fullt lið og fullir bjartsýni og með heppni náum við jafntefli og mögulega sigri.“ Jafntefli yrðu góð úrslit fyrir Watford því um er að ræða tvo leiki milli félaganna og fer seinni leikurinn fram á Vicarage Road, heimavelli Watford. „Auðvitað yrði það þægileg staða að ná jafntefli á Anfield og eiga heimaleikinn eftir en við sjáum hvað setur. Liðið er allt klárt og það er mikið sjálfs- traust hjá strákunum, mun meira eiginlega en þegar við spilum í deildinni og það mun hjálpa okkur. Einnig er um tals- verða peninga að ræða hvort sem við komumst áfram eða ekki og þar sem félagið er í fjár- hagsvandræðum þá skipta þess- ir leikir miklu máli.“ Leikurinn verður sýndur beint á Sýn í kvöld klukkan 19.50. albert@frettabladid.is HEIÐAR Í LEIK Gengi Watford í deildinni hefur vakið vonbrigði aðdáenda en í ensku deildarbikarkeppninni hafa liðsmenn allir sem einn farið á kostum. Fáir þó meira en Heiðar sem telur möguleikana gegn Liverpool hreint ágæta. Engin hræðsla við Liverpool Heiðar Helguson, sem farið hefur á kostum með Watford í vetur, verður í fremstu víglínu þeirra gul- klæddu þegar þeir mæta Liverpool á Anfield Road í undanúrslitum ensku deildabikarkeppninnar í kvöld. ■ ■ LEIKIR c 19.15 KR og ÍS eigast við í DHL- höllinni í 1. deild kvenna í körfuknattleik. ■ ■ SJÓNVARP c 19.50 Liverpool og Watford á Sýn. Bein útsending frá leik liðanna í undanúrslitum deildarbikarsins. Hluthafafundur hjá Valsmönnum hf. haldinn miðvikudaginn 19. janúar árið 2005 kl. 20.00 í Valsheimilinu að Hlíðarenda, Reykjavík. DAGSKRÁ. 1. Tillaga um samþykki hluthafafundar á kaupum Valsmanna hf. á byggingarrétti á Hlíðarendareit. 2. Tillögur um heimild til stjórnar Valsmanna hf. um hlutafjáraukningu í félaginu. Gert er ráð fyrir að forgangsréttur verði ekki virkur nema fyrir hluta aukningarinnar. 3. Önnur mál. Stjórn Valsmanna hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.